Morgunblaðið - 28.02.1993, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.02.1993, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1993 EIMSKIP AÐALFUNDUR HF. EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS verður haldinn í Súlnasal Hótels Sögu fimmtudaginn 4. mars 1993, og hefst kl. 14.00. ----- DAGSKRÁ -------- 1. Aðalfundarstörf samkvæmt 14. grein samþykkta félagsins. 2. Önnur mál, löglega upp borin. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík frá 1. mars til hádegis 4. mars. Reykjavík, 1. febrúar 1993 STJÖRN HF. EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS PASKAR Á HÓTEL ÖRK 7.-12. aprfl 1993 Fjölbreytt dagskrá alla dagana og lands- þekktir listamenn skemmta á kvöldin. Verð frá kr. 3.950,- fyrir manninn á nótt í tvíbýli. Innifalið: Gisting, morgunverður af hlaðborði og þríréttaður kvöldverður, þ.m.t. hátíðarkvöldverður á páskadag. Á Hótel Örk eru öll herbergi með baði, síma, út- varpi, sjónvarpi og smábar. Veitingasalir og barir eru notalegir og hlýlegir. Gestir hafa frían aðgang að upphitaðri útisundlaug með vatnsrennibraut og heit- um pottum, gufubaði með jarðgufu og líkamsræktar- sal. Á hótelinu er nuddstofa, hárgreiðslu- og snyrti- stofa með ljósabekkjum. Við hótelið eru 2 tennisvell- ir, 9 holu golfvöllur, púttvöllur og skokkbraut. Hesta- leiga er í nágrenninu og unnt er að taka þátt í skipu- lögðum ævintýraferðum um fjöll og firnindi. TRYGGÐU ÞÉR PLÁSSITÍMA í SÍMA 98-34700. HÓTEL ÖÐK HVERAGERÐI MUNIÐ GJAFAKORTIN VINSÆLU LÆKNISFRÆÐI/Út afhverju stœkkaöi heilahúiöf Hönd og hugur eftir Þórarin Guðnason FYRIR óralöngu eða um það bil þremur milljónum ára hættum vér mennirnir að trítla á fjórum fótum eins og hinar skepnurnar og risum upp á skottleggina. Þá urðu framfæturnir lausir og liðugir, lausir við að taka þátt í röltinu og reiðubúnir að sinna öðrum verkefnum. Loppan breyttist smám saman í hönd sem reyndist hið mesta þarfa- þjng í veiðiskap og annarri fæðuöflun. Hún var líka laus og til taks ef mað- urinn þurfti að veija sig eða heija á aðra og ómetanleg var hún til að snyrta steinflís eða tijágrein og gera úr þeim vopn eða verkfæri. Þannig breytti höndin heimi mannsins og þeir margvíslegu kostir sem hún bauð upp á beindu hugsun hans inn á nýjar og flóknar brautir. Líffæri hug- ans, heilinn, stækkaði og þar kom að honum fannst þröngt um sig og heimtaði stærra heilabú. Það var látið eftir honum eins og sjá má á hausaskeljum frum- manna sem fundist hafa í Afríku og Asíu. Heilabú nútímamanns er ílát sem rúmar þrisvar eða fjórum sinnum meira en tíðkaðist á dögum þessara fortíðarkappa. Að vísu munu þeir hafa verið lægri í loftinu en nú gerist eða 100-120 sentímetrar og fótspor eftir þá í jarðvegi sem hefur steinrunnið segja svipaða sögu. Tíminn silast áfram og sáldrar dusti sínu yfir það sem einu sinni var. Svo koma forvitnir náungar „Gamalt spor eftir lítinn fót.“ sem skafa og sópa og leita að hinu týnda og vita þó ekki ævin- lega að hveiju þeir eru að leita. í miklu árgili, Olduvai-gljúfri, austarlega í Afríku þar sem nú heitir Tansanía, hafa á okkar öld fundist beinaleifar sem fylla upp í sumar eyðurnar í þróunarsögu mannsins. Olduvai er nærri 50 km langt, 90-100 metra djúpt og veggirnir setlög og gosaska ur eldfjöllum í grenndinni. Vís- indamenn skipta veggjunum í sjö lög eða belti og byija neðst, eins og nærri má geta. Fyrsta lagið er um 60 metra þykkt og telst mönnum svo til með aldursgrein- ingu að sá hluti veggjanna og það sem í honum finnst sé varla yngra en tveggja ármilljóna en þar hafa auk beina og frum- stæðra verkfæra fundist leifar mannabústaða sem voru þann veg gerðir að tijágreinum var stungið í jörðina og þær látnar mynda hring en tilhöggnu grjóti síðan hlaðið að til styrkingar. Bein úr antilópum og fleiri veiði- dýrum í nánd við þessa bústaði bera gjarnan með sér að þau hafi verið brotin til mergjar. í næsta belti fyrir ofan eru sum verkfærin orðin í líkingu við axir og þannig má lesa söguna til meiri útsjónarsemi því ofar sem dregur í hlaðanum. Hvaða ályktanir draga svo fortíðarfræðingar af því sem fundist hefur í Olduvai og víðar í löndum um miðbik jarðar? Erum við komin af öpum eða eru þeir bara fjarskyldir ættingjar okkar? Enn eru skoðanir skiptar, en flestir sem best ættu að þekkja til álíta að leiðir manns og apa hafi skilist fyrir 15-20 milljónum ára; aparnir héldu áfram að spranga í tijám skógar- ins en mannkvíslin færði sig nið- ur á graslendið og settist þar að. Og þá er mál að víkja aftur að stærð heila og heilabús. Hjá elstu manngerðum sem hér hefur verið minnst á virðist heilinn hafa verið 4-500 fersentímetrar en nú á dögum varla minni en tólf til átján hundruð. Ætli spakmælið „Heimskur er jafnan höfuðstór“ sé ekki öfugmæli þegar betur er að gáð? ÞJÓÐLÍFSÞANKAR /Eiga ekki allir aö fá tækifœrif Lýðræði eðaforréttindi EINN ágætur menntaskólakennari sagði við mig um daginn að hann teldi íslenska skólakerfið í meira lagi brogað. „Við höfum gengið allt of langt í að breyta, breytinganna vegna,“ sagði hann. „Heldur þú að það sé nokkuð eðlilegt við það að hátt í helming- ur unglinga í síðasta bekk grunnskólans falli á prófum? Þetta segir okkur að eitthvað mikið er að. Kannski er þetta afleiðing af öllu fijálsræðinu sem innleitt var í skólakerfið uppúr ’68-hrær- ingunum. Við það minnkaði aginn. Það verður að halda aga, annars fer illa,“ sagði þessi ágæti skólamaður.“ Námsráðgjafi sem ég hafði einnig tal af fyrir skömmu sagðist vera þeirrar skoðunar að taka ætti upp þann sið að raða í efri bekki grunnskólans eftir námsgetu og hafa færri nemendur í þeim bekkjum þar sem námsget- an er minni, en fjöiga að sama skapi þar sem getan er meiri. „Árum saman hefur ekki mátt tala um að raða í bekki eftir náms- getu, en það er eina vitið,“ sagði þessi námsráð- gjafí. 'Fólk sem sinnir slíku starfí Veit betur en flestir aðrir hvernig ástandið er í þessum málum. Til námsráðgjafanna -koma þeir sem æiga í vandræðum og'þeir eru víst • alltéf margir ef marka má"þauorð sem vitnað er til að framan. í umræðunni um skólakerfíð heyrast margar raddir. Ein þeirra segir að úr því að grunnskólamir séu svona slæmir sé best að koma á fót sem flestum einkaskólum á □ eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur grunnskólastigi, þar fái fólk góða menntun. í grundvallaratriðum er ég ósammála þeirri rödd. Þar fyrir utan eru algerir einkaskólar varla fyrir hendi hér á landi. Þeir skólar sem kalla sig einkaskóla hér eru ríkisstyrktir að hluta. Mér finnst að í lýðræðisþjóðfé- Iagi eigi samfélagið að reka góða skóla fyrir alla. Skólakerfíð á að vera eins pottþétt og hægt er. Það á að sjá um að öll börn, án tillits til efnahags foreldra, fái sem best- an undirbúing undir lífið. Ef fólki er mismunað í æsku hvað menntun snertir er ekki að búast við _að einstaklingsframtakið, sem við ís- lendingar metum mikils, fái að ajóta sín. Hvað er að marka keppni þar sem sumir -fara af stað langt á undan hinum? • '"v _ J , . Það er ekki lýðræðislegt áð láta efnahag ráða menntun barna, það er forréttindaskipulag. Það ér ekki aðeins ranglátt, heldur líka hættu- legt. Þá missum við af mörgu hæfileikafólki, þar sem vitað er að gáfur barna og annað atgervi standa ekki í neinu sambandi við efnahag foreldra þeirra. Ef við viljum heilbrigt samfélag verðum við að horfa út fyrir raðir fjölskyld- unnar. Við þurfum hæft fólk en ekki bara okkar fólk, hvemig sem það er. Úr mannkynssögunni má tína til ótal dæmi um fátæk börn sem skipuðu sér í forystusveit vegna andlegra hæfileika sinna. Nýjasta dæmið er Clinton Banda- ríkjaforseti, sem er af efnalitlu fólki kominn, en fékk tækifæri til þess að mennta sig með þeim árangri sem við höfum fylgst með að undanförnu. Þegar þetta sjónarmið er haft í huga er sárt til þess að vita hvernig komið er fyrir skólakerfí okkar. Það er nefnilega ekki svo að menn hafi ætlað sér að eyði- leggja neitt á þeim vettvangi, held- ur hefur m.a. nýjungagirni og óvarkárni ráðið um. of ferðinni. Það er hyggilegt að tregðast við að breyta því sem vel hefur reynst. Hið agaða skólakerfí sem fólk, sem nú er á miðjum aldri ólst upp við, gafst vel. Eg hef haft spurnir af að verið sé að endurskoða grunn- skólalögin. Ég vona að fjármagn verði fyrir hendi til þess að fram- fyljpa mýjum grunnskóialögum og Vað þau færí okkur betri sköla. Yfirvold ættu líka að hafa að leið- arljósi að gera svo vél við kennara og aðra uppalendur í samfélaginu sem efnahagslegar forsendur framast leyfa. Hæfir uppalendur skila hæfu fólki. Það eru gömul sannindi og ný.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.