Morgunblaðið - 28.02.1993, Page 12

Morgunblaðið - 28.02.1993, Page 12
12 B morgunblaðið MEIMNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1993 Sýnd á næstunni; Bill Murray í „Groundhog Day“. • 15.000 séð Heiðursmenn ALLS hafa um 15.000 manns séð réttardramað Heiðurs- menn í Sljörnubíói að sögn Karls O. Schiöth bíóstjóra. Hann sagði að góð aðsókn væri á Drakúlamynd Francis Ford Coppola, en 3.500 manns sáu hana fyrstu sýningarhelgina. Þá hafa um 3.000 manns séð spennu- myndina Þrumuhjarta og rúmlega þúsund manns Hjónabandssælu Woody All- Næstu myndir Stjörnubiós eru „Mo’ Money“ með Dam- on Wayans og „Accidental Hero“ sem áður hét aðeins „Hero“ og er með Dustin Hoffman, Gena Davis og Andy Garcia í aðalhlutverk- um. Myndin mun heita Hetja á íslensku. Aðrar myndir sem bíóið tekur brátt til sýninga er nýjasta gamanmynd Bills Murrays, sem heitir „Gro- undhog Day“ og nýjasta mynd Jean-Claude van Damme, „Nowere to Run“. Stjömubíó hefur sýningar- réttinn á nýjustu hasarmynd Arnolds Schwarzeneggers, „The Last Action Hero“ og sagði Karl að myndin yrði tekin til sýninga í júlí. „Cliff- hanger“ með Sylvester Stall- ohe yrði sýnd í bíóinu í ágúst/september. MEinhver frægasta setn- ing kvikmyndasögunnar er rangt eftir höfð og þar af leiðandi ekki til. „Leiktu það aftur, Sam“ er aldrei sagt í hinni frægu ástarmynd Casablanca heldur er seinni tíma tilbúningur, m.a. Woody Allens, sem kallaði mr mw mmr IBIO Stórmyndin Casablanca er komin á hvíta tjaldið í Sam-bíóunum, mörgum sjálfsagt til óblandinnar ánægju. En það er önnur frábær bíó- mynd á leiðinni á tjaldið þar sem ekki gefast mörg tækifæri til að sjá hana. Þetta er meistaraverk Stanleys Kubricks og tækniundur síns tíma, „2001: A Space Odyssey", sem kvikmyndaklúbburinn Hreyfimyndafélagið hyggst hafa í Háskólabíói á tveimur sýningum dag- ana 3. og 8 mars nk. Er það partur af Stan- ley Kubríck-hátíð sem klúbburinn stendur fyrir en aðrar myndir og at- hyglisverðar á hátíðinm eru „The Killing" og „Kill- er’s Kiss“, sem er fyrsta mynd Kubricks og hin umdeilda mynd „Paths of Glory“ með Kirk Douglas. Hápunkturinn eru sýn- ingamar á 2001. Hann hefði kannski átt að kalla hana 2101 miðað við hvemig geimtæknin hefur þróast. En Kubrick hefur alltaf verið langt á undan sinni framtíð. eina af myndunum sínum þetta. MHáskólabíó hefur tryggt sér sýningarréttinn á einni af myndunum sem keppir um Oskarsverðlaunin sem besta erlenda myndin 1992. Hún er rússnesk og heitir „Urga“ á móðurmálinu en „Close to Eden“ á ensku, eða Nálægt Eden. MFerill Kathleen Turner hefur dalað mjög á undan- fömum ámm en skemmst er að minnast hennar í þeirri leiðindamynd „V. I. Wars- hawski". Hún hefur nú tek- ið að sér aðalhlutverkið í nýjustu mynd Johns Wat- ers, sem áður gerði ælu- myndir eins og „Pink Flam- ingo“ og „Female Tro- uble“, en hefur reyndar snúið sér að „eðlilegri" myndum í seinni tíð. KVIKMYNDIRw Getur Hollywoodgert betur en Evrópaf Fleiri sjá endurgerðirnar HOLLYWOOD er staður sem byggir tilvist sína að talsverðu leyti á endurvinnslu. Þar eru framhalds- myndir daglegt brauð þar sem sama hugmyndin er notuð aftur og aftur. Þar eru gamlar myndir endur- gerðar af því að enginn virðist nógu hugmyndaríkur til að koma með eitthvað nýtt. Og þar eru erlendar myndir, oftast evrópskar, endurgerðar fyrir bæði bandarískan markað og heimsmarkað. Er oft litið svo á að þær hafi sáralítið að gera með evrópsku frum- myndina og í sumum tilvikum er það hárrétt. Það hins vegar sjá hana miklu fleiri. Þrír menn og karfa var ágætlega vinsæl í Frakklandi. Bandaríska útgáfan, Þrír menn og barn, sló aðsóknarmet um heiminn. eftir Arnold Indridoson Nýlega voru tvær bíó- myndir frumsýndar vestra sem gerðar eru eftir þekktum evrópskum mynd- um. Önnur heitir „Somm- ersby“ og er með Richard Gere og Jodie Fost- er í aðal- hlutver- kum en hana gerði Daniel Vigne í Frakklandi árið 1982 undir heitinu Martin Guerre snýr aftur og voru Gérard Depardieu og Nat- halie Baye í aðalhlutverk- um. Hin er Hvarfið, eða „The Vanishing", með Jeff Bridges, Kiefer Sutheriand og Nancy Travis sem Ge- orge Sluizer gerði undir sama nafni í heimalandi sínu, Hollandi, árið 1988 með Bemard-Pierre Donnadieu og Gene Bervo- ets í aðalhlutverkum. Báðar hafa myndimar fengið ágæta dóma og talað er um að vel hafi tekist til í stórum dráttum við að heimfæra þær yfir á bandarískan veruleika. Þó er átalið að Sluizer, sem er að endur- taka sína eigin bíómynd, selji sig ódýrt með endi sem sé mun verri en í uppruna- legu útgáfunni, venjulegur bandarískur hasarendir. Bandaríkin eru stærsti markaður í heimi fyrir bíó- myndir en evrópskar mynd- ir, hversu góðar sem þær em eða frægar, ná aldrei neitt nálægt þeim vinsæld- um sem bandarískar myndir njóta bæði í Bandaríkjunum og um heim allan. Það gerir tungumálið fyrst og fremst en líka bandaríski frásagn- armátinn sem er einfaldari og hraðari og einnig útlitið, sem meira er í lagt vestra. Þannig virðist eina leiðin til að evrópsk mynd nái um heimsbyggðina sú að gera hana bandaríska. Það er t.d. vafamál að hollensk glæpa- mynd komi hingað í bíóin en þegar sama myndin er orðin bandarísk með banda- rískum stjörnum líða vart þrír mánuðir frá því hún er gerð að við getum keypt okkur inná hana. Þetta er kannski stærsti munurinn á bandarískum myndum og Ekki betri, en bandarískari; Gere og Foster í „Sommersby". evrópskum. Bandarískir framleiðend- ur sjá gott efni í evrópskri mynd og gera hana að sinni. Og aldrei hafa þessar end- urgerðir verið fleiri en ein- mitt núna. Eftirfarandi myndir eru á leiðinni: „Point of No Return“ heitir endur- gerð frönsku myndarinnar „La Femme Nikita" og er með Bridget Fonda, Harvey Keitel, Gab'riel Byrne og Anne Bancroft (Jeanne Moreau í upprunalegu myndinni) í aðalhlutverk- um, ítalska Óskarsverð- launamyndin „Cinema Paradiso” er í skoðun vestra, þýska myndin „Men“ eftir Doris Dorrie, „Man Bites Dog“ frá Belgíu, „Randall & Juliet“ eftir Col- in Serreau (Þrír menn og karfa) og „Monsieur Hire“ eftir Patrice Leconte. Væntanleg; Fonda í „Point of No Return" og Anne Par- illaud í Nikita. Stóru stjörnurnar og litlu hlutverkin í MYNDINNI Á lausu eða „Singles", sem sýnd er í Sam-bíóunum, ber leik- stjórann Tim Burton („Bat- man“) fyrir augu eitt and- artak og síðan ekki söguna meir. Það gerist æ algeng- ara i Hollywood að sfjörn- ur, hvort sem er fyrir framan eða aftan myndavélarnar, bregða á -leik og fara með lítil hlut- verk í myndum, jafnvel án þess að þess sé getið í titl- Leikur einn; Bruce Willis og Julia Roberts í Leikmann- inum. Frægt er þegar Sean Connery fékk hálfa milljón dollara fyrir 45 sek- úndna leik í Hróa hetti svo tekið sé nýlegt dæmi. Alls komu 65 frægir leikarar og kvikmyndagerðarmenn fram í Leikmanni Roberts Altmans og 12 í mynd Tim Robbins, „Bob Roberts". Keanu Ree- ves kemur fram í alls fimm mínútur í nýjustu mynd Gus Van Sants, „Even Cowgirls Get the Blues“ og Bridget Fonda eyddi einum degi í að láta soga sig útúr vegg í nýj- ustu mynd Sams Raimi, „Army of Dark- ness: Evil Dead 3“. Ástæðan: Hún heldur alveg sérstaklega uppá myndir Raimis. Jack Nicholson stal sen- unni í nokkrar mínútur í gamanmyndinni „Broadcast News“ án þess að það kæmi fram að hann léki í mynd- inni. Allir virðast græða á þessu: Stórstjörnumar sýn- ast mannlegar að taka þátt í leiknum, framleiðendumir geta nýtt sér stjömurnar og áhorfendur skemmta sér. STUTTMYNDA- HÁTÍÐII JÓHANN Sigmarsson og Júlíus Kemp höfundar Veggfóðurs hyggjast halda aðra stuttmynda- hátíð svipaða þeirri sem var á Borginni í fyrra þegar sýndar voru 30 stuttmyndir á þremur dögum. Hátíðin í ár verður dag- ana 7.-9. apríl en ekki hefur enn verið endan- lega ákveðið hvar hún verð- ur haldin. Frestur til að skila inn stuttmyndum á hátíðina er til 1. apríl og má senda myndirnar til Kvikmyndafélags íslands, Box 891, 121, Rvík., eða hafa samband við skrifstof- una. Síðasta stuttmyndahátíð þótti takast mjög vel. Voru þar mörg athyglisverð verk sem sýndu hvað kvik- myndagerðarmenn og áhugamenn voru að fást við í stuttmyndagerð. Vonar Jóhann að þátttakan verði Stuttmyndir; Jóhann Sigmarsson. jafngóð í ár og hún var í fyrra. Hann sagði að núna yrði sett á laggirnar dómnefnd sem velur þrjár bestu mynd- ir hátíðarinnar og eins og í fyrra verða haldnir fyrir- lestrar um kvikmyndagerð á meðan á hátíðinni stend- ur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.