Morgunblaðið - 20.03.1993, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 20.03.1993, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARZ 1993 Morgunblaðið/Sverrir Maria Cederborg þverflautuleikari og Michael Hillenstedt gítarleikari Norræna húsið Þverflauta og gítar MARIA Cederborg þverflautu- leikari og Michael Hillenstedt gitarleikari halda tónleika í Nor- ræna húsinu, á morgun sunnu- daginn 21. mars. Maria er sænsk, hún er með ein- leikarapróf frá tónlistarháskólanum í Gautaborg, þar sem kennari henn- ar var prófessor Gérard Schaub. Michael er frá Hamborg. Hann lauk gítarkennaraprófi frá tónlistarhá- skólanum þar árið 1989. Kennari hans var prófessor Eike Funck. Michael hefur einnig lagt stund á tónvísindi og er með MA-próf í þeirri grein. Bæði eru búsett á íslandi og starfa sem tónlistarkennarar, Maria er flautukennari við tónskóla Sigur- sveins og Michael kennir við tónlist- arskóla Árnesinga. Michael og Maria eru bæði í íslenskunámi við Háskóla íslands. Þau hafa spilað saman i rúmt ár og hafa haldið nokkra tónleika hérlendis, en þetta er í fyrsta skiptið sem þau koma fram opinberlega í Reykjavík. Á efnisskránni eru verk eftir Giuliani, Baron, Ibert, Nielsen, Báck o.fl. Tónleikarnir hefjast klukkan 17. Sinfóníutónleikar Tónlist Jón Asgeirsson Sinfóníuhljómsveit íslands var með sína föstu tónleika sl. fimmtu- dag í Háskólabíói. Á efnisskránni voru verk eftir Haydn, Lutoslawskí og Brahms. Einleikari var Wendy Wamer en stjómandi Wojciech Michniewskí. Tónleikarnir hófust á sinfóníu nr. 49, en af rúmlega 100 sinfóníum era aðeins 6 í moll-tón- tegundunum og nr. 49 er næst síð- ust af þeim. Þetta er fallegt verk var sérlega vel leikið og auðheyrt að stjómandinn hafði ýmislegt um það að segja og samkvæmt flutn- ingi hljómsveitarinnar, tóku félag- arnir í henni mikið mark á því, sem stjórnandinn hafði fram að færa og hafðist upp úr því skemmtilegt sam- spil stjórnanda og hljómsveitarinn- ar. Wendy Warner er tvítugur selló- snillingur og lék hún einleik í selló- konsert eftir Lutoslawskí, ágætu verki, samið 1970, en þá vora tón- skáld að gera tilraunir með óhryn- bundið tónmál, fijálsan Ieikmáta og umfram allt, að yfirgefa tólftóna- tækni Schönbergs. Wendy Warner lék frábærlega vel og sérstaklega fyrsta kaflann, sem er undirleiks- laus einleikur á selló. Óhætt er að fullyrða, að hér er á ferðinni frá- bært efni í einleikara, sem trúlega á eftir að láta til sín taka á tónleika- pallinum í framtíðinni. Tónleikunum lauk með þriðju sinfóníunni eftir Brahms og þar fór stjómandinn eiginlega yfír strikið, því alvarleikinn í þessu meistara- verki var yfirkeyrður með tilfinn- ingasemi. Tónlistin hjá Brahms er þrangin og umfram allt, þá er til- finningasemin hátíðleg og jafnvel þungbúin en aldrei grátklökk eða sefasjúk. Margt var fallega gert hjá hljómsveitinni og nokkrar einleiksst- rófur fallega útfærðar. Ýmislegt sem stjórnandinn lagði áherslu á, varð einum of sýnilegt, eða með öðram orðum leikrænt, sem á ákaf- lega illa við hjá Brahms en kom sérlega vel út í sinfóníunni eftir Haydn. Samstarf okkar er bara rétt að byrja - segja Asdís Valdimarsdóttir víóluleikari og Steinumi B. Ragn- arsdóttir píanóleikari sem halda tónleika í íslensku óperunni. TILHLOKKUN ljómar af andlit- um þeirra Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur pianóleikara og Ásdísar Valdimarsdóttur víólu- leikara, þegar blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins líta inn hjá þeim, þar sem þær æfa af kappi fyrir tónleika sína sem þær halda á vegum Tónlistarfé- lags Reykjavíkur í íslensku óp- erunni næstkomandi þriðjudags- kvöld. Þær stöllur hafa aðeins einu sinni leikið saman áður á tónleik- um, enda býr Ásdís í Frankfurt í Þýskalandi, þar sem hún starfar með „Deutsche Kammerphilharm- onie“ en Steinunn hefur undanfarin þijú ár verið búsett hér á landi, og unnið einvörðungu við píanóleik. Þess eru engin merkj að samstarf þeirra sé nýtt af nálinni. Þær tala saman, leika saman, hlæja saman, gráta saman, þegar fegurð tónlist- arinnar, sérstaklega Márchenbilder Schumanns, ætlar að verða þeim um megn, eins og þær hafi þekkst og unnið saman frá blautu barns- beini. „Það gerðist bara þegar í fyrsta verkinu sem við spiluðum saman, að við náðum þessum sam- hljómi, og honum nær maður ekki með hveijum sem er. Það má því bóka að þetta er aðeins upphafið að löngu og góðu samstarfi okk- ar,“ segir Steinunn. Ásdís segist vera sest að erlend- «is. Hún hafi reynt að skipuleggja það í alllangan tíma að halda tón- leika hér heima, en það hafi bara Skottís - Myrk- ir músíkdagar Frumfhitningur nýrra sönglaga SÉRSTÆÐIR söngtónleikar verða haldnir í Hafnarborg í Hafnarfirði mánudagskvöldið 22. mars. Þar verða flutt 20 ný sönglög eftir jafn- mörg íslensk tónskáld. Flytjendur verða söngvararnir Sigrún Hjálmtýs- dóttir, Elín Ósk Óskarsdóttir, Sverrir Guðjónsson, Þorgeir Andrésson og John Speight, ásamt píanóleikurunum Önnu Guðnýju Guðmundsdótt- ur og Sveinbjörgu Vilhjálmsdóttur. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 Tónleikarnir eru hluti Myrkra varpsins. músíkdaga og Skottís hátíðarinnar og voru fyrirhugaðir 12. febrúar, en var frestað vegna óveðurs. Flest lag- anna, sem flutt verða vora samin sérstaklega fyrir þessa tónleika. Tón- skáldin era af öllum kynslóðum; Árni Bjömsson, Sigfús Halldórsson og Skúli Halldórsson, þeir elstu, og Atli Ingólfsson, Hilmar Þórðarson og Rík- harður Friðriksson, þeir yngstu. Ljóðin era allt frá dróttkvæðum vís- um íslendingasagna til nýrra ljóða Þórarins Eldjáms og Gyrðis Elías- sonar. Elín Ósk Óskarsdóttir hefur komið fram á tónleikum hér heima og á Ítalíu og m.a. sungið með Kammer- sveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljóm- sveit Islands. Árið 1983 hlaut hún önnur verðlaun í Söngkeppni sjón- Sigrún Hjálmtýsdóttir hefur víða komið fram sem einsöngvari, m.a. með Sinfóníuhljómsveit Islands, ís- lensku hljómsveitinni og á tónleikum með kóram. f febrúar 1992 söng hún á hátíðartónleikum í óperanni í Vil- nius í Litháen við undirleik sinfóníu- hljómsveitarinnar í borginni. Sverrir Guðjónsson hélt sína fyrstu opinbera tónleika árið 1988. Sl. vetur hélt hann ljóðatónleika í Gerðubergi auk þess að koma fram víðar sem einsvöngvari, m.a. á vegum Listahá- tíðar í Reykjavík. Þá hefur Sverrir starfað með Bach-sveitinni í Skál- holti og sungið í sönghópunum Cap- ella Media frá Þýskalandi og hinum íslenska Vocis Thulis. Þorgeir J. Andrésson var ráðinn söngvari í kór ríkisóperannar í Ham- Þrátt fyrir stífar æfingar, geta þær Ásdís og Stéinunn tekið sér stutt hlé og brugðið á leik, þegar Sverrir ljósmyndari mundar myndavélina. ekki gengið fyrr en nú. „Ég hitti Steinunni af tilviljun fyrir tæpu ári, og sú hugmynd kom upp að halda tónleika saman - hugmynd sem nú er að verða að veruleika," segir Ásdís. Hún bætir því við að sem betur fer hafi Tónlistarfélagið tekið að sér að skipuleggja tónleik- ana fyrir þær, því slíkt sé mjög erfitt fyrir hana, erlendis frá. Ásdís lauk meistaragráðu í lág- fiðluleik frá Juilliard-skólanum í New York, og einleikaraprófi frá Tónlistarháskólanum í Detmold í Þýskalandi árið 1987. Steinunn lauk píanókennaraprófi (1979) og einleikaraprófi (1981) frá Tónlist- arskólanum í Reykjavík, en meist- aragráðu hlaut hún frá New Eng- land Conservatory árið 1987. - Hvað ætlið þið svo að leika í íslensku óperunni á þriðjudag- svöldið? „Þetta era allt gamlir og góðir kunningjar, sem ég lærði á mínum fyrstu námsáram í New York ,“ segir Ásdís, og Steinunn bætir við: „Þetta eru allt sérstklega falleg verk .“ Verkin á efnisskránni era Marchenbilder op. 113, eftir Robert Schumann, Sónata fyrir píanó og lágfiðlu í f-moll op. 120, eftir Jo- hannes Brahms og Sónata op. 147 fyrir lágfiðlu og píanó eftir Dmítrí Sjostakovitsj. Texti: Agnes Bragadóttir Sverrir Guðjónsson borg 1986-1987 og við Wagner- hátíðina í Bayreuth 1987. Þorgeir hefur haldið einsöngstónleika og sungið einsöng með Sinfóníuhljóm- sveit íslands, Kammersveit Akur- eyrar og fjölda íslenskra kóra. John Anthony Speight hefur sung- ið víða á Englandi og íriandi, bæði í óratóríum, óperum og á Ijóðatón- leikum. Hann hefur einnig haldið ljóðatónleika ásamt Sveinbjörgu víða um land og sungið með Sinfóníu- hljómsveit íslands, Kammersveit Reykjavíkur og íslensku hljómsveit- inni. Anna Guðný Guðmundsdóttir er löngu landsþekkt sem einleikari og meðleikari, bæði á tónleikum víða Sigrún Hjálmtýsdóttir um land og í útvarpi og sjónvarpi. Hún hefur starfað með íslensku hljómsveitinni frá stofnun hennar, leikið með Sinfóníuhljómsveit ís- lands, haldið tónleika erlendis og leikið inn á hljómplötur. Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir hefur komið fram bæði hérlendis og erlend- is. Hún hefur spilað á fjölda kammer- tónleika með hinum ýmsu hljóðfæra- leikuram. Einnig hefur hún spilað með kóram og söngvuram, en þó aðallega með John Speight, en þau hafa haldið fjölda tónleika í Reykja- vík og úti á landi á undanförnum áram, auk þess að koma fram í út- varpi. (Fréttatilkynning) LADA ER I SERSTOKUM VERDFLOKKI - LADA ER ÓDÝRASTI BÍLLINN Á ÍSLANDI! KR. 100.000 ....I ■! 200.000 —I— 300.000 400.000 500.000 600.000 700.000 KANNADU DÆMIÐ! 800.000 900.000 ■ 1.000.000 ■ LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. ARMÚUWrS.SfMI, 68 12 00 BEINN SlME 3 12 36 1.100.000 .....■ ......

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.