Morgunblaðið - 20.03.1993, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.03.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARZ 1993 15 Rómeó og Júlíus. Ljósmynd/Bjðrg Sveinsdóttir Corpsegrinder Músíktilraumr hafnar ÁRLEG hljómsveitakeppni Tónabæjar, Músíktilraunir, hóf- ust með miklum látum sl. fimmtudag. Vegna mistaka við vinnslu Morgunblaðsins birtist ekki venjubundin kynning á þátttökuhljómsveitum fyrir það kvöld, en átta hljómsveitir kepptu um að komast í úrslit kepninnar. Tvær komust áfram, en annað tilraunakvöld verður næstkomandi fimmtudag. Tilraunirnar að þessu sinni eru þær elleftu í röðinni og skráðu sig nú til keppni fleiri hljómsveitir en dæmi eru um, því alls leituðu sex- tíu og þijár hljómsveitir eftir því að fá að vera með. Til að gefa sem flestum færi á að spreyta sig var ákveðið að fjölga kvöldunum, sem hafa jafnan verið þrjú, um eitt og fækka um leið lögum um eitt, þannig að hver hljómsveit þarf að leika þijú frumsamin lög. Fyrsta tilraunakvöldið var sl. fimmtudag, en síðan verður keppt 25. og 26. mars og 1. apríl, en úrslit svo föstu- daginn 2. apríl. Verðlaun í Músíktilraunum eru jafnan hljóðverstímar, og fyrstu verðlaun verða 25 tímar í Sýr- landi, fullkomnasta hljóðveri landsins. Önnur verðlaun eru og hljóðverstímar, 26 tímar í Gijót- námunni, þriðju verðlaun eru 20 tímar í Hljóðrita og íjórðu verðlaun 20 tímar í Hljóðhamri. Grúi ann- arra verðlauna hleðst á sigurvegar- ana, sem Rín, Japís, Samspil og Paul Bernburg gefa, en Hljóðfæra- verslun Steina gefur gítar af bestu gerð, sem besti gítarleikarinn hlýt- ur. Fyrsta sveit á svið var Skaga- sveitin Rómeó og Júlíus, skipuð Geir Harðarsyni_ gítarleikara og söngvara,«Herði Ómarssyni bassa- leikara, Ólafi Böðvarssyni trommuleikara og Kristni Elíassyni gítarleikara. Fyrsta lag sveitarinn- ar hét því frumlega nafni Sexy Pretty Baby og ekki var laust við að viðstaddir kímdu þegar það var kynnt. Tónlist sveitarinnar var nokkuð í ætt við þetta lagsheiti; klisjukenndir gitarfrasar með útí- hött sólóum. Corpsegrinder hét sveit frá Sel- Jurt. fossi sem skipuð var Nirði Stein- arssyni bassaleikara, Sveini Páls- syni og Óskari Gestssyni gítarleik- urum, Skúla Arasyni trommuleik- ara og Óla Rúnari Eyjólfssyni söngvara. Gítarpar sveitarinnar tróð svo bjögunarapparötum á gít- arsnúrur sínar að út kom hinn hefðbundni teppahljómur. Þetta dró mjög úr kraftinum og dauðablænum. Annars lofar Corpsegrindar góðu, þó keyrslan hafi ekki verið eins villt og nafnið gaf tilefni til að ætla. Skrýtnir frá Selfossi voru næst- ir, en þeir eru Auðunn Örn Pálsson trommuleikari, Kristinn Jón Arnarson bassaleikari, Ólafur Unnarsson gítarleikari og Valur Amarson söngvari. Þeir félagar stóðu sig prýðilega og lofar sveitin einkar góðu. Segja má að all hafi gengið vel upp utan að klúðurslegt gítarsóló skemmdi annars ágætt annað lag sveitarinnar. Yngsta tilraunasveitin þetta kvöld var Opus Dei úr Reykjavík. Sveitina skipa Einar Einarsson gítarleikari, Óttar Rolfsson söng- vari, Hreiðar Smári Grétarsson trommuleikari og Amar Bjarki Ámason bassaleikari, sem em allir á fimmtánda árinu. Þeir vöktu at- hygli fyrir spilagleði og vom skemmtilega frakkir, sem fleytti þeim í úrslit. Dauðarokksveitin Cranium kom gríðarlega sterk til leiks og komst hæglega í úrslit, en sveitina skipa Ófeigur Sigurðsson bassaleikari og söngvari, Sigurður Guðjónsson gít- Bacchus. arleikari, Árni Sveinsson söngvari, Egill Tómasson gítarleikari og Bjarni Grímsson trommuleikari. Næsta sveit, Cremation, lék gamaldags dauðarokk. Cremation- menn urðu fyrir því að bassaleik- ari sveitarinnar hætti daginn fyrir tilraunakvöldið, og stóðu þeir sig framar vonum miðað við það. Það vantaði þó nokkuð á að þeir næðu að grípa athygli manna, en Crem- ation skipa Ólafur Magnússon gít- arleikari, Hannes Hilmisson gítar- leikari, Magnús Kárason trommu- leikari og Ágúst H. Waage söngv- ari og bassaleikari. Jurt þrætti fyrir að vera hljóm- sveit, sagðist vera sálarskoðun- arfélag. Félagsmenn vom Oddur Már Rúnarsson gjtarleikari og söngvari, Ingólfur Ámason gítar- leikari og Rafn Valur gítarleikari. Á köflum var Jurt skemmtilegasta sveit kvöldsins, sérstaklega í harm- onuikkulaginu, en þriðja lagið, klisjupopp með jesútexta sem hljómaði eins og endurútsett Himnastigalag Led Zeppelin, skemmdi fyrir þeim félögum. Lokasveit kvöldsins var Bacch- us, skipuð Heimi Tómassyni gítar- leikara, Gísla Rafni Gylfasyni söngvara, Pétri Harðarsyni gítar- leikara, Jónasi Má Hreggviðssyni bassaleikara og Jóni Inga Gísla- syni trommuleikara. Ekki vantaði keyrsluna hjá Bacchus; sveitin er geysiþétt og sumir frasar góðir, en það skorti á hugkvæmni og djörfung í útfærslu. Árni Matthíasson MEST SELDU STEIKUR Á ÍSLANDI Nauta-, lamba- 09 svínagrillsteikur frá 690 krónum. Ódýrara en að elda heima! MERKISMENN HF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.