Morgunblaðið - 20.03.1993, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 20.03.1993, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARZ 1993 33 Sigurbjörg Guðlaugs- dóttír frá Flatey á Skjálfanda - Kveðja Fædd 2. október 1899 Dáin 11. mars 1993 Landsvæðið milli Eyjafjarðar og Skjálfanda hefur löngum verið með afskekktustu byggðum þessa lands, enda farið í eyði fyrir alllöngu. Önnur aðalbyggðin hét og heitir „í Fjörðum". Um Fjörður orti skáld- konan Björg Einarsdóttir, Látra- Björg: Faprt er í Fjörðum, þá Frelsarinn gefur veðrið blítt, heyið grænt í görðum, grös og heilagfiski nýtt. En er vetur að oss fer að sveigja, veit eg enga verri sveit um veraldar reit, menn og dýr þá deyja. í riti sínu „Forn frægðarsetur“ segir sr. Ágúst Sigurðsson á Prest- bakka um Fjörðurnar: „En fagurt er í Fjörðum, þá Frelsarinn gefur veðrið blítt. Engir njóta þess nema örfáir ferðalangar, sem leggja leið sína á þessar eyði- slóðir vegna uppruna síns, forvitni eða til þess að finna frið hinnar mannlausu kyrrðar á hjara verald- ar. En þeir sem undrast það og þykir jafnvel sorgarefni, að enginn skuli framar eiga hér bólfesti, eru minntir á veturinn og síðustu hend- ignarnar í vísu Látra-Bjargar „veit eg enga verri sveit um veraldar reit“. Fáir nútíðarmenn á íslandi gætu afborið vetrarríkið í Fjörðum, án vegasambands, pósts og síma, án hafnar og verslunar, skóla og kirkju og allrar félagslegrar þjón- ustu, en í miklum snjó og við lang- ar hríðar og átök óhindraðs norðan- garðsins að Dumbshafi. Sá sem talar eða ritar um nýtt landnám í Fjörðum er ekki raunsær. Hið fyrra er farið, með öllum hinum ósegjan- legu erfiðleikum og þrautafullu bar- áttu, og þjóðlífið breytt." Þessi ummæli um Fjörður koma í hugann, þegar minnst er Dýrleifar Sigurbjargar Guðlaugsdóttur, eins og hún hét fullu nafni, en í Fjörðum átti hún heima hálfa ævina. Sigur- björg var fædd á Knarrareyrurm á Flateyjardal 2. október árið 1899. Að henni stóðu traustar og rótgrón- ar bændaættir úr Fjörðum og Flat- eyjardal. Foreldrar hennar voru hjónin Hólmfríður Tómasdóttir og Guðlaugur Jónsson, sem stuttu eft- ir aldamótin fluttu að Tindriðastöð- um í Fjörðum og bjuggu þar óslitið í 40 ár. Sigurbjörg var önnur í röðinni sex systkina, sem öll eru látin, en þau voru: Jóninna á Hamri í Svarf- aðardal og síðar á Dalvík, Tómas, síðar á Miðhúsum í Hofshreppi í Skagafirði, Guðrún, síðast í Ásgarði á Svalbarðsströnd, Stefanía Björg, síðast í Reykjavík og Jón á Grenivík. Til þess var tekið með frændlið Sigurbjargar í Fjörðum og á Flat- eyjardal hversu frábærlega vel því fólki fór allt verk úr hendi, svo að nálgaðist listfengi. Eru glögg merki þess enn sýnileg á Knarrareyri þar sem eru vegghleðslur móðurbróður hennar, Árna Tómassonar. Hefur þetta listfengi og vandvirkni erfst til margra afkomenda þeirra. Sigurbjörg ólst upp í foreldrahús- um til tuttugu ára aldurs, en 1919 gengur hún að eiga Jóhannes Krist- insson sem ættaður var frá Geir- hildargörðum í Öxnadal, en hann hafði verið fjármaður á stórbúi sem Björn Líndal lögmaður setti upp á Kaðalstöðum í Fjörðum. Þau Sigur- björg og Jóhannes settu fyrst sam- an bú í Flatey á Skjálfanda og bjuggu þar í 2-3 ár, en fluttu síðan að Kaðalstöðum og bjuggu þar til 1933, að þau flytja að Þönglabakka í Þorgeirsfirði. En nú var byggð mjög að eyðast í Fjörðum og einungis þrjú byggð ból eftir og sátu þau, auk Sigur- bjargar og Jóhannesar á Þöngla- bakka, foreldrar ■ Sigurbjargar, Hólmfríður og Guðlaugur á Tindriðastöðum og Guðrún systir hennar og maður hennar Þórhallur Geirfinnsson á Botni. 1944 andast Guðlaugur og varð það kornið sem fyllti mælinn, íjölskyldurnar flutt- ust burt og lauk þar með byggð í Fjörðum. Þau Sigurbjörg og Jó- hannes fluttu nú aftur til Flateyjar og þar var Sigurbjörg uns sú byggð lagðist af 1967. Jóhannes, maður Sigurbjargar, lést 18. nóvember 1957 og eftir það var Sigurbjörg hjá Hólmdísi dóttur sinni uns byggð lagðist af í Flatey. Sigurbjörg var þannig síðasti íbúi tveggja byggða: Fjarða og Flateyjar. Eftir það bjó Sigurbjörg hjá dætrum sínum, Haf- dísi á Ákureyri og Stefaníu á Húsa- vík, þar til að hún fluttist á Dvalar- heimilið Hvamm á Húsavík 1983. Síðustu árin hefur hún verið rúm- föst í Sjúkrahúsinu á Húsavík. Þeim Sigurbjörgu og Jóhannesi varð 11 barna auðið og eru níu þeirra á lífi. Börn þeirra eru: María Hólmfríður í Reykjavík, f. 1920, gift þeim er þessar línur ritar, en var áður gift Jóni Thorarensen sem nú er látinn; Jóhannes Guðni á Húsavík, f. 1921, kvæntur Báru Hermannsdóttur; Guðlaug Jóninna, f. 1923, d. 1946, var gift Sigurði Árnasyni; Stefanía Tómasína á Húsavík, f. 1926, gift Jóni Her- mannssyni; Nanna Hólmdís á Húsa- vík, f. 1928, var gift Gunnari Guð- mundssyni sem nú er látinn; Sól- veig í Hafnarfirði, f. 1929, gift Sveinberg Hannessyni, en var áður gift Björgvin Pálssyni; Gunnar í Hrísey, f. 1931, kvæntur Sóleyju Hannesdóttur; Sigurður Sigmar í Hrísey, f. 1932, d. 1968, var kvænt- ur Gunnhildi Hannesdóttur; Stein- grímur Hallur á Húsavík, f. 1935, kvæntur Hróðnýju Valdimarsdótt- ur; Kristinn Guðlaugur í Hrísey, f. 1938, kvæntur Hafdísi Júlíusdóttur og Hafdís á Björgum í Hörgárdal, f. 1942, gift Braga Pálssyni. Áður átti Sigurbjörg dóttur, Hrefnu Hall- grímsdóttur í Hafnarfirði, f. 1917, gift Þórði Þórðarsyni. Barnabörn Sigurbjargar eru 47 og afkomendur orðnir um 150. Það hefur ekki verið björt fram- tíð fyrir ungu hjónin sem giftu sig 10. október 1919 í einni af af- skekktustu sveitum landsins og framundan hefur verið strit og' meira strit. En þau áttu það sem mestu varðar, viljann til að lifa og koma börnum sínum til manns og þau áttu dugnað og elju. En þó að sveitin væri afskekkt og vetrarríki meira en víðast annars staðar var Bróðir minn. + HÖRÐUR GUNNARSSON leigubilsstjóri, Safamýri 34, er látinn. F.h. systkina. Rósa Gunnarsdóttir. - þó bót í máli í öllu baslinu að sjór- inn var gjöfull og ekki kunna börn þeirra neinar sögur af því að segja að mat hafi skort, eða að þau hafí nokkru sinni verið svöng. Við nútíma íslendingar „raf- magnsljósa og hitaveitna", svo að vitnað sé til skáldsins á Gljúfra- steini, höfum enga möguleika til að skilja það líf, sem lifað var á fyrstu áratugum þessarar aldar, en hollt er hveijum og einum að leiða hugann að því annað slagið og hversu mikið við eigum því fólki sem við það bjó að þakka. Sigurbjörg átti að fagna miklu barnaláni. Óll hennar börn eru manndóms- og dugnaðarfólk, syn- irnir til skamms tíma miklir sjó- sóknarar og dæturnar hafa búið fjölskyldum sínum mjög fögur og vinsamleg heimili svo sem best verður á kosið. Um þau öll má segja eins og húsmóðir á stóru heimili sagði við eina dóttur Sigurbjargar sem verið hafði þar í vist um vetrar- tíma: „Þakka þér fyrir öll góðu verkin þín.“ Sigurbjörg Guðlaugsdóttir var í meðallagi há og tággrönn. Hún var ákaflega fíngerð kona, tíguleg og virðuleg í framkomu, vandaði um- sögn sína um menn og málefni í hvívetna. Hún var skaprík, en skap- ið var það vel agað að börn hennar minnast þess ekki að hún hafi nokkru sinni sagt við þau styggðar- yrði. Ég held að blótsyrði hafi ekki verið til í orðaforða hennar. Hún var ein þeirra sem maður er auð- ugri af að kynnast, af hennar fundi fór maður ætíð ríkari og betri. Þegar hún er nú kvödd, södd líf- daga, verður eftir í hugum okkar allra, sem áttum því láni að fagna a kynnast henni, minning um eftir- minnilega, stórbrotna fagra konu, sem tókst að gæða líf þeirra er nálægt henni voru innihaldi, fegurð og virðuleik. Þórir Daníelsson. Birtíng afmælis- og minningnrgreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. t Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTVALDUR EIRÍKSSON, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu mánudaginn 22. mars kl. 13.30. Helga Kristvaldsdóttir, Eiríkur Kristvaldsson, Anna B. Ólafsdóttir, Guðbjörg Einarsdóttir, Karl Guðnason, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR SCHRAM Hringbraut 50, lést í Landakotsspítala þann 11. mars. Bálför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð. Ebba Schram, Birgir Schram, Erla Axelsd. Schram, Sigurður, Ebba og Helgi Schram. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KARLÞÓRÐARSON frá Hávarðarkoti, Þykkvabæ, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 22. mars kl. 15.00. Svava Guðmundsdóttir, Þórður Kristinn Karlsson, Auður Þorsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA HJÁLMARSDÓTTIR, Hörðalandi 2, Reykjavík, lést 3. mars s.l. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Björk Jónsdóttir, Alda Jónsdóttir, Hrönn Jónsdóttir, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega öllum þeim, sem veittu okkur styrk og sýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát og útför eiginmanns mfns, föðurokkar, tengdaföðurog afa, JÓNS KR. JÓHANNSSONAR verslunarstjóra, Fjarðarvegi 27, Þórshöfn. Sérstakar þakkir færum við Slysa- varnardeildinni Hafliða. María Jóhannsdóttir, Jóhann A. Jónsson, Rósa Daníelsdóttir, Rafn Jónsson, Kristin Kjartansdóttir, Hreggviður Jónsson, Hlfn Sverrisdóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGIBJARGAR MARGRÉTAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Gemlufalli i Dýrafirði. Sérstaklega viljum við þakka starfsfólki á Sjúkrahúsi Húsavíkur fyrir frábæra umönnun. Guðbjörg Sigrún Valgeirsdóttir, Guðmundur Ólafsson, Jón Kristinn Valgeirsson, Ingibjörg Elín Valgeirsdóttir, Anna Jónína Valgeirsdóttir, Arnór Valgeirsson, Guðrún Sigríður Valgeirsdóttir, Elísabet Valgeirsdóttir, Friðrik Halldór Valgeirsson, Guðmundur Valgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. Gunnþórunn Friðriksdóttir, Jónas H. Pétursson, Baldur Ingvarsson, Elísabet Hauksdóttir, Matthías Vilhjálmsson, Vilhjálmur Einarsson, Hólmfrfður Jónsdóttir, Helga Aðalsteinsdóttir,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.