Morgunblaðið - 20.03.1993, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARZ 1993
20
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Samningar um kaup ÚA undirritaðir
SAMNINGAR um kaup Útgerðarfélags Akureyringa á 60% hlut í þýska útgerðarfélaginu Mechl-
enburger Hochseefischerei voru undirritaðir í vikunni, en í gær komu til Akureyrar m.a. dr. Feit-
er, sem fer með sjávarútvegsmál í Þýskalandi, og Brick, Iandbúnaðarráðherra í héraðinu Mechl-
enburger Vorpommern. Þeir kynntu sér starfsemi Útgerðarfélags Akureyringa þar sem þessi
mynd var tekin í gær. Á myndinni eru frá vinstri Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóri ÚA, Þor-
steinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, og þeir Feiter og Brick.
Tvö hreindýr í Herðubreiðarlindum
Ovíst hvenær lirein-
dýr sáust síðast á
Mývatnsöræfum
Björk, Mývatnssveit.
FYRIR nokkru voru vélsleðamenn á ferð í Herðubreiðarlindum.
Töldu þeir sig hafa orðið vara við spor og önnur ummerki sem
gætu verið eftir kindur. Að vísu var þetta mjög óljóst, en samt
þótti ástæða til að kanna það nánar.
Strax og þetta fréttist fóru tveir
menn héðan úr sveitinni niður í
Herðubreiðarlindir. Farið var á bíl
og var færð mjög góð og mikið
ekið á svelli. Ekki urðu þeir varir
kinda, en fundu þó einhver óljós
merki eftir skepnur.
Tóku á rás
Ekki voru allir sáttir við þetta,
því síðastliðinn miðvikudag fóru
tveir menn á bíl í lindarnar, veðrið
var ekki hagstætt, mjög hvasst er
á daginn leið. Skammt norðan við
Þorsteinsskála sáu þeir tvö hrein-
dýr. Þótt þau væri í nokkurri fjar-
lægð tóku þau á rás er þau urðu
manna vör. Annað dýrið var greini-
lega stærra og homin að sama
skapi stór. Hitt mun minna, þó
voru homin á því nokkuð stór.
Ekki er ósennilegt að þarna séu
tveir tarfar.
Óvíst er hvenær hreindýr sáust
síðast á Mývatnsöræfum. Úm 1930
var á því svæði hópur hreindýra,
en veturinn 1936, sem var bæði
harður og snjóþungur, er talið að
hreindýrin hafí horfíð vestan Jök-
ulsár á fjöllum. Síðan hafi kannski
eitt og eitt dýr komist vestur yfir
ána, en aldrei til að vera.
Kristján
Fjárframlög til Iþrótta- og æskulýðsráðs 10 millj. fram úr áætlun
Eini málaflokkurinn
sem fór fram úr áætlun
FJÁRFRAMLÖG til íþrótta- og æskulýðsmála hafa farið umtals-
vert fram út áætlun og er þetta eini málaflokkurinn sem það gerði
á fjárhagsáætlun siðasta árs. Bæjarsjóður þarf nú að glíma við
þetta gat sem er upp á tæpar 10 milljónir króna. Nokkrar umræð-
ur urðu um þetta mál á fundi bæjarstjómar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Matreiðslumenn á Bautanum stilltu sér upp við kræsingarnar.
Amerískir fjölskyldu-
dagar á Bautanum
AMERÍSKIR fjölskyldudagar standa nú yfir í veitingahúsinu Bautan-
um og verður bandariskt yfirbragð yfir staðnum fram til 28. mars
næstkomandi.
Sigurður J. Sigurðsson formað-
ur bæjarráðs gerði grein fyrir
þessu á bæjárstjómarfundinum og
nefndi í upphafi þau áföll sem
bærinn hefði orðið fyrir vegna
galla sem upp hefðu komið í sund-
laug við Glerárskóla, er, rúmum
fimm milljónum króna hefur verið
varið til viðgerða á þessu þriggja
ára gamla mannvirki.
Færri tímar
í máli Sigurðar kom fram
íþrótta- og æskulýðsmálaflokkur-
inn væri sá eini sem hefði farið
fram úr áætlun og væri þar verið
að glíma við tæpar 10 milljónir
króna. Á því væru margar skýring-
ar, skólar hefðu keypt færri tíma
í húsunum, viðhald verið m'eira en
búist var við og fleira og eins hefðu
viðbótarútgjöld vegna Skíðastaða
í Hlíðarfjalli farið um einni milljón
fram úr áætlun.
Nefndi Sigurður að kostnaður
við kaup á heitu vatni fyrir Sund-
laug Akureyrar væri umfram það
sem áætlað hafði verið, en hægt
væri að spara umtalsverða fjár-
muni með því að kaupa yfir-
breiðslu og talið að hún myndi
borga sig upp á skömmum tíma.
Minni tekjur
Heimir Ingimarsson (G) sagði
að á sama tíma og tekjur hefðu
dregist saman um tæpar 2,3 millj-
ónir hefði launakostnaður hækkað
um rúmar 2 milljónir. Ekki hefði
verið brugðist við samdrætti í notk-
un húsanna með því að draga úr
launakostnaði. Þórarinn E. Sveins-
son (B) sagði að kafa þyrfti ofan
í þetta mál, því bagalegt væri að
keyra fram úr áætlun, en ljóst
væri að mörg íþróttamannvirki í
bænum þyrftu á miklu viðhaldi að
halda.
Messur á
Akureyri
Akureyrarkirkja, sunnu-
dagaskólinn kl. 11 fyrir há-
degi, messað verður kl. 14.
Altarisganga. sr. Þórahallur
Höskuldsson. Aðalsafnaðar-
fundur Akureyrarsóknar verð-
ur í safnaðarheimilinu eftir
messu. Æskulýðsfélagið heldur
fund í kapellunni kl. 17. Biblíu-
lestur verður í safnaðarheimil-
inu nk. mánudag kl. 20.30.
Glerárkirkja. Biblíulestur og
bænastund kl. 13 í dag, laugar-
dag. Bamasamkoma kl. 11 á
morgun. Messa kl. 14. Þorgrím-
ur Daníelsson guðfræðingur
predikar. Foreldrar fermingar-
barna hvattir til að mæta.
Kirkjukaffi í safnaðarsalnum
eftir messu. Æskulýðsfundur
kl. 17.30.
Stefán Gunnlaugsson, einn eig-
enda Bautans, sagði að þetta væri
gert til tilbreytingar. „Það er gam-
an að bjóða upp á eitthvað nýtt
og gera eitthvað annað en venju-
lega. Á meðan á þessum amerísku
dögum stendur mun hinn hefð-
bundni matseðill víkja og gestum
verður gefínn kostur á að prófa
ýmsa algenga rétti frá Bandaríkj-
unum, sagði Stefán."
Bautamenn hafa víða leitað
fanga og viða að sér hráefni til
matseldarinnar, m.a. sækja þeir
skötusel til ísafjarðar.
Síðasta haust voru haldnir þýsk-
ir dagar í Bautanum þar sem boð-
ið var upp á algenga þýska rétti
og mæltist það vel fyrir og væntir
Bautafólk þess að gestum líki ekki
síður við þá bandarísku.
Á matseðli Bautans þessa daga
má m.a. nefna svínarif BBQ, Lam-
bastein Creola, safaríka kjúklinga-
steik, kalt roast-beef með pipar-
rót, T-bein steik, djúpsteiktan físk
með frönskum og sjávarréttir
Jambalaya. Þá eru samlokur af
ýmsu tagi á boðstólum, s.s. kalk-
únasamloka, risahamborgarar og
matarmiklar súpur eins og chilli-
súpu er að finna á seðlinum.
LÍFSINS
LVSTISEhDIR
Skíði
Páskaegg
Leikhús
Málshœttir
PÁSKA TILBOÐ
á gistingu
HOTEL NOeBURLRNO
Akureyri
Sími 96-22600
Fax 96-27962
I solu a Akureyn
hársnyrtistofa í fullum rekstri.
Góð staðsetning. Allar nánari upplýs-
ingar veittar í síma 96-25607.