Morgunblaðið - 20.03.1993, Side 23
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARZ 1993
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARZ 1993
23
JtorgitiiM&Mli
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. ( lausasölu 110 kr. eintakið.
Bretar á batavegi
E'árlagafrumvarp það, sem
Norman Lamont, fjármálaráð-
i Bretlands, kynnti á þriðjudag,
er um margt merkilegt. I fyrsta
lagi er þetta í síðasta skipti sem
hluti bresku fjárlaganna er lagður
fram að vori. Héðan í frá mun frum-
varp til fjárlaga breska ríkisins
verða kynnt í heild I nóvembermán-
uði. í öðru lagi er þetta fyrsta fjár-
lagafrumvarpið sem lagt er fram
eftir að Bretar hættu þátttöku í
gengissamstarfi Evrópu og létu
sterlingspundið fljóta á alþjóðlegum
gjaldeyrismörkuðum. í þriðja lagi
bendir margt til þess að loks sé
farið að sjá fyrir endann á kröpp-
ustu efnahagslægð, sem þjáð hefur
breskt efnahagslíf frá því í krepp-
unni miklu á íjórða áratugnum.
Ef sú reynist raunin eru það
ánægjuleg tíðindi. Fyrmefndir
efnahagserfiðleikar hafa á engan
hátt verið bundnir við Bretland eitt
og sér. Alls staðar á Vesturlöndum
hefur á undanfömum árum dregið
vemlega úr hagvexti, atvinnuleysi
aukist, raunvextir haldist háir og
lífskjör versnað. Efnahagsvandi
okkar íslendinga siðustu misseri er
um margt ekkert annað en grein
af þessum meiði þó svo að hmn
fiskistofnanna hafi gert vandann
meiri en hann ella hefði orðið.
Fyrstu tákn þess að farið væri
að birta til í efnahagsmálum á al-
þjóðavettvangi komu frá Bandaríkj-
unum. Hagtölur þaðan benda til
þess að hagvöxtur vestra hafi tekið
mikinn kipp á síðustu mánuðum og
að sama skapi hefur framleiðni í
efnahagslífínu aukist verulega. Þó
svo að ekki hafí enn dregið vem-
lega úr atvinnuleysi í Bandaríkjun-
um em batatáknin ótvíræð. Sú
efnahagsstefna, sem Bill Clinton
Bandaríkjaforseti kynnti Banda-
ríkjaþingi í síðustu viku, hefur líka
orðið til að efla trú manna á Banda-
ríkjunum. Meginmarkmið Clintons
er að draga úr hinum gífurlega
halla á fjárlögunum, sem leitt hefur
til svimandi skuldasöfnunar banda-
ríska ríkisins. Til að ná þessu mark-
miði hefur Clinton þurft að grípa
til mjög víðtækra skattahækkana
og hefur sætt gagnrýni af hálfu
stjómarandstöðunnar fyrir að
ganga á bak orða sinna í kosninga-
baráttunni.
Ýmislegt bendir til þess að nú
sé einnig farið að rofa til í Bret-
landi og raunar er athyglisvert
hversu margar hliðstæður má sjá
með Jjárlagafmmvarpi Lamonts og
efnahagsstefnu Clintons.
Lamont og embættismenn hans
hafa raunar oftsinnis spáð því að
betri tíð væri í vændum en ávallt
reynst hafa rangt fyrir sér. Hag-
fræðingar hins opinbera jafnt sem
efnahagssérfræðingar í einkageir-
anum em þó sammála um að í þetta
skipti sé ekki um tálsýn að ræða.
Fyrr í mánuðinum vom birtar
tölur um að nýbyggingar hefðu
aukist um fímmtung og fréttir bár-
ust af almennt batnandi afkomu
fyrirtækja. Flestir sérfræðingar
vom þó þeirrar skoðunar að batinn
yrði mjög hægur og að atvinnuleysi
yrði áfram mikið. Jafnvel eftir að
Lamont flutti ræðu sína á þriðjudag
var talið að atvinnuleysi myndi enn
aukast. Það kom því öllum í opna
skjöldu þegar nýjar atvinnuleysis-
tölur vom birtar á fimmtudag og í
Ijós kom að dregið hafði úr atvinnu-
leysi í febrúar,
Atvinnulausum í Bretlandi fækk-
aði þá um 22 þúsund og em nú
2,97 milljónir. Almennt hafði verið
spáð að fjöldi atvinnulausra myndi
fara yfir þijár milljónir. Þetta er í
fyrsta skipti sem atvinnulausum
fækkar frá þvl að efnahagskreppan
hófst á síðari hluta ársins 1990.
Atvinnuleysi i Bretlandi er samt
enn mjög mikið og eitt alvarlegasta
vandamál sem við er að stríða þar
í landi. í fjárlagafmmvarpi Lam-
onts eru nýjar og um margt frum-
legar tillögur til að draga úr vand-
anum. Líkt og í Bandaríkjunum
hyggjast stjómvöld grípa til viða-
mikilla framkvæmda við sam-
göngumannvirki en slíkar fram-
kvæmdir eru mjög vinnuaflsfrekar.
Einnig munu bjóðast hlutastörf hjá
sveitarfélögum til handa þeim sem
lengi hafa verið atvinnulausir. Þá
er áformað að greiða fyrirtækjum,
sem ráða einstakling til starfa er
verið hefur án atvinnu í tvö ár,
sérstakan styrk í eitt ár. Mun sá
styrkur nema þeim atvinnuleysis-
bótum, sem viðkomandi hefði ann-
ars_ fengið greiddar.
í fjárlagafrumvarpi Lamonts er
einnig að fínna áform um miklar
skattahækkanir. Líkt og í Banda-
ríkjunum er stór hluti þeirra vegna
nýs orkuskatts. í Bandaríkjunum
var ákveðið að hækka bensínskatt.
í Bretlandi stendur til að leggja
virðisaukaskatt á innlenda orku-
gjafa, einkum gas og rafmagn. Mun
sá virðisaukaskattur nema 8% árið
1994 en hækka í 17,5% árið 1995.
Þá verður tekjuskattur einstaklinga
hækkaður sem og fleiri skattar.
Alls stendur til að auka tekjur ríkis-
ins um 24,5 milljarða punda á
næstu fjórum árum. Rétt eins og í
Bandaríkjunum hefur sú gagnrýni
komið fram að þetta sé mesta
skattahækkun í sögu landsins. Að
mati Verkamannaflokksins mun
þetta þýða að hver meðalfjölskylda
í Bretlandi þurfi að greiða tæpar
níu hundruð krónur til viðbótar í
skatta á viku.
Rök Lamonts fyrir þessum miklu
skattahækkunum eru annars vegar
þau að orkuskatturinn sé í beinu
framhaldi af þeim skuldbindingum,
sem Bretar tókust á hendur í um-
hverfísmálum á Ríó-ráðstefnunni.
Þá bendir hann á að nauðsynlegt
sé að stöðva skuldasöfnun ríkisins
en lánsfjárþörf Breta hefur farið
stöðugt vaxandi og stefnir nú hrað-
byri í 50 milljarða punda á ári.
Fyrstu viðbrögð peningamarkaða
og verðbréfamarkaða við fjárlaga-
frumvarpinu og nýjum atvinriuleys-
istölum hafa verið fremur jákvæð.
Lamont hefur tekið mikla pólitíska
áhættu með frumvarpinu. Verði
ekki af boðuðum efnahagsbata mun
almenningur eiga erfitt með að
sætta sig við hinar miklu skatta-
hækkanir. Vonandi reynast spá-
dómar hans réttir í þetta skipti.
Líkt og áður var bent á, ræðst þró-
un mála hér á landi að miklu leyti
af því sem gerist í kringum okkur.
Ef efnahagsbatinn reynist varan-
legur í Bandaríkjunum og Bretlandi
mun þess einnig verða vart í þjóðar-
búskap okkar Islendinga.
Hagnaður YÍS
var 73 miHjónir
kr. á síðasta ári
Betri afkoma í mörgum greinum
HAGNAÐUR Vátryggingafélags íslands á sl. ári nam alls 73,1
milljón króna samanborið við 40,7 milijóna hagnað árið áður.
Tryggingarleg afkoma varð betri í mörgum greinum árið 1992
en verið hefur undanfarin ár þó enn sé mikill halli á rekstri ein-
stakra greina, t.d, slysatrygginga. í heildarafkomu félagsins veg-
ur þungt bætt afkoma ökutækjatrygginga þar sem iðgjaldatekjur
greinarinnar eru rösklega helmingur frumtryggingariðgjalda
félagsins.
í ársskýrslu VÍS sem lögð var
fram á aðalfundi félagsins í gær
kemur fram að efnahagssamdrátt-
urinn í þjóðfélaginu hafði mikil
áhrif á rekstur VÍS á árinu eins
og annarra þjónustufyrirtækja.
Nauðsynlegt reyndist að herða enn
innheimtuaðgerðir. Vegna vanskila
varð að fella úr gildi tryggingar í
meira mæli en áður.
„Með þessu móti er dregið úr
því að félagið sé í ábyrgð fyrir tjón-
um án þess að fá greidd iðgjöld.
Að auki voru á árinu færðar til
gjalda 105,4 milljónir til að mæta
niðurfærslum og afskrifuðum kröf-
um sem að mestu má rekja til gjald-
þrota og greiðsiuerfiðleika fyrir-
tækja og einstaklinga," segir í árs-
skýrslunni. Afskriftir fasteigna og
lausafjár námu 157 milljónum, þar
af er 44,7 milljóna aukaafskrift til
að mæta lækkandi markaðsverði
fasteigna.
Lægri rekstrarkostnaður
Sú breyting var gerð á ökutækja-
tryggingum á sl. ári að þeir sem
ekið hafa tjónlaust fengu lækkun
á sínum iðgjöldum en yngri öku-
mönnum og þeim sem höfðu lent í
tjónum var gert að greiða stór-
hækkuð iðgjöld. Kemur fram í árs-
skýrslunni að reynslan af þessari
breytingu hafi verið góð.
Rekstrarkostnaður lækkaði enn
sem hlutfall af iðgjöldum. Samtala
kostnaðar og greiddra umboðs-
launa varð 18,4% af iðgjöldum árs-
ins. Hefur kostnaðarhlutfallið stöð-
ugt farið lækkandi frá stofnun fé-
lagsins en árið 1988 var sambæri-
leg tala hjá stofnfélögum VÍS
27,7% af iðgjöldum.
Iðngjöldin 4,4 milljarðar
Iðgjöld ársins námu 4.459,6
milljónum sem er um 6% hækkun
frá árinu 1991. Greidd iðgjöld til
endurtryggjenda voru 831,5 millj-
ónir og eigin iðgjöld 3.628,1 millj-
ón. Tjón ársins voru 3.618,4 millj-
ónir og hækkuðu um 8,2% frá fyrra
ári. Tryggingarsjóðir félagsins
námu í árslok 6.139 milljónum sem
er 1.231,4 milljón króna hækkun
frá fyrra ári. Ef tillit er tekið til
endurtryggjenda eru eignir trygg-
ingarsjóðir 5.635,6 milljónir og
höfðu vaxið um 1.325,5 milljónir
eða um 31,6%.
Á aðalfundi VÍS í gær voru end-
urkjörnir í stjórn þeir Ingi R. Helga-
son, Guðjón B. Ólafsson, Friðjón
Þórðarson, Geir Magnússon, Guð-
mundur Oddsson, Jónas Hallgríms-
son, Magnús Gauti Gautason og
Þorsteinn Sveinsson. Samþykkt var
að greiða hluthöfum 10% arð.
Fjármálaráðherra segir þörf á að endurskoða starfsmannalög ríkisins
, , Morgunoiaoio/Arm sæoorg
Umbætur 1 rikisrekstri
FJÖLDI forsvarsmanna ríkisstofnana og ráðuneyta tóku í gær þátt í ráðstefnu um stjórnun í ríkisrekstri, umbætur og nýsköpun sem fjár-
málaráðherra boðaði til. Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni voru fjármálaráðherra, forsljórar einkafyrirtækja sem fjölluðu um stjórnun og
stefnumótun, ráðuneytissljóri danska hagsýsluráðuneytisins o.fl. í ræðustól er Magnús Pétursson ráðuneytissljóri fjármálaráðuneytisins.
Vill skoða samræmingu á launa-
kjörum ríkis og einkafyrirtækja
FRIÐRIK Sophusson fjármála-
ráðherra sagði í gær á ráð-
stefnu um stjórnun í ríkis-
rekstri, umbætur og nýsköpun,
að endurskoða þurfi lögin um
réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna. Skoða þyrfti
hvort samræma ætti kjör opin-
berra starfsmanna og þeirra
sem störfuðu á almennum
vinnumarkaði og huga að
hvernig megi umbuna þeim ein-
staklingum sem stæðu sig vel.
Fjármálaráðherra benti á að
lögin um réttindi og skyldur opin-
berra starfsmanna verða 40 ára á
næsta ári. Þegar þau öðluðust gildi
árið 1954 var vinnuaflsnotkun
hins opinbera um það bil 8% af
heildarársverkum þjóðarinnar en
á þessu ári er hún hins vegar um
það bil 20%, að sögn Friðriks.
„Þessi staðreynd ásamt gjör-
breyttum rekstri ríkisins hlýtur að
kalla á endurskoðun laganna. Þá
hljótum við að velta fyrir okkur
hvort samræma skuli kjör opin-
berra starfsmanna og þeirra sem
starfa á almennum vinnumarkaði.
Í því sambandi þarf að gefa því
gaum hvemig hægt er að umbuna
þeim einstaklingum sem standa
sig vel,“ sagði hann.
TÆPLEGA 100 forsvarsmenn
ríkisstofnana og ráðuneyta, sem
sóttu ráðstefnu sem fjármála-
ráðuneytið boðaði til í gær um
umbætur í ríkisrekstri, tóku þátt
í sérstakri viðhorfskönnun um
ýmsa þætti ríkisrekstrarins.
Skv. niðurstöðum hennar töldu
flestir að núverandi launakerfi
opinberra starfsmanna stæði í
vegi fyrir umbótum í ríkis-
rekstri.
65% töldu að breytt rekstrarform
í ríkisrekstri, s.s sjálfseignarstofn-
„Þegar rætt er um starfs-
mannamál vaknar sú spuming
hvort stöðugildishugsunarháttur
hins opinbera sé orðinn úreltur.
Getur verið að það sé betri trygg-
ing fyrir því að hæft fólk sé ráðið
hjá ríkinu, að stofnunum og opin-
un eða hlutafélag, gæti falið í sér
rekstrarlegan ávinning. 86% töldu
best reknu ríkisfyrirtæki standa
best reknu einkafýrirtækjum fylli-
lega á sporði og vora aðeins þrír
þátttakendur ósammála því.
Pólitík hefur áhrif
á ákvarðanir
Tæp 70% töldu að pólitískir
hagsmunir hefðu áhrif á ákvarðan-
ir stjómenda og rekstur ríkisstofn-
ana Þá töldu 3/4 af þátttakendum
í könnuninni að hægt væri að bæta
þjónustu ríkisstofnana ef þær
berum fyrirtækjum séu tryggðir
ákveðnir fjármunir til fijálsrar
ráðstöfunar fremur en greiðslur
til að mæta fyrirfram samþykkt-
um um fjölda stöðugilda," sagði
Friðrik Sophusson einnig.
hefðu rýmri heimildir en nú er til
ráðstöfunar sértekna.
Um sex af hverjum tíu telja að
eðlismunur sé á ríkisrekstri og
einkarekstri með tilliti til fjárhags-
legrar stjómunar og þjónustu en
meirihlutinn eða 67% er sammála
um að ríkisstofnanir eigi að sækja
fyrirmyndir úr einkarekstri. Þá
taldi meirihluti svarenda að auka
þurfi hreyfanleika starfsmanna,
draga úr æviráðningum stjómenda
og auka þátt starfsmanna í ákvarð-
anatöku.
Osveigjanlegt launakerfi
Gott fólk hlut-
skaipast í sam-
keppni ÍMARK
NÍU athyglisverðustu auglýsingar ársins 1992 voru verðlaunaðar í
Borgarleikhúsinu í gær, en þetta er í sjöunda sinn sem ÍMARK, ís-
lenski markaðsklúbburinn, gengst fyrir slíkri samkeppni. Tvenn verð-
laun, gullhúðuð gjallarhorn, voru veitt í hveijum flokki, önnur til
auglýsingastofunnar og hin til auglýsandans. Auglýsingastofan Gott
fólk hf. varð hlutskörpust og hlaut þrenn verðlaun, en Hvíta húsið
og AUK hf. fengu hvor um sig tvenn verðlaun. .
Auglýsingastofan Gott fólk hlaut
verðlaun í flokki dagblaðaauglýsinga
fyrir auglýsingu Hf. Ölgerðarinnar
Egils Skallagrímssonar og fyrir at-
hyglisverðustu sjónvarpsauglýsing-
una ásamt Ríkissjóði íslands. Þá var
kynningarefni auglýsingastofunnar
um listamanninn Tolla verðlaunað
sem athyglisverðasta útsendiefnið.
Auglýsingar Markaðsnefndar
mjólkuriðnaðarins sem framleiddar
voru af Hvíta húsinu vora valdar
athyglisverðastar í flokki óvenjuleg-
ustu auglýsinganna og umhverfis-
grafíkur.
Verðlaun fyrir athyglisverðustu
tímaritaauglýsinguna fengu AUK hf.
og Sjóvá-Almennar og Björn H.
Jónsson hjá AUK hf. hlaut verðlaun
fyrir athyglisverðasta vöru- og
firmamerkið ásamt Markaðsnefnd
landbúnaðarins.
Auglýsingastofa P & Ó og Sæl-
gætisgerðin Freyja fengu verðlaun
fyrir athyglisverðustu útvarpsaug-
lýsinguna og verðlaun fyrir athyglis-
verðustu auglýsingaherferðina hlutu
Flugleiðir og íslenska auglýsinga-
stofan hf.
Gefendur verðlauna voru RÚV,
íslenska útvarpsfélagið, Morgun-
blaðið, Fróði hf., Silkiprent hf.,
Sjóvá-Almennar, Póstur og sími, DV
og Verslunarráð íslands.
Morgunblaðið/Kristinn
Heimir Steinsson útvarpsstjóri afhenti verðlaun fyrir athyglisverðustu
sjónvarpsauglýsinguna. Við verðlaununum tóku Pétur Kristinsson frá
Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa og Helgi Helgason hjá auglýsingastof-
unni Gott fólk, sem er lengst til vinstri á myndinni.
ísland hefur gott orðspor
á erlendum lánamörkuðum
- segir sir Chippendale Keswick, stjórnarformaður Hambrosbanka
SIR Chippendale Keswick, stjórnarformaður Hambros banka í Bret-
landi, kom hingað til lands í síðustu viku til viðræðna við helstu
viðskiptavini bankans. Hann efndi til móttöku fyrir þessa aðila, sljóm-
málamenn o.fl. Chippendale hefur verið stjómarformaður Hambros
banka frá árinu 1986 en hefur ekki komið hingað áður í umboði
bankans. Hann hefur þó komið hingað á hverju ári síðastliðin 28 ár
til laxveiða. Hambros banki hefur langa reynslu af viðskiptum við
Islendinga og hefur bæði veitt lán til ríkissjóðs og annast skulda-
bréfaútboð á alþjóðlegum lánamarkaði. Þá hafa íslensk fyrirtæki
og bankar átt viðskipti við Hambros og má þar nefna Landsbankann
og Sambandið. Viðtalið fór fram áður en aðgerðir ríkisstjórnarinnar
vegna Landsbankans vom kynntar en í símtali við Morgunblaðið sl.
miðvikudag vildi Chippendale aðeins segja að Hambros banki teldi
það skynsamlega ákvörðun að selja nýtt fjármagn í Landsbankann.
Chippendale var fyrst spurður lægð er í Evrópu, sem virðist vera
hvort hann teldi að erfíðleikar hjá
bönkum á hinum Norðurlöndunum
hefðu haft áhrif á stöðu íslands á
alþjóðlegum lánamörkuðum.
„Ég held að öll ríki sem eru í
alþjóðlegum viðskiptum, eins og
Island, verði fyrir áhrifum af þeim
aðstæðum sem ríkja hjá nágranna-
ríkjunum. Erfíðleikamir í banka-
kerfum hinna Norðurlandanna
hljóta að valda því að viðskipta-
umhverfíð sé núna ekki jafn vin-
samlegt fyrir ísland og áður enda
þótt landið eigi þar ekki hlut að
máli. Vandamálið er af tvennum
toga því á sama tíma og efnahags-
mjög kröpp, eru jafnframt að verða
miklar breytingar í álfunni.
Öll Norðurlöndin hafa valið þá
leið koma á markaðshagkerfí og
dregið úr beinum afskiptum stjórn-
valda af efnahagslífínu. Það hefur
hins vegar reynst þeim mjög erfítt
að þurfa að glíma við efnahagssam-
drátt á þessu breytingaskeiði. Hug-
takið markaðshagkerfi felur í sér
að vald stjórnmálamanna er tekið
af þeim og látið markaðnum í té.
Þegar slíkar breytingar eiga sér
stað á sama tíma og samdráttur í
efnahagslífinu þá veldur það erfið-
leikum. Þetta er nákvæmlega það
sem hefur gerst. Það þýðir ekki að
markaðshagkerfið sé í eðli sínu
ekki rétta leiðin og horfið skuli frá
henni heldur þarf hver þjóð að
ákveða fyrir sig hversu fljótt hún
ræður við að innleiða það bæði
stjórnmálalega og efnahagslega.
Að mínu áliti eru vandamálin fólgin
í þessu.“
Lánstraust íslendinga
er ekki í hættu
- Telur þú að áhyggjur hafi
gert vart við sig á erlendum lána-
mörkuðum í þá veru að svipaðar
efnahagslegar aðstæður kynnu að
skapast hér á landi og í Færeyjum
og Finnlandi?
„Ég þekki ekki nægilega vel til
efnahagsmála á íslandi til að bera
þau saman við aðstæður í Færeyj-
um eða Finnlandi. Mín tilfinning
er sú að íslensk stjórnvöld hafi betri
stjóm á efnahagsmálum en sumar
nágrannaþjóðanna. Hvað Finnland
snertir eru erlendar skuldir meiri
og afkoma bankakerfisins hefur
verið slæm. Eftir því sem ég kemst
næst eru Islendingar að glíma við
aðstæður í efnahagslífinu innan-
lands. ísland getur því betur ráðið
sínum eigin örlögum. Ég held einn-
ig að alþjóðlegir bankar geri sér
grein fyrir því því að ísland hefur
mjög gott orðspor í því að standa
við erlendar skuldbindingar sínar.
Ef þjóðin er reiðubúin að leggja
harðar að sér, eins og aðrar þjóðir
Evrópu þurfa að gera, þá held ég
ekki að lánstraust íslendinga sé í
hættu um þessar mundir vegna
vandamála innanlands."
Ríkisbankar njóta betra
lánstrausts
- Stjórnvöld hafa haft uppi
áform um að einkavæða Lands-
bankann og Búnaðarbankann. Hver
yrðu viðbrögð við því á erlendum
lánamörkuðum að þínu áliti?
„Þetta er innanlandsmálefni sem
ég er hikandi við að tjá mig um.
Almennt njóta hins vegar ríkisbank-
ar betra lánstrausts á alþjóðlegum
markaði en bankar í eigu einkaað-
ila. Það er augljóst að banki innan
ríkisgeirans nýtur sama lánstrausts
og viðkomandi ríki en banki í einka-
eign er metinn eftir eigin fé, af-
komu, stöðu viðskiptavina og því
umhverfi sem hann starfar í.
Bretar hófu fyrstir þjóða einka-
Morgunblaðið/Sverrir
Stjórnarformaður Hambros
banka í Bretlandi, sir Chippendal
Keswick, heimsótti ísland í síð-
ustu viku í umboði bankans í
fyrsta sinn frá því hann tók við
þessu starfi árið 1986. Hann hef-
ur hins vegar komið hingað ár-
lega til laxveiða og því haft mik-
il persónuleg kynni af landinu.
væðingu og hún hefur síðan breiðst
út um heiminn. Að mínu áliti er
einkavæðingin stundum misskilin.
Upphaflega var ráðist í einkavæð-
ingu í Bretlandi af því að ríkisrekin
fyrirtæki vora orðin eins konar
forneskjulegir risar. Hjá þeim voru
of margir starfsmenn, fyrirtækin
vora óhagkvæm í rekstri og þjónuðu
ekki heildarhagsmunum breska
efnahagskerfisins. Stjórnvöld
ákváðu því að setja fyrirtækin und-
ir aga markaðarins sem gerði það
að verkum að þau gátu dafnað.
Markaðurinn er miklu kröfuharðari
húsbóndi en opinber stjórnsýsla því
þar er unnið að málum á allt annan
hátt.
Það hefur komið mér á óvart að
á Norðurlöndum, að meðtöldu ís-
landi, eru mörg fyrirtæki í ríkiseigu
vel rekin. Agi markaðarins mun því
hafa minni áhrif en ef þau væra
illa rekin. Mér sýnist að íslensk
fyrirtæki séu vel rekin hvort sem
þau era í ríkiseigu eða einkaeigu.
Þið verðið að spyrja ykkur að því
hver tilgangurinn sé með einkavæð-
ingu. Á að selja fyrirtækin í núver-
andi rekstri? Ég held að það sé
ekki hægt að bæta reksturinn vera-
lega með því einu að færa fyrirtæki
úr ríkisrekstri í einkarekstur þó ég
trúi á markaðshagkerfið og sam-
keppni. Einkavæðing sem verður
framkvæmd á réttum tíma í ís-
lenska hagkerfínu mun hins vegar
verða til góðs til lengri .tíma litið
því að samkeppni eykst og verð
lækkar til hagsbóta fyrir neytand-
ann.
En fyrirtæki eru mjög háð fjár-
magni. Ef íslendingar vilja einka-
væða þá er mín ráðlegging sú að
leggja fremur fjármagn í fyrirtækin
í stað þess að fjármagn sé tekið
út úr þeim. Þegar fyrirtæki era
seld þá gerist það eitt að þau skipta
um eigendur en ekkert nýtt fjár-
magn er lagt í reksturinn. Flest
norræn fyrirtæki hafa of lítið eigið
fé. Það ætti þvf að nota tækifærið
við einkavæðingu og leggja fjár-
magn í fyrirtækin til að styrkja
stöðu þeirra.
Sú spurning vaknar hveijir vilji
leggja fjármagn í íslensk fyrirtæki
um þessa mundir. Annaðhvort er
um að ræða sölu hlutabréfa á inn-
lendum markaði eða erlenda eignar-
aðild. .Það er ekkert óeðlilegt við
erlenda eignaraðild. Þið þurfíð hins
vegar að spyija ykkur þeirrar
spurningar hvort útlendingar vilji
fjárfesta í hlutabréfum á íslandi þar
sem markaðurinn er augljóslega
mjög lítill. Mín skoðun er sú að
eftirspum sé mjög takmörkuð
frá öðrum löndum og að fjár-
magn muni ekki streyma inn í
landið í miðri efnahagslægð. Mér
sýnist því að einkavæðing eigi
ekki að vera á dagskrá núna
heldur eigi markmiðin að vera
til staðar. Ég ráðlegg ykkur að
taka ekki fé úr rekstri fyrir-
tækja og ekki láta breytingar á
eignarhaldi rugla ykkur í ríminu.
Breyting á eignarhaldi skiptir
rekstur fyrirtækjanna engu máli
nema ríkið standi sig illa við
rekstur þeirra og í mörgum til-
vikum er ekki um það að ræða. “
Bankar gjalda aukningu útlána
nyög dýru verði
- Hvernig standa breskir bank-
ar um þessar mundir?
„Afkoma breskra banka eins og
margra annarra banka er mjög
slæm um þessar mundir. Banka-
kerfíð í heiminum er nú að gjalda
mjög dýru verði fyrir mikla útlána-
aukningu eftir 1987. Það ár var
svonefndur „svartur mánudagur“
þegar verðfall varð á hlutabréfa-
mörkuðum um allan heim. Stjórn-
völd komust að þeirri niðurstöðu
að til að lagfæra þetta þyrfti að
auka framboð fiármagns. Þetta var
gert með því að lækka vexti. Banda-
ríkin áttu frumkvæðið, Bretar komu
í kjölfarið og síðan aðrar þjóðir að
Þjóðveijum undanskildum.
í kjölfarið fylgdi efnahagsupp-
sveifla vegna hins ódýra lánsfjár
sem stóð fram á mitt ár 1989. Þessu
fylgdi síðan aukin verðbólga og
bankakerfíð lenti í ógöngum. Bank-
ar stóðu frammi fyrir því að eignir
rýrnuðu í verði, sérstaídega á fast-
eignamarkaðnum. Það mun taka
langan tíma að vinna þetta upp
aftur. Bankar hafa tapað miklu
fjármagni og geta þeirra til að fjár-
magna hagvöxt á nýjan leik er tak-
mörkuð þannig að það er líklegt
að framhald verði á efnahagssam-
drættinum. Fólk ætti ekki að standa
í þeirri trú að stjórnvöld geti fram-
kallað hagvöxt. Stjórnmálamenn
geta lækkað vexti eða fellt gengið
en þegar upp er staðið skiptir máli
að bankakerfíð sé nægjanlega ^
öflugt til að fjármagna hagvöxtinn.
Við eram í miðjum storminum um
þessar mundir. Afkoma banka er
mjög slæm og ekki góð hjá bönkum
á Islandi. Ég held að bönkunum
hafí ekki verið illa stjórnað heldur
séu þeir fórnarlömb aðstæðna og
mistaka sem voru gerð á seinni
hluta síðasta áratugar."
Chippendale var loks spurður um
viðskipti Hambros banka hér á
landi. „Ég þarf að virða bankaleynd
en Hambros á viðskipti bæði við
ríkið og fyrirtæki hér á landi,“ seg-,-
ir hann. „Koma mín hingað er liður
í því að viðhalda viðskiptum Ham-
bros við Islendinga. Þetta er venju-
leg heimsókn bankamanns til við-
skiptavinar, en er ekki vegna þess
að ég telji að hættuástand ríki í
efnahagsmálum hér á landi. Ég ber
fullt traust til íslands."
Viðtal: Kristinn Briem,