Morgunblaðið - 23.03.1993, Page 24

Morgunblaðið - 23.03.1993, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1993 Þriggja ára drengur lætur lífið í sprengjutilræði Segja IRA stefna að eigin rannsókn innan samtakanna Warrington, Dyflinni. Reuter. ÍRSKI lýðveldisherinn (IRA) hefur lýst yfir ábyrgð á sprengjutilræði í borginni Warrington í Norður-Englandi síðdegis á laugardag. Tvær sprengjur, sem faldar höfðu verið í öskutunnum, sprungu þá í fjölförnu verslunar- hverfi með þeim afleiðingum að þriggja ára drengur, Jonat- han Ball, lét lífið og tæplega sextíu til viðbótar særðust, sumir þeirra lífshættulega. Ball er yngsta fórnarlamb IRA til þessa og hefur þetta hryðjuverk vakið gífurlega reiði á Bretlandi. Heimildir innan lýðveldishersins hermdu í gær að til stæði að kanna tildrög málsins innan samtakanna. Spilling á Ítalíu Reuter. Hættur GIANNI Fontana sem sagði af sér embætti landbúnaðar- ráðherra Italíu um helgina. Ráðherra hrekstúr embætti Róm. Reuter. GIULIANO Amato, forsætis- ráðherra Ítalíu, tilnefndi í gærkvöldi þingmanninn Alf- redo Diana sem nýjan land- búnaðarráðherra í ríkisstjórn sína í kjölfar þess að Gianni Fontana, sem gegnt hafði því embætti, sagði af sér á sunnu- dag. Fontana, sem er kristi- legur demókrati, lét af emb- ætti í kjölfar þess að saksókn- arar í borginni Verona greindu honum frá því að þeir væru að kanna aðild hans að spillingarmáli. Fontana er fimmti ráðherrann í ríkisstjóm Amatos, sem verður að hætta störfum, vegna gruns um spillingu. Hann hefur setið á þingi í rúmlega tuttugu ár og sagðist ætla að „hreinsa mann- orð sitt fyrir framan dómstóla við fyrsta mögulega tækifæri". Amato sagði um helgina að hann hefði hug á að reyna að fá fleiri flokka inn í ríkisstjóm sína að lokinni þjóðaratkvæða- greiðslu þann 18. apríl nk. I þjóð- aratkvæðagreiðslunni munu ít- alir taka afstöðu til þess hvort breyta eigi kosningakerfi Ítalíu á þann veg að tekinn verði upp meirihlutakosning við kosningar til efri deildar þingsins. Ef það verður samþykkt má telja líklegt að næst verði reynt að breyta neðri deildinni á sama veg, en þar situr þorri þingmanna. Margt var um manninn í miðborg Warrington á laugardag enda héldu Bretar „Mömmudaginn“ hátíðlegan á sunnudag og því mikið um böm í búðum að leita að gjöfum handa mæðrum sínum. Að sögn lögreglu var um 500 grömmum af sprengi- efninu Semtex komið fyrir í ösku- tunnum. Hvatti lögregla almenning til að aðstoða lögregluna við að fínna hina seku. „Einhver veit hver bar ábyrgð á þessu og ég myndi hvetja þann hinn sama til hugsa ráð sitt rækilega," sagði Leslie Lee, yfirlögreglumaður. Itarleg rann- sókn er einnig hafin á upptökum myndbandavéla í nærliggjandi verslunum í þeirri von að á ein- hverri þeirra sjáist til hryðjuverka- mannanna. Hefnd IRA? Breska öryggislögreglan taldi hugsanlegt að IRA hefði sprengt sprengjurnar til að hefna þess að þrír liðsmenn samtakanna vom handteknir í Warrington í síðasta mánuði í kjölfar þess að þeir sprengdu gasgeyma í borginni í loft upp. Lögreglunni hefur orðið vel ágengt í baráttunni gegn IRA á síðustu vikum og er því einnig talið hugsanlegt að lýðveldisherinn hafi viljað sýna fram á styrk sinn. Bretar eru æfir vegna þessa máls og gætti þess greinilega í fyr- irsögnum dagblaða á sunnudag. Heimildir innan IRA héldu því í gær fram að aldrei hefði verið ætlunin að barn léti lífíð í sprengingunni og yrði gerð rannsókn á tildrögum málsins innan Lýðveldishersins. Það lægi í augum uppi að þetta hefði ekki verið með vilja gert þar sem barnsmorð af þessu tagi myndi skaða ímynd IRA á alþjóðavett- vangi. Sorg ÍBÚAR Warrington í Norður-Englandi leggja blómvendi á verslunar- götuna þar sem tvær öflugar sprengjur sprungu á laugardag. Þriggja ára drengur lét lífið og um sextíu manns særðust í sprengingunni sem írski lýðveldisherinn segist bera ábyrgð á. Sósíalistar bíða afhroð í þingkosningum í Frakklandi Stefnir í mesta þing- meirihluta sögunnar París. The Daily Telegraph, Reuter. FRANSKI Sósíalistaflokkurinn fékk hrikalega útreið í fyrri umferð frönsku þingkosninganna sem fór fram á sunnu- dag. Hlaut flokkurinn einungis tæplega 19% atkvæða mið- að við 34,7% í síðustu kosningum, árið 1988. Bandalag hægriflokkanna RPR og UDF fékk 39,6% atkvæða í fyrri umferðinni og er því spáð að þeir muni fá 440-476 þing- menn af 577 að lokinni þeirri síðari. Yrði það mesti þing- meirihluti í sögu Frakklands. Hægrimenn fara nú þegar með völdin í öldungadeildinni og í 20 af 22 héruðum. Með þessum kosningum virðist valdatímabili sósíalista í Frakklandi vera lokið en þeir tóku við völdum í kjölfar sigurs Francois Mitterr- ands í forsetakosningunum árið 1981 og þingkosninga næsta ár. Hægrimenn fóru með völd í ríkis- stjórninni árin 1986-1988 en eftir að Mitterrand var kosinn aftur for- seti til sjö ára árið 1988 efndi hann til þingkosninga og að þeim loknum var mynduð minnihlutastjórn sós- íalista. Sósíalistar endanlega úr leik? Þessi afgerandi ósigur sósíalista hefur vakið upp spurningar um hvort flokkurinn eigi jafnvel enga framtíð fyrir höndum. Hafa nokkrir helstu forystumanna sósíalista þeg- ar velt þeirri spurningu fyrir sér opinberlega hvort réttara væri að mynda nýjan flokk fyrir næstu for- setakosningar, sem fram eiga að fara 1995. „Ósigur sósíalista, sem er á mörkum þess að vera niðurlægj- andi, snýst ekki bara um að nýir menn taka við völdum. Það er búið að bola vinstrimönnum frá og það eru litlar líkur á að þeir komist aftur að í bráð,“ sagði dagblaðið Libération í gær. Flokkurinn tapaði jafnvel í kjör- dæmum sem hafa verið sterkustu vígi hans í áratugi, s.s. í borginni Lille í norðurhluta landsins og í Marseille. Lionel Jospin, fyrrverandi formaður Sósíalistaflokksins, sagði líkur á því að flokkurinn fengi færri en fimmtíu þingmenn en sósíalistar eru nú með 276 þingmenn. „Ég er niðurbrotinn," sagði Jospin. Margir af forystumönnum áttu í miklum erfíðleikum með að ná kjöri og sum- ir heltust úr lestinni þegar í fyrstu umferðinni. Þeirra á meðal var t.d. Michel Sapin fjármálaráðherra, sem bauð sig fram í úthverfi Parísar. Laurent Fabius, formaður Sósíal- istaflokksins, kenndi í gær hinu mikla atvinnuleysi í Frakklandi (10,5%) um ófarir flokksins í kosn- ingunum sem og því að menn yrðu sljóir gagnvart almenningsálitinu þegar þeir væru mjög lengi við völd. Á mörgum stuðningsmönnum sós- íalista var hins vegar að heyra að fjölmörg hneykslismál tengd flokknum hefðu haft mest áhrif á kjósendur. Flokkurinn hefur löng- um reynt að byggja upp þá ímynd að hann sé fulltrúi siðbóta í stjórn- málum en raunin hefur verið önnur. Sigurvegarinn JACQUES Chirac, leiðtogi flokks nýgaullista, á kjörstað. Búist hafði verið við að sameigin- legur listi tveggja umhverfls- vemdarflokka myndi ná töluvert miklu af óánægjufylginu á vinstri kantinum en sú reyndist ekki raun- in. Græningjar hlutu einungis 7,6% atkvæða sem er helmingi minna en þeim hafði verið spáð. Þjóðarfylking Jean-Marie Le Pens hlaut 12,4% atkvæða. Síðari umferðin á sunnudag Síðari umferð þingkosninganna fer fram á sunnudag og verður þá kosið í þeim kjördæmum þar sem enginn frambjóðandi fékk meira en 50% atkvæða í fyrri umferðinni. Eru allir frambjóðendur sem fengu meira en 12,5% atkvæða í fyrri umferðinni með í hinni síðari. Ekki er nauðsynlegt að fá helming at- kvæða í síðari umferðinni heldur nær sá frambjóðandi kjöri sem flest atkvæði fær. Að síðari umferðinni lokinni mun Mitterrand ákveða hveijum hann mun fela stjómarmyndunarumboð. Er talið líklegt að Edouard Ballad- ur, fyrrverandi fjármálaráðherra, verði fyrir valinu verði RPR stærsti flokkurinn en Valéry Giscard d’Estaing, sem verið hefur forseti Frakklands, hljóti umboðið ef UDF fær fleiri þingmenn. í fyrri umferð- inni fengu gaullistar aðeins fleiri atkvæði en UDF, eða 20,4% á móti 19,2%. Ekki er búist við að grundvallar- breyting verði á stjórn landsins þegar hægrimenn þar taka við völd- um. Staðan í efnahagsmálum er frekar slæm, atvinnuleysi mikið og kreppa í jafnt landbúnaði sem sjáv- arútvegi. Nokkurs ótta gætir í öðr- um Evrópuríkjum vegna ítrekaðra yflrlýsinga jafnt Chiracs sem Gisc- ards þess efnis að Frakkar eigi að beita neitunarvaldi sínu innan Evr- ópubandalagsins gegn samningi EB og Bandaríkjanna um landbúnaðar- mál innan GATT-viðræðnanna. Giscard hefur raunar gengið skrefí lengra en Chirac og lýst því yfír að hann telji að seqja eigi upp á nýtt um þær breytingar á hinni sameiginlegu landbúnaðarstefnu EB (CAP), sem samþykktar voru í fyrra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.