Morgunblaðið - 23.03.1993, Síða 30
30
SJÁLFVIRKI
OFNHITASTILLIRINN
Stöðug þægindi
óháo veðra-
brigðum.
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260
SPARAÐU
ÞÉR TfMA OG
FYRIRHÖFN VIÐ
ERLENDAR
BRÉFASKRIFTIR
Ný handbók sem
inniheldur 180
viðskiptabréf á ensku
með íslenskum
skýringum
| Kaflar í bókinni eru:
• Almenn viðskiptabréf
• Samskiptí við viðskiptamenn
• Fyrirgreiðsla og úrbætur
, • Bréf vegna lánafyrirgreiðslu
• Sötubréf
• Almenn uppsetning bréfa
Pöntunarsímar
67-82-63
69-45-94
Framtíðarsýn hf.
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR. 23 MARZ 1993
Erlent
Fyrsta Macintosh
eftirlíkingin á markað
BANDARÍSKA tölvufyrirtækið NuTek er að setja á markað ein-
menningstölvu sem vinnur á sömu forsendum og Macintosh tölvurn-
ar og getur því notað hugbúnað frá Apple. í frétt frá NuTek segir
að fyrirtækið muni bjóða nýju tölvurnar á verði sem er mun lægra
en sambærilegar Macintosh tölvur kosta.
Apple hefur látið að því liggja
að fyrirtækið muni hefja málsókn
á hendur NuTek fyrir að virða ekki
einkaleyfi Apple og útgáfuréttindi.
Talsmenn NuTek segja hins vegar
að hinir 15 tæknimenn sem hjá
fyrirtækinu starfa hafi hannað nýju
tölvuna frá grunni án þess að
ganga á réttindi Apple.
Auk þess sem NuTek er að binda
endi á hina miklu sérstöðu sem
Apple hefur haft á tölvumarkaðn-
um undanfarin ár hyggst fyrirtæk-
ið jafnframt setja á markað ein-
menningstölvu sem getur notað
hugbúnað frá Apple jafnt sem IBM.
Norsk Data af skrá
SKRÁNINGU hlutabréfa norska tölvufyrirtækisins Norsk Data
hefur verið hætt í nokkrar vikur meðan fram fer gagnger endur-
skipulagning á fjármálum fyrirtækisins. Skuldir þess nema um
650 milljónum norskra króna. Unnið er að skuldbreytingu en kaup-
höllin í Osló segir óljóst hvaða áhrif sú aðgerð muni hafa á hluta-
fé fyrirtækisins og eignarhald. Norsk Data hefur verið rekið með
tapi undanfarin 5 ár.
Forsvarsmenn Norsk Data gera
ráð fyrir að samningum við lána-
drottna verði lokið fyrir næstu
mánaðamót og þegar samningur
um skuldbreytingu liggi fyrir muni
fyrirtækið birta reikninga sína fyr-
ir árið 1992. Norsk Data tilkynnti
hins vegar að Nordic Data, eignar-
haldsfélag sem stofnað var í sept-
ember 1991 og lýtur sömu fram-
kvæmdastjórn og Norsk Data hafi
skilað 92 milljóna n.kr. hagnaði
af alls 806 milljóna n.kr. veltu.
Frestast NAFTA íKanada?
TALIÐ er hugsanlegt að kanadíski forsætisráðherrann, Brian
Mulroney sem sagði af sér störfum í síðasta mánuði, muni ekki
sækjast eftir staðfestingu þingins NAFTA samningnum áður enn
hann lætur af embætti í júlímánuði.
NAFTA er fríverslunarsamningur
á milli Bandaríkjanna, Kanada og
Mexíkó sem undiritaður var í des-
ember en þing hvers lands þarf
að samþykkja hann áður en samn-
ingurinn tekur gildi.
Haft er eftir einum af nánum
ráðgjöfum Mulroney að samning-
urinn verði ef tii vill skilinn eftir
handa eftirmanni Mulroneys eða
jafnvel þangað til almennum kosn-
ingum er lokið í lok ársins. Samn-
ingurinn er viðkvæmt pólitískt mál
í Kanada en margir Kanadabúar
kenna fríverslunarsamningi
Bandaríkjanna og Kanada frá ár-
inu 1989 um vaxandi atvinnuleysi.
Mettap hjá Volvo ífyrra
SÆNSKA bílafyrirtækið Volvo hefur skýrt frá því að mettap
hafi verið á rekstri þess í fyrra og arðgreiðslurnar verði lækkaðir
í fyrsta skipti í sögu fyrirtækisins.
Tap Volvo í fyrra fyrir skatta
nemur 3,3 milljörðum sænskra
króna, 28 milljörðum íslenskra, en
árið áður var fyrirtækið rekið með
1,1 milljarðs sænskra króna hagn-
aði. Volvo lækkaði arðgreiðslur
Husqvarna
Husky Lock
Overlock saumavélar
• Mismunaflutningur •
fyrir prjón
• Stiglaus sporbreidd •
og sporfengd
• Rúllusaumur •
Verð fró
33.820,- kr. stgr.
völusteinn»,
m0J Faxafen 14, Sími 679505
Umboðsmenn um allt land.
sínar fyrir árið í fyrra um helming
miðað við árið 1991, úr 15,5 í 7,75
s.kr. á hlut. Talsmaður fyrirtækis-
ins sagði að þótt eftirspurnin eftir
Volvo-bílum hefði aukist í Banda-
ríkjunum væri ekkert lát á verð-
samkeppninni og því væri mark-
aðsstaða fyrirtækisins veik.
NYOG 8000
FULLKOMNARI
MÉRKIVÉL
fyrir fyrirtæki,
skrifstofur og heimili
Prentar allt aö 5 línur, 10 leturgerðir,
6 stæröir og strikamerki.
Prentar lárétt, lóörétt og spegilprentun.
Prentar Þ og Ð
Betra letur, betri borOar
NO|__
NÝBÝLAVEGI28,200 KÓPAVOGUR
SÍMI: 44443 & 44666, FAX: 44102
ENDURSKOÐENDUR — Á myndinni eru sigurvegar-
arnir að taka við verðurlaunum frá Jóni Sigurðssyni viðskiptaráð-
herra, þeir eru Benóný Torfi Eggertsson, Ulfar Örn Friðriksson,
Halldór Arason, Sigurður P. Sigurðsson og Stefán D. Franklín.
Stjórnunarkeppnin
Endurskoðunarskrifstofa
Björns Arnasonar sigraði
ENDURSKOÐUNARSKRIFSTOFA Björns E. Árnasonar sigr-
aði í landsúrslitum Samnorrænu stjórnunarkeppninnar sem
haldin voru síðastliðinn laugardag og í öðru sæti var Ríkisbók-
hald. í þriðja sæti var Ríkisendurskoðun.
Liðin í fyrsta og öðru sæti
munu fara til Bergen í lok þessa
mánaðar og keppa um Norður-
landameistaratitilinn í stjórnun
en þar keppa 2 lið frá hveiju
Norðurlandanna. Að sögn
Ragnars H. Guðmundssonar
markaðsstjóra keppninnar er
þriðja sætið besti árangur ís-
lensks liðs til þessa í norrænu
keppninni.
10 lið kepptu til úrslita sl.
laugardag.
RÍKISBÓKHALD — Lið Ríkisbókhalds var í öðru sæti. Á
myndinni eru Björn Snær Guðbrandsson, Alfreð Erlingsson, Guðjón
Ríkharðsson, Pétur Jónsson, Elín Einarsdóttir og Ragnheiður Gunn-
arsdóttir.
Fyrirtæki
Hagnaður Osta- ogsmjör-
sölunnar 66 milljónir
HAGNAÐUR Osta- og smjörsölunnar (OSS) fyrir endurgreiðslu til
mjólkurbúanna var 66,6 milljónir króna sem er nokkuð minni hagnað-
ur en árið áður þegar hann var 85,7 milljónir. Þrátt fyrir að sala
hafi aukist í magni 1992 miðið við árið áður dróst heildarsala OSS
saman um rúmar 150 milljónir króna.
Minni heildarsölu má m.a. rekja
til minni útflutnings og breytinga
í neyslumynstri, úr feitari í annars
vegar magrari og hins vegar ódýr-
ari afurðir. Heildarvelta var 3.851
milljónir árið 1992.
Eignir Osta- og smjörsölunnar
nema rúmlega 989 milljónum króna
en eigið fé er um 403 milljónir, það
gerir um 40,7% eiginfjárhlutfall.
lór-Panlojl
pxtbí
Niirinj; för IWf
''IUI ocll ilílM*i,r
VÍTAMÍN,
STEINEFNI
OG JURTIR.
FYRIR HÁR,
HÚftOG
NEGLUR
BIO-SELEN UMB.SIMI: 76610
Veltufjárhlufall var 1,25 á síðast-
liðnu ári.
Aðalfundur Osta- og smjörsöl-
unnar var haldinn hinn 5. mars sl.
þar sem fram kom að ákveðið hefði
verið að taka upp gæðakerfið ISO
9000 og stefnt væri að því að vott-
un fyrir osta og viðbit Ijúki næsta
haust.
Aðalfundur Samtaka afurða-
stöða í mjólkuriðnaði var haldinn
hinn 4. mars sl. þar sem meðal
annars kom fram að framleiðsla á
mjólk dróst saman um 5,5% í fyrra
í kjölfar nýja búvörusamningsins.
Þá gekk töluvert á birgðir mjólkur-
vara en þær minnkuðu um rúm
10,5%.
3M
Slípiefni