Morgunblaðið - 15.04.1993, Qupperneq 11
MORGUNBLABIÐ FIMMTUDAGUR 15. ABRÍL 1993
11
Samsýning í
Listmunahúsinu
Listmunahúsið í Hafnarhúsinu
við Tryggvagötu tók til starfa með
glæsibrag síðasta vor og stóð fyrir
nokkrum ágætum sýningum á síð-
asta ári. Hins vegar hefur fram-
haldið ekki gengið sem skildi, og
eftir góða samsýningu lítilla mynda
fýrir síðustu jól lagðist starfsemin
því miður af um sinn.
Nú hafa hins vegar orðið eig-
endaskipti á þessu sýningarhúsi,
og nýir eigendur hafa tekið við.
Mun ætlunin að halda áfram að
reka sýningarsal á svipaðan hátt
og áður með sölugallerí við hliðina.
Skal eigendunum óskað velfarn-
aðar í upphafi, og vonandi verður
Listmunahúsið í framtíðinni sterkur
vettvangur myndlistar í höfuðborg-
inni.
Starfsemin hefur nú hafist að
nýju með samsýningu á verkum
fimm þekktra myndlistarmanna,
þeirra Guðmundu Andrésdóttur,
Guðmundar Benediktssonar, Jó-
hannesar Jóhannessonar, Kjartans
Guðjónssonar og Valtýs Pétursson-
ar. Allir þessir listamenn voru
fæddir um 1920 og tóku þátt í
þeirri formbyltingu sem varð í ís-
lenskri myndlist á sjötta áratugn-
um. Valtýr er látinn, en hin eru enn
í fullu fjöri í myndlistinni, og flest
verk þeirra á þessari sýningu hafa
verið unnin á allra síðustu árum.
Hér gefst því ágætt tækifæri til
að fylgjast með hvaða framþróun
á sér stað í verkum þessara þekktu
listamanna.
Jóhannes Jóhannesson sýnir hér
níu verk, þar sem oddbogaformið,
sem hefur einkennt verk hans síð-
ustu ár, er í aðalhlutverki. Hér birt-
ist það í léttum leik mismunandi
lita, þar sem fínna má gott jafn-
vægi milli lita og línu, eins og í
„Haustbirta" (nr. 6).
Guðmunda Andrésdóttir sýnir
hér nokkur eldri verk, frá 1969 og
1972, sem sýna vel hvers vegna
þetta var mikilvægt tímabil í list-
sköpun hennar; hinir djörfu litir í
„Upprifjun" (nr. 12) draga enn að
sér athygli.
Kjartan Guðjónsson sýnir átta
málverk frá síðasta ári; í sumum
þeirra er kvenímyndin sterkur þátt-
ur, og listamaðurinn virðist vera
að gera nokkrar tilraunir með liti
og vinnuaðferðir, t.d. í „Ljúfur
svefn“ (nr. 15); aðrartengjast sjón-
um á einn eða annan hátt, líkt og
myndir Kjartans hafa oft gert áður.
Á sýningunni eru alls tíu verk
eftir Valtý Pétursson, öll frá síð-
asta áratug. Uppstillingamar eru
sérstaklega áhugaverðar, sem og
stílfærðar konumyndir, líkt og nr.
30, þar sem heitir litfletir og hring-
formin ráða mestu. Hafnarmynd-
irnar eru hins vegar nokkru kraft-
minni og hafa ekki sömu skírskotun
nú og fyrr.
Guðmundur Benediktsson sýnir
sex höggmyndir, flestar unnar úr
eir. Verkin byggja oft á jafnvægi
og tengingu tvískiptra forma, og
Guðmundur hefur nú einnig látið
eirinn taka á sig ýmis litbrigði, sem
njóta sín vel í verkunum.
Sýningunni er ágætlega fyrir
komið í sýningarsalnum, þannig að
verk hvers listamanns njóta sín að
mestu sem ein heild. Einkum á
þetta við verk þeirra Jóhannesar
og Valtýs, og er ljóst að myndlist
hinna eldri getur verið lifandi í sam-
tímanum engu síður en verk yngri
listamanna. Það er sérstaklega
ánægjulegt að sjá hér verk Valtýs
Péturssonar, sem hafa ef til vill að
nokkru lent í skugga starfa hans
sem myndlistargagnrýnanda um
áratuga skeið.
Samsýningin á verkum þeirra
Guðmundu Andrésdóttur, Guð-
mundar Benediktssonar, Jóhannes-
ar Jóhannessonar, Kjartans Guð-
jónssonar og Valtýs Péturssonar í
Listmunahúsinu við Tryggvagötu
stendur til sunnudagsins 18. apríl.
Baltasar í
FÍM-salnum
FÍM-salnum við Garðastræti
stendur nú yfir sýning á nokkrum
verkum myndlistarmannsins Balt-
asars, sem hafa kviknað út frá lestri
hinna fornu Eddukvæða, og má
með nokkrum rétti líta á sýninguna
sem framhald af sýningu sem hann
hélt í lista- og menningarstofnun-
inni Hafnarborg í Hafnarfirði fyrir
tveimur árum.
Á sýningunni getur að líta fjögur
málverk, unnin með blandaðri
tækni, og síðan stórar, svartar
teikningar, sem tengjast sömu við-
fangsefnum. Tvær teikninganna
hér eru raunar undirbúningur að
stórum málverkum í þessum
myndaflokki listamannsins, sem
voru afhent Spánarkonungi að gjöf,
þegar hann kom hingað til lands í
opinbera heimsókn.
Það eru hin stóru örlög, sem eru
viðfangsefni Eddukvæðanna og
þeirra myndverka, sem Baltasar
Baltasar: Loki í valsham.
hefur verið að skapa út frá þeim
nú um nokkurra ára skeið. Þarna
eiga sér stað stöðug átök lífs og
dauða og þeirra táknmynda, sem
tengjast örlögunum, þ.e. goða og
kynjavera - fugla, úlfa og hesta.
Öll trúarbrögð eiga sér sögur er
tengjast þessum hildarleik, en hin
norræna goðafræði býður örugg-
lega upp á dramatískari átök huldu-
heima en flestar þeirra trúarkenn-
inga, sem enn Iifa. Því er auðvelt
að skilja, að þessi viðfangsefni hafi
náð að heilla listamanninn.
Þrátt fyrir svipaða uppbyggingu,
hefur hvert málverk til að þera sinn
sérstaka svip og sinn eigin lita-
skala. Þannig verður „Skírnir" til
úr rauðum eldglæringum í dulúð-
ugu umhverfi; meira þarf ekki til
að móta þennan fræga fararskjóta.
í „Gangleri" leggur listamaðurinn
hins vegar meira upp úr myndbygg-
ingunni, og fyrir vikið verður hið
sterka miðvægi flatarins meira
áberandi en ella.
„Frigg í valsham" er ef til vill
sterkasta málverkið hér, og sýnir
vel hversu mikilvæg einstök smáat-
riði geta verið fýrir heildina í verk-
um Baltasars. Drunginn og birtan
takast á um völdin yfir málverkinu,
en í miðju þess skerpast átökin í
rauðum gogg og augum fuglsins,
sem baðar út vængjunum.
Teikningarnar eru mótaðar á
frjálsan og óþvingaðan hátt, en í
þeim eru aðalatriðin dregin skarp-
lega fram, og engin aukaatriði ná
að draga athyglina frá þeim. Fugls-
líki goðanna koma víðar fyrir en í
málverkunum, og má t.d. benda á
„Loka í valsham" og „Óðinn“ í því
sambandi. Hestar hafa einnig átt
mikið dálæti listamannsins, enda
eru það ætið reisulegar skepnur,
sem birtast í myndum hans, eins
og sést hér í „Hrímfaxi".
Sýningunni er afar vel fyrir kom-
ið í því takmarkaða rými, sem FÍM-
salurinn býður upp á. Málverkin
hafa nægt svigrúm og njóta sín
vel, sem leiðir síðan til þess að hin-
ar svörtu og sterklegu teikningar,
sem eru settar í mikla og þunga
járnramma til frekari áherslu, fá
einnig það pláss sem þær þurfa til
að standa sjálfstætt. Þama hafa
menn staðist ágætlega þá freist-
ingu, sem felst í því að ofhlaða list-
sýningar.
Sýning Baltasars í FÍM-salnum
við Garðastræti stendur til mánu-
dagsins 19. apríl.
Stykkishólmskirkja
Söngvar
ljóss og
myrkurs
SIGURÐUR Bragason söngvari
og Bjarni Þ. Jónatansson píanó-
leikari halda tónleika í Stykkis-
hólmskirkju á laugardaginn 17.
april, kl. 16.00. Tónleikarnir hafa
yfirskriftina Söngvar ljóss og
myrkurs og á efnisskrá þeirra
er m.a. ljóðaflokkurinn Söngvar
og dansar dauðans eftir Modest
Mússorgskíj fluttur á rússnesku.
Einnig verða flutt íslensk lög
eftir Jón Leifs, Sigvalda Kaldal-
óns, Árna Thorsteinsson og
gamansöngvar eftir Atla Heimi
Sveinsson, ásamt sönglögum eft-
ir ítalska höfunda s.s. Paolo
Tosti, Giuseppe Verdi o.fl.
Sigurður Bragason hefur sungið
á fjölmörgum tón-
leikum hér heima
og erlendis; í út-
varpi og sjónvarpi.
Hann hefur sungið
í óperum í Þjóðleik-
húsinu og íslensku
óperunni, einnig
með Óperusmiðj-
unni í Borgarleik-
húsinu og með ís-
lensku hljómsveit- Br^ason
mm í Langholts-
kirkju. Fyrir fímm
árum síðan kom út
plata með söng
hans. Sigurður
hefur verið stjórn-
andi Árnesinga-
kórsins í Reykjavík
frá 1988 og kenn-
ari við Tónlistar-
skólann á Akranesi
frá 1986. Hann Bjarni Þ. Jóna-
hefur haldið tón- tansson.
leika m.a. i Berlín, Bonn, Mílanó,
Kaupmannahöfn og Osló og er boð-
ið að syngja í La Salle Oliver eftir
Messiaen í Grenoble í Frakklandi í
sumar, og einnig í hinum kunna
Fílharmóníusal í'Köln.
Bjarni Þ. Jónatansson hóf tónlist-
arnám við Tónlistarskóla Eyrar-
bakka en síðan lá leiðin í Tónlistar-
skólann í Reykjavík og eftir loka-
próf þaðan var hann við framhalds-
nám hjá prófessor Philip Jenkins í
Lundúnum. Bjami hefur auk þess
sótt fjölda námskeiða, einkum í
ljóðasöng. Auk kennslu hefur Bjami
fengist töluvert við undirleik og
komið víða fram með kórum og ein-
söngvumm. Hann hefur verið fast-
ráðinn píanókennari og undirleikari
við Nýja tónlistarskólann frá 1982.
Wllllil
Kynnum nýja vor-matseðilinn^
með girnilegum
suður-amerískum réttum,
sem gæla við
bragðlaukana.
Sundlaugin er opin
öllum alla daga:
Vatnsrennibraut,
barna-busllaug,
heitir pottar og
náttúrugufubað
innifalið.
sxcittfiliig
Hinir frabæru
LOS
PARACAYOS
skemmta matargestum öll kvöld
vikunnar og í síðdegiskaffi-
tímanum laugardag og
sunnudag.
HÓTEL ÖDKi
HVERAGERÐI• SIMl 98-34700