Morgunblaðið - 15.04.1993, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.04.1993, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRIL 1993 Tvíhöfði skilar áliti, kvótaeigendur hrósa sigri Framsókn líkleg til stuðnings eftir Jóhann * Arsælsson Niðurstaða ríkisstjórnarflokkanna við endurskoðun fískveiðistefnunnar er í hnotskurn: að festa aflahlut- deildarkerflð í sessi og að veita kvótaeigendum víðtækt frelsi til að hagnast á kostnað sjávarútvegs- byggðanna, sjómanna og fískverka- fólks, og útlendingum möguleika til að eignast hlut í auðlindinni. Tvíhöfðanefndin hefur skilað áliti. Með því eru hrossakaup stjórn- arflokkanna frá því í haust staðfest. Höfuðniðurstaða stjórnarflokk- anna er að festa núgildandi kvóta- kerfí í sessi með því ígildi eignar- halds á auðlindinni sem því fylgir. Þær breytingar sem tvíhöfðanefndin leggur til að verði gerðar á fiskveiði- stjóminni ganga allar í þá átt að afhenda kvótaeigendum endanlega eignarréttinn á flskinum í sjónum og gera þennan aðgang að auðlind- inni að verslunarvöru. í þeim tilgangi leggur nefndin til eftirfarandi: Aflamarkskerfíð verði fest í sessi. (Þar er í raun átt við allt nið svokall- aða kvótakerfí og þar með aflahlut- deildina, það er að segja hver kvóta- eigandi á tiltekin % úr viðkomandi fiskistofni.) Aflamark verði sett á keilu, löngu, lúðu, steinbít og blálöngu. Vinnslustöðvar megi eiga kvóta. Smábátar fari á aflamark. Tvöföldun línuaflans verði afnumin. Útlendingum verði veittar heim- ildir til fjárfestinga í íslenskum sjáv- árútvegi. Veikburða viðnám Alþýðuflokks- ins sem fólst í því reyna að koma á sölu veiðiheimilda hafði þann árang- ur að gert er ráð fyrir að farið verði að innheimta veiðileyfagjöld í árslok 1996. Það breytir engu um algeran sigur veiðiréttareigenda í sjálfu grundvallaratriði málsins þ.e.a.s. ígildi eignarréttar kvótaeigenda í því að nýta auðlindina verður áfram í gildi. Alþýðuflokkurinn hafði í raun aldrei neina' skoðun á því hvernig stjórnkerfí fískveiða ætti að vera. Þar ætluðu menn að leysa öll vanda- málin með því að selja veiðileyfin. Sú aðferð getur aldrei tryggt þjóð- inni full yfirráð yfír auðlindinni nema ríkissjóður selji veiðileyfín hæstbjóð- enda. Ef það yrði gert myndi verða algert upplausnarástand í þjóðfélag- inu og öryggi fyrirtækja og byggðar- laga væri stefnt í stórkostlega hættu. Hugmyndir Alþýðuflokksins stóð- ust ekki umræðuna milli stjórn- arflokkanna, þeir urðu að viður- kenna að þær gengu ekki upp. For- svarsmenn kvótaeigenda, sem virð- ast fara með þessi mál í Sjálfstæðis- flokknum, fóru með sigur af hólmi. Hið svokallaða veiðileyfagjald er ekki líklegt til að breyta í neinu þeirri þróun sem kvótakerfið er að leiða yfir þjóðina. Það er hins vegar líklegt að gjald- ið verði að einhveiju leyti nýtt til að láta útgerðina standa undir rann- sóknum og kostnaði sem tilheyrir sjávarútveginum. Ríkisstjómin virðist stefna nú að því að afgreiða þessi mál í tvennu lagi þ.e.a.s. frumvarp um þróunar- sjóð nú á þessu þingi en aðrar breyt- ingar sem nefndin leggur til verði afgreiddar síðar. I hugmyndum um „þróunarsjóð" er gengið út frá því að aflamark- skerfi verði áfram í gildi þannig að verði þau áform að veruleika hefur núgildandi kvótakerfi verið fest í sessi. Fyrrverandi sjávarútvegsráð- herra, Halldór Ásgrímsson, hefur talað þannig um þessar hugmyndir og meðferð málsins, að leiða má að því líkur að Framsóknarflokkurinn muni vera tiltölulega ánægður með þróun þessa máls og væri jafnvel tilbúinn að liðka fyrir því að það fái í heild framgang á þessu þingi. Þetta er einkar athyglisvert, þeg- ar það er haft í huga, að ekkert samráð hefur verið haft við stjórn- arandstöðuna um þessi mál en um það var ákvæði í lögunum um stjórn fískveiða. í hinni svokölluðu „Hvítbók" rík- isstjómarinnar er eftirfarandi boð- skapur til þjóðarinnar: „Mörkun heildstæðrar sjávarút- vegsstefnu. Ríkisstjórnin hyggst móta sjávar- útvegsstefnu er nær jafnt til veiða, vinnslu og markaðsmála, hamlar „Það hefur aldrei verið mikilvægara en nú að safna liði gegn þessu stórhættulega mið- stýrða kerfi, þar sem ríkið tryggir þeim út- völdu frið til að leggja atvinnugreinar undir sig, gefur þeim vopn í hendur til að flytja lífs- björgina frá einni byggð til annarrar og skammta viðskipta- mönnum sínum það fiskverð sem þeim þóknast.“ gegn ofveiði, treystir byggð, stuðlar að hagræðingu, og tryggir stjórn- skipulega stöðu sameignarákvæðis laga um stjórn fískveiða." Það virðist ekki vera nokkur vafi á því hvernig eigi að skilja þetta fyrirheit. Þetta er yfirlýsing um að þjóðinni sem heild verði tryggð ævarandi og óumdeilanlegur eign- arréttur yfir auðlindinni. Verði framgangur málsins með þeim hætti sem stjórnarflokkarnir hafa boðað eru það hreint og klárt svik á þessu fyrirheiti sem þarna var gefíð. En hver er reynsla síðustu ára af kvótakerfinu og hvers má vænta á næstunni ef þær breytingar verða sem stjómarflokkarnir boða á fisk- veiðiþjóðinni? Tilflutningur veiðiheimilda sem hefur valdið byggðaröskun og at- vinnumissi hefur farið hraðvaxandi, hann mun nú breytast í lokaorrustu fólks í hinum einstöku útgerðarbæj- um fyrir lífí sinnar byggðar og sveit- arfélögin munu neyðast til að taka enn meiri þátt í rekstri sjávarútvegs- fyrirtækja til að geta ráðið úrslitum um það að kvótinn verði ekki seldur úr byggðarlögunum. Tími hinna stóru bæjarútgerða er að renna uþp. Kvótaeigendur munu nú fara að beita eignarhaldi sínu á aflaheimild- unum af fullum þunga en það hafa Jóhann Ársælsson fæstir af þeim gert til þessa og margir ekki tekið þátt í viðskiptum með kvóta vegna andstöðu sinnar við kvótakerfið. Nú þegar eru þau fyrirtæki sem komist hafa yfir ríflegar aflaheimild- ir farin að vinna á mun lægra hráefn- isverði en fæst á markaðnum. Sá gróði sem þannig fæst er ekki vegna sparnaðar eða hagræðingar, hann er fenginn á kostnað sjómanna og kvótalítilla útgerðarmanna. Þessi fyrirtæki láta aka aflanum til sín um þvert og endilangt landið og fólkið í byggðarlögunum sem hafa byggst upp vegna nærliggjandi fískimiða má horfa upp á það að aukin fískgengd á heimamiðum (sem er væntanlega vegna friðunar und- anfarinna ára) verður ekki til hags- bóta fyrir fólkið þar heldur er aflinn seldur á því verði sem kvótaeigand- anum þóknast að greiða og honum ekið til vinnslu jafnvel hundruð kíló- metra yfir íjallvegi að vetrarlagi. Svona stórkostleg er hagræðingin. Fiskverð á mörkuðum er og hlýtur alltaf að vera breytilegt og kannski hefur það verið of hátt á undanförn- um misserum en fiskverð kvótaeig- enda er fundið út með því að leita upp þann útgerðarmann sem verst er staddur og bjóða honum vinnu við að fiska til að gera eitthvað. Aflahlutur sjómanna verður eftir þessu. Þetta snilldarlega úthugsaða kerfi mun tryggja að útgerðarmenn sem ekki eiga nógan kvóta og sjómenn- irnir sem eru á bátunum hjá þeim munu borga kostnað kvótaeigend- anna við að komast yfir enn meiri veiðiheimildir og í krafti þeirrar að- stöðu munu enn fleiri verða hneppt- ir í ánauð. Stjórnarflokkarnir hafa klúðrað endurskoðuninni á lögunum um stjórn fiskveiða með því að ætla sér að leysa þetta mikilvægasta atvinnu- mál landsmanna með pólitískum hrossakaupum. Verði sú niðurstaða sem þeir hafa komist að framtíðarlausn í málefn- um sjávarútvegsins mun hefjast ör- væntingarfull barátta milli sjávarút- vegsbyggðanna um lífsgrundvöll sinn, kjör sjómanna munu skerðast stórkostlega og umboðsmenn er- lendra aðila munu fá möguleika til að flytja fiskinn úr landi á hinu nýja fiskverði kvótaeigendanna. Til þess að þessi skelfilega fram- tíðarsýn verði ekki að veruleika verða menn úr öllum starfsstéttum, þjóðfélagshópum og stjórnmála- flokkum að taka höndum saman um aðra skipan mála. Sem framlag sitt inn í þá umræðu hefur þingflokkur Alþýðubandalags- ins lagt fram þingsályktunartillögu um samstarf allra flokka um mótun sjávarútvegsstefnu sem sjávarút- vegsnefnd Alþingis hafi forystu um. Þar koma fram í drögum að laga- frumvarpi sem fylgir tillögunni út- færðar tiilögur um sóknarstýringu, sem fulltrúar úr sjávarútvegsráði flokksins hafa mótað. Þingflokkur- inn hefur ekki samþykkt tillögurnar sem endanlega frágengnar frá sinni hendi en leggur þær fram, til um- ræðu og lýsir sig reiðubúinn til að skoða aðrar hugmyndir sem uppfylla þær kröfur sem flokkurinn hefur mótað og sem hann telur að verði að gera til stjórnunar á þessari sam- eiginlegu auðlind þjóðarinnar. Þessar hugmyndir verða kynntar ■með ýmsum hætti á næstunni. Það hefur aldrei verið mikilvægara en nú að safna Iiði gegn þessu stór- hættulega miðstýrða kerfi, þar sem ríkið tryggir þeim útvöldu frið til að leggja atvinnugreinina undir sig, gefur þeim vopn í hendur til að flytja lífsbjörgina frá einni byggð til ann- arrar og skammta viðskiptamönnum sínum það fiskverð sem þeim þókn- ast. Höfundur er alþingismaður Aiþýðubandalagsins. Norrænt kvennaþing — Nordisk Forum 1994 eftir Valgerði Gunnarsdóttur Nýtt norrænt kvennaþing Norðurlöndin eru án efa í farar- broddi í jafnréttismálum í heiminum í dag. Aðrar þjóðir líta til Norður- landabúa sem fyrirmyndar á þessu sviði. Við íslendingar njótum góðs af merku samstarfi Norðurlanda- þjóðanna í jafnréttismálum og má þar nefna norræna jafnlaunaverk- efnið og samnorrænu jafnréttisáætl- unina sem samþykkt var á norræna kvennaþinginu, Nordisk Forum, í Osló 1988. Það þing var stærsta norræna átakið í jafnréttismálum með allt að 10.000 þátttakendum frá öllum Norðurlöndunum. Nordisk Forum í Osló þótti takast sérlega vel og var mikil hvatning þeim er þingið sóttu. Nú hefur Norræna ráð- herranefndin og Norðurlandaráð ákveðið að blása til nýrrar sóknar í jafnréttismálum og efna til annars norræns kvennaþings, Nordisk For- um, sem verður haldið í Ábo í Finn- landi fyrstu vikuna í ágúst 1994. Norræna ráðherranefndin lagði ram- mann að þinginu sem hefur verið valin yfirskriftin Líf og störf kvenna, hamingja og frelsi. M.a. er lögð áhersla á að rædd verði tengsl heim- ila og atvinnulífs, launajafnrétti og breytt fjölskylduábyrgð í nútíma- samfélagi. Stefnt er að því að þátt- takendur verði ekki færri en í Osló eða allt að 10.000 manns. Markmið Tilgangurinn með nýju norrænu kvennaþingi er margvíslegur. Hann er m.a. sá að meta þann árangur sem náðst hefur síðan á Nordisk Forum 1988 og glæða á ný jafnrétt- isumræðu á Norðurlöndunum. Þing- inu er ætlað að hvetja til nýrra að- gerða og vekja nýjar hugmyndir í jafnréttismálum. Það á einnig að auka tengsl milli kvenna og kvenna- hreyfínga á Norðurlöndunum og við nágranna þeirra í Austur-Evrópu, en konum frá Eystrasaltslöndunum verður boðin þátttaka í þinginu. Mikil áhersla er lögð á að hvetja ungar konur til þátttöku og til að þær leggi sitt af mörkum til jafnrétt- isumræðunnar. Síðast en ekki síst verður Nordisk Forum ’94 liður í undirbúningi Norðurlandanna fyrir kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna sem haldin verður 1995. Opinber jafnréttisráðstefna Jafnframt kvennaþinginu verður haldin opinber jafnréttisráðstefna í Ábo 1994. Þar munu mæta m.a. stjómmálamenn, embættismenn og fulltrúar kvennasamtaka til að leggja línur fyrir framtíðina. Niður- stöður ráðstefnunnar verða uppi- „Það er ekki nokkur vafi á því að þátttaka á Nordisk Forum í Ábo 1994 verður ógleyman- leg upplifun. Vonandi verður það einnig hvatning til að sýna styrk og samstöðu í baráttuni fyrir auknum áhrifum kvenna á öllum sviðum þjóðfélagsins til hagsbóta fyrir alla.“ staðan í nýrri jafnréttisáætlun fyrir Norðurlönd næstu 4 árin á eftir. Verður hún væntanlega samþykkt af jafnréttisráðherrunum á ráðstefn- unni. Undirbúningur Undirbúningur fyrir Nordisk For- um ’94 er þegar kominn nokkuð vel á veg. Undirbúningsnefndir eru teknar til starfa á öllum Norðurlönd- unum en formenn nefndanna mynda sameiginlega framkvæmdanefnd sem ber ábyrgð á fjárhag þingsins og hefur yfirumsjón með fram- kvæmd þess. Undirbúningsnefndirn- ar sjá þó aðeins um verkleg atriði Valgerður Gunnarsdóttir og að miðla upplýsingum um þingið en efni og innihald mun ráðast af því hvað þátttakendur sjálfir vilja sjá og heyra — hvert þeirra framlag verður. Þátttaka er öllum opin, jafnt konum sem körlum sem hafa áhuga á jafnréttismálum, svo og félaga- samtökum og hópum. Staður og efni Ábo er gamall og fallegúr bær og rennur áin Aura gegnum hann miðjan. í miðbænum sem verður vettvangur Nordisk Forum, stendur gömul dómkirkja, gömul og falleg menningarmiðstöð og háskólinn. Þetta svæði er vel afmarkað svo auðvelt er að komast á milli staða og njóta þess efnis sem í boði verð- ur. Einnig verða öll söfn, bíóhús, leikhús og fleiri staðir lögð undir atburðina. Auk fræðsluefnis og menningaratriða er fyrirhugað að hafa leikfimi daglega fyrir þátttak- endur og einnig kvennaskokk eða göngu. Þá verður róðrakeppni á ánni Aura og landskeppni kvenna í fótbolta er á dagskrá. Menningaratr- iði verða án efa mjög fjölbreytt. I bígerð er að halda kvikmyndahátið með myndum sem leikstýrt er af konum, þá verður haldin rokkhátíð á vegum Ábobæjar og söfn bæjarins lögð undir myndlist eftir konur frá öllum löndunum. Á hveiju sumri er haldin í Ábo svokölluð nótt listanna og sumarið ’94 verður hún vikuna sem Nordisk Forum stendur, nánar tiltekið þ. 4. ágúst. Þá nótt verða öll kaffi- og veitíngahús, söfn, kvikmyndahús og leikhús í bænum opin alla nóttina. Líklega verður blysför á bátum niður ána þessa nótt og ýmislegt annað sem erfitt er að geta sér til um nú. Framkvæmdanefndin mun standa fyrir einu dagskráratriði á dag. Meðal efnis sem fjallað verður um er norræna velferðarkerfið, framtíð þess og þær breytingar sem eru að verða á því í öllum löndunum. Einn- ig verður fjallað um frumbyggjakon- ur, kjör þeirra og framtíð. Aætlað er að fá Nóbelsverðlaunahafann Rigobertu Menchu til að ávarpa þinggesti af því tilefni. Það er ekki nokkur vafi á því að þátttaka á Nordisk Forum í Ábo 1994 verður ógleymanleg upplifun. Vonandi verður það einnig hvatning til að sýna styrk og samstöðu í bar- áttuni fyrir auknum áhrifum kvenna á öllum sviðum þjóðfélagsins til hagsbóta fyrir alla. Höfundur er formaður íslensku undirbúningsnefndarinnar fyrir Nordisk Forum '94. k - Cs f f i ( f í í L (

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.