Morgunblaðið - 15.04.1993, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRIL 1993
19
Óeirðir og mann-
fall í Suðiir-Afríku
^ Höfðaborg, Jóhannesarborg. Reuter.
OEIRÐIR blossuðu upp í nokkrum borgum í Suður-Afríku í gær
þegar milljónir blökkumanna tóku þátt í útifundum til að syrgja
blökkumannaleiðtogann Chris Hani, sem var myrtur á laugardag.
Lögreglan skaut að minnsta kosti sex blökkumenn til bana og
særði 245 menn í Soweto, borg við Jóhannesarborg, þegar um
15.000 blökkumenn gengu að lögreglustöð eftir útifund þar sem
Nelson Mandela, leiðtogi Afríska þjóðarráðsins (ANC), hélt ávarp.
Lögreglumaður beið bana eftir að
hafa orðið fyrir skoti í höfuðið þegar
ungir blökkumenn gengu berserks-
gang um miðborg Höfðaborgar, létu
greipar sópa um verslanir og grýttu
lögreglumenn. Oeirðir blossuðu enn-
fremur upp í Durban, Pietermaritz-
burg, höfuðborg Natal-héraðs, og
Port Elizabeth eftir útigöngur á veg-
um Afríska þjóðarráðsins. Nefnd
alþjóðlegra friðareftirlitsmanna
sagði að „glæpahópar" hefðu aðal-
lega staðið fyrir óeirðunum.
Lest fór af sporinu í grennd við
Höfðaborg vegna óláta farþega
hennar, sem voru á leið á minning-
arathöfn um Hani. Þá voru tveir
hvítir menn myrtir í bifreið í Tran-
skei-heimalandinu, en ekki var vitað
hvort atburðurinn tengdist -morðinu
á Hani.
Alls voru haldnar 84 minningar-
Fundur sjö helstu iðnríkja heims í Tókíó
Enn rneiri að-
athafnir um Hani í Suður-Afríku.
Nelson Mandela flutti tilfinninga-
þrungið friðarákall á 20.000 manna
fundi á íþróttaleikvangi í Soweto.
Hróp voru gerð að honum þegar
hann sagði að hann hefði fengið
samúðarskeyti frá fólki í Þjóðar-
flokknum. „Ég skil reiði ykkar,“
bætti hann við til að sefa fólkið.
„Það er enginn flokkur sem ber jafn
mikla ábyrgð á þjáningum ykkar og
Þjóðarflokkurinn."
Leiðtogi kommúnista myrtur
Hani var aðalritari kommúnista-
flokksins og einn af vinsælustu leið-
togum blökkumanna í Suður-Afríku.
Hann var skotinn til bana á heimili
sínu á laugardag og verður borinn
til grafar á mánudag. Fjölflokkavið-
ræðum um lýðræðislega Suður-Afr-
íku áttu að hefjast að nýju þann dag
en þeim hefur verið frestað vegna
morðsins.
Innflytjandi frá Póllandi, Janusz
Walus, hefur verið sakaður um
morðið og dæmdur í gæsluvarðhald
til 12. maí.
Sorg í Suður-Afríku
Ættingjar og vinir blökkumanns sem var skotinn til bana í gær syrgja
hann í bænum Tokaza, austan við Jóhannesarborg í S-Afríku.
stoð við Jeltsín
Tokió. Reuter.
BANDARÍKJASTJÓRN tilkynnti í gær um nýja 1,8 milljarða efnahags-
aðstoð við stjórn Borís Jeltsíns Rússlandsforseta og hvatti til þess á
fundi fjármála- og utanríkisráðherra sjö helstu iðnríkja heims í Tókíó
að stofnaður yrði fjögurra milljarða dollara sjóður til að styðja einka-
væðingu í Rússlandi. Búist er við því að Bill Clinton Bandaríkjafor-
seti tilkynni í vikulok um 1,8 milljarða aðstoð til viðbótar framan-
greindri aðstoð en í byijun mánaðarins veitti hann Jeltsin 1,6 millj-
arða dollara aðstoð.
Bandarískir embættismenn
hvöttu óspart til þess á fyrri degi
ráðherrafundarins í gær að iðnríkin
fylktu' sér um Jeltsín og veittu stjórn
hans efnahagsaðstoð. Að kvöldi
höfðu Japanir samþykkt að leggja
deilu við Rússa um yfirráð Kúrileyja
til hliðar og veita þeim 1,82 millj-
arða dollara neyðarhjálp. Bretar
samþykktu sömuleiðis að veita Rúss-
um 500 milljóna punda útflutningsl-
án og hækka tækniaðstoð til þeirra
úr 60 milljónum í 120 milljónir
punda. Loks tilkynnti Henning Chri-
stophersen, varaforseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópubandalags-
ins (EB), að EB myndi veita Sam-
veldisríkjunum um þriggja milljarða
dollara aðstoð.
í aðstoð EB er að fínna 610 millj-
óna dollara tækniaðstoð sem þegar
er að fínna í fjárhagsáætlun banda-
lagsins fyrir þetta ár og samsvar-
andi upphæð á næsta ári.
„Jeltsín er mun trúverðugri en
hugsanlegir arftakar hans,“ sagði
Warren Christopher, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna. Með ráðherra-
fundinum er ætlunin að veita Jeltsín
og umbótastefnu hans eins mikinn
stuðning og hægt er fyrir
þjóðaratkvæðið um forsetann og
stjórnarstefnu hans 25. apríl næst-
komandi.
Efnahagsþróunin í Mið- og A-Evrópu
„EB sýni meiri
sveigjanleika“
- sagði Jón Baldvin Hannibalsson
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davídsdóttur, fréttaritara Morgrinblaðsins.
í GÆR lauk í Kaupmannahöfn ráðstefnu um efnahagsþróun í Austur-
og Mið-Evrópu. Auk fulltrúa þeirra landa sátu ráðstefnuna fulltrúar
EB- og EFTA-landanna, en Danir áttu frumkvæði að því að halda
hana. Á ráðstefnunni kom fram að óþolinmæði gætir meðal Austur-
og Mið-Evrópulandanna þvi þeim finnist nokkurrar mótsagnar gæta
í yfirlýsingum um góðan vilja EB annars vegar og hins vegar í því
hversu hægt gengur að þeirra mati að koma á fijálsum viðskiptum
milli EB og landanna í Austur- og Mið-Evrópu, eins og yfirstandandi
kjötstríð sýni.
í ræðu sinni á ráðstefnunni benti
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráðherra á að EB þyrfti ekki síst
að sýna meiri sveigjanleika í sam-
skiptum sínum við Áustur- og Mið-
Evrópulöndin. Þessi orð fengu góðan
hljómgrunn meðal margra. I samtali
við Morgunblaðið sagði Jón Baldvin
að eðlilega gætti vaxandi óþolin-
mæði í þessum löndum, því hægt
gengi að liðka fyrir viðskiptum innan
Evrópu. Þó Vestur- og Norður-Evr-
ópulöndin prédikuðu viðskiptafrelsi,
gengi þeim erfiðlega að lifa eftir
þvíj eins og kjötmálið nú sýndi.
Á ráðstefnunni fóru Ungveijar og
fleiri ekki dult með löngun sína til
að ganga í EB. Jón Baldvin sagði
að þar skiptu ekki aðeins efnahags-
sjónarmið máli, heldur einnig örygg-
issjónarmið. Þessi iönd vildu vera
við akkeri innan EB, er allt færi í
kaldakol í Rússlandi.
Flest þátttökulöndin sendu utan-
ríkisráðherra sína á fundinn, utan
hvað utanríkisráðherrar Frakklands,
Bretlands, Þýskalands og Ítalíu voru
uppteknir vegna fundar sjö stærstu
iðnrílq'a heims í Tókýó.
Fyrir ráðstefnuna gætti nokkurs
efa um árangur hennar, því EB hef-
ur ekki á pijónunum neina áþreifan-
lega áætlun til að örva viðskipti við
Mið- og Austur-Evrópu.