Morgunblaðið - 15.04.1993, Page 21

Morgunblaðið - 15.04.1993, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1993 21 Kortafyrirtækið Visa- Island er 10 ára í dag „HVARVETNA um heiminn er litið á velgengni fyrirtækisins sem hið íslenska undur. Það er talin góð fyrirmynd fyrir þá sem vilja hefja sams konar rekstur og hér er sífellt tekið á móti gestum og svarað fyrirspurnum um hina ýmsu þætti starfseminnar," seg- ir Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri greiðslukortafyrirtækis- ins Visa íslands sem á tíu ára afmæli í dag. Með tilliti til rekstrar- yfirlits fyrirtækisins dytti sennilega fæstum í hug að rengja orð hans enda hefur uppgangur fyrirtækisins verið með þeim hætti að undrum sætir og mætti því til stuðnings benda á að aðeins tíu árum eftir stofnun þess eru Visa-kort komin inn á 80% heimila í landinu og þau bera um 60% allra landsmanna á aldrinum 18-67 ára. Að taka af skarið Jóhann Ágústsson, stjórnarfor- maður Visa-Islands til tíu ára, er einn af þeim sem vann að stofnun fyrirtækisins. „Við getum rakið upphafið til þess að árið 1980 kom hér starfsmaður frá Barclay’s banka og í kjölfarið fór ég út og ræddi við forsvarsmenn bankans um möguleikann á því að Visa greiðslukort fyrir Islendinga yrðu gefin út hjá þeim. Eitthvað hefur þeim þó ekki litist á þessa hug- mynd, kannski fundist markaður- inn of lítill eða hætt við af öðrum ástæðum, og niðurstaðan varð sú að við ákváðum að taka sjálfir af skarið og sækja um beina aðild að Visa-International. Hana feng- um við og Landsbankinn gaf út fyrstu kortin fyrir íslendinga til notkunar erlendis 1981 ,“ segir Jóhann. Á þessum tíma höfðu einkaaðil- ar Eurocard-viðskipti með hönd- um en reksturinn gekk ekki upp og þrír bankar, Útvegsbanki, Sparisjóður vélstjóra og Verslun- arbanki, gerðust eignaraðilar að fyrirtækinu. „Það var því auðvitað spurning um samkeppni þegar Búnaðarbanki, Iðnaðarbanki, Al- þýðubanki, Samvinnubanki og 13 sparisjóðir tóku höndum saman með Landsbanka og stofnuðu Visa-ísland 15. apríl 1983,“ segir Jóhann og rifjar upp að margar spurningar hafi brunnið á sex manna undirbúningsnefnd að stofnun fyrirtækisins, sem í voru, auk Jóhanns frá Landsbanka, Sólon Sigurðsson frá Búnaðar- banka, Sveinn Hannesson frá Iðn- aðarbanka, Margeir Daníelsson frá Samvinnubanka, Jóhannes Siggeirsson frá Alþýðubanka og Sigurður Hafstein frá sparisjóð- unum. Viss áhætta „Með tilvísun til strangra gjald- eyrisreglna á þessum tíma veltum við því t.d. fyrir okkur hvort nauð- synlegt væri gefa út sérstök kort til notkunar erlendis og önnur til notkunar hér á landi. Svo fór þó ekki því eftir að við gáfum út fyrstu kortin til notkunar erlendis 8. ágúst árið 1983 voru reglurnar rýmkaðar og 10. desember sama ár voru gefin út fyrstu kortin til innlendrar og erlendrar notkun- ar,“ segir Jóhann og bætir við að á þessum tima hafi líka komið upp sú spurning hvort væri réttara að gefa út greiðslukort eða svokölluð debetkort, sem áætlað er nú að verði tekin í notkun á þessu ári. Jóhann segist sannfærður um að fyrirtækið hefði aldrei komist á legg nema með jafn góðri sam- vinnu og náðst hefði milli bank- anna. Samskipti manna í sjórninni hafi verið til fyrirmyndar og starfsfólk Visa hafi alltaf staðið sig frábærlega vel. Hann viður- kennir hins vegar að áhætta hafi verið tekin i upphafi. „Við áttum engan veginn von á þessum rosa- legu viðskiptum og vorum stund- um kaldir. Létum fólk hafa kort sem lenti fljótlega í vanskilum en með þessum hætti grisjuðum við auðvitað hópinn og nú eru van- skil minni háttar miðað við hvað tíðkaðist í upphafi," segir hann og nefnir að bryddað hafi verið uppá miklum nýjungum á þeim tíma sem fyrirtækið hafi starfað. Hann segir að þær hafi tekist vel og er bjartsýnn á framtíðina. „Við höfum stundum verið gagn- rýndir fyrir að ýta undir neyslu fólks en ég held að það hafi áttað sig og þrátt fyrir að alltaf heyrist einhveijar gagnrýnisraddir séu greiðslukortaviðskipti af hinu góða og eigi eftir að ryðja pappír- sviðskiptum úr vegi.“ Millifærsla Eitt fýrsta verk undirbúnings- nefndarinnar var að ráða fram- Stjórnarformaður Jóhann Ágústsson er einn af þeim sem vann að undirbúningi að stofnun fyrirtækisins og hefur verið stjórnarformaður þess í 10 ár. kvæmdastjóra að fyrirtækinu og reyndist ekki skortur á umsælq- endum því á þriðja tug manna sótti um starfið. Einar S. Einars- son, sem ráðinn var framkvæmda- stjóri og gegnt hefur starfinu síð- an, segist hafa sótt um stöðuna af rælni. „Ég hafði starfað í Sam- vinnubankanum í 20 ár og var farinn að hugsa mér til hreyfings. En auðvitað vissi ég á þessum tíma tæplega hvað Visa var, hvað þá öll þjóðin," segir hann en um- skiptin eða millifærslan eins og Einar orðar það í gamni gekk skjótt fyrir sig því aðeins tíu dög- um eftir að Einar var ráðinn í starfið átti hann að vera búinn að ganga frá sínum málum í Sam- vinnubankanum og taka við því. Umskipti Einar minnir á að mikil um- skipti hafí orðið hjá fyrirtækinu síðan það hóf starfsemi sína að- eins í einu herbergi. „Starfsmenn- irnir voru t.d. aðeins þrír í upp- hafi og ég man eftir því að mikil umræða var um það hvort ráða ætti ritarann minn til starfa hálf- an eða allan daginn þegar hún var ráðin. Nú eru hér 50 manns og samtals starfa um 250 manns við kortaþjónustuna á öllum af- greiðslustöðum," segir Einar. Starfsemin hefur að sama skapi blómstrað. „Árið 1984 veltum við rúmlega 40 milljónum en í fyrra var veltan orðin 40 milljarðar. Fólk áttar sig kannski betur á þessum upphæðum ef ég segi að viðskiptin fyrir hádegi í einum mánuði jafnast á við kostnaðinn við að reisa eina Perlu og veltan allan daginn í heilan mánuð er á við kostnaðinn við heilt ráðhús," segir Einar og bætir við að þó svo að vanskil séu um 3-4% í hveijum F ramkvæmdastj óri Einar S. Einarsson segir að til séu margir skondnar sögur í kringum visakortaviðskipti og töluvert sé um að fólk hringi inn þegar það lendi í vandræð- um á erlendri grund. mánuði séu þau aðeins um 1% á ársgrundvelli og sýni að fólk láti greiðslukortið ganga fyrir þegar gert sé upp í lok hvers mánaðar. Myntkort og fleiri nýjungar Hann segir að margar skýring- ar liggi að baki því hversu íslend- ingar hafa verið fljótir að tileinka sér greiðslukort. „íslendingar eru nýjungagjarnir og fljótir að hag- nýta sér þjónustu sem kemur þeim til góða og veitir aukið svigrúm eins og greiðslukortin og sú þjón- usta sem við höfum verið að inn- leiða í tengslum við þau, t.d. í formi raðgreiðslna og boð- greiðslna o.fl. En við megum held- ur ekki gleyma því að Islendingar ferðast mikið og þá veitir greiðslu- kortið visst öryggi um leið og því fylgir ferðatrygging," segir Einar. Nýjungar eru sífellt á döfínni hjá Visa og er ekki langt að bíða þeirrar næstu sem er útgáfa svo- kallaðra debetkorta eða stað- greiðslukorta og koma þau að hluta til í stað ávísana. „Verkefni næsta árs eru síðan svokölluð Myntkort en það eru kort sem fólk getur keypt t.d. á L000 kr. stykkið og notað í stað smápen- inga, t.d. í strætisvagna og bíla- geymslur. Þar verða vélar sem lesa af kortinu og gera smápen- inga óþarfa. Ef við skyggnumst síðan enn lengra í framtíðina er- um við að velta fyrir okkur kortum sem hægt er að kalla Greindar- kort og eru eins konar tölvur sem hægt verður að nota sem greiðslu- kort og debetkort til að taka út af mismunandi reikningum. Kort- ið verður líka hægt að nota sem klukku og minnisblokk svo eitt- hvað sé nefnt,“ segir Einar og upplýsir að landinn megi tæpast búast við þessari byltingu fyrr en um næstu aldamót. Kortavelta 1983-1992 Á dcscmber verðlagi 1992 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 ite&Vi)itowaa)aKa>iBwatoiiii8aa>iiiiwwiBwra»i»aMÍbBárisB«igto8WtteB»awwww^ V/SA Kortafjöldi 1983-1992 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 51% 34% 29% 11% 4% 4% 6% 5% £ TEFAL V O smátækin eru þekkt um allan heim fyrir gæði og endingu. Hjá Bræðrunum Ormsson bjóðast þér nú heimilistæki á sérstöku vortilboði. Gufustraujárn 1418 m/spray Verð áður kr. 4.270. Tilboð kr. 3.690 stgr. Baðvog 3302 electronic m/minni Verð áður kr. 8.351. Tilboð kr. 6.490 stgr. RTI LBOÐ Mínútugrill 1304 Verð áður kr. 8.790. Tilboð kr. 7.490 stgr. Upplýsingar um umboðsmenn fást hjá Kaffivél 8921 8 bolla, 1200 W Verð áður kr. 2.730. Tilboð kr. 2.290,- stgr. Umboðsmenn um land allt. 62-62-62 BRÆÐU RNIR DJOKMSSÖNHF Lágmúla 8, sími 38820.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.