Morgunblaðið - 15.04.1993, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 15.04.1993, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1993 23 Börn sólarinnar Morgunblaðið/Rúnar Þór VOÐAVERK sem framin voru fyrir tæpum 90 árum eru rifjuð upp í sýningunni Börn sólarinnar, Leikfélag Menntaskólans á Akureyri Böm sólarimiar sýnt í fyrsta sinn hérlendis LEIKFÉLAG Menntaskólans á Akureyri frumsýndi á þriðju- dagskvöld leikritið Börn sólar- innar eftir Maxim Gorki í þýð- ingu Eyvindar Erlendssonar og leikstjórn Sigurþórs A. Heimis- sopar. Leikritið Börn sólarinnar skrif- aði Gorki eftir að hafa orðið vitni að blóðbaði í Pétursborg 9. janúar árið 1905, en þá skaut herinn á friðsamlega kröfugöngu fyrir framan Vetrarhöllina. Þessi at- burður er síðan þekktur sem „Blóð- sunnudagurinn". Líf í tilraunaglösum I leikritinu ræðst hann að rússn- eskum menntamönnum fyrir sinnuleysi um kjör alþýðunnar og hæðist að prófessor nokkrum sem reynir eftir fremsta megni að fram- kalla líf í tilraunaglösum á vinnu- stofu sinni. Þetta er í fyrsta sinn sem leikrit- ið Börn sólarinnar er sýnt hér á landi, en með helstu hlutverk fara Þórarinn Stefánsson, Sædís Gunn- arsdóttir, Tinna Ingvarsdóttir, Óskar Örn Óskarsson, Arný Leifs- dóttir og Vilhjálmur Árnason, en alls taka 17 leikendur þátt í sýning- unni. Fjórar sýningar Æfingar hafa staðið yfir síðan í febrúar og 'eru áætlað að sýna verkið fjórum sinnum, frumsýning var sem fyrr segir þriðjudagskvöld- ið 14. apríl, þá verður sýnt í kvöld, 15. apríl, og síðan verða tvær sýn- ingar í næstu viku, mánudags- og þriðjudagskvöld, 19. og 20. apríl. Að venju verða sýningar félags- ins í samkomuhúsinu og nýtur það sem fyrr gestrisni Leikfélags Ak- ureyrar og að þessu sinni í nokkuð breyttri leikmynd Karls Aspelunds fyrir sýningu LA á Leðurbiökunni. Morgunstund við Leirurnar ÞAÐ ER vor í lofti, einstök veður- blíða dag hvern og sumarið á næstu grösum. Síðustu daga hafa veiði- menn verið á ferð með stangir sín- ar inn við Leirur og rennt þar fyr- ir silung sem er að ganga niður úr Eyjafjarðará. Hettumávarnir eru líka á ferðinni á þessum slóðum snemma dags í leit að æti og eflaust þykir þeim fátt betra til morgun- verðar en loðna, sem þeir stinga sér eftir af miklu kappi. ..V- v>A WfiK "a, ___ . . : ...V - --Sffi-k ' - ' ViLr- .. - • . . .... A • ' ' ■ t Æf'y'T ■' íl jPM'" ■ - - - ■ .. . ..... , . . ......................................." ' "u """° '' 1 \ •.•• •■' m ■ •."• ^ ... . Morgunblaðið/Rúnar Þór Þýsk-íslenska kaupir Reynishúsið af Byggðastofnim Opnar þar bygg-- ingavöruverslim ÞÝSK-íslenska hf. keypti í gær af Byggðastofnun húseignina við Furuvelli 1 á Akureyri, sem gjarnan gengur undir nafninu Reynishús- ið, eftir samnefndu trésmíðaverkstæði. Skákþing að hefjast SKÁKÞING Norðlendinga 1993 verður haldið á Hótel Húsavík 16.-18. apríl nk. Skákmót í opnum flokki hefst kl. 11 f.h. stundvíslega ■föstudaginn 16. apríl en laug- ardaginn 17. apríl kl. 13 í öðr- um flokkum. Ollum er heimil þátttaka. Teflt verður í eftirfarandi flokkum ef næg þátttaka fæst: Opnum flokki, kvennaflokki, unglingaflokki 13-16 ára og barnaflokki 12 ára og yngri. Tefldar verða minnst sjö umferðir eftir Monrad-kerfi í öllum flokkum. Þar verður opnuð í sumar eða næsta haust byggingavöruverslun auk þess sem í húsinu verður birgðastöð. Byggðastofnun keypti húsið á uppboði síðasta haust og hefur frá þeim tíma reynt að selja eignina. Þýsk-íslenska hefur á undanförn- um misserum verið að auka umsvif sín á byggingavörumarkaðnum. Félagið á hlut í allmörgum bygg- ingavöruverslunum á landsbyggð- inni, en hefur ekki verið með sér- staka verslun á Akureyri fram til þessa. Verslun og birgðastöð Ómar Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Þýsk-íslenska, sagði að í húsnæðinu við Furuvelli yrði opnuð verslun næsta sumar eða haust, eða um leið og búið væri að laga húsnæðið að breyttri starf- semi. Þá yrði einnig birgðastöð í húsinu fyrir þær verslanir fyrirtæk- isins norðan heiða og á svæðinu austur eftir. Byggðastofnun keypti húsið á uppboði í október síðastliðnum á 26,5 milljónir króna, að sögn Valtýs Sigurbjarnarsonar, forstöðumanns Byggðastofnunar á Akureyri. Húsið er á tveimur hæðurn, 1.660 fermetr- ar að stærð og þar eru nú verslan- ir'og trésmíðaverkstæði, sem vænt- anlega munu flytja starfsemi sína annað eftir kaup Þýsk-íslenska á húsinu. Kaupverð fékkst ekki uppgefið í gær, en Byggðastofnun tekur hús- næði sem Þýsk-íslenska átti í Hafn- arfirði upp í kaupin. Gert er ráð fyrir að stjórn Byggðastofnunar samþykki samning um kaup Þýsk- íslenska á húsinu á fundi næsta þriðjudag. Samkeppni Hvað varðar markaðinn á Akur- eyri, sagði Ómar að þokkaleg sam- keppni væri á byggingavörumark- aðnum, en þó væri hún minni en víða annars staðar. Hótel \=j±Harpa Hópar - einstaklingar Minnum á blómstrandi menningar- og skemmtana- líf, landsins besta skíðafjall og vetrartilboð okkar. Hótel Harpa Góð gisting á hóflegu verði íhjarta bæjarins. Sími 96-11400 Ath. að Hótel Harpa er ekki i simaskránni. Leiðsögumenn Leiðsögumenn, með réttindi, óskasttil starfa í júní, júlí og ágúst 1993. Tungumál enska og þýska. Upplýsingar í síma 96-23510. 0| SÉRLEYFISBÍLAR AKUREYRAR HF. ÖUCaJ akureyri bus company Dalbraut 1, 600 Akureyri. Morgunblaðið/Rúnar Þór Reynishúsið ÞÝSK-ÍSLENSKA hefur keypt Reynishúsið við Furuvelli 1 og þar verður í sumar eða haust opnuð verslun auk þes sem í húsinu verð- ur birgðastöð. Byggðastofnun hefur átt húsið frá því síðasta haust. Aðalfundur Kaupfélags Eyflrðinga verður haldinn í Alþýðuhúsinu á Akureyri, mánudaginn 26. apríl nk. Fundurinn hefst kl. 10.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál, sem heyra undir aðalfund skv. félagssamþykktum. Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.