Morgunblaðið - 15.04.1993, Page 28

Morgunblaðið - 15.04.1993, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1993 Matargerðin er eins 1 er eins margbrotin og fólkið, sem í landinu býr. Hún hef- ur þróast í gegnum aldirnar, en áhrifa gætir víða að, jafnt frá vesturheimi sem og austurheimi. margbrotin og fólkið SUÐUR-afrísk matargerð hefur á sér alþjóðlegan blæ, en Kona af ættbálki Zulumanna undirbýr kvöldverð, en suður-afrísk matargerð hefur þróast í aldanna rás og mótast af bæði vestræn- um og austrænum hefðum. Hina kræsilegustu rétti er mmm að finna á matseðlum suður- ^ afrískra veitingahúsa. Valið SS er aðeins vandinn sem við- skiptavinurinn stendur frammi fyrir, því hvorki (A skortir frábæra þjónustu né fiL gæði þess sem framreitt er, Ob eins og blaðamaður Daglegs S) lífs komst næst á ferð sinni um S-Afríku fyrir skömmu. Glös voru aldrei látin standa tóm. Bið milli rétta var mátulega löng og þjónar, sem alltaf voru svartir á hörund, kappkostuðu að gestir stæðu ekki óánægðir upp frá borðum. Ekki var ástæða til svartsýni þegar kom að skulda- dögum; matur og veigar kosta aðeins brot af því sem gerist á íslenskum veitingahúsum og eng- in ástæða til annars en greiða reikninginn með bros á vör og skilja eftir vel útilátið þjórfé. Sem dæmi má nefna að forrétt- ir og aðalréttir á „góðurn" veit- ingahúsum kosta sem svarar 200-400 kr., aðalréttir 400-600 kr., einstaka réttir allt að 1.000 kr. og algengt verð á flösku af borðvíni er um 600 kr. Til að gefa smá innsýn í þessa matar- gerð eru hér birtar nokkrar upp- skriftir sem undirrituð komst yfir í umræddri ferð til S-Afríku. Svínakjötsréttur 6 svínasneióar 3 msk. soja-sósa 2 msk. sérrí hvítlauksrif, smátt skorið 5 cm biti engiferrót, rifin 2 laukar, fínt skornir 1 msk. sykur ó heil piparkorn Blandið saman soja-sósu, sérríi, hvítlauk, engifer, lauk, sykri og piparkomum og setjið á stórt fat. Leggið svínasneiðar í blönduna og látið marinerast í 30 mín. á báðum hliðum. Steikið sneiðamar á pönnu þar til þær brúnast. Hell- ið blöndunni á pönnuna með sneiðunum á og látið krauma í 30 mín. Lambakjötsréttur 1 kg lambarif, fita skorin fró 2 laukar, fínt saxaóir 2 msk. olía 1 súpulauf hólf tsk. kanel 1 tsk. coriander-krydd hólf tsk. kúmen 2 fínsöxuð hvltlauksrif 4 tsk. karrý 2 msk. hveiti 1 tsk. turmeric-krydd 500 g flysjaðir tómatar 6 tsk. óvaxtamauk úr krukku 250 ml kjötkraftur 1 tsk. sykur . 2 tsk. salt svartur pipar Brúnið lauka í olíu í stórum potti. Bætið súpulaufi, kanel, coriander, kúmeni hvítlauk, karrýi, hveiti og turmeric út í og látið krauma í nokkrar mínútur. Hrærið í á með- an. Bætið við kjöti og örlítlu af olíu til viðbótar. Bætið við því sem eftir stendur og blandið vel. Látið réttinn í eldfast mót og bakið við 150 gráður í ofni í einn og hálfan tíma. Hafið álpappír eða lok yfir réttinum meðan hann bakast. Kjúklingaréttur 2 kg kjúklingur 2 tsk. salt hólf tsk. pipar 200 ml þurrt hvítvín blandað saman við 125 ml af vatni 2 msk. smjöriíki 1 laukur, saxaður 2 msk. edik 1 epli, saxaó 4 tsk. karrý 2 tsk. sykur 1 msk. sítrónusafi 1 msk. hveiti Skerið kjúklingana í bita og kryddið með salti og pipar. Setjið i pott með hvítvínsblöndunni og látið malla undir loki í einn til einn og hálfan tíma eða þar til kjúklingurinn er soðin. Laukurinn er léttsteiktur á pönnu, ediki, epli, karrýi og sykri bætt út á. Þessu er hellt út á kjúklinginn og látið sjóða í 5 mín. Hristið saman sítr- ónusafa og hveiti og hrærið út í kjúklingapottinn. Sjóðið í aðrar 5 mín. ■ JI Var sannfærð að ''vinningurinn væri aprílgabb „Ég hef aldrei unnið neitt þó ég hafi spilað i Háskólahappdrættinu og lottói að staðaldri, a.m.k. þegar potturinn er þrefaldur. Þú getur því ímyndað þér að þetta kom mér á óvart. Ég var sannfærð um að þetta væri aprílgabb," sagði Aðalheiður Karlsdóttir, kaupkona í Englabörnum, í samtali við Daglegt líf. Vinningshafinn Aðalheiður Karlsdóttir ásamt þeim Ingólfi Guðbrandssyni og Andra Hrólfs- syni, markaðsstjóra hjá Visa. Aðalheiður sagðist hafa verið á kafi ofan í pappa- kössum í verslun sinni þegar hún fékk upphringingu frá forstjóra Visa um að hún hefði dottið í lukkupott- inn, fengið ævin- týraferð fyrir tvo að upphæð 250 þús. kr. með Heimsklúbbi Ing- ólfs. „í sömu andrá stóð Ingólfur með blómvönd á tröppunum svo þetta gat varla verið gabb þó það hafi verið 1. apríl," segir Aðalheiður. í dag, 15. apríl, á Visa ísland tíu ára afmæli og í tilefni afmælis eru dregnir út 4 korthafar ársfjórð- ungslega sem fá ferð fyrir 2 að upphæð 250 þús. kr. Þá fá tveir korthafar í mánuði fellda niður 50 þús. kr. úttekt. Skilyrði er að við- komandi sé í skilum við banka sinn eða sparisjóð við útdrátt að sögn Einars S. Einarssonar, frkvstj. Visa. Aðalheiður hefur ekki ákveðið hvert förinni verði heitið, en þau hjónin hafi nokkrum sinnum farið í huganum til Austurlanda fjær. Hún taldi þó liklegt að ferðin yrði tekin út í október nk. { dag býður Visa kaffi og kökur á öllum þjónustustöðum sínum. Útigrillin hreinsuð með gasi ÆTLA MA að margir hugsi sér gott til glóðarinnar nú þegar að birta tekur af degi og er útigrill nokkuð sem gjarnan fylgir sumarkom- unni. Ætla má að flest úti- grillin liggi enn sem komið er í geymslum og kytrum í misgóðu ástandi. Hreinsun á grillgrindum er oft á tíðum mikið þolinmæðisverk, en þær vilja safna á sig bæði fitu og óæskilegum matarleyfum þegar grillin eru látin kóina. Til þess að .ná þessu af með auðveldum hætti, Gamlar grillgrindur má hreinsa með gasi og sápuvatni. má hita grillgrindurnar með gas- hitara. Með því móti leysist fitan úr læðingi sem gerir sápuvatns- hreinsun auðveldari en ella. A hverjum degi er hnuplað Kærðir til lög- reglunnar vegna hnupls árið 1991 skípting eftir aldri 19-24 ..... 25-60 60 ara og eldrí 28 Heimitd: Um búðarhnupl og hvemig má koma í veg fyrir það, 1992 úr verslunum fyrir milljónir króna ÁRLEG velta smásöluverslunar í landinu er um 110 milljarðar og ef marka má kannanir sem gerðar hafa verið erlendis og hér heima er óþekkt rýrnun 3-4% af heildarveltu sem þýðir 4 milljarðar á ári. Ekki er hægt að yfirfæra óþekkta rýrnun að öllu leyti yfir á hnupl við- skiptavina því inní kemur skemmd vara, stuldur starfsfólks, ófullkom- ið bókhald og slæmt eftirlit við vörumóttöku svo eitthvað sé nefnt. Hinsvegar álíta kaupmenn að um einn þriðji sé kominn til vegna hnupls viðskiptavina sem þýðir með öðrum orðum að daglega hnupla fingra- langir viðskiptavinir vörum fyrir um það bil þrjár milljónir. Aðeins lítill hluti þjófnaða kemst upp og ekki kæra allir verslunareig- endur standi þeir viðskiptavin sinn að verki. Þeir eru á hinn bóginn sí- fellt fleiri sem hringja til lögreglu sama hverju stolið er og hvað varan kosta. Þetta á við um ýmsar stórar verslanir, þar á meðal Hagkaup þar sem lögreglan er ætíð kvödd til þó ekki sé stolið nema fyrir hundrað krónur. En hvað þýðir það fyrir hnuplarann? Hann kemst á skrá lögreglunnar en þótt hún taki niður allar kærur þá hafa dómsyfirvöld miðað við að stolið sé vörum fyrir meira en sjö þúsund krónur áður en þeir blanda sér í málið svo framarlega sem þjóf- urinn hafi ekki áður reynst sekur um auðgunarbrot. Árið 1989 voru það 119 manns sem kærðir voru til lögreglu vegna búðarhnupls en árið 1991 voru kær- umar orðnar 231 eða höfðu næstum tvöfaldast. Ekki er ljóst hver ástæðan er fyrir fjölguninni, árvekni kaup- manna eða erfitt árferði undanfarið. Kaupmannasamtökin stóðu nýlega fyrir ráðstefnu og fræðslu um búðar- þjófnaði fyrir verslunareigendur og starfsfólk þeirra og gengist var fyrir forvamardögum í samstarfi við lög- regluna. Hjá forvarnardeild lögreglunnar fengust þær upplýsingar að ekki væri mjög algengt að sömu aðilamir væru gripnir glóðvolgir trekk í trekk en unglingar væru oftast staðnir að verki upp að 16 ára aidri og yfirleitt væru það smáhlutir sem þeir hnupl- uðu, geisladiskar, bækur og svo framvegis. Það vekur einnig athygli hversu stór hópur þeirra sem hnupla eru eldri en 60 ára og að sögn for- svarsmanna hjá forvamardeild lög- reglunnar kann hluti skýringarinnar að vera sá að fullorðið fólk er oft orðið gleymið og einfaldlega man ekki eftir því að borga. Stundum má rekja stuldinn til fjárskorts full- orðna fólksins en það er undantekn- ing. Niðurstöður kannana benda til að skipta megi búðarþjófnaði í að minnsta kosti fjóra hópa, unglinga sem eru að sýna sig og sanna fyrir félögum, fólk sem stelur af þörf, þ.e. langar í hlutinn en hefur ekki efni á að greiða fyrir hann, fólk sem lætur freistast af því það sér tækifæri á að komast yfir hlut og fólk sem hald- ið er stelsýki. Einnig hefur færst í vöxt að fíkniefnaneytendur reyni að komast yfir dýra hluti ófrjálsri hendi til að selja aftur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.