Morgunblaðið - 15.04.1993, Side 29
MORGUNBLAÐID FIMMTODAGUR 15. APRÍL 1993
29
Hnífar úr
keramík duga
betur en stálhnífar
VERSLANIR eru að fara í gang með tilboð
að nýju eftir páska og það má segja að mið-
að við það séu tilboðin með skásta móti. Það
er vert að benda lesendum á hagstætt verð
á kattasandi hjá Bónus svo framarlega sem sandurinn reyn-
ist góður. Lambakjöt er á ágætu verði hjá Miklagarði og
þeir sem eru fyrir vínber geta keypt græn og blá vínber á
149 kr. kílóið í dag hjá Fjarðarkaupum. Reyndar er hægt að
fá grænmeti á góðu verði hjá Fjarðarkaupum líka í dag og
epli eru á sanngjömu verði hjá Kjöt og fiski og hjá Mikla-
garði. Fram á næsta miðvikudag kosta blá vínber 199 krónur
kílóið hjá Hagkaupi.
Bónus
Tilboðin gilda frá fimmtudegi til
laugardags.
Sunblest Musli 500 g. Kaupir einn
pakka og færð þann næsta ókeypis
nautahakk..............575 kr. kg
Nóa Maltabitar.............133 kr.
kattasandur 11 kg..........225 kr.
frosin rúnstykki 15 stk....199 kr.
eldhúsrúllur 4 stk.........123 kr.
matarolía 1 lítri...........85 kr.
Fjarðarkaup
Þessi tilboð gilda í dag, fimmtudag
hjá Fjarðarkaupum
bananar................99 kr. kg
agúrkur...............149 kr. kg
tómatar............. 149 kr. kg
paprika ..............149 kr. kg
vínber græn og blá....149 kr. kg
Þessi tilboð gilda í 3 vikur
Dole ananas 3x227 g......98 kr.
BogKhrísgijón 4x125 g....79 kr.
formbrauð, gróf og fín...96 kr.
kerti eru seld með 25% afslætti á
meðan birgðir endast
Hagkaup
Vikutilboðin hjá Hagkaupi eru eftir-
farandi:
Reykt medisterpylsa frá
Meistaranum............299 kr.kg
Liberobleiur............,.749 kr.
blávínber..............199 kr. kg
Myllu pizza brauð..........99 kr.
McVities Homewheat kex,
200 g......................79 kr.
Kjöt og fiskur í Mjódd
súpukjöt...............395 kr. kg
nautagúllas............890 kr. kg
lambahryggir...........645 kr. kg
lambalæri..............690 kr. kg
JonaGold epli...........69 kr. kg
appelsínur..............79 kr. kg
Miklígarður við Sund
Tilboðin hjá Miklagarði eru að þessu
sinni:
Lambalæri..............569 kr. kg
lambahryggur...........549 kr. kg
kótelettur.............549 kr. kg
rauð epli...........99 kr. 1,5 kg
Nóatúnsbúðfrnar
Tilboðin gilda frá 15.-21. apríl
Shop Rite kokteilávextir
heildós....................129 kr.
Shop Rite örbylgjupopp.....98 kr.
Shop Rite risaeldhúsrúllur.59 kr.
Ískóla21ítrar...............89 kr.
Den gamle jarðarbeijasulta
750 g......................129 kr.
Green Giant skorinn aspas..99 kr.
Óla party pizzur...........298 kr.
Mackintoshreblicka750g...989 kr.
HNÍFAR úr keramík reynast
endingarbetri en þeir sem em
úr stáli. Þetta kom fram í
rannsóknum sem Iðntækni-
stofnun framkvæmdi í sam-
starfi við norræna aðila.
Kann þessi niðurstaða að hafa
áhrif í iðnaði þar sem hnífar eru
notaðir og hvað okkur snertir hér
á íslandi má gera ráð fyrir að í
fiskiðnaði geti þetta breytt tölu-
verðu. í dag eru fiskvinnsluvélar
stoppaðar með vissu millibili til að
brýna hnífa en að sögn Emils B.
Karlssonar hjá Iðntæknistofnun
mun ekki vera nauðsynlegt að gera
það séu notaðir keramíkhnífar.
Enn sem komið er hafa hnífarn-
ir einungis verið í tilraunafram-
leiðslu og notaðir í iðnaði og lækn-
isfræðilegum tilgangi. í ljós hefur
komið að svokallaðir raspatorium
hnífar sem notaðir eru við minni-
háttar beinaaðgerðir reynast betur
úr keramíki en stáli þ.e.a.s. skurð-
eiginleikarnir eru betri. Grunn-
urinn að keramíkhnífunum er zir-
koniumoxíð duft sem hnífarnir eru
steyptir úr. Nauðsynlegt er að
duftið sé framleitt þannig að hlut-
urinn verði ekki of stökkur og
brotni við álag. Nú hefur það tek-
ist og Iðntæknistofnun sótt, um
einkaleyfi á framleiðsluaðferðinni.
Að sögn Emils B. Karlssonar
er ekki óraunhæft að draga þá
ályktun að innan fárra ára geti
almenningur fjárfest í hnífum og
skærum úr keramík í stað stálsins
en enn sem komið er hefur fyrir-
tæki ekki verið stofnsett sem ætlar
í framleiðslu.
Draumurinn er að nýta
allt hráefni til manneldis sem fellur til
Morgunblaðið/Þorkell
Þórarínn Guðlaugsson yfirkokkur hjá Meistaranum og Gísli Thorodd-
sen í Perlunni matreiddu hina kræsilegustu rétti úr hráefni, sem
venjulega er ekki talinn mannamatur.
„EF við nýtum okkur ómengað
umhverfi og litla lyfjanotkun
í landbúnaði, trúi ég að við
getum selt hvaða kjötmeti sem
er. Þá er margt úr sjávar-
fangi, sem má nýta, hér og til
útflutnings, svo sem vel krydd-
aða grafna grásleppu, skötu-
sels- og stórlúðukinnar.
Draumurinn er að við nýtum
allt hráefni til manneldis sem
fellur til,“ segir Vilmundur
Jósefsson, frkvstj. Meistarans
hf.
„Við þurfum að byija smátt. Á
s.l árum höfum við náð gæðum með
því að nota aðeins bestu bitana.
Nú kreppir að og nýting er nauð-
syn,“ segir Vilmundur.
Meistarinn bauð upp á allsér-
kennilega máltíð í Perlunni nýlega.
Á smáréttaseðli voru m.a. reykt
laxahrogn, folalda-lifrarpaté,
reykta folaldatungu og grafín grá-
sleppa. Þá voru sjö aðalréttir, sem
gestir borðuðu með bestu lyst þó
ekki hafi þeir vitað um innihaldið.
í ljós kom að það var t.d.kálfa-hós-
takirtlar, humarsúpa með laxagell-
um, laxafrauð með hrognkelsalifur,
skötuselskinnum og fjallagrösum,
kjúklingalifrarmús með rifsbeija-
hlaupi, lambanýru með lerkisveppa-
sósu og innbakað ungnautalifr-
arbuff með búrgundarsósu.
Vilmundur segir að flest hráefni,
sem hér eru talin endi sem rusl þó
úr þvi megi vinna girnilega rétti,
eins og við komumst að. „Það eina
sem við framleiðum af þessu er
kjúklingalifrarmúsin, sem fékk
gullverðlaun á alþjóðlegri kjötiðnað-
arsýningu í Danmörku sl. haust.
Þá fékk Meistarinn gullverðlaun á
sömu sýningu fyrir laxapaté, grafið
fjallalamb, silungapaté og vínar-
pylsur; silfurverðlaun fyrir frank-
furter-pylsur, grísasultu með osti
og gróf lifrarpaté með púrtvíni. Og
brons fyrir danskt salami, spægi-
pylsu og grísasultu.
Skv. meðaltalstölum, sem Vil-
mundur hefur reiknað út og byggð-
ar á tölum frá Framleiðsluráði land-
búnaðarins, má ætla að í fyrra hafi
fallið til 9.500 kg af ungnautatung-
um, 14.300 kg af hjörtum, 33.400
kg af lifur og 38.100 kg af þindum
og hálsæðum.
í fyrra var 2.282 hrossum slátr-
að. Má ætla að 16.500 kg af hjört-
um, þindum og hálsæðum hafi ver-
ið hent, 9.100 kg af lifur og 2.100
kg af tungu. Alls var 2.446 folöld-
um slátrað. Þar með telur Vilmund-
ur að 1.223 kg af tungum, 3.700
kg af lifur og 6.700 kg af hjörtum,
þindum og hálsæðum hafi verið
kastað fyrir róða.
Vilmundur segir að miklu magni
af fitu sé hent. „Við framleiddum
til prufu blóðpylsu úr folaldafitu,
blóði og folaldaslögum og ætluðum
að senda hana til Bosníu í gegnum
Hjálparstofnun kirkjunnar, sem því
miður hafði engan áhuga.“
Endurklœdum húsgögn.
Gott úrval áklceda.
Fagmenn vinna verkid.
Bólstrun Ásgríms,
Bergstaðastræti 2,
sími 16807.
Góðandaginn!
myllu
pizzabrauð
SKOBXÐ
áðub
169,-
HAGKAUP
- alít í einni ferö
TILBOÐ
VIKUNNAR