Morgunblaðið - 15.04.1993, Page 36
$6
fclk i
fréttum
Myndin frá 1953. Nýstúdentarnir Erling-ur Gíslason, Þorgeir
Þorgeirson og Arni Björnsson.
AFMÆLI
Stúdentsárin o g
nútíminn
Samstúdentarnir og félagarnir
Erlingur Gíslason, Þorgeir
Þorgeirson og Árni Björnsson
hittust fyrir skömmu í tilefni sex-
tugsafmælis Erlings Gíslasonar.
Vegna anna á afmælisdaginn, 13.
mars, fannst ekki tími til veislu-
halda, en Erlingur lék þá helgina
bæði í Dýrunum í Hálsaskógi og
Dansað á haustvöku. Buðu hjónin
Brynja Benediktsdóttir og Erling-
ur því æskuvinum hans til veislu
nokkru síðar og var þá dregin upp
gömul stúdentsmynd af þeim fé-
lögum. Voru allir á einu máli um
að skemmtilegt væri að taka
mynd í svipuðum dúr og gömlu
myndina. Meðfylgjandi má sjá
myndirnar tvær sem teknar voru
með 40 ára millibili.-
Myndin frá 1993. Á sextugsafmæli Erlings Gíslasonar.
Willy, sem er 76 ára, er danskcnnari en Peter, 29 ára, er læknir.
AST
Hún gæti verið amma
hans en er gift honum
Þau Willy og Peter Wan hafa
verið hamingjusamlega gift
í þijú ár, þrátt fyrir 47 ára ald-
ursmun. Þegar þau hittust á
læknastofunni, þar sem Peter
starfar, var um að ræða ást við
fystu sýn. Willy þurfti að leita
sér læknishjálpar vegna bein-
brots og Peter var sá sem sinnti
henni. Hann segir að það hafí
tekið sig langan tíma að fá Wiily
til að játast sér og hann hafi
beðið hennar íjórum sinnum áður
en hún var til í slaginn.
Willy segist ekki sjá eftir að
hafa tekið bónorðinu, því hver
dagur sé eins og ævintýri. Hún
hafi yngst um mörg ár og haldi
einhver að Peter ágirnist peninga
hennar sé það fjarstæða, því hún
eigi sáralítið af þeim. Áftur á
móti sé hann vel launaður. Peter
segist aldrei velta aldursmunin-
um fyrir sér, því þrátt fyrir 47
ára mun séu sálir þeirra jafn
gamlar og það sé það sem skipti
máli.
Rcuter
Peggy Sue
og Donna
PEGGY Sue Rackham
og gamall nágranni
hennar, Donna Fox, halla
sér upp að gömlum, gull-
aldar-Chevrolet og það á
vel við því að þetta eru
ekki ófrægar konur. Um
þá fyrrnefndu gerði
Buddy Holly lagið um
„Peggy Sue“ og sú síðar-
nefnda var kveikjan að
„Donnu“ hans Ritchie
Valens. Komu þær stöllur
saman í London í tilefni
af nýjum myndaflokki
BBC um stórstjörnur
rokktímabilsins.
TISKUSYNINGAR
Gat ekki átt við
30 sm háa hæla
Það er ekki á allra færi að ganga
á 30 sentimetra háum hælum
og vafamál að slíkir skór nái há-
tísku, þrátt fyrir að háir og breiðir
hælar séu að ryðja sér til rúms.
Þannig mistókst hinni þekktu fyrir-
sætu Naomi Campbell að ganga
alla þá leið sem henni var ætlað á
tiskusýningu í París nýlega. Þó fór
betur en á horfðist, því Naomi stóð
brosandi upp og virtist ekki hafa
slasað sig.