Morgunblaðið - 28.04.1993, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993
5
Stórvaxin en meinlaus
Krosskóngulóin er algengust á
sunnanverðu landinu, en sjald-
gæft er að kvendýrið lifi af vetur-
inn eins og líklega hefur átt sér
stað á Djúpavogi.
Stórvaxin kónguló
á Djúpavogi
Líklega um
krosskóng-
uló að ræða
KÓNGULÓIN sem hreiðrað hef-
ur um sig í beitingaskúr á Djúpa-
vogi, og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær, er að sögn Erlings
Ólafssonar skordýrafræðings að
öllum líkindum krosskónguló,
eða fjallakónguló eins og hún
hefur löngum verið köliuð.
Krosskóngulóin er algengust um
sunnanvert landið, t.d. á Reykja-
vikursvæðinu þar sem hún hefur
oft og tíðum valdið fólki hugar-
angri.
„Lýsingin á stærðinni er kannski
svolítið ævintýraleg, en hún getur
þó alveg orðið svona stór. Yfirleitt
koma krosskóngulær fram á vorin
sem ungviði og eru þá örlitlar. Þær
eru síðan allt sumarið að vaxa og
ná þessum mikla vexti í ágúst. Það
eru þá kvendýrin sem eru svona
sérdeilis stór, og skilja þær við sig
ungastóð að hausti og drepast þá
venjulega sjálfar. En það kemur
hins vegar fyrir að þær lifa áfram
yfir veturinn ef þær eru á vel skýld-
um stöðum þar sem þær lenda ekki
í frostum. Mér sýnist að það sé ein-
mitt það sem átt hefur sér stað í
þessu tilfelli á Djúpavogi," sagði
Erling.
Að sögn Erlings stafar fólki eng-
in hætta af krosskóngulónni, en hún
getur þó bitið ef tekið er á henni.
Því fylgir nokkur sársauki en engin
önnur óþægindi.
--------------
Janúar og febrúar
Vöruskipta-
jöfnuðurinn
hagstæður um
1,3 milljarða
FYRSTU tvo mánuði ársins var
vöruskiptajöfnuðurinn hagstæð-
ur um 1,3 mil^arða króna, en þá
voru fluttar út vörur fyrir 11,9
milljarði króna en inn fyrir 10,6
milljarði króna. Sama tímabil í
fyrra voru vöruskiptin í jafn-
vægi.
Verðmæti vöruútflutningsins var
1% minna á föstu verðlagi fyrstu
tvo mánuði ársins en sama tímabil
í fyrra. Sjávarafurðir voru 73% alls
útflutningsins og voru 6% minni en
sama tímabil í fyrra. Útflutningur
á áli var um fjórðungi minni, en
útflutningur kísiljárns um helmingi
meiri á föstu gengi en árið áður,
að því er kemur fram í fréttatil-
kynningu Hagstofunnar.
Verðmæti vöruinnflutningsins
fyrstu tvo mánuði ársins var 12%
minna á föstu gengi, en að frátöld-
um breytilegum liðum var innflutn-
ingurinn 9% minni en sama tíma í
fyrra.
Undirbuningur fyrir Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á Irlandi
Stefnt að lokaæfingu í næstu viku
SENN fer að líða að hinni árlegu Söngvakeppni evrópskra sjónvarp-
stöðva og fer keppnin að þessu sinni fram í bænum Millstreet skammt
frá Cork á írlandi 15. maí. Jon Kjell Seljeseth, höfundur íslenska lags-
ins Þá veistu svarið, segir að allt varðandi flutninginn sé að skríða
saman og sér lítist bara vel á horfurnar. Hann ætlar sjálfur að stjörna
hljómsveitinni þegar hún leikur íslenska lagið. Um sönginn sjá Ingi-
björg Stefánsdóttir og þrír bakraddasöngvarar og Einar Bragi Braga-
son leikur á saxafón. Jakob Magnússon verður kynnir fyrir íslands
hönd. Texti lagsins er eftir Friðrik Sturluson.
Jon sagði að verið væri að æfa
flutning lagsins og væri stefnt að
lokaæfingu á Hótel íslandi í næstu
viku. Hann sagði að búningahönnun
stæði yfir. „Búningarnir verða allt
öðruvísi en í sjónvarpinu. Hins vegar
verður lagið voðalega svipað endur-
unnu útgáfunni sem spiluð hefur
verið síðustu vikurnar á Rás 2. Því
var breytt frá því í sjónvarpinu t.d.
hraðað til þess að betra væri að
syngja það. Svo hefur Simon Kuran,
fiðluleikarinn snjalli, skrifað tónlist
fyrir strengi og blásturshljóðfæri en
eitthvað verður spilað af bandi,“
sagði Jon en hópurinn heldur til ír-
lands 9. maí.
Hin lögin
Aðspurður sagði Jon að honum
litist vel á keppnina. „Maður fer
ekki út í svona lagað án þess að lít-
ast á það. Annars kemst maður ekki
neitt,“ sagði hann. Jon segist vera
búinn að sjá hin keppnislögin og lít-
ast ágætlega á, þ.e. að þau séu ekki
betri en þau séu. „En þau eru auðvit-
að misjöfn. Sum eru mjög fín og
önnur óspennandi," sagði hann.
Eins og áður sagði ætlar Jon sjálf-
ur að stjórna hljómsveitinni á írlandi
en hann stjórnaði hljómsveitinni
einnig þegar Stjómin kom fram fyr-
ir íslands hönd í Júgóslavíu. Því seg-
ist hann hafa ágæta reynslu og eng-
inn kvíði hafi enn læðst að sér.
„Maður fær aðeins hreyfingu í lík-
amann fyrir útsendinguna úti en ég
býst ekki við spennu fyrir þann
tírna."
Hagkvæmt bflalán!
Staðgreióslulán er heildarlausn vió kaup á nýjum bíl
Þúfœrð staðgreiðsluafsláttinn
Þegar þú kaupir þér nýjan bíl, greiðir Glitnir það sem á vantar. Þannig er hægt að
nýta staðgreiðsluafsláttinn og fá bíl á bestu fáanlegu kjörum.
Lánstími allt að 3 ár
Nú býðst verðtryggt Staðgreiðslulán til Bja ára sem gefur þér kost á léttari
greiðslubyrði. Ef þú vilt greiða lánið hraðar niður er í boði óverðtryggt lán til allt
að 30 mánaða.
Pú velur tryggingarfélagið
Tryggja þarf bílinn með kaskótryggingu á lánstímanum og að sjálfsögðu
ræður þú hvar hann er tryggður.
r
Oskertir lánamöguleikar
Þú rýrir ekki lánamöguleika í bankanum þínum sem er afar heppilegt ef þú þafft
að mæta óvæntum útgjöldum á lánstímanum.
Allt að 100%fjármögnun kaupverðs
Lánshlutfall getur orðið 100% af staðgreiðsluverði bíls fyrir allt að 24 mánaða
lánstíma.
Kynntu þér hagstœð kjör Staðgreiðslulána og gerðu jafnframt
samanburð á þeim lánsformum sem bjóðast. Sölufulltrúar bifreiða-
umboðanna veita þér nánari upplýsingar og útbúa tilheyrandi
skjöl á skjótan og einfaldan hátt.
GHtnirhf
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
Ármúla 7 108 Reykjavík
Sími 608800 Myndsendir 608810