Morgunblaðið - 28.04.1993, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993
ÍPfíÚWR
'FOLK
■ ALDO Agroppi, þjálfari ít-
alska félagsins Fiorentina, var
rekinn í gær, aðeins íjórum mánuð-
um eftir að hann tók við félaginu,
sem er í fallhættu. Agroppi fékk
uppsagnarbréfíð tveimur dögum
eftir, 0:3, tap fyrir Juventus.
■ GRAEME Souness, fram-
kvæmdastjóri Liverpool, var í gær
sektaður um 49 þús. ísl. kr. vegna
aðför að línuverði í leik gegn Cryst-
al Palace. Þá var honum bannað
að stjóma Liverpool-liðinu frá hlið-
arlínu í næstu leikjum, en hann
hefur fjórum sinnum áður fengið
þannig bann. Tvisvar sem „stjóri“
hjá Glasgow Rangers og einu sinni
áður með Liverpool.
■ TOMAS Skuhravy, miðhetji
Tékka, sem leikur með Genúa á
Ítalíu, getur ekki leikið með Tékk-
um í HM-leik gegn Wales í dag.
Hann meiddur á hné.
■ SKUHRAVY fór til læknis í
Lyon í Frakklandi á þriðjudag, til
að láta líta á meiðslin. Tékkar leika
án tveggja annarra lykilmanna;
miðheijans Lubomir Moravcik og
Jan Suchoparek, sem eru báðir í
leikbanni.
■ TÉKKAR ■ leika undir stjórn
Vaclav Jezek, sem var þjálfari
þeirra 1972-78. Hann tók við starfi
Milan Macala, sem var látinn
hætta eftir jafnteflisleik, 1:1, gegn
Kýpur á dögunum. Aðeins sjö af
þeim leikmönnum sem léku þá, leika
gegn Wales.
■ TERRY Yorath, þjálfari
Wales, getur ekki teflt fram sínum
bestu leikmönnum. Varnarmennirn-
ir Eric Young og Mark Aizlewood
eru í banni og Kevin Ratcliffe er
meiddur. Lið hans verður þannig
skipað: Southall, Horne, Bodin,
Symons, Melville, Blackmore,
Speed, Hughes, Rush, Giggs,
Saunders.
■ ARRIGO Sacchi, þjálfari ítal-
íu, hefur kallað á Pierluigi Cas-
iraghi, miðheija Juventus, á ný í
landsliðshóp sinn, sem leikur HM-
leik gegn Sviss á laugardaginn í
Bern. Italía og Sviss hafa tíu stig
eftir sex leiki og stefna bæði á að
tryggja sér farseðilinn til Banda-
ríkjanna 1994 - úr 1. riðli.
■ ÍTALSKA liðið verður þannig
skipað: Gianluca Pagliuca - Mor-
eno Mannini, Paolo Maldini,
Franco Baresi, Pietro Vierc-
howod - Dino Baggio, Demetrio
Albertini, Diego Fuser, Giuseppe
Signori - Roberto Baggio, Pierlu-
igi Casiraghi.
■ ANDRZEJ Strejlau, fyrrum
þjálfari Fram og núverandi þjálfari
Pólverja, sem eru í sama riðli og
Englandingar, Norðmenn og Hol-
lendingar, vonast eftir mörgum
mörkum í leik gegn San Marínó í
Lodz í dag. Pólverjar leika án
margra bestu leikmanna sína, sem
leika með liðum utan Póllands.
■ NORÐMENN fá leikmenn
Tyrklands í heimsókn og þurfa
Jieir ekkert annað en sigur til að
vera með í baráttunni í riðli 2.
Norðmenn vonast eftir að vera
með í lokakeppni HM í fyrsta skipti
síðan í Frakklandi 1938.
■ RUNE Bratseth, fyrirliði
norksa liðsins, mun leika_ þó að
hann sé meiddur á hné. „Ég mun
líklega fara undir hnífinn eftir þetta
keppnistímabil,“ sagði þessi sterki
miðvörður Werder Bremen.
■ ERIK Thorstvedt, markvörður
Tottenham, mun ekki leika með
Norðmönnum, þar sem hann er
jneiddur á fingri.
í kvöld
HANDKNATTLEIKUR:
ÍR mætir FH í Austurbergi og Sel-
foss Val á Selfossi í undanúrslitum
íslandsmótsins kl. 20.
KNATTSPYRNA:
Fram og KR leika í Reykjavíkurmót-
inu á gervigrasvellinum í Laugardal
kl. 20.
HANDKNATTLEIKUR
Fimm félög eiga mögu-
leika á Evrópusæti
Pögur karlalið taka þátt í Evr-
ópumótum næsta keppnis-
tímabil - keppni meistaraliða,
deildarmeistara, bikarmeistara og
EHF-keppninni. Enn er ekki ljóst
hvaða lið frá íslandi keppa í hvaða
móti, en fimm félagslið koma til
greina sem fulltrúar íslands; Val-
ur og FH, sem eiga örugg sæti,
Selfoss, ÍR og Stjarnan.
Það verður ejtki ljóst fyrr en
íslandsmeistararnir verða krýnd-
ir, hvaða félög fara í hvaða
keppni. Möguleikarnir eru fjórir:
■Ef Valsmenn verða íslands-
meistariarar fara þeir í Evrópu-
keppni meistaraliða, Selfyssingar
í Evrópukeppni bikarhafa, FH-
ingar í Evrópukeppni deildar-
meistara og IR-ingar í EHF-
keppnina.
■Ef FH-ingar verða meistarara
fara þeir í meistarakeppnina,
Valsmenn f bikarkeppnina,
Stjömumenn í deildarmeistara-
keppnina og ÍR-ingar og Selfyss-
ingar leika aukaleiki um EHF-
sætið.
■Ef Selfyssingar verða meistarar
fara þeir í meistarakeppnina,
Valsmenn í bikarkeppnina, FH-
ingar í deildarmeistarakeppnina
og ÍR-ingar í EHF-keppnmina.
■Ef ÍR-ingar verða meistarar
fara þeir í meistarakeppnina,
Valsmenn í bikarkeppnina, FH-
ingar í deildarmeistarakeppnina
og Selfyssingar í EHF-keppnina.
Á þessu sést að Valur og FH
eru með örugg sæti í Evrópu-
keppni, en spurning er með þrjú
félög. Af áðumefndum félögum
hafa tvö ekki leikið í Evrópu-
keppni - Selfoss og ÍR.
FRJALSIÞROTTIR
Guðrún Amardóttir
undir íslandsmeti
Morgunblaðið/Frosti
Guörún Arnardóttir hefur staðið sig mjög vel í Bandaríkjunum, eftir að
hún byrjaði að keppa á ný.
GUÐRÚN Arnardóttir úr Ár-
manni náði þeim frábæra
árangri að sigra í 100 m grinda-
hlaupi á sterku móti, Drake
Relays, sem fór fram í Des
Moines í lowa um síðustu
helgi. Húnhljópá 13,44 sek.,
sem er 21/100 betri tími en
íslandsmet Helgu Halldórs-
dóttur úr KR frá 1987. Metið
fæst þá ekki staðfest þar sem
vindhraði mældist rúmlega 3
m/s í hlaupinu, en má mest
vera 2 m/s.
Arangur Guðrúnar tryggði henni
hins vegar keppni á banda-
ríska háskólamótinu í voru. Þar sem
mmmi Guðrún er nýbyijuð
Stefán Þ. asð æfa eftir nokkuð
Stefánsson hlé frá keppni, á hún
skrifar frá eftir að bæta sig og
má því reikna með
að met Helgu falli á næstunni.
Guðrún hefur stðið sig vel á há-
skólamótum undanfarnar vikur.
Hún hóf keppni utanhúss 3. apríl í
Atlanta, þar sem hún setti persónu-
legt met í 100 m grindahlaupi á
13,75 sek. og varð önnur í hlaup-
inu. Þar sigraði hún í 400 m grinda-
hlaupi á 62,59 sek. 9. apríl sigraði
hún í 100 m grindahlaupi í E1 Paso
í Texas á 13,74 sek. og 17. apríl
bætti Guðrún sig enn betur og sigr-
aði á móti sex skóla í Athens á
13,71 sek.
ÚRSLIT
Trompfimleikar
Keppnin fór fram í Digranesi 24. apríl.
Eldri flokkur
..............gólf dýna stökk samt.
GerplaF.........8,00 7,40 ,7,70 23,10
BjörkDHl........8,20 7,25 7,50 22,95
Ármannl.........7,20 7,50 7,25 21,95
GerplaG.........6,90 6,35 6,70 19,95
Stjaman.........7,00 5,55 7,00 19,55
Björk DH2.......6,75 5,95 6,20 18,90
Ármann 11.......6,75 6,05 5,90 18,70
Yngri flokkur
BjörkB..........6,30 7,05 7,45 20,80
Ármann 111......7,00 6,45 6,85 20,30
GerplaS.........6,45 6,30 6,95 19,70
GerplaA.........6,10 6,20 6,95 19,25
Stjaman.........5,75 6,05 7,-00 18,80
Snóker
Heimsmeistarakeppnin í Sheffield. 2. um-
ferð:
13-Alan McManus - Steve Davis....13:11
■Englendingurinn Steve Davis, 35 ára,
hefur sex sinnum orðið heimsmeistari.
McManus er 22 ára Skoti.
3-JimmyWhite-DougMountjoy........13: 6
■Það tók White, sem hefur tapað úrslita-
leikjum í HM síðustu þrjú ár, aðeins 40
mín. að vinna Mountjoy frá Wales.
7- James Wattana - 10-SteveJames....l3: 7.
■Tælendingurinn Wattana sýndi góðan
leik.
5-Neal Foulds - 12-Martin Clark...,.13:7
HM í íshokkí
Miinchen, Þýskalandi:
8- liða úrslit:
A-riðill:
Svíþjóð - Bandaríkin...............5:2
(2:1, 0:1, 3:0)
Mörk Svía: Mikael Renberg, Peter Fors-
berg, Ulf Dahlen 2 og Roger Akerstrom.
Mörk Bandaríkjanna: Robert Beers, Darr-
en Turcotte.
■ Ulf Dahlen, sem leikur í bandarísku
NHL-deildinni með Minnesota, gerði út um
vonir Bandarikjanna á að komast í undanúr-
slit með því að gera tvö mörk fyrri Svía í
þriðja leikhluta, en fyrir hann var staðan
jöfn, 2:2.
Rússland - Þýskaland..............5:1
(1:0, 1:0, 3:1)
NHL-deildin
1. umferð í úrslitakeppni NHL-deildarinnar:
Pittsburgh — New Jersey..........5:3
■Pittsburgh vann samanlagt 4:1.
Quebec — Montreal................4:5
■Eftir framlengingu. Montreal er yfir 3:2.
Washington----Islanders..........6:4
■islanders er yfir 3:2.
Knattspyrna
Þýskaland:
Stuttgart - Köln.................2:0
Kienle 2 (51., 77.). 25.000.
Saarbriicken - Wattenscheid......0:1
- Buchmaier (27.). 16.000.
Leverkusen - Frankfurt...........1:1
Hoffmann (12.) - Yeboah (65.). 15.000.
Karlsruhe - Kaiserslautern.......1:1
Bender (2.) - Marin (45.). 27.000.
Gladbach - Borussia Dortmund.....0:3
- Sammer (23.), Poschner (44.), Chapuisat
(83.). 34.500.
Bochum - Uerdingen...............4:1
Kempe (12.), Aden (68.), Christians (81.),
Bonan (84.) - Rahner (2.). 16.000.
Staðan:
B. Múnchen .28 15 9 4 57:33 39
Werder Bremen..., ,.28 15 9 4 47:25 39
Dortmund ..28 16 5 7 55:32 37
Frankfurt „28 12 12 4 47:31 36
Leverkusen „28 10 12 6 51:37 32
Karlsruhe „28 10 11 7 47:45 31
Kaiserslautern „28 10 8 10 41:29 28
Stuttgart „28 8 12 8 38:38 28
Gladbach „28 9 9 10 46:50 27
Schalke „27 8 10 9 27:34 26
Hamburger „27 6 13 8 35:33 25
Wattenscheid „28 9 7 12 37:52 25
Núrnberg „27 9 6 12 23:36 24
Saarbrúcken „28 5 13 10 35:50 23
Dynamo Dresden.. „27 6 10 11 28:41 22
Bochum „28 6 8 14 39:45 20
Köln „28 9 2 17 35:47 20
Uerdingen „28 5 8 15 27:57 18
TROMPFIIVILEIKAR
Gerpla íslandsmeistari
Sigurlið Gerplu í trompfimleikum, en keppnin fór fram um helgina. Fremri röð frá vinstri: íris Ösp Ingjaldsdóttir, Helga
Bára Jónsdóttir, Auður Inga Þorsteinsdóttir, Jóhanna Rósa Ágústsdóttir og Guðný Guðlaugsdóttir. Aftari röð frá vinstri:
Hrund Þorgeirsdóttir þjálfari, Linda Björk Logadóttir, Elín Hrönn Jónasdóttir, Hildur Pála Gunnarsdóttir, Sunna Guðný
Páimadóttir og Heimir Jón Gunnarsson þjáifari.