Morgunblaðið - 28.04.1993, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 28.04.1993, Blaðsíða 44
 óskaX lífeyrir að l>ínu vali! Sími 01-692500 MORGVNBLAÐW, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. 150 milljónir króna veittar til Lista- miðstöðvar á Korpúlfsstöðum í ár 60 verk bætast við gjöf Errós SKIPULAGSTILLÖGUR að Listamiðstöð á Korpúlfsstöðum voru kynntar í gær í borgarráði og munu framkvæmdir hefjast við endur- byggingu Korpúlfsstaða þegar á þessu ári. Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdir nemur um 1.400 m.kr., auk kostnaðar vegna búnað- ar og lóðar. Áætlað er að ljúka verkinu í áföngum og hefur borgar- syórn samþykkt að veita 150 m. kr. til verksins á þessu fjárhagsári en verklok eru óráðin. Nýverið bárust frá Erró rúmlega 60 málverk í viðbót við gjöf hans og að sögn Gunnars B. Kvaran eru þau meðal lykilmynda i lífsverki listamannsins. Myndirnar 60 eru málaðar frá upphafi 7. áratugarins til dagsins í dag, mestmegnis olíuverk en einnig samklippimyndir. „Eftir að Erró sá teikningar franska arkitektsins, sem voru meðal annars innblásnar af hinum mörgu myndröðum Errós,“ segir Gunnar B. Kvaran listfræðing- ur og forstöðumaður Kjarvalsstaða, „sá hann að ákveðin verk yrðu að vera með til að fylla út í heildar- myndina. Rýmið í Erró-safninu byggist meðal annars á að það er að hluta til stúkað niður í smærri herbergi, sem býður sérstaklega upp á að ein sería fái að njóta sín í hverri einingu. Myndirnar sextíu eru án nokkurs vafa meðal þeirra merkileg- ustu sem Erró hefur málað; lykil- myndir í lífsverki hans sem hjálpa munu til að gefa heilsteypta mynd af ferlinum öllum og vinnubrögðum •Errós, og gera þannig gott safn enn betra. Safninu hafa einnig borist mörg hundruð listaverkabækur að gjöf frá Erró, sem verða sem horn- steinn verðandi listabókasafns í List- amiðstöðinni." Á þessu ári hefst endurbygging og viðgerðir á Korpúlfsstöðum. Áætlað er að þær framkvæmdir kosti um 385 m.kr. Gert er ráð fyr- ir að í næsta áfanga verði hafist handa við Erró-safnið á þriðju hæð, en kostnaður við það er áætlaður 165 m.kr. Heiídarflatarmál hússins verður um 7.400 fermetrar að méð- töldu tæknirými og listaverka- geymslum. Grafíð verður frá kjallara fyrir inngangi í húsið sjávarmegin, og liggur aðkeyrsla að vestanverðu. Sýningarsalir Listasafns Reykjavík- ur verða samtals um 1.800 fermetr- ar, en Erró-safnið sem verður á þriðju hæð hússins fyrir miðju, um 1.000 fermetrar. Auk sýninga verð- ur ijölskrúðug starfsemi í Listamið- stöðinni. Sjá grein á miðopnu. Morgunblaðið/Sverrir Fjölskyldugarðurinn opnaður í sumar FJÖLSKYLDUGARÐURINN í Laugardal verður væntanlega opnaður í júní í sumar. Borgarráð hefur sam- þykkt gjaldskrá fyrir Húsdýra- og fjölskyldugarðana og verður aðgangur ókleypis í einn mánuð eftir opn- un fjölskyldugarðsins. Hefur verið samþykkt að reksturinn heyri undir íþrótta- og tómstundaráð og að 'framkvæmdastjóri þess hafí yfirumsjón með daglegum rekstri garðanna. Saltfiskframleiðendur í miklum erfiðleikum vegna ástandsins á mörkuðum EB Hærri tollar gætu kostað framleiðendur 1,2 milliarða HALDIST óbreytt ástand á saltfiskmörkuðum í Evrópu út þetta ár, getur það jafngilt nálega þriggja milljarða tekjutapi fyrir íslenska útflyljendur á ársgrundvelli og er þá miðað við að verð hafi hrunið um 20% og að Islendingar verði að sæta innflutningstollum til EB-landanna, ýmist 13% eða 20%. Áætla má að þessir háu tollar gætu kostað saltfiskframleiðendur um 1200 milljónir króna, miðað við heilt ár. Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri SIF, segir Ijóst að ef ekki verði breyting á til hins betra muni saltfiskframleiðendur snúa sér í auknum mæli yfir í aðrar framleiðsluaðferðir, fyrir aðra markaði, sem gefi betri tekjur. „Segja má að allt hafi lagst gegn okkur í þessum efnum. Það er ekki bara þróunin niður á við í verði, stöð- ug vandamál út af tollakvótum og samdráttur í afla, sem er okkur fjöt- ur um fót,“ sagði Magnús í samtali við Morgunblaðið í gær, „heldur einnig verðlækkun þeirra gjaldmiðla sem við eigum mest okkar viðskipti í. Ég nefni líruna sem lækkað hefur á milli 20% og 30% gagnvart ECU og pesetinn hefur lækkað á milli 8% og 10% gagnvart ECU.“ Magnús telur að Norðmenn klári brátt sinn tollfrjálsa kvóta á saltfisk- útflutningi til EB-landanna. Líklegt sé að slíkt gerist innan skamms, að því er varðar blautverkaða saltfisk- inn. Þá megi áætla að verðið jafnist eitthvað á nýjan leik milli norskra og íslenskra fiskframleiðenda. Sjá ennfremur Af innlendum vettvangi bls. 19. Skýrsla Hagfræðistofnunar Háskólans um rekstur bankakerfisins Vaxtamunur og kostn- aður hærri en erlendis REKSTRARKOSTNAÐUR innlánsstofnana á íslandi er mun hærri en í nágranna- löndunum, þ.e. Norðurlöndunum, Þýzkalandi, Bretlandi og Bandaríkjunum. Þjón- ustutekjur eru hærri hér og vaxtamunur um það bil helmingi hærri en að meðal- tali í nágrannalöndunum. Þetta kemur fram í skýrslu, sem Hagfræðistofnun Háskóla Islands hefur gert fyrir Seðlabankann og birt var í gær. í skýrslu Hagfræðistofnunar kemur fram að íslenzkar innlánsstofnanir, þ.e. viðskiptabankar og sparisjóðir, hafí ekki farið varhluta af alþjóð- Iegri efnahagskreppu, en hagnaður þeirra fyrir skatta og afskriftir verið hærra hlutfall heildar- eigna en í nágrannalöndunum að meðaltali, eða 1,7 - 2%. í nágrannalöndunum var þetta hlutfall 1,1 -1,8% á árunum 1985-1990. Starfsmannakostnaður tvöfaldur Rekstrarkostnaður íslenzka bankakerfísins á þessum tíma hefur verið mun hærri en erlendis. , Starfsmannakostnaður hefur verið helmingi hærri en annars staðar og var 2,69% af heildareignum 1990 miðað við 1,3% í samanburðarlöndunum, þrátt fyrir 8% fækkun bankastarfsmanna 1988- 1990. Starfsmannaijöldi er hér einnig hlutfalls- lega mestur. Annar rekstrarkostnaður er einnig mikið hærri hér, 2,35% árið 1990 miðað við 1,36% í nágrannalöndum. Tekjur banka og sparisjóða af þjónustugjöldum hafa verið hærri hér á landi en annars staðar, eða um 2% af eignum síðustu árin, miðað við 1,2 -1,5% annars staðar. Vaxtamunur, þ.e. mun- ur inn- og útlánsvaxta, hefur verið rúmlega tvö- faldur hér miðað við nágrannalöndin. Hann var hæstur hér á landi 1987, 6,31% af heildareignum, en hefur síðan lækkað í 4,93% árið 1991. Á sama tíma var hann 2,6 - 2,8% erlendis. Framlög á afskriftareikning útlána hafa verið undir meðallagi hér á landi fram til 1990, en þá fór ísland yfir meðaltal nágrannalandanna og voru framlögin 2,70% af heildareignum 1992 en höfðu verið undir 1% fram til 1990. Eiginfjár- staða innlánsstofnana hér hefur verið nokkuð traust, eða upp undir 8% og betri en í hinum löndunum, að Danmörku undanskilinni. Arðsemi eigin Ijár hefur sveiflazt nokkuð og farið lækk- andi undanfarin ár, en er þó yfir meðaltali saman- burðarlandanna. Hagræðing með sameiningu sparisjóða Hagfræðistofnun telur að einkavæðing ríkis- bankanna muni skila meiri hagræðingu í banka- kerfinu en væntanleg samkeppni frá erlendum bönkum. Þá telur stofnunin að allir viðskiptabank- arnir hafi yfirstigið óhagkvæmni smæðarinnar, en ekki sé ólíklegt að þeir geti náð meiri hag- kvæmni í rekstri. Hins vegar megi að líkindum ná meiri hagkvæmni fram með sameiningu eða samvinnu sparisjóða en að þeir reyni að ná hag- ræðingu hver fyrir sig. Þingjafn- vel út maí ÞINGFLOKKAR stjórnar- flokkanna funduðu í gær- kvöldi um frumvörp sjávarút- vegsráðherra um fiskveiði- stjórnun, Þróunarsjóð sjávar- útvegsins og Verðjöfnunar- sjóð. Ekki var full samstaða um fiskveiðisljórnun, en lík- legt er þó talið að málin verði lögð fram í næstu viku og leit- azt við að samþykkja þau á þingi í vor, sem þýðir þing- hald umfram áætluð þinglok 6. maí, jafnvel út mánuðinn. Viðræðum flokkanna um málsmeðferð er ekki lokið. Frumvörpin, sem sjávarút- vegsráðherra kynnti í ríkisstjórn í gærmorgun, byggja á nefndar- áliti Tvíhöfðanefndarinnar, að því undanskildu að lagt er til að settur verður heildarkvóti fyrir krókaleyfísbáta, 4-5% af heild- arafla, í stað kvóta á einstaka báta. Þá teljist línuafli smábáta áfram að hálfu utan kvóta í fjóra mánuði á ári, en fari heildarlínu- afli yfir 34.000 tonn af þorski og ýsu áður en því tímabili lýk- ur, verði línuveiðar stöðvaðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.