Morgunblaðið - 28.04.1993, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993
27
Uppeldisstöð Skógræktarfélags Eyfirðinga
Villtar kanínur til
ama í Kjarnaskógi
Á annan tug þeirra hafa verið veiddar
VILLTAR kanínur hafa verið
starfsfólki Skógræktarfélags
Eyfirðinga í Kjarnaskógi til
ama, en þær hafa lagst á
plöntur í uppeldisstöð félags-
ins og valdið þó nokkru tjóni.
Að undanförnu hafa á annan
tug kanína verið veiddar í
skóginum.
Hallgrímur Indriðason fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags
Eyfírðinga sagði að um nokkurt
skeið hefðu kanínur haldið sig í
Tónlistarfélag
Akureyrar
Þrjár konur
flytja verk
frá Spáni
FJÓRÐU tónleikar Tónlistarfé-
lags Akureyrar verða haldnir í
Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju á morgun, fimmtudaginn
29. apríl kl. 20.30.
Það verða Hólmfríður Bene-
diktsdóttir, sópran, Jennifer Spe-
ar, gítarleikari, og Helga Bryndís
Magnúsdóttir, píanóleikari, sem
flytja verk frá Spáni og einnig
verk frá Suður- og Norður-Amer-
íku.
Fyrir hlé verður söngur og gítar
eftir Manuel de Falla, Vicente E.
Soho og Austin Barrios Mangoré
og eftir hlé verður söngur og píanó
eftir Samuel Barber og Xavier
Montsalvage.
Kjarnaskógi, en þær fóru að nálg-
ast faraldur í fyrrasumar. „Við
héldum að stofninn myndi grisjast
í vetur og sjálfsagt hefur hann
eitthvað gert það, en við höfum
þó náð að veiða býsna margar,“
sagði Hallgrímur.
Voðinn vís
Taldi Hallgrímur að upphaf
kanínufaraldurs í Kjarnaskógi
væri að einhveijir hefðu losað sig
við fyrrum gæludýr sín á þann
hátt að sleppa þeim lausum í skóg-
inn og gefa þeim á þann hátt
möguleika í lífsbaráttunni.
Kanínurnar hafa grafið sér hol-
ur og hafast þar við á milli þess
sem þær leita sér ætis, en að sögn
Hallgríms leggjast þær á smáp-
löntur í beðum.
„Þær hafa stórskemmt plöntur
í uppeldisstöð okkar og þegar vald-
ið miklu tjóni. Við sjáum það fyrir
með hryllingi ef þetta heldur svona
áfram og hér verði stofn til fram-
búðar, þá er voðinn vís og við
ætlum okkur að reyna að koma í
veg fyrir að svo verði.“
Gildrur
Kanínurnar hafa að mestu verið
veiddar á afmörkuðu svæði innan
gróðrarstöðvar Skógræktarfélags-
ins, en þangað sækja þær í smá-
plönturnar. Þá hafa gildrur verið
lagðar á víð og dreif um skóginn,
en sú veiðiaðferð hefur fram til
þessa ekki verið árangursrík.
Undirskriftarlisti gegn nestisbanni á gæsluvöllum
Nestisbanni mótmælt
, V
SIGRIÐUR Stefánsdóttir forseti bæjarstjórnar Akureyrar tekur við undirskriftum foreldra þar sem
mótmælt er nestisbanni á gæsluvöllum bæjarins. Frá vinstri er Sigríður, þá Lovísa Kristjánsdóttir
og Einar Sveinn Ólafsson með son sinn Guðmund Gretti.
Yona að lausn finnist
sem allir sætta sig við
- segir Sigríður Stefánsdóttir forseti bæjarstjórnar
FORELDRAR barna sem sækja gæsluvelli Akureyrarbæjar hafa
að undanförnu safnað undirskriftum þar sem mótmælt er þeirri
ákvörðun dagvistardeildar bæjarins að leyfa börnunum ekki leng-
ur að koma með nesti á vellina. Sigríði Stefánsdóttur forseta
bæjarstjórnar var afhentur listinn á mánudag.
„Það hefur ekki verið fjallað um þjónustu, með beiðni um að þess-
þetta mál í stjórnkerfmu. Þetta er
ákvörðun sem tekin er af embættis-
mönnum bæjarins á dagvistardeild,
en þar eru teknar ákvarðanir er
varða innra starf á þessu sviði. Nú
hafa komið fram viðbrögð frá for-
eldrum, sem eru notendur þessarar
ari ákvörðun verði breytt og í kjöl-
farið tel ég það skyldu bæjaryfir-
valda að fjalla um þetta mál,“ sagði
Sigríður, en hún hefur vísað erindi
foreldranna til umfjöllunar í félags-
málaráði.
„Ég vona að það finnist lausn í
þessu máli sem allir geta sætt sig
við,“ sagði Sigríður.
Forsaga málsins er að á einum
gæsluvelli sem mikið er sóttur þyk-
ir ekki nægilega góð aðstaða fyrir
börnin til að borða bitann og í fram-
haldi af því var tekið upp nestis-
bann á gæsluvöllum. Fram kom í
undirskriftarlistanum að foreldrar
væntu þess að gripið verði til ann-
arra ráða til að leysa þann vanda
sem kallaði á nestisbannið og lýst
er óánægju með þessa ákvörðun.
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga um fjárfestingar á síðastliðnu ári
Hlutabréf keypt í 16 fyrir-
tækjum fyrir 682 milljónir
Kennarar
Tónlistarkonurnar eru allar
kennarar við Tónlistarskólann á
Akureyri.
Þessir tónleikar áttu að verða í
mars en vegna offramboðs á tón-
leikum áætlaðan tónleikadag var
ákveðið að fresta þeim þar til um
hægðist aftur.
KAUPFÉLAG Eyfirðinga keypti
hlutabréf í 16 fyrirtækjum á síð-
asta ári fyrir um 682 miHjónir
króna. Verulegur hluti þessara
fjárfestinga fólst í eignabreyting-
um og lækkuðu eignarhlutir í
sameignarfyrirtækjum og stofn-
sjóðir um 171 milljón króna og
fjárbinding í samstarfsfyrirtækj-
um lækkaði um 329 milljónir
króna, þannig að nettófjárfesting
vegna hlutabréfakaupa var um
182 milljónir króna. Þetta kom
fram þjá Magnúsi Gauta Gauta-
syni kaupfélagsstjóra á aðalfundi
félagsins á mánudag.
í sundurliðun á hlutabréfakaup-
um Kaupfélags Eyfirðinga á síðasta
ári kemur fram félagið keypti hluta-
bréf í Dagsprenti fyrir 11,5 milljón-
ir króna, í Slippstöðinni Odda fyrir
35 milljónir, í Laxá fyrir 18 milljón-
ir, Kaffibrennslu Akureyrar fyrir
72,5 milljónir, 25,5 milljónir voru
lagðar í Olíufélagið, 196,1 milljón
í Utgerðarfélag Dalvíkinga og 315
milljónir í Efnaverksmiðjuna Sjöfn.
Einnig keypti KEA hlutabréf í
íslenskum skinnaiðnaði fyrir um 2,4V
milljónir og þá voru keypt bréf í
Kaupþingi Norðurlands, ísstöðinni,
Vélsmiðjunni Odda, Fiskeldi Eyja-
fjarðar, Omak og Laxós fyrir á bil-
inu 25 þúsund til tæplega 900 þús-
und krónur.
Skuld breytt í hlutafé
Slippstöðin og Vélsmiðjan Oddi
voru sameinuð á síðasta ári og
keypti fyrrnefnda fyrirtækið hluta-
bréf KEA í Odda og greiddi fyrir
með hlutabréfum í Slippstöðinni
Odda. Hvað varðar Sjöfn og Kaffi-
brennsluna þá átti Samband ís-
lenskra samvinnufélaga helming
hlutafjár á móti KEA, en á liðnu
ári keypti KEA hlutabréf SÍS i fyrir-
tækjunum og var kaupverðið 208
milljónir.
Þá má geta þess að KEA seldi
Útgerðarfélagi Dalvíkinga, afla-
heimildir árið 1991, en í fyrra var
skuld ÚD vegna kaupanna breytt í
hlutafé.
(Fréttatilkynning.)
*
Arlegt Grímseyj ar hlaup þreytt
Grímsey.
Morgunblaðið/Hólmfríður
í startholunum
ViÐ UPPHAF Grímseyjarhlaups. frá vinstri: Jón Ingimarsson, skólastjóri, Stella, Harald-
ur Helgi, Halla, Einar Þór, Jón Óli, Vilborg, Konráð, Árni Már, Steinar, Henning, Sigurð-
ur og Ioks Ingimar Jóhannsson kennari.
í HUGUM margra er Grímseyjarhlaup
einn af vorboðunum, en á síðustu ellefu
árum hafa skólabörn í eynni þreytt þetta
hlaup að vorlagi.
Nú orðið er hlaupið eftir flugbrautinni og
nemendur í eldri deild skólans hlaupa eftir
brautinni allri eða um eins kílómetra leið og
yngri deilar nemar hlaupa helmingi skemmri
vegalengd.
Upphaf Grímseyjarhlaups er rakið til
Bjarka Bjarnasonar íþróttakennara er hér var
eitt sinn og hvatti unga hlaupara óspart til
dáða. í þá daga var hlaupið frá syðsta bænum
í eynni, Grenivík, og að Múla, þar sem skól-
inn er til húsa, en þetta er um 1,5 kílómetra
löng leið. Síðar var leiðinni breytt og síðustu
ár liefur verið hlaupið eftir flugbrautinni.
Sigurvegarar
Að þessu sinni fór Henning Henningsson
með sigur af hólmi í eldri deildinni. í öðru
sæti varð Stella Gunnarsdóttir og Margrét
Héðinsdóttir í því þriðja. Sigurður Hennings-
son fetaði í fótspor bróður síns og varð fyrst-
ur yngri deildar nema í mark, þá kom Harald-
ur Helgi Stefánsson og þriðji varð Steinar
Sæmundsson.