Morgunblaðið - 28.04.1993, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993
43
I
| ® FEKENC Puskas, einn fræg-
' asti knattspymumaður heims á
sínum tíma, hefur tekið við ung-
| verska landsliðinu og stjómar því
’ í fyrsta sinn í undankeppni HM
gegn Rússum í Moskvu í dag.
■ „VIÐ þekkjum ungverska
knattspyrnu vel,“ sagði Pavel Sa-
dyrin, þjálfari Rússa, í samtali við
dagblaðið Sovetsky Sport. „Ung-
veijar em þekktir fyrir mikla
tækni og baráttuvilja og em nú
með nýjan þjálfara, hinn fræga
Puskas, sem á ömgglega eftir að
hjálpa þeim.“
■ RÚSSAR verða með sama lið
og vann Lúxemborg 4:0 fyrir
skömmu. Rússar em nú þremur
stigum á eftir Grikkjum sem era
efstir, eri eiga tvo leiki til góða.
s Ungveijar hafa hins vegar aðeins
3 stig eftir þrjá ieiki og töpuðu
m.a. fyrir íslendingum.
| ■ PORTÚGALIR þurfa sigur í
viðureign sinni gegn Skotum í
Lissabon í kvöld ætli þeir sér að
| eiga möguleika á að komast á HM
í Bandaríkjunum. „Við þurfum
að gera mörg mörk, en ef við sigr-
um ekki em vonir okkar um HM
1994 úr sögunni," sagði Carlos
Queiroz, þjálfari Portúgals. En
þessi lið em í sama riðli og Ítalía
og Sviss.
I JORGE Cadete, ieikmaður
Sporting Lissabon, verður í
fremstu víglínu, en hann hefur
gert 15 mörk í 28 leikjum í port-
úgölsku deildinni. Með honum
frammi verður. Domingos Oli-
veira, sem hefur gert sjö mörk
fyrir Porto.
■ SKOTAR hafa aldrei sigrað í
) Portúgal, en miðvallarleikmaður
Glasgow Rangers, Stuart
McCall, trúir því að þeir þurfi að-
P eins eitt stig til að halda í HM-von-
ina. „Jafntefli væri ekki endalokin
fyrir okkur. Við stefnum að sigri,
| en jafntefli og sigur í næstu þrem-
ur leikjum á eftir; gegn Eistlandi
heima og heiman og Sviss heima
gæti dugað okkur,“ sagði McCall.
■ GRAHAM Taylor, landsliðs-
þjálfari Englendinga, er bjartsýnn
fyrir leikinn gegn Hollendingum
á Wembley. Hann segir að hol-
lenska liðið verði undir mikilli
pressu þar sem það hefur nú þegar
tapað einum leik í 2. riðli.
B JOHN Barnes, leikmaður með
Liverpool, mun að öllum líkindum
leika gegn Hollendingum. Taylor
segir að Bames hafí mjög góð
áhrif á liðið. England hefur aldrei
Itapað í undankeppni HM á heiam-
velli.
■ HOLLENDINGAR verða án
| nokkurra lykilmanna eins og
• Marco van Basten, Ronald Koe-
man og Berry van Aerle, sem
m allir em meiddir en Frank Rijka-
® ard og Ruud Gullit verða á sínum
stað í liðinu. „Við getum leikið vel
þó við séum með marga leikmenn
sem em ekki þekktir í Englandi,
en þeir verða kannski þekktir eftir
leikinn," sagði Dick Advocaat,
þjálfari Hollendinga.
É DANIR ætla sér sigur gegn
írum í 3. riðli í Dublin í kvöld.
„írar er með gott lið en ég hræð-
ist þá ekki. Ég held að þetta verði
mikill baráttu leikur," sagði Ric-
hard Möller Nielsen, þjálfari
Dana.
■ FRAKKAR, sem em sigur-
stanglegastir í 6. riðli, fá Svía í
g heimsókn til Parísar í kvöld.
• Frakkar verða án fyrirliðans og
markaskorarans, Jean Perre Pap-
g ins, sem er meiddur. Franck
3 Sauzee, leikmaður Marseille,
verður fyrirliði í kvöld.
|g ■ „VIÐ reynum að sjálfsögðu
9 að sigra eins og alltaf, en yrðum
mjög sáttir við jafntefli. Frakkar
hafa leikið mjög vel og vaxa með
hveiju leik,“ sagði Tommy Svens-
son, þjálfari Svía.
FIMLEIKAR / NM UNGLINGA
ElvaRutfékk
brons í Noregi
Elva Rut Jónsdóttir fímleikastúlka úr Björk í Hafnarfírði varð þriðja
í keppni á jafnvægisslá á Norðurlandamóti unglinga í fímleikum
sem fram fór í Mandal í Noregi um helgina. Hún hlaut 7,60 stig.
Sigurvegari var Marianne Povelsen frá Danmörku með 8,30 stig.
Eva Bjömsdóttir úr Gróttu komst í úrslit í keppni á tvíslá og hafn-
aði þar í sjötta sæti, hlaut 6,30 stig. Sigurvegari var Elisabeth
Amundsen, Noregi, með 8,85 stig. Nína Björg Magnúsdóttir og Anna
Kr. Gunnarsdóttir tóku einnig þátt í mótinu en komust ekki í úrslit.
ÞYSKALAND
Varamaður-
inn hetja
Stuttgart
Varamaðurinn Marc Kienle, 22
ára, var hetja Stuttgart er
liðið vann Köln 2:0 á Necker-leik-
vanginum í þýsku úrvalsdeildinni
í gærkvöldi. Kienle, sem kom inná
í fyrri hálfleik fyrir Fritz Walter,
sem sleit vöðva í læri, þakkaði
fyrir sig með því að gera bæði
mörk Stuttgart á 51. og 78. mín-
útu.
Eyjólfur Sverrisson lék allan
leikinn á miðjunni og átti m.a.
skot að marki sem var bjargað á
línu. „Þetta var mikilvægur sigur
eftir frekar brösótt gengi að und-
anfömu. Við voram miklu betri,
sérstaklega í síðari hálfleik og
fengum þá mörg marktækifæri.
Nú er bara að fylgja þessu eftir
og sigra Bayem Munchen á
Ólympíuleikvanginum á föstudags-
kvöld,“ sagði Eyjólfur.
Eyjólfur Bragason, landsliðsþjálfari U-18 ára landsliðs pilta í handknattleik.
Urslit / 42
Eyjólfur ráðinn þjálfari
Hefur valið 28 stráka vegna Opna Norðurlandamótsins
Eyjólfur Bragason hefur verið
ráðinn þjálfari U-18 ára lands-
liðs pilta í handknattleik og er gert
ráð fyrir að hann fylgi því eftir til
1995, þegar það tekur þátt í heims-
meistarakeppni 21s árs landsliða.
Fyrsta verkefni liðsins er Opna
Norðurlandamótið, sem verður hald-
ið í Svíþjóð í byijun júlí í tengslum
við Partille Cup. Hann hefur valið
28 pilta vegna undirbúningsins og
verður fyrsta æfingin á föstudag,
en síðan er ráðgert að hópurinn
komi saman um hveija helgi auk
þess sem séræfingar verða þess á
milli.
Eftirtaldir piltar era í hópnum:
Örvar Rudolfsson, Davíð Ólafsson,
Ari Allansson og_ Sigfús Sigurðsson
úr Val, Sæþór Ólafsson og Rögn-
valdur Johnsen í Stjömunni, Ragnar
Páll Ólafsson frá ÍR, Jón Þ. Stefáns-
son HK, Daði Hafþórsson, Amþór
Elmar Sigurðsson og Sigurður Guð-
jónsson hjá Fram, Þórður Ágústsson
Gróttu, Leó Þorleifsson og Helgi
Arason í KA, Hilmar Þórlindsson,
Éinar Baldvin Ámason, Páll Beck,
Þórir Steinþórsson og Magnús Agn-
ar Magnússon frá KR, Davíð Hall-
grímsson, Daði Pálsson og Hlynur
Jóhannesson úr ÍBV, Eivar Guð-
mundsson og Jón Þórðarson hjá
UBK, Geir Aðalsteinsson og Samúel
Einarsson frá Þór og Sturla Egilsson
og Þorkell Magnússon frá Haukum.
KNATTSPYRNA
Guðni snýr heim
- leikur með Val á Hlíðarenda gegn Víkingi
í 1. umferð íslandsmótsins 23. maí
GUÐNI Bergsson, landsliðsmaður hjá Tottenham, hefur
ákveðið að leika með bikarmeisturum Vals í sumar.
„Það er frágengið að ég spila með Valsmönnum í sum-
ar. Ég reikna með að spila síðasta leikinn með Totten-
ham 11. maí og þá er ég laus frá félaginu," sagði Guðni.
Guðni hefur verið atvinnu-
maður hjá Tottenham í
tæp fímm ár og leikið 90 leiki
með liðinu í deildar- og bikar-
keppninni. Hann hefur lítið
fengið að spreyta sig með að-
alliði félagsins í vetur og var
ekki sáttur við það.
„Þeir buðu mér áframhald-
andi samning hjá Tottenham,
en eftir það sem á undan er
gengið taldi ég rétt að koma
heima og leika með Val í sum-
ar og skoða síðan þessi mál
aftur í haust. Það verður gam-
an að leika með Val á ný eftir
fímm ár. Nú verð ég með eldri
mönnum í Valsliðinu," sagði
Guðni, sem verður 27 ára í sumar.
Samkvæmt reglum KSÍ um fé-
lagaskipti leikmanna þarf leik-
maður að hafa verið félagi í við-
komandi félagi í minnst eina viku
áður en kappleikur hefst. Guðni
verður því væntanlega löglegur
með Val í 1. umferð Islandsmóts-
ins gegn Víkingum að Hlíðarenda
23. maí.
Þegar Guðni gerðist atvinnu-
maður hjá Tottenham 1988 var
hann á fjórða ári í lögfræðinámi.
Hann hyggst taka þráðinn upp
aftur og taka próf í haust.
Guðnl Bergsson leikur á ný með Val
eftir fimm ára atvinnumennsku í Englandi.