Morgunblaðið - 28.04.1993, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 28.04.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 1993 15 Háskóli íslands hafi þær skyldur umfram aðra, að fjalla hlutlægt um vísindaleg ágreiningsefni. Undir þetta tek ég af heilum hug. Leiðar- íjósið í starfi Háskóla íslands er og hefur ávallt verið að hafa það sem sannara reynist. Hvað það snertir er auðvitað ekki síst þýðingarmikið, að taka við því opnum huga sem aðilar utan skólans hafa fram að færa. Því hef ég ákveðið að beita mér fyrir því, að Kristni verði boðið að flytja erindi um fiskifræði og fiskveiðistjórnun á sérstakri mál- stofu innan Háskólans. Á þessari málstofu myndi Kristinn kynna kenningar sínar með skipulegum hætti og svara fyrirspurnum og athugasemdum. Málstofur með þessum hætti er ein þeirra aðferða, sem beitt er i Háskólanum til að kynna og gagn- rýna nýjar tilgátur og fleyta þannig þekkingunni fram á við. Undir hana beygja allir vísindamenn sig. Með því að bjóða Kristni að flytja erindi á málstofu í Háskólanum fær hann sama aðgang að eyrum háskóla- samfélagsins og viðurkenndir vís- indamenn. Lengra verður ekki gengið. Vonandi reynist þetta hefð- bundna form fræðilegra skoðana- skipta þekkingunni vilhallara en framhaldandi orðaskak við Kristin í dagblöðunum. Fiskifræði við Háskóla Islands eftir Gísla Má Gíslason Máli sínu lýkur Kristinn með því að spyrja „hvað Háskóli íslands hyggist gera til þess að fiskifræði geti þróast sem alvöru vísindi í Háskóla íslands, en ekki sem endur- menntunarnámskeið í krónískum farvegi sem afneitar staðreyndum um einfalt samspil í sínu nánasta umhverfi".^ Háskóli íslands er æðsta mennta- stofnun á íslandi og hefur skyldu umfram aðra að láta fara fram hlut- lausa umfjöllun um öll mál. Við Háskóla íslands eru kenndar flestar undirgreinar líffræðinnar, þar með talin fiskifræði. í námi og rannsókn- um fjalla kennarar og nemendur m.a. um vistfræði og stofnvistfræði ýmissa lífvera, en lögmál hennar eiga við um fiska sem og aðrar líf- verur. Auk þess eru fagsvið iíf- fræðiskorar og Líffræðistofnunar Háskólans á mörgum sviðum sjáv- arlíffræði og Háskóli íslands hefur notið starfskrafta vísindamanna frá Hafrannsóknastofnun við kennslu og þjálfun nemenda í fiska- og fiski- fræði. þjáist af völdum fylgikvilla reyk- inga. Þeir sem græða eru framleið- endur og seljendur tóbaks. Ekki græða fátæk tóbaksræktarríki þvi þau munu eyða meiri gjaldeyri í að flytja inn fullunnar tóbaksvörur en þau fá fyrir útflutning á tóbaki sem hráefni. í ljósi alls þessa er furðulegt að við skulum yfirleitt vilja eiga við- skipti við fyrirtæki sem valda jafn miklum þjáningum, framleiða jafn banvæna vöru og stunda jafn mikið arðrán og tóbaksfyrirtækin. Hættu sjálfrar þín vegna Þó að ekki væri vegna annars en þessa ættum við auðvitað öll að hætta að reykja. En það er hægara um að tala en í að komast Það er mín skoðun að það hætti enginn að reykja af einni saman tillitssemi við annað fólk. Barnshafandi konur hætta t.d. gjarnan að reykja á meðgöngu en byrja aftur um leið og barnið hættir að vera þeim háð með alla næringu. Það sem best dugir gegn reykingum er að þykja vænt um sjálfan sig og leggja nokk- uð upp úr andlegri og líkamlegri vellíðan sinni. Það er ekkert auðvelt að hætta að reykja og oft þarf að gera marg- ar atrennur áður en það tekst. Eg hef ekki tölu á mínum. En það er um að gera að reyna bara nógu oft. Við það öðlast maður þjálfun og það sem meira er — samanburð. Og á endanum tekst það. Gangi ykkur vel! Það er því ekki að ástæðulausu að Endurmenntunarstofnun Há- skólans leitaði til tveggja vel mennt- aðra og reyndra vísindamanna, þeirra dr. Ólafs Karvels Pálssonar, fiskifræðings, og dr. Gunnars Stef- ánssonar, tölfræðings, til að kenna fiskifræði. Þeirra hlutverk á Haf- rannsóknastofnun er eins og ann- arra vísindamanna að leita hins sanna á fræðasviði sínu. í kennslu Ólafs og Gunnars var m.a. fjallað um íslenska fiska og skyldleika þeirra, tölfræði og reikni- aðferðir stofnvistfræðinnar, aðferð- ir við að meta stofna út frá tak- mörkuðum upplýsingum, fiskveiði- stjórnun og hvernig nýta megi lítt þekkta stofna og hugsanlega van- nýtta stofna. Þó að fræðasviðið sé stórt, var reynt að fara yfir flesta þætti þess í þessu stutta námskeiði og kynna helstu hugmyndir. Menntamálaráðherra og Alþingi íslendinga sáu nauðsyn þess að komið yrði á fót embætti prófessors í fiskifræði við líffræðiskor Háskóla íslands. Embættið verður auglýst laust til umsóknar næstu daga, og vonast Háskóli íslands til þess að fjá mjög hæfan vísindamann í starf- ið. Á þann hátt getur Háskóli ís- lands betur en hingað til þjálfað verðandi vísindamenn þjóðarinnar í fiskifræði, og vonast er til að þetta muni efla rannsóknir í fiskifræði og tengdum greinum. Sveinbjörn Björnsson errektor Háskóla íslands, Rngnnr Árnason er prófessor í fiskihagfræði og stjómarformaður Sjávarútvegs- stofnunar Háskóla Islands og Gísli Már Gíslason er prófessor í líffræði og forstöðumaður Líffræðistofnunar Háskólans. Til höfunda greina Töluverður fjöldi aðsendra greina bíður nú birtingar í Morg- unblaðinu. Til þess að greiða fyrir því að biðtími styttist og greinar birtist skjótar en verið hefur um skeið, eru það eindregin tilmæli Morgunblaðsins til greinahöfunda, að þeir skrifi að jafnaði ekki lengri greinar en sem nemur tveimur A-4 blöðum með venjulegu línubili. Yfirleitt geta höfundar komið sjónarmiðum sínum á framfæri í texta, sem er ekki lengri en þessu nemur, þótt auðvitað geti verið undantekningar á því. Hins vegar kostar það meiri vinnu fyrir grein- arhöfund að setja fram skoðanir og sjónarmið í samþjöppuðu máli en um leið má gera ráð fyrir, að lesendahópur verði stærri, auk þess sem búast má við skjótari birtingu eins og að framan greinir. Morgunblaðið leggur áherzlu á að að verða við óskum höfunda um birtingu greina. Blaðið er orðið helzti vettvangur slíkra umræðna í þjóðfélaginu og vill vera það. Stærð blaðsins er hins vegar háð takmörkunum frá degi til dags. Morgunblaðið vill bæta þjónustu sína við þá sem skrifa í blaðið með skjótari birtingu, en forsenda þess er, að höfundar stytti mál sitt. Jafn- framt áskilur blaðið sér rétt til að birta aðsendar greinar í einstökum sérblöðum Morgunblaðsins, ef efni þeirra gefur tilefni til. Ritstj. Fylgstu meb á mibvikudögum! Myndasögur Moggans koma út á miövikudögum. Myndasögumar gleðja yngri kynslóöina sem fær blað fullt af skemmtilegu efni sem þeir fullorðnu hafa einnig gaman af. Einnig er að finna í blaðinu gátur, þrautir og aðra dægradvöl auk fallegra mynda sem börnin hafa sjálf teiknað og sent Morgunblaðinu. Poxi0tui|)lníith - kjarni málsins! þttr«nvi ÚW Höfundur er þingmaður Kvennalistans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.