Morgunblaðið - 14.07.1993, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 14.07.1993, Blaðsíða 23
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1993 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1368 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar Iskýrslu á vegum félagsmála- ráðuneytisins frá árinu 1990, en það ráðuneyti fer með málefni sveitarfélaga, er sett fram sú viðmiðun varðandi skuldastöðu að nettóskuldir sveitarfélaga megi helst ekki vera hærri en 50% af nettótekj- um. Hættumörk, að því er skuldastöðu varðar, eru síðan sett á bilinu 80-90%. í ljósi þess- arar viðmiðunar er skuldastaða Reykjavíkurborgar, tæplega 25% af tekjum um síðustu ára- mót, tiltölulega góð, þrátt fyrir minnkandi skatttekjur, vegna alhíiða samdráttar í þjóðarbú- skapnum. Pjárhagur Reykjavíkurborg- ar er mjög traustur, þótt skulda- staða hennar hafí versnað nokk- uð síðustu misserin. Skýringin á verri skuldastöðu er þríþætt. í fyrsta lagi hefur samdráttur- inn í þjóðarbúskapnum bitnað illa á sveitarfélögum, bæði í rýrari skattstofnum og lakari skattskilum. Þannig urðu tekjur Reykjavíkurborgar árið 1992 rúmlega 700 milljónum króna lægri en gert var ráð fyrir í fjár- hagsáætlun; 400 milljónir króna voru afskrifaðar vegna gjald- þrota og 300 milljónir skiluðu sér ekki vegna lægri tekna skattgreiðenda. í annan stað hafa útgjöld aukist, m.a. vegna atvinnuleys- is. Meirihluti sjálfstæðismanna í borgarstjóm kaus að halda uppi óbreyttu framkvæmda- stigi, þrátt fyrir tekjusamdrátt, til að leggja sitt af mörkum í baráttunni við atvinnuleysið. Auk þess að halda uppi óbreyttu framkvæmdastigi veitir borgin á þessu ári fimm þúsund ung- mennum sumarstörf, bæði í Vinnuskólanum og við önnur verkefni, svo sem garðyrkju, skógrækt og malbikun. I þriðja lagi hefur breytt verkaskipting ríkis og sveitarfé- laga skilað Reykjavíkurborg lakari hlut en öðrum sveitarfé- lögum. Frá því að nýju tekju- stofnalögin tóku gildi hafa skatttekjur minni hreppa og kauptúna hækkað að meðaltali um 40-50%, kaupstaða um 20% en höfuðborgarinnar aðeins um 5,9%. Þá höfðu aðstöðugjöld, sem nú eru felld niður, mun meira vægi í tekjum Reykjavík- ur en annarra sveitarfélaga. í umræðum um ársreikning borgarsjóðs 1992 gerði Markús Örn Antonsson, borgarstjóri, samanburð á skuldastöðu stærri sveitarfélaga í landinu. I máli hans kom fram að skuldahlut- fall Reykjavíkurborgar var um síðustu áramót 24,9% af tekj- um. Garðabær, sem er mjög stöndugt sveitarfélag, hefur svipaða stöðu, það er 24% skuldahlutfall. Önnur stærri sveitarfélög standa ver að vígi, sum mun ver. í Mosfellsbæ er skuldahlutfallið 35%, á Akureyri 42%, í Hafnarfírði 49%, á Sel- tjarnarnesi 70% og í Kópavogi 104%. Borgarstjóri notaði einnig mælikvarða eigna umfram skuldir til samanburðar á fjár- hagsstöðu hinna stærri sveitar- félaga í landinu. Eignir Reykja- víkurborgar á hvern íbúa, um- fram skuldir, voru um síðustu áramót 596 þúsund krónur, eða verulega hærri en annarra sveit- arfélaga í þessum samanburði. Annar í röðinni var Seltjarnar- neskaupstaðar með rúma 201 þúsund króna eign á íbúa um- fram skuldir. Síðan kemur Hafnarfjarðarkaupstaður með 160 þúsund krónur, Akureyri með 117 þúsund, Mosfellsbær með 103 þúsund, Garðabær með 95 þúsund og Kópavogur með 25 þúsund. Fjárhagsstaða Reykjavíkur- borgar er traust, á hvaða mæli- kvarða sem mæld er; traustari en flestra ef ekki allra annarra sveitarfélaga í landinu. Miðað við þá stöðu og með hliðsjón af atvinnuástandinu í landinu undanfarið eru það ekki gagn- rýnisverð viðbrögð af hálfu meirihlutans í borgarstjórn, að halda uppi óbreyttu fram- kvæmdastigi, þrátt fyrir um- talsverðan tekjusamdrátt, til að sporna gegn vaxandi atvinnu- leysi. Samt sem áður verður hið opinbera, bæði ríkið og sveitar- félögin, borgarstjórnarmeiri- hlutinn í Reykjavík ekki undan skilinn, „að virða skáldskap þann, sem veruleikinn yrkir kringum hann“. Virða þann efnahagsveruleika, sem segir til sín í skertum þjóðartekjum, rýrnandi skattstofnum og verri skattskilum, það er í minni ráð- stöfunartekjum. Virða þann þjóðfélagsveruleika sem kallar annars vegar á hagræðingu, ráðdeild og spamað í opinberum rekstri og hins vegar á rann- sóknir, vöruþróun og markaðsá- tak í þágu atvinnuveganna, sem og bætt rekstrarumhverfi þeirra, þann veg, að staða at- vinnulífsins styrkist, verðmætin í þjóðarbúskapnum aukist og störfunum í samfélaginu fjölgi. Það verður aldrei fram hjá þeirri staðreynd komist, að sveitarfé- lögin og samneyslan sækja, ekkert síður en einkaneyslan, kostnaðarlega undirstöðu sína til þeirra verðmæta sem verða til í atvinnulífinu. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1993 23 Morgunblaðið/Sigurður P. Bjömsson Mikill snjór á hálendinu MIKINN snjó var að sjá yfir öllu hálendinu þegar flogið var yfir það í gær. Oræfaleiðir kannaðar úr lofti með vél frá Mýflugi Húsavík. SVAVAR Jónsson, vegaeftirlitsmaður á Húsavík, flaug með Mýflugi inn yfir hálendið í gær til að kanna ástand vega þar um slóðir og bauð hann fréttamanni Morgunblaðsins á Húsavík með sér í þessa 2 klst. könnunarferð. Flogið var frá Húsavíkurflugvelli austur yfir Reykjaheiði og verður hún fijótlega fær, að mati Svavars, en hún er nú ekki mikið ekin, svo ekki hefur verið lögð áhersla á að opna hana. Þá var stefnan tekin á Trölladyngju ,en í nálægð hennar og á leiðinni norðan hennar er allmikill snjór. Flogið var yfir Hrímöldu og um Urðarháls og þar vestur yfir Gæsavatnaleið, sem er enn að mestu á kafi í snjó. Brúin yfir Skjálfanda- fljótið er hulin skafli svo ekki sást í hana, „en þarna er hún þó þú sjáir hana ekki“, segir Svavar. Mikil aurbleyta Á Sprengisandsleið, sem rudd var fyrir viku, er að sjá töluverða aur- bleytu, sem menn skyldu ekki reyna að sneiða fyrir, því þó vegurinn sé blautur er enn verra að aka utan vegar og skyldu menn ekki reyna það. Þá var farið yfir Sprengisandsleið upp úr Skagafirði sunnan Lauga- fells, en á henni er enn töluverður snjór og enn meiri snjó er að sjá á leiðinni upp úr Eyjafirði, svo ekki er hægt að búast við því að hún verði fær fyrr en um næstu mánaða- mót. Fylgst verður með öllum þessum leiðum, segir Svavar og þær opnaðar eins fljótt og talið verður fært. - Fréttaritari Formaður danska dómarafélagsins um réttarfarsbreytinguna Finnst ánægjulegt að sjá hversu vel hefur til tekist CLAUS Larsen, formaður danska dómarafélagsins, segir að breyt- ingarnar sem gerðar voru á réttarfari hér á landi fyrir um ári síð- an hafi genglð ótrúlega vel og ánægjulegt sé að sjá hversu vel hafi til tekist. „Það tekur alltaf mikinn tíma að aðlagast nýjum breyting- um, sérstaklega jafn miklum breytingum á reglum og hefðum sem gerðar voru á réttarfari á íslandi á síðasta ári. Það hefur greini- lega tekist vel til og það er áhrifamikið að sjá hversu vel þetta hefur gengið,“ sagði Larsen í samtali við Morgunblaðið. Claus Larsen er nú dómstjóri í dómstólnum í Frederiksberg í Kaupmannahöfn auk þess að vera formaður danska dómarafélagsins, en tekur við sem forseti bæjarþings- ins í Kaupmannahöfn í september. Hann var hér á landi í síðustu viku og heimsótti meðal annars héraðs- dómstólana á Reykjanesi og í Borg- arnesi, og kynnti sér aðstæður og þær breytingar sem gerðar voru á réttarfari hér á landi fyrir rúmu ári. Larsen sagði í samtali við Morg- unblaðið að dómskerfið hér á landi væri að mörgu leyti líkt því danska, enda væru rætur þessara dóms- kerfa mjög líkar. „Aðalmunurinn felst í því að hér eru aðeins tvö dómstig, héraðsdómstólar og síðan Hæstiréttur. í Danmörku og reynd- ar flestum öðrum löndum eni þrjú dómstig.“ Hæstiréttur á að fjalla um grundvallaratriði - Finnst þér að taka ætti upp þriðja dómstigið hér á landi? „ísland er fámennt land en gallinn við að hafa aðeins tvö dómstig er sá að mörg mál sem ekkert erindi eiga í Hæstarétt fara þangað. Mér skilst að hér á landi sjái Hæstirétt- ir um að dæma í ósköp venjulegum sakamálum, sem lítið sem ekkert erindi eiga þangað. Því er oft verið T Morgunblaðið/Sverrir Claus Larsen að eyða dýrmætum tíma dómar- anna til einskis. Hæstiréttur ætti að fjalla um grundvallaratriði, dæma í grundvallarmálum, og ætti ekki að hafa of mörg mál á sinni könnu.“ - Dómarar hér hafa verið gagn- rýndir fyrir litla skilvirkni að und- anförnu, kannast þú við slíka gagn- rýni í Danmörku? „Nei, skilvirkni hjá okkur er ágæt og virðist vera ágæt hér á landi eftir réttarfarsbreytingarnar. En hefðirnar eru aðrar í Danmörku en á íslandi að því leyti að hér mætir fólk í réttinn í einkamálum allt frá byijun, en við spörum tíma með því að kalla fólk ekki í réttinn fyrr en nauðsynlegt er. Sú staðreynd að á íslandi eru aðeins tvö dómstig gæti gert það að verkum að dómar- ar í héraðsdómstólunum þurfi að sýna meiri nákvæmni og vandvirk'ni og leggja meiri vinnu í hvert mál en dómarar í bæjarþingunum í Danmörku þurfa að gera,“ sagði Larsen. í bæjarþinginu í Kaupmannahöfn hefur einn blaðamaður um langt skeið haft aðgang að deildum dóm- stólsins og hafa fjölmiðlar fengið upplýsingar hjá honum um áhuga- verð mál og keypt af honum grein- ar. Aðspurður sagði Claus Larsen að þetta hefði gefist vel. „Það sem skiptir mestu máli í þessu er að dómstólinn geti treyst blaðamann- inum og auðvitað að blaðamaðurinn geti treyst dómurunum.“ - Hvaða umræða er í gangi í Dan- mörku nú um réttarkerfið? *Það eru fjögur atriði sem mest eru áberandi í umræðunni í dag. Eitt atriðið er hvaðan dómararnir skuli koma, eiga þeir að vera dómarafull- trúar áður en þeir fá skipun sem dómarar, eiga þeir að koma úr dómsmálaráðuneytinu eða hafa starfað sem lögfræðingar og mál- flytjendur. Annað er hver eigi að skipa dómara, þriðja málið er um þjálfun dómara, hvort það eigi að þjálfa tilvonandi dómara með ákveðnum hætti, og fjórða málið er sjálfstæði dómstólanna,“ sagði Claus Larsen. Skorað á ráðherra HALLDÓRI Blöndal samgönguráðherra afhent áskorun Vestfirðinga búsettra víðs vegar um iand. F.v. Halldór Blöndal, Einar S. Einarsson formaður Isfirðingafélagsins, Guðni Ásmundsson húsasmiður sem safn- aði undirskriftum víða á Vestfjörðum og Guðfinnur R. Kjartansson vara- formaður ísfirðingafélagsins. Vestfirðingar vilja fá feijubryggjur HALLDÓRI Blöndal samgöngu- ráðherra var á mánudag afhent áskorun um að hafist verði handa um smíði á bryggjum við Isafjarð- ardjúp vegna ferjunnar Fagranes. 1.500 manns skrifuðu undir þessa áskorun. Skorað er á ráðherra að sjá til þess að þegar í stað verði hafist handa um smíði á bryggjum í ísa- fjarðardjúpi vegna ferjunnar Fagra- ness. Undir þessa hvatningu skrifa rúmlega 1.500 manns; heimamenn á norðanverðum Vestfjörðum og Vest- firðingar búsettir annars staðar á landinu. Bæta samgöngur í áskoruninni kemur fram að bíl- feijan Fagranes kom til landsins á vordögum árið 1990. Bent á að Al- þingi hafi veitt heimild til smíði á feijubryggjum og 20 milljónir króna séu ætlaðar til þessa verks á fjárlög- um ársins 1993. Greint er frá því að þegar hafi verið gerðar rannsókn- ir á hugsanlegum bryggjustæðum. Einnig er sagt frá því að sérstök nefnd Vegagerðar ríkisins og heima- manna láti nú vinna að markaðs- rannsókn vegna fyrirhugaðs rekstrar á bílfeijunni. Áskorendur segja því ljóst: „Áð allar heimildir eru til stað- ar svo hefjast megi handa um smíði á 2 feijubryggjum við Isafjarðar- djúp, á Nauteyri eða Amgerðareyri og á ísafírði. Slíkar feijubryggjur myndu auðvelda og bæta samgöngur við ísafjörð og norðaverða Vestfirði, sérstaklega yfír vetrarmánuðina, auk þess að auka ferðamannastraum og gera þjónustu fjölbreyttari." Nú er laxveiðin víðast tekin að einhverju leyti við sér þó víðast hvar sé enga mokveiði að hafa. Þrátt fyrir að kominn sé miður júlí er það svo, að sums staðar jaðrar við að ekki sé hægt að tala um sumar í vatnabúskapnum. Kuldar fyrir norðan og áhrif mikilla snjóalaga þar og víðar verða til þess að hitastig og vatnshæð eru óstöðug. Hitinn verður ef til vill þokkalegur er líður á skárri dagana, en hrapar svo niður að nóttu til ef það gerir hreinlega ekki flóð vegna vatnsveðurs. Þetta hefur haft í för með sér að lax hefur dreift sér illa í mörgum ám, sérstaklega þeim sem hafa fossa og gildir þá einu hvort fiskvegir eru í umræddum fossum. Annað lýsandi dæmi um ástand þetta er niðurganga gönguseiða úr ánum. Böðvar á Barði i Miðfirði sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að seiðin væru núna fyrst að síga úr ánum, en það á sér yfirleitt stað í maí eða júní. Gamla netasvæðið gefur vel... Hin síðustu sumur hafa fundist nokkrir vænlegir veiðistaðir á gamla netaveiðisvæðinu í Hvítá í Borgarfirði og má þar helst nefna svokallaða Þvottaklöpp, rétt neðan ármóta Hvítár og Grímsár, einnig á svokölluðum Eyrum beint þar á móti. í fyrradag veiddust sjö laxar á eina stöngina, einn á Þvottaklöpp, hinir sex á Eyrunum, en oftar er þó vænlegra á Klöppinni. Að sögn Árna Ingvasonar leigutaka svæðis- ins voru þá komnir milli 30 og 40 laxgir á land, auk 60 sjóbirtinga og bleikja. Einnig hafa menn verið að setja í laxa á svokölluðu Flóðatanga- svæði í Hvítá, til aðgreiningar frá samnefndu svæði í Norðurá. Flestir hafa laxamir veiðst á maðk og ver- ið milli 5 og 8 pund, en svæðið get- ur vel boðið upp á fluguveiði, sér- staklega þessa dagana er áin hefur hreinsað sig í norðanáttinni. Fyrir skömmu setti veiðimaður í mikinn bolta á Þvottaklöpp, en missti hann í löndun, 18 til 20 punda fisk. Loks að dreifa sér í Kjósinni... „Hann er loksins farinn að dreifa sér, síðustu daga hafa verið að veið- ast fiskar í Bugðu og svæði fjögur var einnig að gefa í morgun," sagði Árni Baldursson leigutaki Laxár í Kjós í gærdag. Sagði hann „sterkar göngur" vera í ána þessa dagana og veiði gengi, nokkuð vel. Væru nú komnir nærri 400 laxar úr ánni sem væri þolanlegt miðað við hversu seint veiði fór af stað. Miðfjarðará: „Er að koma...“ „Þetta eru engin stóruppgrip, en laxinn er að koma jafnt og þétt þótt það sé smástreymt þessa dag- ana og það í sjálfu sér veit á gott. Annars hefur verið ægilegur kuldi og það hefur sitt að segja. Laxinn gengur ekki sem skyldi, gengur hægt og tekur grannt og illa hjá veiðimönnum. Það eru komnir um 150 laxar á land, þetta er mun lak- ara en í fyrra, en við örvæntum Marteinn Árnason með sjö laxa sem hann veiddi í Hvítá í Borgarfirði á mánudagsmorguninn. Veiðisvæðið, Eyrarnar nær, og Þvottaklöpp fjær, eru í baksýn. ekkert. Ef það nær að hlýna eitt- hvað gæti allt gerst,“ sagði Böðvar Sigvaldason á Barði í gærdag. Sagði hann laxinn allan vera neðar- lega á svæðinu, í Teigarhúsahyl, báðum Ármótunum, svo og neðst í Austurá og neðan til í Vesturá. Fyrstu laxarnir gengu um gildruna í Núpsá í fyrrinótt, einir fimm tals- ins. Reyndar var einn fyrir löngu farinn í gegn, en svo ekkert fyrr en nú. Gengur vel í Blöndu „Þetta gengur alveg prýðilega, við félagarnir vorum með sex laxa í morgun og níu stykki á rúmum tveimur tímum í gærkvöldi," sagði Haraldur Ámason, Siglfirðingur, í samtali í gærdag. Síðustu daga sagði Haraldur að vart hefðu veiðst færri en 5 til 6 laxar á stöng á dag og mikil ganga væri í ána. „Svo er hún orðin svo tær að það er ekkert húkk stundað hér lengur,“ bætti Haraldur við. Til marks um veiðina voru tveir félagar fyrir skömmu í ánni með tvær stangir í tvo daga og fóru þeir heim með 24 laxa, marga stóra. Níu laxa fengu þeir á flugu. Nú munu um 180 lax- ar vera komnir á land og samkvæmt upplýsingum Haraldar Árnasonar geta Svartármenn búist við góðu á næstunni, því Svartárlaxinn sé far- inn að „hellast inn“. Haraldur hefur gert það gott það sem af er í Blöndu, hann er búinn að skreppa nokkrum sinnum og hafa 40 laxar komið á stöngina. Glæðist í Rangánum „Það eru nú komnir tæplega 40 laxar á land úr Rangánum og þetta hefur verið að glæðast að undan- förnu," sagði Þröstur Elliðason leigutaki Ytri Rangár í samtali í gærdag. Af umræddum 40 voru komnir 30 úr Ytri Rangá og um 10 stykki úr Eystri Rangá, en þar veiddust 5 stórir fiskar í gærmorg- un, fjórir á Bergsnefí á svæði 6 og einn í Djúpadal. Þetta voru 12 til 13 punda laxar. í Ytri Rangá hefur til þessa mest veiðst fyrir neðan Ægissíðufoss, en síðustu daga hafa menn dregið nokkra fiska á Rang- árflúðum og í gærmorgun settu menn í fyrstu laxana í Árbæjar- kvísl, tvo, en misstu reyndar báða. Silungsveiði hefur verið fremur lítið stunduð, en þeir sem hafa reynt hafa sett í væna físka, sérstaklega á svæði 3. Drög að deiliskipulagi Laug- arness verða endurskoðuð Nesið hefur verið undir borgarvernd en þar er áformað að reisa listiðjur DRÖG að deiliskipulagi Laugar- ness eru til endurskoðunar hjá borgaryfirvöldum. Nesið hefur verið undir borgarvernd en þar er einnig gert ráð fyrir nokkurri byggð. Eins og fram hefur komið í fréttum hyggst Hrafn Gunnlaugs- son framkvæmdasljóri sjónvarps- ins og kvikmyndagerðamaður, reisa þar kvikmyndavinnustofu og hefur Lánasjóður Vestur-Norður- landa veitt fimm milljón króna lán til að kanna möguleika á byggingu og rekstri kvikmyndaversins í Laugarnesi. Að auki er gefinn kostur á að sækja um 25 milljón króna viðbótarlán til tíu ára. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson for- maður skipulagsnefndar segir, að Laugarnesið hafi verið undir borg- arvernd. Drög að deiliskipulagi fyr- ir nesið hafi verið kynnt í nefndum en það ekki hlotið endanlega sam- þykkt, þar sem beðið er niðurstöðu rannsókna borgarminjavarðar á nesinu. í deiliskipulaginu er gert ráð fvrir að auk Listasafns Sigur- jóns Ölafssonar verði tvö önnur hús á nesinu fyrir listiðju og er gert ráð fyrir viðbyggingu við þau hús. Sagði hann að þar væri annars vegar hús Magnúsar Kjartanssonar myndlistamanns og hins vegar hús Hrafns. Samkvæmt drögum „Það hafa verið gerðar samþykktir í bygginganefnd og borgarsjórn um byggingu Magnúsar,“ sagði hann. „Hjá borgarskipulagi eru til skoðunar óskir Hrafns um útfærslu á viðbygg- ingu eins og deiliskipulagsdrögin gera ráð fyrir og einnig er til skoðunar beiðni frá Listasafni Siguijóns um lóð- arafmörkun. Öll þessi mál eru í skoðun í tengslum við aðkomu að svæðinu." „Helstu stuðningsmenn Rannveig- ar eru í hópi þeirra sem telja rökrétt að ekki sé tekið þátt í varaformanns- kjöri nú eftir það sem á undan er gengið. Rannveig hefur afdráttar- laust gefið það út að hún gefi ekki kost á sér sem varaformaður, breyt- ist það á það eftir að koma í ljós. Þetta er ákvörðun sem Rannveig hefur tekið og hún er studd af þeim konum í flokknum sem helst hafa stutt hana. Það hefur verið gagn- Sagði Vilhjálmur að hugmynd að viðbyggingu Hrafns tæki mið af deili- skipulagsdrögum og að ekki væri um stórhýsi að ræða. „Þetta hús mun ekki gnæfa uppúr þeirri litlu byggð kvæmur skilningur og stuðningur í þessu tiltekna máli sem öðrum sem við Rannveig höfum tekið þátt í í pólitíkinni. Við höfum alltaf tekið tillit hvor til annarrar og ég sé ekki fyrir mér breytingar á því. Ég býst við að það henti ýmsum að kasta fleyg í samstöðu okkar Rannveigar í gegnum tiðina við framkvæmd á stefnu flokksins. Fái ég einhveiju um það ráðið mun það ekki takast,“ sagði Jóhanna. Hún sagði jafnframt sem fyrir er,“ sagði Vilhjálmur. Gert er ráð fyrir að deiliskipulagsdrögin verði tekin til umfjöllunar í ágúst næstkomandi. að í tillögunni fælust mótmæli við því hvemig skoðanir kvenna í for- ystusveit flokksins hefðu verið hundsaðar. Rannveig skoraðist undan í kjölfar tillögu um hjásetu fluttu Ragnheiður Björk Guðmundsdóttir og Margrét Björnsdóttir tillögu um að Rannveig gæfi kost á sér í vara- formannsembættið. Töldu þær eðb- legast að konur tækju sameiginlega ákvörðun og sameinuðust um vara- formann en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins skoraðist Rannveig undan þeirri tillögu. Enn búast þó ýmsir við því að Rannveig komi til með að taka áskorun um að bjóða sig fram til varaformannsembættis- ins. Ekki náðist í Rannveigu Guð- mundsdóttur vegna þessa máls í gærkveldi. Jóhanna Sigurðardóttir styður tillögu um hjásetu Hentar ýmsum að kasta fleyg í okkar samstarf JÓHANNA Sigurðardóttir félagsmálaráðherra segist, styðja þá til- lögu sem fram kom á fundi Sambands Alþýðuflokkskvenna sl. mánudagskvöld um að konur sitji hjá við kjör á varaformanni flokksins. En miklar deilur komu upp á fundi Sambands Alþýðu- flokkskvenna síðastliðið mánudagskvöld þegar rætt var um væntan- lega varaformannskosningu í Alþýðuflokknum. Fram komu tvær tillögur á fundinum, annars vegar um að konur sætu hjá í kjöri um varaformann og hins vegar um að sameinast yrði um Rann- veigu Guðmundsdóttur sem varaformann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.