Morgunblaðið - 14.07.1993, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1993
9
Sumaráætlun Flugleiða '93
Frá íslandi Dagur
Til M Þ M F F L S
Amsterdam M M M M
Baltimore S S S S S S S
Barcelona S
Frankfurt M M * M M
Færeyjar M M
Gautaborg M M
Glasgow s M M
Hamborg M/S M/S M/S M/S M/S M M/S
Kaupmannahöfn M/S M/S M/S M/S M/S M M/S
London M S M S M S S
Lúxemborg M M M M M M M
Frá íslandi Dagur
Til M Þ M F F L S
Mílanó S
Múnchen S
Narsarsuaq S S
Nuuk S s
New York s s s S S S s
Orlando s S
Óstó M M M M M M
París s S S S s
Stokkhólmur M M M M M M M
Vín S
Zúrich S S
M = Morgunflug S = Síðdegisflug
Bein flug í júlí 1993
Eitt áreiðanlegasta
spamabarformið í
þrjá ámtugi
í nærri þrjá áratugi hafa spariskírteini
ríkissjóðs verið ein öruggustu
verðbréfin á markaðnum. Og þau eru
alltaf jafn vinsæl sparnaðarleið enda fá
verðbréf sem standa þeim jafnfætis í
öryggi, arðsemi og sveigjanleika:
Þú getur komið í Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa og keypt spariskírteini
fyrir litlar sem stórar fjárhæðir í
almennri sölu.
Þú getur tekið þátt í mánaðarlegum
útboðum á spariskírteinum með
aðstoð starfsfólks
Þjónustumiðstöðvarinnar.
Þú getur keypt spariskírteini í
mánaðarlegri áskrift og þannig
sparað reglulega á afar
þægilegan hátt.
Gulltryggðu sparnaðinn með
spariskírteinum ríkissjóðs.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, sími 91-626040
„Framsóknaráratugir11
Framsóknarflokkurinn fór með landbún-
aðarmál lengst af þrásetu flokksins í ríkis-
stjórnum 1971-1991. Þar komu þó fleiri
við sögu: Bragi Sigurjónsson 1979-80,
Pálmi Jónsson 1980-83 og Steingrímur
J. Sigfússon 1988-91. Framsóknarflokk-
urinn fór að auki með sjávarútvegsmál í
ríkisstjórnum allan níunda áratuginn,
1980-1991. Hvern veg farnaðist þessum
undirstöðuatvinnuvegum með áttavita
Framsóknarflokksins að leiðarljósi?
Sljórnsýsluleg
ábyrgð á land-
búnaðar- og
sjávarútvegs-
málum
Framsóknarflokkur-
inn hefur borið stjóm-
sýslulega ábyrgð á land-
búnaðar- og sjávarút-
vegsmálum, undirstöðu-
greinum í þjóðarbú-
skapnum, öðrum flokk-
um fremur, síðustu tvo
áratugi. Alþýðublaðið
segir í forystugrein síð-
astliðinn föstudag:
„Framsóknarstefnan í
landbúnaði hefur orðið
öllum til tjóns, ekki sízt
bændum. Fjötrar ríkis-
styrkjanna drápu niður
allt fnunkvæði þeirra, og
fyrir vikið örlar varla á
þróun til eðlilegra fram-
leiðsluhátta...
Framsókn hefur þann-
ig tekizt að hindra eðli-
lega samkeppni í verzlun
með landbúnaðarvörur,
og fyrir bragðið em þær
hvergi á byggðu bóli jafn
dýrar og á Islandi. Þess
er skemmst að minnast,
að þar sem örlar á auknu
frelsi, eins og í sölu á
nautakjöti og svinakjöti,
— þar hefur verðið lækk-
að. Framsóknarflokkur-
inn hefur hins vegar lagt
steina í götu allra sem
reynt hafa að auka frelsi
og samkeppni í landbún-
aði.
Fyrir neytendur skipt-
ir þessi barátta Fram-
sóknar fyrir hagsmunum
afdankaðs kerfis gríðar-
legum upphæðum...“
Offjárfesting.
og sjóðasukk
í leiðara Alþýðublaðs-
ins segir og:
„Sama máli gegnir um
sjávarútveginn. Meðan
Framsókn fór með sjáv-
arútvegsmálin hófst hér
linnulitil fjárfesting í
skipurn og vinnslustöðv-
um, studd sjóðasukki,
sem flokkurinn stóð fyr-
ir, ekki sízt til að hjálpa
fyrirtækjum tengdum
SÍS. Þessi offjárfesting
er ásamt aflabresti ein
meginorsök þess mikla
vanda sem hrjáir sjávar-
útveginn núna.
Til að vinda ofan af
offjárfestingunni í grein-
inni áformar ríkisstjórn-
in að stofna sérstakan
Þróunarsjóð sjávarút-
vegsins til að flýta úreld-
ingu í greininni. Það er
hins vegar athyglisvert
að einn flokkur hefur
lagst harkalega gegn
Þróunarsjóðnum: og það
er auðvitað Framsóknar-
flokkurinn. Hann er sam-
ur við sig. Framsókn er
alltaf á móti framþróun.
Og hver eru svo úr-
ræði Framsóknarflokks-
ins núna? Hvaða leiðir
sjá forystumenn flokks-
ins út úr þeim erfiðleik-
um sem íslendingar
ganga í gegnum? Svarið
er einfalt: Framsókn
skilar auðu. Steingrímur
Hermannsson, hinn
þreytulegi formaður
flokksins, hefur komið
með eina tillögu, aðeins
eina. Hann vill að ríkis-
sjóður taki stórfelld er-
lend lán...“!
Byggðastefna
Framsóknar-
flokksins
Landbúnaður og sjáv-
arútvegur hafa mun
meira vægi fyrir afkomu
og atvinnu á landsbyggð-
inni en á höfuðborgar-
svæðinu. Það skipti höf-
uðmáli fyrir stijálbýlið,
sveitir og sjávarpláss, að
þessir undirstöðuat-
vinnuvegir fengju að
þróast í takt við efna-
hags- og markaðsfram-
vindu i umheiminum, að
ekki sé nú talað um
framvinduna í lífríki
sjávar. Framsóknar-
flokkurinn, sem bar
sljómsýslulega ábyrgð á
þessum atvinnugreinum,
öðrum flokkum fremur,
siðustu áratugi, fór mik-
inn í stjómsýslunni undir
inerkjum meintrar
„byggðastefnu". Minna
var upp úr því lagt að
búa atvinnuvegunum
viðunandi rekstrarskil-
yrði.
En hver er dómur
reynslunnar? Aldrei í
sögu þjóðarinnar hefur
fólksstreymið úr sveitum
í þéttbýli, af landsbyggð
til höfuðborgarsvæðis,
verið meira né stríðara
en á þessum „framsókn-
aráratugum". Lands-
byggðin hefur aldrei ver-
ið leikin eins grátt og
undir forræði Framsókn-
arflokksins á byggða-,
landbúnaðar- og sjávar-
útvegsmálum á niunda
áratugnum!
Skáksambandið styður Campomanes
STJORNARFUNDUR Skáksam-
bands Norðurlands var haldinn í
Sandvági í Færeyjum 5. júní sl.
Akveðið var að svæðismót Norð-
urlandanna yrði haldið í Reykja-
vík í upphafi árs 1995. Einnig var
ákveðið að fella niður keppni í
neðri flokkum á skákþingi Norð-
urlandanna vegna þátttökuleysis.
I staðinn er verið að undirbúa
Grand Prix-mótaröð með 6 skák-
mótum á tveggja ára tímabili. Sim-
en Agdestein var valinn skákmað-
ur Norðurlanda árið 1991-92.
Á fundinum var samþykkt að
senda F. Campomanes forseta FIDE
stuðningsyfirlýsingu vegna ágrein-
ings FIDE og Kasparovs og Shorts
um heimsmeistaraeinvígið í skák.
Forseti skáksambands Norður-
landa er Jón G. Briem, lögmaður.
8,6% FÖST ÁVÖXTUN
VERÐTRYGGING
GÓÐ LAN GTÍ MAFJÁRFESTIN G
I síma 91 - 681531) er hccgt að fá uþplýsingar um Glilnisbréf.
Já takk, ég vil fá
sendar upplýsingar
um Glitnisbréf.
Nafn: _____________________
Skuldabréf Glitnis uppfylla þessa kosti.
Glitnir hf. er eignarleigufyrirtæki og
dótturfyrirtæki Islandsbanka hf.
Skuldabréf Glitnis ertt verðtryggð og
bera fasta vexli. Þatt ertt nú fáanleg með
8,6% ávöxtun til gjalddaga. Bréftn eru
með gjalddaga árið 1997 og henta því
vel til langtímafjárfestingar. Þau eru
eignarskattskyld.
Eigendum Glitnisbréfa með
gjalddaga 15. júlí n.k. bjóðast nú ný
Glitnisbréf til endurfjárfestingar á
sérkjörum með 8,8% ávöxtun til
gjalddaga.
Ráðgjafar VIB veita frekari
upplýsingar um Glitnisbréf og einnig er
hægt að fá sendar upplýsingar í pósti.
Verið velkomin í VÍB!
| Heimili:
Póstfang:
I Sími:---------------------1
! VlB i
| VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. j
‘---- Ármúla 13a, 155 Reykjavík. -1