Morgunblaðið - 14.07.1993, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 14.07.1993, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1993 HJOLREIÐAR / TOUR DE FRANCE KNATTSPYRNA Aðalleikvangur — LAUGARDALSVÖLLUR VALUR - ÞOR Lollapottsfélagar oog ársmiðahafar eru boðnir í kaffi í leikhléi. BRÆÐURNIR AEG CpoRMssoNHF AEG Gullittil Sampdorfa Karlheinz Riedle fertil Dortmund / KVÖLD KL. 20.00 Slegið á létta strengi MIGUEL Indurain sló á létta strengi í orðsins fyllstu merkingu áður en hann flaug frá norðaust- ur Frakklandi niður í frönsku Alpana í gær, þar sem tíundi leggur Tour de France keppninnar og jafnframt fyrsti ijallahlutinn hefst í dag. IJollenski knattspyrnukapp- " "inn Ruud Gullit ákvað í gær að ganga til liðs við Sampdoría og leika með félaginu næsta keppnistímabil. Gullit, sem er 31 árs, hefur leikið sl. sex keppnistímabil með AC Milan. Sampdoría, sem varð ítalskur meistari 1991, ætlar að styrkja lið sitt verulega fyrir næsta keppnistímabil og hefur það áhuga að kaupa fyrirliða enska landsliðsins, David Platt, frá Juventus og einnig danska landsliðsmanninn Brian Laudr-^ up frá Fierontína. ítalska félagið Lazio seldi í gær v-þýska landsliðsmanninn Karlheinz Riedle til Dortmund í Þýskalandi. Ekki var kaupverðið gefið um, en það mun vera um 497 millj. ísl. kr. Lazio keypti Riedle frá Werder Bremen 1990 á 405 millj. króna. Hann hefur skorað 30 mörk fyrir Lazio í ítölsku 1. deildarkeppninni. Ástæðan fyrir því að Riedle er seldur er að Lazio hefur keypt Króatann Alen Boksic frá Mar- seille, en hann skoraði 23 mörk á sínu fyrsta tímabili með Evr- ópumeisturunum. Kaupverð hans er 710 millj. ísl. kr. Þess má geta að Bayern Munchen reyndi bæði að fá Gullit og Riedle til sín, en það gekk ekki. Margir telja að veldi Bæjara sé að dvína. Er Indurain búinn að tryggja sér sigurinn? TOUR DE France hjólreiðakeppnin heldur áfram ídag og munu hjólreiðamennirnir hjóla 204 kílómetra frá Villard de Lans til Serre Chevalier í frönsku Ölpunum. Spánverjinn Miguel Indurain, sem er í Banesto-liðinu, náði rúmlega tveggja mínútna forystu á mánudag- inn með frábærri frammistöðu í hraðakeppn- inni, og veltu hjólreiðamennirnir því fyrir sér í gær meðan þeir flugu frá norðaustur Frakk- landi niður í Alpanna, hvort einhver ætti mögu- leika á að ná honum ífjöllunum. Indurain hefur sigraði í tveimur síðustu keppnum og flestir eru á því að hann muni ná þriðja titlinum í ár. Einn aðalkeppinauta hans ítalinn Claudio Chi- appucci, sem er í Carrera-liðinu, segir að það sé nán- ast ómögulegt að ná honum. „Eg reyni að sjálfsögðu að ná honum í fjöllunum, en við skulum ekki gleyma því að það er önnur hraðakeppni rétt áður en við komum til Parísar,“ sagði Chiappucci. Hraðakeppnin, „time-trial“, þar sem keppendur eru ræstir út einn í einu og hver um sig hefur aðeins klukkuna til að keppa við, er sérgrein Indurains, og á mánudaginn koma hann í mark á rúmlega tveggja mínútna betri tíma en næsti maður í hraðakeppni, þrátt fyrir að dekk hafi sprungið á hjólinu hans og hann því tapað dýrmætum sekúnd- um -þegar hann beið eftir aðstoðar- mönnum sínum og nýju hjóli. Vonandi ekki bara keppni um annað sætið Áður en keppnin hófst var talið að auk Chiappucci yrðu heimsmeist- arinn Gianni Bugno frá Ítalíu og Alex Zuelle og Tony Rominger frá Sviss í baráttu við Indurain um sig- urinn, en af þessum er aðeins Bugno eftir í baráttunni, tveimur mínútum og 32 sekúndum á eftir Indurain. Bugno var í gær ekki tilbúinn að lýsa því yfir að keppnin væri búinn, en hljómaði ekki ýkja sannfærandi. „Fyrir mig og aðra fjallagarpa hefst keppnin á morgun, og ég vona að það verði ekki bara keppni um ann- að sæti,“ sagði Bugno. Laurent Fignon og Greg LeMond, sem báðir hafa unnið Tour de France hjól- reiðakeppnina, segja að Indurain geti lent í vandræðum í fjöllunum, ef allir keppinautar hans reyni að ná honum. En báðir sögðust þeir hræddir um að keppinautarnir væru búnir að játa sig sigraða og fylgd- ust einungis grannt hver með öðr- um í keppni um annað og þriðja sætið. Hollendingurinn Eric Breukink er nú í öðru sæti, einni mínútu og 35 sekúndum á eftir Indrain. Hann hefur þegar lýst því yfir að hann muni ekki reyna að sækja á Indura- in á næstu tveimur leggjum. „Ef það verður ennþá ein og hálf mín- HANDKNATTLEIKUR -Selfoss og ÍR í forkeppni? Það getur farið svo að tvö íslensk lið þurfi að leika í forkeppni í Evrópukeppninni — Sel- foss og ÍR. Litlar líkur eru aftur á móti að Valur og FH taki þátt í forkeppni, þar sem íslensk lið komust í 8-liða úrslit Evrópukeppni meistaraliða og IHF-keppninni sl. keppnistímabil. IHF-keppnin verður nú Evrópukeppni deildarmeistara. Selfyssingar taka þátt í Evrópukeppni bikar- hafa og ÍR-ingar í EHF-keppninni. Forkeppnin -'verður á tímabilinu 29. ágúst til 5. september, en á morgun verður ljóst hvort að félög frá íslandi taki þátt í forkeppninni. Liðin fjögur sem taka þátt í Evrópukeppninni muna leika í móti í Reykjavík 20.-22. ágúst á vegum Dómara- og mótanefndar HSÍ. Mótið verð- ur samhliða því að dómarar sem dæma næsta vetur verða kallaðir á fund til að fara yfír nýjar reglur. Valsmenn hefjavömina gegn ÍR-ingum Islandsmeistarar Vals hefja meistaravörn sína að Hlíðarenda, en þeir leika þar gegn ÍR-ingum í fyrstu umferð 1. deildarkeppninnar í handknatt- leik. Nýliðamir hjá Aftureldingu og KR hefja bar- áttu sína á heimavöllum. Afturelding fær Þór frá Akureyri í heimsókn í Mosfellsbæ og KR-ingar taka á móti Víkingum. Stjaman leikur heima gegn Haukum, KA fær lið ÍBV í heimsókn og FH-ingar leika heima gegn Selfyssingum í fyrstu ,\~)»amferðinni. Landsliðið til Strasbourg Mandknattleikssamband ísland hefur þegið boð um að íslenska landsliðið leiki á sterku móti í Strasbourg í byijun desember. Fjórðar efstu þjóð- imar frá Ólympíuleikunum í Barcelona taka þátt í mótinu — Rússar, Svíar, Frakkar og íslendingar. Hér er um að ræða tveggja daga mót 7. og 8. desember. Hver þjóð leikur tvo leiki. Sigurvegar- arnir úr fyrstu viðureignunum leika til úrslita, en tapliðín um þriðja sætið. KNATTSPYRNA leikinn í Hollandi Bragi Bergmann knattspyrnudómari dæmdi á dögunum nokkra knattspyrnuleiki á Ólympíu- dögum æskunnar sem haldnir voru í Hollandi og stóð sig með miklum ágætum. Frammistaða hans var það góð að hann var valinn til að dæma úr- slitaleikinn, milli Spánveija og Hollendinga, sem Spánverjar unnu í vítaspyrnukeppni. úta á milli okkar þegar við komum út úr Ölpunum, gæti ég reynt að vinna á í Pýreneafjöllunum,“ sagði Breukink í gær. „Það er inikilvæg- ast að tapa ekki tíma í Ölpunum.“ Aðeins einn getur sett strik í reikninginn Eftir stendur aðeins einn hjól- reiðamaður sem sett gæti strik í reikninginn hjá Indurain; hann sjálfur. „Þetta ræðst á næstu dög- um. Enginn veit hvernig líkaminn tekur því þegar skipt er snöggleg frá flatlendi yfir í fjalllendi," sagði Indurain. Hann sagðist hafa verið að hjóla á 45 km/klst. meðalhraða síðustu tíu daga, en einn slæmur dagur í fjöllunum gæti kostað hann mínútur. „Það munu allir sækja á miðvikudaginn [í dag] og ég er hræddur um að ég geti ekki svarað því. Ég er þungur. Chiappucci, Bugno og Rominger bera um 10 til 15 kílóum minna en ég upp brekkurnar," sagði Indurain. Viðbrögð hans eru dæmigerð miðað við síðustu ár, og hann dreg- ur mjög úr sýnilegum hæfileikum sínum í fjöllunum. Auk þess mun hann fá góðan stuðning frá félögum sínum í Banesto-liðinu, sem eru reyndar fjallageitur. Indurain veit auðvitað af þessu, og sagðist á mánudaginn geta treyst á félaga sína. „í fjöllunum get ég treyst á hjálp félaga minna Pedro Delgado og Gerard Rue.“ íkvöld b Knattspyrna. Einn leikir verður í I 1. deildarkeppninni: Valur - Þór. Fjðrir leikir verða leiknir í 2. deild: I Tindastóll - Þróttur R., KA - Grinda- I vík, Leiftur - Breiðablik og Þróttur I Nes. - Stjarnan. ■Ailir leikirnir hefjast kl. 20.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.