Morgunblaðið - 14.07.1993, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 14.07.1993, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1993 33 Þrjár fegurstu konur Evrópu. F.v. Julia Aleksejeva frá Rússlandi hlaut annað sætið; Arzum Oman frá Tyrklandi lenti í fyrst sæti og Dana Avrish frá Israel í því þriðja. FEGURÐARSAMKEPPNI Tyrknesk stúlka kosin ungfrú Evrópa 1993 HÆFILEIKAR Myndhöggvarínn Anthony Quinn Svala Björk Arnardóttir, sem kjörin var fegurðardrottning íslands 1993, hreppti fimmta sæt- ið í fegurðarsamkeppninni Ungfrú Evrópa 1993, sem fram fór í Tyrk- landi i fyrradag. Tyrkneska stúlkan Arzum Oman var kjörin ungfrú Evrópa 1993, í öðru sæti varð Julia Aleksejeva frá Rússlandi og í þriðja sæti Dana Avrish frá ísrael og í fjórða sæti stúlka frá Spáni, en hún hlaut einnig titilinn „Miss Palm- olive“ eða sú sem var hárprúðust. Svala Björk vakti athygli ljósmyndaranna Morgunblaðið náði sambandi við Svölu í gærmorgun, þar sem hún var stödd á hóteli í Istanbúl og innti hana eftir keppninni. „Þetta er búið að vera alveg óskaplega gaman, en mjög strangt. Við höfum verið vakt- ar klukkan sjö á morgnana og far- ið seint að sofa, þannig að við höf- um ekki náð nema svona 5-6 tíma svefni. Það hefur verið mikið um myndatökur og ég hef fengið mikla athygli hjá ljósmyndurunum. Sem sagt allt hefur gengið mjög vel.“ Svala Björk var í skósíðum rauð- um ermalausum kjól með armbönd og eyrnalokka frá versluninni Flex. „Eg var glöð og hamingjusöm með úrslitin,“ sagði hún. Norðurlandastúlkur hlutu þrjár titla Aðspurð hvernig hinum Norður- landastúlkunum hefði gengið sagði Svala að ungfrú Finnland hefði verið kosin besta ljósmyiidafyrir- sætan og ungfrú Noregur vinsæl- asta stúlkan. „Ég hafði mest sam- band við þær og stúlkuna frá Belg- íu. Um það bil viku fyrir keppni fékk sú belgíska botnlangakast og var skorin upp, þannig að hún gat ekki tekið þátt í keppninni. Það var mjög leiðinlegt." Að síðustu var Svala spurð að því hvort hún hefði orðið vör við forræðismál Sophiu Hansen, en hún kvaðst ekki hafa orðið neitt vör við það. Svala kemur til landsins síðar í dag. Leikarinn Anthony Quinn, sem á aðeins tvö ár eftir í áttrætt, segist þess fullviss að hann eigi eftir að verða þekktari fyrir högg- myndir sínár en kvikmyndaleik þeg- ar fram líði stundir. Síðustu árin hefur hann að mestu dvalist í Chevreuse í Frakklandi, þar sem hann skapar hvert listaverkið á fætur öðru og þau seljast vel. Verð- ið er allt upp í þijár milljón krónur stykkið. Fyrstu höggmynd sína bjó hann til aðeins tíu ára gamall, en það var stytta af Abraham Lincoln. Fyrir vikið vann hann samkeppni sem efnt var til í Kaliforníu. Anthony Quinn er ekki sá eini í fjölskyldunni sem býr yfir þessum hæfileikuni, því sonur hans Lorenzo Lorenzo, yngsti sonur Anthonys, hefur fylgt í fótspor föður síns. Hér er hann ásamt konu sinni Giovanna. heggur einnig út myndir og hafa ýmis listaverksöfn keypt verk eftir hann. Lorenzo hefur einnig starfað sem kvikmyndaleikari sem og bræð- ur hans Daníel og Francesco. Er þess skemmst að minnast að þeir léku allir þrír í sjónvarpsmyndinni Stradivarius, sem var sýnd á Stöð 2 síðastliðinn vetur. „Innst inni veit ég að skúlptúrar mínir eiga eftir að gera mig þekktari en kvikmyndirnar," segir Anthony Quinn. - ávallt skammt undan mmmm Bíldshöfða 14 - sími 672900 KOMI HÖGGDEYFAR Ef þú vilt hafa besta hugsan- lega veggrip á malbiki vegar velur þú KONI! sem og utan VERJIIR FYRIR EIGUR ÞIHflR! Leigjum mjög vandaðar yfirbreiðslur (4x6 m) til lengri eða skemmri tíma. Allar nánari uppiýsingar og pantanir t síma 625030. TJALDALEIGA KOLAPORTSINS Emilia Soder- man frá Finn- landi var kjörin besta Ijósmynda- fyrirsætan. Fyrir aftan hana má sjá Svölu Björk Arnardóttur og Dönu Avr- ish frá ísrael. Kynnir kvöldsins var leikarinn Daniel McVictal. G|A|G|N|h/f Golfarar, golfarar Hvar fáið þið nýja, stóra boltann, Top Flite Magna? Hvar finnið þið mesta úrvalið af Balata boltum? Auðvitað hjá Gagni hf. Við höfum landsins mesta úrval af golfboltum og tínum á lager. Munið vinnuregluna okkar: Bjóði aðrir sömu vöru og við seljum á betra verði en við, munum við lækka okkar vöruverð, þannig að við verðum alltaf með besta verðið. Allar pantanir yfir kr. 6.000 sendum við þér heim að kostnaðarlausu, hvert á land sem er! V_______________________________________J Picasso hefur haft mikil áhrif á Anthony. Electrolux Goods Protection tSuni 1 X (EtútVá* 3 %JlÉ% Sát--— 611720 &óffw/eiH£fneff VÉLADEILD FÁLKANS • VELADEILD FALKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FALKA, FARARBRODDI ‘ FJÖRUTÍU ÁR! SLÁTTUORF Mótor 250 og 400 vött. Verð kr. 5.800 og 6.800 LIMGERÐISKLIPPUR Mótor 400 vött með öryggisrofa. Blaðlengd 450 og 550 mm. Klippa allt að 14 mm greinar. Verð kr. 12.300 og 14.600 Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8*108 REYKJAVÍK SlMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-68 58 84 Gagnhf. ★ Kríunesi7 ★ 210Garðabæ ★ Sími 642100 • VÉLADEILD FÁLKANS- VELADEILD FALKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VELADEILD FÁLKANS •

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.