Morgunblaðið - 25.07.1993, Page 5

Morgunblaðið - 25.07.1993, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 1993 B 5 var 6 ára. Og börnin þeirra tvö kalla Tony afa og konu hans Ther- esu ömmu. Enda segir Tony að dvöl við Lángá sé eins og dvöl í faðmi fjölskyldu sinriar. „Theresa er samstiga mér, hún tekur þetta fram yfir að fara til Parísar eða Lundúna." Theresa kinkar kolli og lætur þess getið, að vissar þúfur víða með ánni tilheyri sér! Puerto Rico Talið hlýtur að berast að því hvað Tony er að gera í Puerto Rico og hvemig það sé til komið að hann sé ræðismaður íslands þar í landi. „Ég giftist stúlku frá Puerto Rico. Móðir mín var einnig þaðan. Það var því ekkert fjarstæðukennt að flytjast þangað. Þar fór ég að vinna í textílverksmiðju þar sem ég vann mig upp og keypti loks hér á árum áður. Nú á ég verksmiðjuna og bæði sel heima fyrir og flyt út. Að ég sé ræðismaður íslands í landinu á sér þann aðdraganda, að einhvéiju sinni vorum við að ræða saman Emil Guðmundsson og ég og þá barst \ tal að það gæti kom- ið sér vel að ísland ætti sér tengilið í Puerto Rico. Mann til að liðka fyrir hugsanlegum viðskiptum og til að aðstoða með þau tengsl sem hugsanlega gætu komið til. Hann sagðist myndu ræða þetta við ein- hveija embættismenn og gerði það. Þetta gerðist ekki á augabragði, en fyrir 10 til 12 árum var ég skipað- ur ræðismaður, mér til mikillar gleði, því það er mér mikill heiður að vera fulltrúi svo fallegs fólks í svo fallegu landi.“ En hvaða skyldur hvíla á herðum ræðismanns í svo fjarlægu landi? Tony viðurkennir að það sé svo sem ekki ýkja mikið að gera, en þó sé það eitt og annað. Ræðismenn ýmissa landa hittast þó reglulega og reynir þá hver og einn að „selja sitt land“. Erfitt sé hins vegar að meta hvað komi út úr slíku. „Hins vegar hef ég sem ræðismaður hald- ið ijölda fyrirlestra með mynd- bandasýningum um ísland, land og- þjóð, ekki síst í skólum. Það er tölu- verð eftirspurn eftir slíku, Norður- löndin þykja öll forvitnileg í Puerto Rico. Þá bý ég yfir ýmsum bækling- um um ísland og dreifi þeim eftir fyrirspurnum. Þá má geta þess, að ég annast um íslenska skiptinema og í fyrra bauð ég þeim öllum til veislu. Þetta voru allt stúlkur og ég tók af þeim mynd sem birtist reyndar síðar í Morgunblaðinu." Lyftan Þegar hér er komið sögu fer Tony að tygja sig til veiða. Langáin hans hefur verið mislynd í sumar þó hann hafi átt sina góðu daga. Hann segir að Langá hafi „oft hag- að sér svona“ á tuttugu árum. Við fljótum með upp með á og Tony veitir okkur aðgang að hugrenning- um sínum. Hann segir okkur að hann hafi séð einhver hundruð laxa ganga í gegn um Breiðuna og Strengina fyrir neðan Skuggafoss. Hann hafi ekki séð þá laxa hopa til baka og segist raunar aldrei hafa séð slíkt. „En hvar eru þeir? Af hveiju er svona lítið af fiski fyr- ir ofan stiga? Jóhannes sagði mér að áin gæti víða geymt laxinn svo lítið bæri á, en best gæti ég trúað því að þetta væm bara nokkrir fisk- ar sem Jóhannes er búinn að þjálfa upp til þess að plata veiðimenn!" Þessu fer að ljúka, en áður stöðv- ar Tony jeppann og við horfum öll skellihlægjandi á Svisslendinginn Vasco sem kemst ekki úr sporunum fyrir kríu sem stingur sér ákaft ofan á hausinn á honum. Vasco þessi er svo reiður að hann gleymir stund og stað og reynir að lemja til kríunnar með stönginni. Auðvit- að gengur það ekki, en Tony og Runólfur rifja þá upp er einn Spán- veijinn setti í kríu í bakkastinu. Hafði krían fluguna með sér. Skammt frá jeppanum trítlar ný- klakinn kríuungi, nýr einstaklingur sem kallar kannski Tony afa síðar meir. ÁRNAÐ HEILLA Ljósmyndastofa Þóris. HJÓNABAND. Gefin voru saman í hjónaband þann 5. júní sl. í Hóla- neskirkju, Skagaströnd, af sr. Stínu Gísladóttur Þórhildur Björg Jakobs- dóttir og Óli Siguijón Pétursson. Heimili þeirra er að Fellabraut 5, Skagaströnd. Ljósmyndarinn Jóhannes Long. HJÓNABAND. Gefín voru saman í hjónaband þann 19. júní sl. í Kópa- vogskirkju af föður brúðarinnar, sr. Sigfinni Þorleifssyni, Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir og Böðvar Þórisson. Heimili þeirra er að Hlíðarvegi 14, Kópavogi. Ljósmyndarinn Jóhannes Long. HJÓNABAND. Gefín voru saman í hjónaband þann 26. júní sl. í Bú- staðakirkju af sr. Jónu Kristíhu Þorvaldsdóttur Hulda Jónsdóttir og Birgir Friðjónsson. Heimili þeirra er að Miðvangi 2, Hafnarfirði. , Uósm. Rut. - HJÓNABAND. Gefin voru saman í hjónaband þann 30. maí sl. Hjá Veginum, kristnu samfélagi, af sr. Birni Inga Stefánssyni Fanný Krist- ín Tryggvadóttir og Hans Hafsteinn Þorvaldsson. Heimili þeirra er í Köldukinn 2, Hafnarfirði. VIÐ HÖFUM SELT BÍLA FRÁ UPPHAFI itasaftan VIÐ MIKLATORG - SÍMAR 15014 - 17171 Hippamussur Sprengitilboð Gerið verðsamanburð. Verð frá kr. 2.900,-. ÚTSÖL UMARKAÐ URINN, FAXAFENI. ...nú er rétti tíminn til að undirbúa farsælt nám í vetur með því að skrá sig á sumarnámskeið í hraðlestri sem hefst þriðjudaginn 27. júlf og námstækninámskeið hefst 23. ágúst. Nú bjóðum við námsmönnum þessi vinsælu námskeið í „pakka" á sérlega hagstæðu verði. Eftir að hafa sótt þessi tvö námskeið verður námið leikur einn miðað við það sem áður var. Skráning alla daga í síma 641091. HRAÐLESTRARSKOLINN ...við ábyrgjumst að þú nærð árangri! S 1978- 1993 DK Ljósmyndarinn Jóhannes Long. HJÓNABAND. Gefin voru saman í hjónaband þann 3. júlí sl. í Víði- staðakirkju af sr. Auði Eir Vil- hjálmsdóttur Hrund Sigurðardóttir og Ólafur H. Kristjánsson. Heimili þeirra er að Erluhrauni 2, Hafnar- firði. Ljósm./ Bragi Þór Jósefsson. HJÓNABAND. Gefin voru saman í hjónaband þann 3. júlí sl. í Dóm- kirkjunni af sr. Karli Sigurbjörns- syni Eva Hallbeck og James D. Horton. heimili brúðhjónanna verð- ur í Las Vegas í Bandaríkjunum. Ljósmyndarinn Jóhannes Long. HJÓNABAND. Gefin voru saman í hjónaband þann 3. júlí sl. í Lága- fellskirkju af sr. Pálma Matthías- syni Birna Gísladóttir og Björn Ragnarsson. Heimili þeirra er í Gullengi 17, Reykjavík. Ljósmyndarinn Lára Long. HJÓNABAND. Gefín voru saman í hjónaband þann 10. júlí sl. í Ey- vindarhólakirkju af sr. Halldóri Gunnarssyni Rósa Vigfúsdóttir og Kjartan Long. Heimili þeirra er í Ljósheimum 20, Reykjavík. íyrir verslunarmannahelgina Hippamussur Frábært verð - frá kr. 2.900,-. KODA, Keflavík, sími 92-14440. NÍNA, Akranesi, sími 93-12244. Sendum í póstkröfu um allt land.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.