Morgunblaðið - 25.07.1993, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 1993
B 15
Morgunblaðið/Hadda
Sylvía Jóhannsdóttir er fædd í Færeyjum, lærði
matreiðslu í Danmörku en flutti til íslands fyrir
tæpum 30 árum og hefur eldað ofan í íslendinga
sem og útlendinga allan þann tíma.
á okkur Hilmari Jónssyni matreiðslu-
meistara að velja matseðilinn. Hilmar
kvaðst treysta mér til þess og það
fyrsta sem mér datt í hug var smurt
brauð og íslenskur bjór, því þetta var
aðeins mánuði eftir að bjórinn var
leyfður hér á landi.
Það er ekki hægt að koma þessum
mönnum neitt á óvart. Það eina sem
ég gat gert var að hafa matinn ’nýj-
an og ferskan. Að máltíðinni lokinni
stóð einn gestanna upp og sagði að
alltaf væri tekið einstaklega vel á
móti þeim hér á iandi og þeir fengju
góðan mat. Þessi hádegisverður hefði
þó slegið öll met, því gott smurt
brauð fengist ekki alls staðar. Það
kom svo í ljós að þessi maður hefði
séð um allar veislur Friðriks Dana-
konungs og Ingrid, þannig að þetta
var mikill heiður fyrir mig.“
—Hvernig stóð á því að þú fluttist
til íslands?
„Eg hafði verið sjö ár í Danmörku
að iæra og vinna, en var trúlofuð
færeyskum sjómanni, Páli Gústafs-
syni, sem var stýrimaður á íslensku
skipi og fiutti því hingað 1966. Við
giftum okkur og eignuðumst þtjá
syni. Páll lést fyrir þremur árum.
Ég fékk í fyrstu vinnu á Hótel
Loftleiðum, en það var einmitt opnað
rétt eftir að ég fluttist hingað. Seinna
vann ég á Hótel Esju
og þegar Flugleiðir
keyptu Esju og fyrir-
tækin sameinuðust fór ég
aftur að vinna á Hótel
Loftleiðum," útskýrir Syl-
vía brosandi.
Þegar börnin voru ung
vann hún um helgar á
ýmsum veitingahúsum
eins og Sigtúni, Þórskaffi
og í Glæsibæ. Svo var það
fyrir 13 árum að henni
bauðst að taka að sér
rekstur veitingastaðarins
á Kjarvalsstöðum, sem
hún rak í 12 ár eða þar til hún opn-
aði Smurbrauðsstofu Sylvíu. „Það
hefur gengið alveg rosalega vel hjá
mér þrátt fyrir að ég hafi ekkert
auglýst nema rétt fyrst. Ég er alltaf
með ódýran mat í hádeginu, súpu
ásamt einhverju tilboði, sem starfs-
fólk í fyrirtækjum hér í kring notfær-
ir sér. Fyrir utan að selja smurt brauð
er ég með veisluþjónustu fyrir ein-
staklinga og fyrirtæki. Það er nóg
að gera í því líka.“
Færeyskur matur í fyrsta sinn
Nú er Ólafsvakan framundan og
því ætlar Sylvía að bjóða upp á fær-
éyskan mat 28. og 29. júlí. „Ég verð
Madam Blue, 12 lítra kaffikanna. „Ég
hef aldrei séð svona stóra könnu,“ sagði
Sylvía. „Við notuðum.hana til að hella
upp á kaffi fyrir 200 manns.“
með brauð með færeysku áleggi eins
og skerpikjöti [sem er vindþurrkað,
saltað lambakjöt], knetti [fiskibollur
búnar til úr þorski, mör og lauk],
steiktum færeyskum fiskibollum,
færeyska rúllupylsu og skinsakjöti
[lambakjöt sem er soðið og saltað
heitt]. Þetta verka ég allt sjálf,“ seg-
ir Sylvía og bætir við að hún búist
við að sjá marga Færeyinga og von-
andi einhveija íslendinga sem vilji
prófa ekta færeyskan mat. „Þetta
hefur aldrei verið gert áður. Helst
langar mig til að slá upp færeyskum
dansi hér fyrir utan,“ segir hún kank-
vís.
UTVARP
Jónas „ökufantur“
kominn úr fríi
Mörgum er enn í fersku minni þættirnir um
Jónas og fjölskyldu, sem voru í útvarpinu
fyrir allmörgum árum. Jónas var ekki beint fyrir-
mynd annarra ökumanna og átti eiginkonan,
Anna, í mestu basli með að siða hann til og benda
honum á yfirvofandi hættu. Nú er Jónas og fjöl-
skylda komin til baka úr löngu fríi og munu lands-
r
i' wm nn? / »1
Aðstandend-
ur þáttanna
við upptökur
sem fóru
fram í Hljóð-
rita. F.v. Óli
H. Þórðarson,
framkvæmda-
stjóri Um-
ferðarráðs,
Bessi Bjarna-
son sem leik-
ur Jónas,
Álfrún Helga
Örnólfsdóttir
leikur Krillu,
Margrét Guð-
mundsdóttir
sem er í lilut-
verki Önnu og
Ólafur Örn
Haraldsson
höfundur.
Morgunblaðið/Einar Falur
mt n heyra í þeim öðru hvoru á flestum ef ekki
öl) útvarpsstöðvunum.
ðaileikendur eru eins og áður Bessi Bjarna-
so >g Margrét Guðmundsdóttir, en þeim til halds
og -austs verður Álfrún Helga Örnólfsdóttir.
IL,iandur nýju sem og gömlu þáttanna er Ólafur
Örn Haraldsson „Grænlandsfari“, en hann starf-
aði í tengslum við Umferðarráð þegar þættirnir
urðu upphaflega til. Þrátt fyrir að það kunni að
hljóma undarlega hefur Morgunblaðið heimildir
fyrir því að þættirnir hafi að þessu sinni verið
samdir að hluta til á Grænlandsjökli. Kannski
einmitt vegna þess að þar eru engir bílar?!
Að sögn Sigurðar Helgasonar hjá Umferðar-
ráði er nú þegar búið að taka upp nokkra þætti
sem sendir verða út um verslunarmannahelgina,
en óvíst er hversu langt fram á haust haldið
verður áfram með þá. „Þættirnir hittu vel í mark
á sínum tíma,“ sagði Sigurður. „Fólk man vel
eftir þeim og þeir höfðu greinilega jákvæð áhrif,
því létt grín er gert að landanum og það fellur
yfirleitt í góðan jarðveg."
Tvær bestu bækurnar!
ii
BUSTOLPl
HÚSNÆÐISREIKNINGUR
Á
V
STJQRNUBQH
BÚNAÐARBANKANS
Bústólpi 7,00%
Stjörnubók 6,95%
Hæsta raunávöxtun húsnæðissparnaðarreikninga kom í hlut BÚSTÓLPA,
húsnæðisreiknings Búnaðarbankans, sem skilaði 7,00% raunávöxtun fyrstu 6 mánuði ársins.
Hæsta raunávöxtun almennra innlánsreikninga var á STJÖRNUBÓK
Búnaðarbankans, 6,95% raunávöxtun fyrstu 6 mánuði ársins.
STJÖRNUBÓKIN er verðtryggð með 30 mánaða binditíma en hægt er að losa bundna innstæðu gegn innlausnargjaldi. Ef
safnað er í spariáskrift á STJÖRNUBÓK eru allar innborganir lausar á sama tíma. Auk þess eiga eigendur STÖRNUBÓKAR
kost á húsnæðisláni frá bankanum, að hámarki 2,5 milljónir króna til allt að 10 ára.
BUNAÐARBANKINN
Traustur banki