Morgunblaðið - 25.07.1993, Qupperneq 24
24 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 1993
l 1 pVflóA MEK- ár\ STI2ÝIC- TA bi 1 WofÐl III ILL- P£ILA KLMI ineis N(T- ý XEd'T- sa^d- \sen« sftrs V táls
IÁ.T- Y(Z- ▼
KLArtP- AtJS KoEh- VAfiauR tlditDK?
IKÓPIJ) HUu A ýrferx
þl©MA KRltTuR V frfó TIL $?\L~ IÐ 'OLÉ IKT- ÞnoTta Kl'aR- II-) N
MlLpftR Ku$k
V/£-TTu« HlTl KvJElKq<?
IL/MA áus>
(?Á€)| F«Á FeesKS HRÓFA HiíómaP £lHK£M- IWTAFiR. AFdftÐ
Hi«Þ|«. UN\ A- LBrb\ 5NACL- Ana
BL'/Ðfl + \)EU5u Ck uD HLídfi
míli - flfUMClN RoST- ama
n“%a 1 ‘biri f£L\S>- w A L S£ita DlKA H'ATi-Ð
AMNA þa&c a NIDUiZ /
fIfl- anúf KFHfc- ÐU Þvmtó HílÐUKS
5LDTAR FÁLM
'OSlá- Ud ÓRfeTT- L'M A R DMEMÞ Ku&- DÝR- UN\ sr/Ma- Uf?
Kíaft- LULllJN Fe R \J\T~ LAuí. FL'frm- /M N
ARÚA
UR KKofPA \/ÆTL- AK n I SöLf\ &«ri H(?EINT
pte £ll - LotfúiiA FlzRA MAWHS- WAfW
flAUL M'ATt-
Flokka L\ F- F/cal : ► FtRUM- £FN 1 ÓANA- FloT- UR FLAMA oooi So*t£)- /l/ILI ufl
áx£lU- \<Z MECT- IWCAt- ' * »* KMÓL- l(t
íe-nwn ílImn • LiTLA<Z. -4-
Ökumenn á aldrinum 17-24 ára valdir að flestum slysum í umferðinni
Umferðarráð helgar ár-
ið ungnm ökumönnum
Selfossi.
YFIRSTANDANDI ár og- fram á mitt næsta ár mun Um-
ferðarráð helga sérstaklega ungum ökumönnum. Markmiðið
er að stuðla að viðhorfsbreytingu hjá ungu fólki gagnvart
umferðinni. Helsta ástæðan fyrir þessu átaki er að 60% þeirra
sem valda slysum eru á aldrinum 17-24 ára.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Suðurlandsvegur
ÞÓRHALLUR Ólafsson formaður Umferðarráðs við gult merki
á Suðurlandsvegi. Það er eitt af niörgum sem notað verður við
hraðamælingar úr þyrlu í sumar.
Í athugun og flokkun á um-
ferðarslysum kemur og fram að
80% ungra ökumanna sem valda
alvarlegum slysum eru undir
áhrifum áfengis eða vímuefna.
„Við leggjum mikla áherslu á að
finna aðferðir til þess að ná til
þessa hóps,“ sagði Þórhallur
Ólafsson formaður Umferðar-
ráðs. Að mati sérfræðinga er eitt
hættulegasta atriðið í akstri
ungra ökumanna áhrifagirni
þeirra til ógætilegs eða glæfra-
legs aksturs.
Dómsmálaráðherra hefur
ákveðið að fram fari stefnumörk-
un í umferðaröryggismálum fram
til ársins 2000. Tillaga til þings-
ályktunar í þessa veru verður
lögð fram á næsta þingi. Mark-
miðið með því er að fækka alvar:
legum slysum um 30-40%. í
þingsályktunartillögunni, sem nú
er í vinnslu, er meðal annars
gert ráð fyrir því að Umferðar-
. ráð, lögregla, vegagerð, sveitar-
stjórnir og skólakerfið geri fram-
kvæmdaáætlanir á hveiju ári um
aðgerðir til fækkunar umferðar-
slysum. Einnig er gert ráð fyrir
breyttri refsilöggjöf og hertum
viðurlögum við áfengisakstri og
hraðakstri en þessir tveir þættir
eru mestu slysavaldarnir í um-
ferðinni.
Sparar milljarða
Á þingi Norðurlandaráðs 1987
var samþykkt að öll Norðurlöndin
fengju slíka stefnumörkun í um-
ferðaröryggismálum 1988. Öll
löndin framkvæmdu þetta nema
ísland. í Danmörku hefur alvar-
legum slysum fækkað um _15% á
árunum 1988-1992. Ef íslend-
ingar hefðu náð sama árangri
og Danir væri sparnaðurinn í
peningum 3,5 milljarðar auk
minni mannlegra þjáninga and-
legra og líkamlegra sem eru
miklar í tengslum við umferðar-
slys.
Öryggismálin á
framkvæmdaáætlanir
Að sögn Þórhalls Ólafssonar
formanns Umferðarráðs er mikill
áhugi fyrir þessu átaki í um-
ferðaröryggismálum. Liður í því
er stofnun umferðaröryggis-
nefnda og það fólk sem kosið
hefur verið í þær nefndir er
áhugasamt um að þær verði virk-
ar í starfi. „Hornsteinn slíkrar
áætlunar er að virkja alla sem
koma að málinu,“ sagði Þórhall-
ur. „Með umferðaröryggisáætl-
uninni er gert ráð fyrir því að
virkja sem flesta aðila þannig að
þessi mál komist framarlega í
framkvæmdaröð sveitarfélaga og
hjá stofnunum ríkisins." Þórhall-
ur sagði einnig að stefnt væri
að því að Umferðarráð yrði fjár-
hagslega sjálfstætt en liður í því
væri samningur við tryggingafé-
lögin um að þau greiddu meira til
málaflokksins.
Viðhorfsmótun í skólunum
Dómsmálaráðherra fékk heim-
ild í lögum til þess að framlengja
æfingatíma ungra ökumanna í 6
mánuði. Hjá Umferðarráði er nú
í framhaldi af þvi leitað leiða til
þess að geta samtímis haft meiri
áhrif á viðhorf unga fólksins
gagnvart akstri. Að mati ráðsins
er skólakerfið lykillinn að unga
fólkinu. í Svíþjóð voru nýlega
samþykkt umferðarlög sem
fluttu umferðarkennsluna inn í
framhaldsskólana og þar er við-
horf unga fólksins til aksturs
mótað. Þetta er gert með því að
nota námsefni sem fellur inn í
ýmsar námsgreinar svo sem eðl-
isfræði, ensku og fleira. Þar er
fjallað um atriði sem koma upp
í akstri og nemendumir látnir
vinna með þau.
Hægt að ná árangri
„Við höfum komið upp góðu
kerfi til að hafa eftirlit með bif-
reiðum og öryggisbúnaði þeirra
en það eru þó ökumennirnir sjálf-
ir sem ráða mestu um öryggið í
umferðinni,“ sagði Þorsteinn
Pálsson dómsmálaráðherra.
„Fyrir frumkvæði Umferðarráðs
var ráðist í stefnumörkun og
markmiðslýsingu sem ætlunin er
að leggja fyrir Alþingi. Þar á að
draga meginlínur og koma fram
með stuðning við aðila í þjóðfé-
laginu sem þurfa í lifandi starfi
að gera þetta að veruleika.
Reynslan sýnir að með skipu-
lögðu starfi í þessa veru er hægt
að gera þetta að veruleika og
auka með því öryggi í umferð-
inni,“ sagði dómsmálaráðherra
ennfremur.
Á næstu mánuðum og árum
má gera ráð fyrir að fólk verði
vart við ýmsar ráðstafanir, fram-
kvæmdir vegagerðar og sveitar-
félaga og aðgerðir lögreglu til
þess að auka umferðaröryggi.
Sig. Jóns.