Morgunblaðið - 02.09.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.09.1993, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993 2 Tökum um 50% úr veiðistofni þorsks Aðrar þjóðir halda sig við 25 til 35% ÁRLEGA hafa verið tekin um 50% af veiðistofni þorsksins hér við land hin síðari ár, en í Beringshafi er miðað við að ekki sé tekið meira en 25%. Norski fiskifræðingurinn Odd Nakken telur heppileg- ast að í Barentshafi sé veiðin á bilinu 20 til 35% og fari aldrei yfir 35%. Mcð þessu móti er talið að jafnastur og bestur afrakstur náist úr viðkomandi fiskistofnum. Jakob Jakobsson, forstjóri Haf- rannsóknastofnunar, segir að 50% veiði úr veiðistofninum sé of mikið. í flestum tilfellum sé bezt að miða við 25 til 35% fyrir botnfisktegund- ir og minna fyrir uppsjávarfiska. „Tillögur okkar hafa alla tíð miðazt við þetta hlutfall og til dæmis hefur aldrei verið leyft að taka meira af Suðurlandssíldinni en 20 til 30%. Það hefur hins vegar verið ákvörðun stjórnvalda að taka meira en við höfum lagt til úr öðrum stofnum svo sem þorskinum, eða allt að 50%. Það verður að hafa í huga, þegar verið er að nýta villta fiski- stofna, að veiðarnar einar skipta ekki öllu máli. Veðurfarið hefur einnig mikið að segja og aðstæður í sjónum geta ýmist verið hagstæð- ar eða óhagstæðar. Því er bezt að taka heldur lágt hlutfall úr hveijum stofni til þess að koma í veg fýrir áföll við óhagstæð skilyrði," segir Jakob Jakobsson. Meintur höfuðpaur fíkniefnahrings tekinn FÍKNIEFNALÖGREGLAN handtók í fyrrinótt meintan höfuðpaur fíkniefnahrings sem talið er að hafi fjármagnað innflutning á umtals- verðu magni af hassi og amfetamíni til landsins. Maðurinn var hand- tekinn í húsi í miðbæ Reykjavíkur ásamt tveimur öðrum sem báðir hafa áður verið handteknir og hafðir í haldi vegna rannsóknar málsins. Einnig voru handteknir nokkrir aðilar sem taldir eru hafa annast smásölu á fíkniefnum fyrir höfuðpaurinn. Mál þetta kom upp þegar tveir menn, 47 og 51 árs, voru handtekn- Danir unnu í Víkingalottói TVEIR voru með sex tölur réttar í Víkingalottóinu í gær en hvor- ugur vinningurinn kom á íslensk- an miða. Heildarupphæðin var um 156 milljónir króna og komu því 78 milljónir í hlut hinna heppnu, sem báðir keyptu lot- tómiða sína í Danmörku. Tveir bónusvinningar komu í hlut íslendinga, að sögn Vilhjálms B. Vilhjálmssonar framkvæmdstjóra íslenskrar getspár, og er hver um sig 677 þúsund krónur. ir í Leifsstöð við komu til landsins. Á öðrum þeirra fundust 3 kg af hassi og 900 grömm af amfeta- míni. Mennimir sátu í gæsluvarð- haldi um tíma og þriðji maðurinn, 38 ára, játaði aðild að málinu. Við rannsókn málsins kom fram að þeir höfu átt aðild að a.m.k. tveimur svipuðum smyglferðum. Þrír handteknir í fyrrakvöld lét lögreglan að nýju til skarar skríða gegn tveimur mannanna og handtók þá ásamt 38 ára gömlum manni sem lögregla telur víst að sé skipuleggjandi og höfuðpaur umfangsmikilla fíkni- efnaviðskipta. Ekki var lagt hald á fíkniefni. Gerð var krafa um gæslu- varðhald yfir hinum meinta höfuð- paur og öðrum hinna og tók héraðs- dómari sér frest til að kveða upp úrskurð í málinu. Danir taka ákvörðun um Grænlandsflug Odin Air fær leyfi DÖNSK flugmálayfirvöld hafa veitt íslenska flugfélaginu Odin Air leyfi til áætlunarflugs á flugleiðinni Reykjavík-Kúíusúk-Reykjavík að því tilskildu að félagið fái loftferðaleyfi íslenskra flugmálayfir- valda. Þórhallur Jósepsson deildarstjóri í samgönguráðuneytinu segir að fyrirspumum félagsins um loft- ferðaleyfi hafi verið svarað á þá leið að það fengist þegar félagið uppfyllti þau skilyrði um eiginfjár- stöðu og sem sett em í reglugerð um flutningaflug. Odin Air hefur verið veittur nokkurra daga frestur til að upp- fylla fyrrnefnd skilyrði. í dag Sögðum Zukofsky ekki upp Greinargerð frá stjðm Sinfóníu- hljómsveitar æskunnar 12 Fyrstu réttir huustsins Tvær næstu helgar verður réttað víða um land 14 Kjötsala til Sviþjóðar Útflutningur SS á kjöti í neytenda- umbúðum til Svíþjóðar gengur vel og dæmi eru til að kjötið kosti þar meira út úr búð en hér heima 16 Leiðari Hæfí nefndarmanna í opinberum nefndum 26 Viðskipti/A tvinnulíf ► Skuldabréfaútboð Fiskveiða- sjóðs - Samdráttur í bílainnflutn- ingi - Grípandi gluggaútstillingar - Pizzuæðið — Clinton og smáfyr- irtækin - Gosan í Rússlandi. Vélsleðarnir „stolnu“ fundust á sínum stað Morgunblaðið/Árni Sæberg Ánægðir sleðaeigendur GUÐLAUGUR og Þröstur voru ánægðir að finna sleðana sína óskemmda og vildu koma þakklæti til Þorsteins Hjaltasonar á framfæri. Hér eru þeir við bílinn sem flutti sleðana í bæinn. Fóruí gang eftir 9 mánuði undir fönn VÉLSLEÐUNUM tveimur sem Guðlaugur Þorleifsson og Þröst- ur Halldórsson urðu að yfirgefa þegar þeir lentu í miklum hrakn- ingum í Bláfjöllum í janúar sl. reyndist ekki hafa verið stolið eins og Morgunblaðið greindi frá í gær heldur voru þeir á sínum stað þar sem þeir voru skiidir eftir í Bláfjöllum í vetur. Sleðarn- ir fóru í gang þegar eigendurnir viljuðu þeirra í gær en þá höfðu þeir legið í um 9 mánuði undir fönn. Þorsteinn Hjaltason fólkvangs- vörður í Bláijöllum hafði samband við Morgunblaðið í gær og greindi frá því að um helgina hefði hann hitt mann sem hefði sagt sér að hann hefði gengið fram á sleðana í dragi handan við Kóngsgil, um 2 km austur af skálanum. Þorsteinn sagði að þetta hefði dottið úr sér þar til hann las um hvarf sleðanna í Morgunblaðinu. Hann fór þá að leita eftir frásögn mannsins og fann sleðana. „Þetta eru frábærar fréttir," sagði Guðlaugur Þorleifsson þegar Morgunblaðið færði honum fréttim- ar. Þeir félagar fóru og sóttu sleð- ana síðdegis í gær. 433 milljóiiir til skjólstæðinga Félagsmálastofnunar 25% fleiri einstakling- ar fá fjárhagsaðstoð Fjárveiting hefur hækkað um 50% í Hafnarfirði REYKJAVÍKURBORG hefur á þessu ári veitt samtals 433,7 milljónir króna í fjárhagsaðstoð til skjólstæðinga Félagsmálastofnunar Reykja- víkurborgar. Að sögn Sveins H. Ragnarssonar, félagsmálasljóra, er útlit fyrir að skjólstæðingum fjölgi um 25% á árinu miðað við síðastlið- ið ár. Að sögn Mörtu Bergmann, félagsmálastjóra Hafnarfjarðar, hef- ur fjárveiting vegna fjárhagsaðstoðar hækkað um 50% í krónum talið miðað við sama tíma í fyrra. Sveinn sagði, að skjólstæðingum Félagsmálastofnunar hefði þegar fjölgað um 24,2% eða 416 einstakl- inga það sem af er árinu miðað við sama tíma í fyrra. í fjárhagsáætlun borgarinnar var gert ráð fyrir 323,7 millj. í ljárhagsaðstoð á þessu ári. Sagði hann að fyrrihluta árs 1992 hefðu greiðslur vegna íjár- hagsaðstoðar farið til aðeins fleiri en gert var ráð fyrir en þegar leið á árið hefði þeim fjölgað verulega og svo farið að lokum að greiðslur fóru fram úr áætlun. „Við þurfum að fara allt til árs- ins 1990 til að finna svipað ástand og nú er,“ sagði hann. 3.000 einstaklingar aðstoðaðir Á sama tíma í fyrra fengu 1.716 einstaklingar fjárhagsaðstoð en núna eru þeir 2.132 sem er fjölgun um 416. Sveinn sagðist gera ráð fyrir að þessi tala ætti eftir að hækka um 600 og að um 3.000 einstaklingar kæmu til með að njóta aðstoðar á árinu. Fjölskyldan er talin sem einn einstaklingur en þær eru misfjölmennar og þess vegna eru mun fleiri sem standa að baki þessari tölu. Marta Bergmann félagsmála- stjóri í Hafnarfirði, sagði að á síð- asta ári hefði 12 millj. verið varið í fjárhagsaðstoð til skjólstæðinga bæjarins en nú hefði verið varið 18 millj. Þann 1. september voru 430 manns á atvinnuleysisskrá hjá Vinnumiðlun Hafnarfjarðar og sagði Marta að rekja mætti aukna fjárhagsaðstoð til langvarandi at- vinnuleysis og fjölgunar aðfluttra. Beiðnum um aðstoð hefði fjölgað og upphæðir hækkað til hverrar ijölskyldu þar sem erfiðleikar hefðu verið meiri. „Við fínnum mikið fyr- ir atvinnulausu fjölskyldufólki, sem hefur flutt hingað utan af landi eftir að hafa misst allt sitt og ég held að Hafnarfjörður hafi þar sér- stöðu,“ sagði hún. Dagskrá ► Dagsljós Sjónvarpsins - Sky ruglar útsendingar — Fyrstu ár Elvis sem kvikmyndaleikara - Ungur ryósnari - Síðasta viðtalið við Marilyn Monroe Kristján opnar leik- árið í Vínaróperunni Vín. Frá Önnu G. Ólafsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins YFIR tvö þúsund áheyrendur fögnuðu Kristjáni Jóhannssyni óperu- söngvara í lok sýningar á Aidu eftir Verdi í ríkisóperunni í Vínar- borg, en með sýningunni hófst óperuárið þar í borg. Kristján sagði í samtali við Morgunblaðið að sér hefði liðið mjög vel á meðan á sýn- ingunni stóð og hann væri mjög ánægður með viðtökur áheyrenda. Kristján sagði að svolítil þyngsli hefðu virst vera í áheyrendum fram- an af. „En það var greinilega kom- in talsverð stemmning eftir fyrsta þátt. Ég verð að segja að sjaldan hafa viðtökur verið jafn góðar við aðalaríunni og þess vegna er ég mjög ánægður með minn hlut.“ Spennandi ár Aðspurður sagði Kristján að óperuárið framundan væri mest spennandi á sínum á ferli. „Að opna leikárið hér, taka þátt í nýrri upp- færslu á Toscu í Chicago og Caval- leria Rusticana í janúar í Múnchen, en það hefur staðið til lengi en ekki gengið saman fyrr en nú. í Múnchen syng ég líka í II Trova- tore, svo eru tvær sýningar í Metro- politan og næsta vor kem éa aftur til Vínar.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.