Morgunblaðið - 02.09.1993, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 02.09.1993, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993 Minning ^ Sigurður Þorsteinsson skipstjóri frá Langholtí Fæddur 28. ágúst 1901 Dáinn 17. ágúst 1993 Látinn er í Grimsby á Englandi Sigurður Þorsteinsson skipstjóri. Hann lést 17. ágúst síðastliðinn á Ashgroue Nursinghome North Sea Humberside tæpra níutíu og tveggja ára gamall. Sigurður var fæddur í Langholti í Hraungerðishreppi í Flóa 28. ágúst 1901, þriðji elstur ellefu alsystkina, barna Þorsteins Sigurðssonar og Helgu Einarsdóttur, og eins hálf- bróður. Sigurður var af traustu bergi brotinn, fæddur og uppalinn á miklu myndarheimili, þar sem dugnaður, framtakssemi, samviskusemi og trúmennska skipuðu æðstan sess. Þorsteinn Sigurðsson faðir Sigurðar var stórbóndi í Langholti, alþekktur dugnaðarmaður, bróðir hans var Sigurður Sigurðsson ráðunautur, landsþekktur maður fyrir störf sín í þágu landbúnaðar og félagsmála. Geta má þess að Sigurður afi Sig- í FARARBRODDI PJÖRUTÍU ÁR! VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKAN DRIFBÚNAÐUR ER SÉRGREIN OKKAR! optibelt kílreimar - viftureimar - tímareimar REINOLD og OPTIBELT eru leiðandi merki á heimsmarkaði fyrir drif- og flutningskeðjur og reimar. Vörur frá þessum framleiðendum eru þekktar fyrir gæði. Eigum á lager allar algengar stærðir af keðjum, tannhjólum, reimum og reimskífum. Útvegum með skömmum fyrin/ara allar fáanlegar stærðir og gerðir. Veitum tæknilega ráðgjöf við val á drifbúnaði. RENOLB keðjur og tannhjól Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8*108 REYKJAVlK SÍMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-68 58 84 • VELADEILD FALKANS • VÉLADEILD FALKANS • VÉLADEILD FALKANS • VÉLADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • vtr •í? f0 V ' ■■;, \W © $ ctT W / , Æsk. \ m s 4 \ % © \ . s ^ ■ \ ^GSS^ifii P ml \ s \ v \ 'PÆ ^á- ^. Pk \'.'S aaipptwut a fimmtudögum - afsláttur sem um munar! T01 393571 ~r*¥ SEÐLABANKI fSLANDS Fyrirtæld, heildsalar og ahrir sem hafa áhuga á ab koma á framfær! tilbohum til lesenda Morgunblahsins í formi kjarabóta rinsamlegast hafl samband vib Mðrtu Loftsdóttur augiýsingadeild, i síma 691155. - kjarni málsins! urðar skipstjóra Þorsteinssonar hlaut viðurkenningu úr verðlauna- sjóði Kristjáns konungs IX fyrir afburða dugnað í jarðrækt og bún- aðarumbótum. Sigurður bytjaði snemma að stunda sjó, mun hann hafa verið aðeins 15 ára þegar hann réðst fyrst til útróðra á áraskipi hjá Guð- mundi á Háeyri sem þá var þekktur útgerðarbóndi á Eyrarbakka. Einn- ig var hann til sjós í Grindavík á áraskipi. Spænska veikin 1918tafði sjómannsferil Sigurðar, en þá lá hann fárveikur í 12 vikur. í þeirri mannskæðu veiki misstu þau Lang- holtssystkini móður sína. Togaraferill Sigurðar byijaði 1919 á Gylfa, sem að sjálfsögðu var kolakynntur gufutogari. Þróun- in hjá Sigurði varð þannig að hann byijaði þar sem kolamokari, en varð fljótlega orðinn fullgildur há- seti. Á togaranum Ara var hann í þijú ár en fór þá í Sjómannaskólann og tók stýrimannapróf 1923. Um þær mundir sem Sigurður lauk prófi voru ekki mörg tækifæri hér heima að fá störf við skipsstjóm, en til þess stóð hugur hans mjög eindreg- ið. Skip voru fá hér, en margir menn. Fór Sigurður því til Grimsby með Helga Jónssyni frá Skeggja- stöðum sem þá hafði verið skip- stjóri þar um hríð. Vildi hann freista gæfunnar þar. Sakir atvinnuleysis í Grimsby fékk Sigurður ekki at- vinnuleyfí, en komst þess í stað í tæri við mann frá Nýfundnalandi sem var þeirra erinda í Grimsby að kaupa togara. Komst Sigurður á skipið hjá honum og fór vestur um haf. ílentist hann vestanhafs í um það bil fímm ár og sigldi þá á togur- um frá hafnarborginni Halifax í Nova Scotia. Guðmundur bróðir Sigurðar var um tíma vestra í skipsrúmi hjá honum. Um þetta leyti öðlaðist Sigurður kanadískan ríkisborgararétt. Með hann í far- teskinu fór hann öðru sinni til Eng- lands, og nú reyndist leiðin auðsótt- ari. Að lokinni veru í breskum sjó- mannaskóla og að loknu ensku stýrimannaprófí með kanadískan ríkisborgararétt var leiðin orðin greið. Það var svo þjóðhátíðarár Islendinga 1930 sem Sigurður náði því takmarki sínu að verða skip- stjóri á Grimsbytogara. Alls mun hann hafa verið skipstjóri á 12 tog- urum frá Grimsby, Fleetwood og Hull. Skipstjómarferill Sigurðar í 30 ár á enskum togurum var með eindæmum farsæll. Hann var feng- sæll, honum hélst vel á góðum mannskap, útgerðarmennirnir treystu honum afdráttarlaust enda voru honum gjarnan fengin ný skip. Öll stríðsárin var Sigurður á sjó og allt gekk áfallalaust. í mörg ár eft- ir að Sigurður hætti sem skipstjóri um 1960, vann hann við netagerð. Það hentaði Sigurði ekki að setjast í helgan stein, þrekið var óbugað og starfsviljinn mikill. Árið 1932 kvæntist Sigurður Önnu Gunnsteinsdóttur frá Nesi á Seltjarnarnesi, stórglæsilegri sóma- konu. Þau eignuðust þijú börn: Tryggva rafmagnsverkfræðing, Helgu húsmóður og Sigurð sem vinnur við lyfjaverksmiðju. Barna- börn eru fímm. Hjónaband Önnu og Sigurðar var með afbrigðum gott. Samheldni þeirra og samhjálp var viðbrugðið enda bjuggu þau á sínu fallega heimili í Nesi, en svo nefndu þau hús sitt í Grimsby, fram á síðustu ár, fast að níræðisaldri. Sigurður Þorsteinsson var mjög athyglisverður maður. Hann var glæsilegur í útliti og allri fram- göngu, en þó látlaus. Hann var virðulegur hefðarmaður en laus við allt oflæti. Áhugasamur og dugleg- ur en alltaf rólegur og yfírvegaður. Einstaklega hófsamur var hann í allri neyslu. Hún Anna konan hans sagði einu sinni við mig í spaugi: „Ef Sigurður syngur í baðinu, þá hefur hann fengið sér sherrystaup.“ Hann var farsæll gæfumaður. Kynni undirritaðs af Sigurði og fjölskyldu hans voru einstaklega góð, þótt fundir væru hvorki langir né margir. Minningin um þennan bróður minn mun ylja mér og þeim sem kynntust honum um ókomin ár. Ólafur Þorsteinsson. Minning Gunnar Sigurjónsson Fæddur 2. febrúar 1908 Dáinn 24. ágfúst 1993 Með Gunnari Siguijónssyni er genginn einn af ötulustu félags- málafrömuðum verkstjórastéttar- innar. Hann gegndi margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir félag sitt, Verkstjórafélag Reykjavíkur og Verkstjórasamband Islands. Hann var m.a. gjaldkeri Verkstjórafélags- ins í 18 ár og í stjóm Verkstjóra- sambands íslands í 6 ár. Gunnar 12 þing Verkstjórasambands ís- lands sem fulltrúi síns félags frá 1957 til 1981. Þá vann hann ásamt öðrum að stofnun Iifeyrissjóðs verkstjóra og átti sæti í stjóm hans í 16 ár. Er þó ekki nærri allt upptal- ið sem hann lagði hönd á til efling- ar verkstjórasamtakanna. Fyrir þessi störf sín í félagsmál- um verkstjórastéttarinnar hefur Gunnari verið sýnd virðing og þakk- læti. Hann var kjörinn heiðursfélagi Verkstjórafélags Reykjavíkur 1974 og heiðursfélagi Verkstjórasam- bandsins 1976. Árið 1980 var Gunnar sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálka- orðu fyrir störf í þágu verkstjóra. Ég kynntist Gunnari 1979 er ég átti sæti í trúnaðarráði Verkstjóra- félags Reykjavíkur. Það var mjög gott að vinna með honum, hann var fastur fyrir, en réttsýnn, allir hlutir skyldu vera skýrir og greinilegir svo ekki færi milli mála hvað væri ver- ið að ijalla um og hveijar lausnirn- ar væru. Gunnar var ljúfmenni í umgengni og saknaði ég hans þeg- ar hann hætti öllum afskiptum af félagsmálum, dró sig í hlé og lét yngri mönnum eftir að halda merki verkstjóra á loft. Eftirlifandi eigin- kona Gunnars er Helga Ágústa Einarsdóttir. Verkstjórafélag Reykjavíkur sendir henni, dætrum þeirra og öðrum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur og biður Guð að styrkja þau á þessum sorg- arstundum. Högni Jónsson, formaður Verkstjórafélags Reykja- víkur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.