Morgunblaðið - 02.09.1993, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.09.1993, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993 Morgunblaðið/Ámi Sæberg Samkomulag undirritað SAMKOMULAG var í gær undirritað um tilraun í kennslu bókiðngreina. Frá vinstri eru Olafur G. Ein- arsson, menntamálaráðherra, Orn Jóhannsson, formaður Félags íslenska prentiðnaðarins, Sæmundur Arnason, formaður Félags bókagerðarmanna, Þorgeir Baldursson, fyrir hönd Prenttæknistofnunar og Ingvar Asmundsson, skólameistari Iðnskólans í Reykjavík. Samkomulag um breytt fyrirkomulag náms í bókiðngreinum Abyrgð í höndum skóla og atvinnulífs sameiginlega MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ, Iðnskólinn í Reykjavík, Félag ís- lenska prentiðnaðarins, Félag bókagerðamanna og Prenttæknistofn- un hafa undirritað samkomulag um breytt nám í bókiðngreinum og verður þar með ábyrgð á námi nemenda í bókiðngreinum í höndum skóla og atvinnulífs sameiginlega. Tilraun um breytt nám í bókiðn- greinum er skipulögð til tveggja ára og er markmiðið með tilraun- inni að auka vinnustaðanám. Skipaður verður stýrihópur sem hefur yfirumsjón með náminu og í þeim hópi sitja fulltrúar atvinnulífs, skóla og menntamálaráðuneytis. Til að skapa aukin tengsl skóla og at- vinnulífs verður starfandi faghópur fyrir hverja iðngrein þar sem full- trúar atvinnulífs eru í meirihluta. Þannig verður stjómun námsins færð meira til atvinnulífsins. Tilraunin felst fyrst og fremst í að framvegis verði vinnustaðanám veigameiri hluti námsins og allt iðn- nám verði á grundvelli námssamn- inga. Tilgangur með tilrauninni er að gera námið betra og að iðnnem- ar læri að nota nútíma tækni, sem frekar er að finna úti í prentsmiðj- um en í skólanum. Fyrirtækin virkari þátttakendur Örn Jóhannsson, formaður Fé- lags íslenska prentiðnaðarins, sagði í ávarpi við undirritun samkomu- lagsins að mikil áhersla hefði verið lögð á menntunarmál prentiðnaðar- ins á síðustu árum. Nefnd hefði verið skipuð til að gera tillögur um breytta skipan þeirra og niðurstaða hennar hefði verið tvíþætt, annars vegar þyrfti að stórauka endur- menntun starfsfólks í prentiðnaði og hins vegar að endurskipuleggja þyrfti grunnmenntun í Iðnskólan- um. Miklar breytingar væru fram- undan í iðnnámi í bókiðngreinum hvað varðaði innihald og kennsluað- ferðir og væri námið þannig skipu- lagt að skóla- og vinnustaðanámi væri ætlað að styðja hvort annað og námsskrár tækju til hvors tveggja. „Lykillinn að árangri er samvinna atvinnulífs og skóla. Það er skoðun mín, að atvinnulífið eigi rétt á því að krefjast viðeigandi menntaðs fólks úr skólanum og það geti aðeins tekist með nánu sam- starfí við þá atvinnugrein sem hann þjónar," sagði hann einnig. Ólafur G. Einarsson, mennta- málaráðherra, sagði að ef vel tæk- ist með þessa tilraun gæti hún orð- ið upphaf umfangsmikillar breyt- ingar á skipulagi starfsmenntunar í landinu. Hann sagði ennfremur að þegar hefði verið haldið endur- menntunarnámskeið fyrir kennara í tengslum við tilraunina. „Kennslu- aðferðir þær, sem á að taka upp í bókiðngreinum eru samþætting og verkefnavinna, en slíkar aðferðir eru ríkjandi í iðnmentun í Dan- mörku" og þykja hafa gefið mjög góða raun,“ sagði hann. SS gengur vel að selja umframframleiðsluna í Svíþjóð Kótilettur seldar á hærra verði en fæst í Reykjavík ÚTFLUTNINGUR Sláturfélags Suðurlands á kjöti í neytendaumbúð- um á markað í Svíþjóð hefur gengið vel. Gott verð er að fást fyrir kjötið, miðað við það sem áður hefur þekkst. Til dæmis eru kótilett- ur seldar út úr búð í Svíþjóð á svipuðu verði og jafnvel hærra en í stórmörkuðum í Reykjavík. Sláturfélagið hefur hingað til lít- ið sinnt útfiutningi kindakjöts. Steinþór Skúlason forstjóri sagði að félagið hefði góða stöðu á innan- landsmarkaði og því hefði það hing- að til komið meira í hlut annarra sláturleyfíshafa að annast útflutn- inginn. Eftir að greiðslumarkið var tekið upp hefðu aðstæður breyst. Nú {jyrfti að leita markaða erlendis fyrir það kjöt sem bændur fram- leiddu á eigin ábyrgð utan við fram- leiðsluheimildir sínar. Lambasérfræðingarnir Sláturfélagið hóf athuganir á útflutningsmöguleikum á síðast- liðnu ári, meðal annars var gerð umfangsmikil markaðskönnun í Svíþjóð. SS kynnir sig sem Lambas- érfræðinginn frá Íslandi og hefur skráð vörumerkið Icelamb í Svíþjóð og nokkrum fleiri löndum. Steinþór sagði að við markaðssetninguna væri lögð áhersla á mikil gæði vör- unnar sem byggðist á uppruna lambsins, hreinleika kjötsins og hollustu. Þetta hefði skilað góðum árangri í Svíþjóð. Kjötið væri til sölu í allmörgum verslunum þar og stöðugt fleiri væru að bætast við. SS hefur nú selt um 100 tonn af kindakjöti í neytendaumbúðum á þessum markaði, fyrir utan það sem félagið og Goði hafa selt þar í heil- um skrokkum við mun lægra verði. Kjötið er selt fullfrágengið í lofttæmdum neytendaumbúðum og í mörgum tilvikum verðmerkt. Sagði Steinþór að útsöluverð væri í sumum tilvikum hærra en í stór- mörkuðum í Reykjavík. Nefndi hann kótilettur sem dæmi um það, þær væru seldar á rúmar 770 krón- ur út úr búð í Svíþjóð. Kjöt þetta er umframframleiðsla bænda, sem þeir mega ekki selja hér á markaði. SS hefur getað greitt þeim 140-170 kr. fyrir kílóið af fyrsta flokks kjöti en bændur fá um 430 krónur fyrir kílóið af kjöti innan greiðslumarks. Steinþór sagði að stefnt væri að því að ná um 200 króna skilaverði út úr útflutningn- um og ættu bændur þá að fá nokkra framlegð við framleiðslu umfram- kjötsins. Tímamörk á innflutningskvóta Islendingar hafa tollfijálsan kvóta til sölu á um 650 tonnum af kindakjöti til Svíþjóðar. Hann er hins vegar bundinn því skilyrði að útflutningurinn fari fram á tímabil- inu janúar til júni. Steinþór sagði að það hefði hent- að afsetningu á kjöti í heilum skrokkum en ekki alvöru markaðs- setningu á kjöti í neytendaumbúð- um sem þyrfti að vera á boðstólum allt árið. Því væri SS að flytja núna út kjöt og borga af því há aðflutn- Framtak Steinars Waage skókaupmanns Sendir notaða skó til þriðja heims landa STEINAR Waage skókaupmað- ur vinnur nú að því að safna notuðum skófatnaði til að senda til vanþróaðra landa. Hann segir að þýskur vinur sinn, sem rekur skóverslanir í Þýskalandi, hafi nú í tvö ár séð um að senda notaða skó til þriðja heims landa og á þeim tíma hafi um 15 millj- ónir skópara verið send. Steinar segir að tekið verði við notuðum skóm í verslunum hans í Domus Medica, Kringlunni og í Topp- skónum í Veltusundi. Steinar segir að flutningafyrir- tækið Jónar í Hafnarfirði hafi haft milligöngu um að fá Samskip til að annast flutninga á skónum til Þýskalands, að kostnaðarlausu, þaðan sem þeim verður komið þangað sem þörfin fyrir þá er mest. Steinar segir að allur skófatnað- ur komi til álita þar sem mikil þörf sé á skófatnaði í þriðja heiminum. „Víða í þriðja heiminum er fólk svo fátækt að það getur tekið fjöl- skylduföður allt að fimm daga að vinna fyrir einu skópari,“ segir hann. Hann segir að tæplega ein millj- ón skópara hafi verið flutt til ís- lands á síðasta ári, auk þess sem víða á heimilum sé mikið til af ónotuðum skóm. Þá segir hann að mun betra sé að nýta skóna á þenn- an hátt heldur en að þeir hafni í ruslinu þar sem margir skór, sem eru framleiddir í dag, innihaldi ýmis eiturefni sem færu út í loftið ef brenna ætti skóna. Steinar segir einnig að stundum komi það fyrir að viðskiptavinir .spyrji hvort þeir geti skilið gömlu skóna eftir í versl- Morgunblaðið/Sverrir Skórnir sendir út SKÚLI Svavarsson, kristniboði, og Steinar Waage, skókaupmað- ur, við brot af öllum þeim notuðu skóm, sem senda á til þróunar- landa. uninni þegar það hefur keypt sér nýja skó. Skúli Svavarsson, kristniboði sem verið hefur í Afríku, segir að ekki sé síður þörf á skóm en öðrum fatnaði í þriðja heims löndum. „Það er mikilvægt fyrir fólkið í þessum löndum að geta gengið í skóm. Það skiptir fólkið miklu máli að eiga skó og þrátt fyrir að það sé ekki vant því er það miklu þægilegra fyrir þá eins og okkur. Þetta starf er því ekki síður mikilvægt en önn- ur hjálparstörf og um leið erum við að nota það sem fellur til hér,“ segir Skúli. Fjórtán pizza-sendlar sektaðir og tveir hafa lent í óhöppum FJÓRTÁN pizza-sendlar hafa verið sektaðir fyrir umferðar- lagabrot síðan á föstudag. Bílar frá tveimur pizza-gerðum hafa lent í árekstrum undanfarna Morgunblaðið/Sverrir Lambasérfræðingur STEINÞÓR Skúlason forsljóri Sláturfélags Suðurlands með tvær tegundir af kindakjöti í neytendapakkningum sem vel gengur að selja í Svíþjóð. ingsgjöld í Svíþjóð til að glata ekki þeim árangri sem náðst hefði á þessum markaði. Sagðist Steinþór hafa óskað eftir því við stjórnvöld að leitað yrði eftir því að fá þessum tímatakmörkunum á innflutningsk- vótanum breytt. daga. Um er að ræða sendla frá flestum pizza-stöðum borgar- innar en ekki einungis þeim sem heita ókeypis pizzum dragist heimsending fram yfir hálf- tíma. Að sögn lögreglunnar er um margs konar brot að ræða og að sögn lögreglunnar standa sumir þessara manna, sem flest- ir eru piltar um tvítugt, frammi fyrir því að drjúgur hluti viku- launanna fari í sektir en lág- markssekt vegna hraðaksturs er 8 þúsund krónur. Sendlarnir eru sjálfir ábyrgir fyrir greiðslu sektanna. Lögreglan í Reykjavík sendi í gær út tilmæli til stjórnenda pizza- gerða þar sem þeir eru beðnir að skapa ekki óhóflega tímapressu á sendlana. Að sögn Ómars Smára Ármannssonar, aðstoðaryfirlög- regluþjóns, hafa stjórnendur margra fyrirtækjanna brýnt fyrir sendlum sínum að bijóta ekki umferðarlög en engu að síður virð- ist þeir undir miklu álagi. M.a. vegna fyrrgreindra tímamarka um afhendingu hafa nokkrir þeirra verið staðnir að hraðakstri eða þá að því að virða ekki stöðvunar- skyldu, beygjubann eða einstefnu- merki. Flestir eru byijendur í umferðinni „Flestir þessara ökumanna eru byrjendur í umferðinni og eiga eftir að taka út þroska sem ein- staklingar og ökumenn. Það er hætt við að fyrr eða síðar hljótist stórslys af þessu vinnulagi, verði ekkert að gert,“ sagði Ómar Smári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.