Morgunblaðið - 02.09.1993, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993
35
Kristínn Sigurjóns-
son — Minning
Fæddur 4. apríl 1923
Dáinn 20. ágúst; 1993
Hinn 20. ágúst síðastliðinn gerð-
ist sá sorglegi atburður, að föður-
bróðir minn, Kristinn Sigurjónsson,
lést í umferðarslysi. Með honum er
genginn kær frændi og drengur
góður. Það er erfitt að sætta sig
við dauðann, einkum þegar hann
ber að jafn skyndilega og raunin
varð á með frænda minn. Hann var
að vísu orðinn sjötugur, en ennþá
fullur lífsorku og lífsgleði.
Kristinn fæddist og ólst upp í
Hafnarfirði. Hann var næstyngstur
12 barna foreldra sinna, þeirra Sig-
uijóns Arnlaugssonar verkstjóra og
Steinþóru Þorsteinsdóttur húsmóð-
ur.
Frá því að ég man fyrst eftir
mér hefur Kiddi frændi, eins við
bræður mínir kölluðum hann, skip-
að sérstakan sess í huga mér sem
eins konar stórfrændi. Hann var
oftast potturinn og pannan í öllum
uppákomum og samkvæmum í fjöl-
skyldunni, ekki með hávaða og fyr-
irgangi, heldur með fölskvalausri
ánægju sinni af því að blanda geði
og gleðjast með skyldfólki sínu.
Þegar á bjátaði var hann líka fyrst-
ur til að bjóða fram aðstoð sína.
Hann var þannig gerður að það var
gott að þiggja aðstoð hans því hún
var gefin af hjartahlýju og án vænt-
inga um endurgjald. Eg verð honum
og fjölskyldu hans ætíð þakklátur
fyrir þá miklu hjálp og ræktarsemi
sem þau ávallt sýndu móður minni
eftir andlát föður míns.
Kiddi var gæfumaður í einkalífi
sínu, hann kvæntist eftirlifandi
konu sinni, Svanhvíti Friðriksdótt-
ur, 24. ágúst 1946. Þau eignuðust
tvo syni, þá Friðrik, tæknifræðing,
fæddan 30. mars 1946, kvæntur
Þóru Jakobsdóttur, og Fióka, sókn-
arprest Langholtsprestakalls, fædd-
an 21. október 1951, kvæntur Ás-
dísi Sigurþórsdóttur. Barnabörnin
eru orðin sex.
Kiddi átti sér mörg áhugamál.
Hann var alinn upp á heimili þar
sem tónlist var í hávegum höfð og
minnist ég þess frá bernsku minni
þegar afi settist við orgelið og öll
fjölskyldan tók undir með söng.
Kiddi lék sem ungur maður á bás-
únu með Lúðrasveit Hafnarfjarðar
og starfaði síðar og söng í mörg
ár með Polýfónkórnum. Hann var
mikill náttúruunnandi og hafði yndi
af ferðalögum um sveitir og hálendi
íslands. Fór þar saman ást hans á
náttúrunni og áhugi á ljósmyndun.
Eftir hann liggur mikill fjöldi ljós-
mynda sem bera vott listfengi hans
og næmu fegurðarskyni. Ein af
mörgum ánægjulegum endurminn-
ingum mínum með Kidda var þegar
ég, sem unglingur, fór með honum
að vetrarlagi austur fyrir borgina
í leit að góðu myndefni. Við ætluð-
um að festa vetrarríkið á filmu og
enduðum upp við Rauðhóla með litla
frosna tjörn og Kiddi eyddi allri
filmunni í að taka myndir af frost-
sprungum í ísnum. Þannig gat hann
séð fegurðina í litlum hlutum sem
við tökum ekki alltaf eftir.
Allt sem Kiddi tók sér fyrir hend-
ur gerði hann af trúmennsku og
heilindum. Til hans var því oft leit-
að til forystu, bæði í leik og starfi.
Hann var farsæll í ævistarfi sínu
sem offsetprentari og svo lánsamur
að þrátt fyrir langan starfsaldur
dvínaði aldrei áhugi hans á öllu því
sem tengdist starfi hans.
Nú skilja leiðir að sinni, kæri
frændi. Ég og fjölskylda mín færum
Svönu, Friðrik, Flóka og fjölskyld-
um þeirra okkar innilegustu samúð-
arkveðjur. Megi góður Guð gefa
þeim styrk til að takast á við sorg-
Sigurjón Arnlaugsson.
t
Astkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
LÁRA PÁLSDÓTTIR,
Eyjanesi,
lést í Sjúkrahúsinu á Hvammstanga, þriðjudaginn 31. ágúst.
Jón Jónsson, börn,
tengdabörn og barnabörn.
t
Móðursystir mín,
ELÍNBORG PÁLSDÓTTIR,
sem andaöist á Droplaugarstöðum 29. ágúst, verður jarðsett frá
Fossvogskapellu mánudaginn 6. september kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ottó A. Michelsen.
t
Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir, fósturmóðir,
frænka og amma,
GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Syðri-Hól
Vestur-Eyjafjöllum,
lést í Landspítalanum 30. ágúst.
Jónas Pétursson,
Auðunn Óskar Jónasson, Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Katrín Björg Jónasdóttir,
Hrefna Magnúsdóttir, Jón Ágústsson,
Sigurjón B. Guðmundsson, Kolbrún Gunnarsdóttir,
Guðmundur K. Guðmundsson
og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona min, dóttir og móðir,
SALOME B. KRISTINSDÓTTIR,
Strandaseli 7,
er andaðist aðfaranótt föstudagsins 27. ágúst, verður jarðsett
frá Hóla- og Fellakirkju föstudaginn 3. september kl. 15.00.
Hilmar J. Hauksson,
Steinunn Jakobina Thorarensen,
Kristinn S. Thorarensen,
Haukur Steinn Hilmarsson.
t
Kveðjuathöfn um móður okkar,
GUÐRÚNU MAGNÚSDÓTTUR,
Skúlagötu 72,
Reykjavík,
verður í Fossvogskirkju föstudaginn
3. september kl. 13.30.
Jarðsett verður sama dag í Kálfholti,
Ásahreppi.
Hafdis Hafsteinsdóttir,
Unnur Hafsteinsdóttir,
Sigurveig Hjördís Gestsdóttir.
V
t>>6 Emim ER BETRl
ad margra niali
••
/
SIORIMILIIMARKAÐIIRIM
tt
BI1DSH0F9A10
$Á GAMLI GÓÐI aðeins í stuttan tíma
Á FÆTUR (skór)
FYRIR BÖRNIN (fatnaður, videohorn)
í SKÓLANN (skólavörur)
UNDIR GEISLANN (geisladiskar)
FYRIR GLUGGANN (gardínur)
í RÚMIÐ (sængur, koddar o.fl.)
Á ALLA (fatnaður, skartgripir o.fl.)
YFIR HÖFUÐ (húfur, hattar)
í HILLUNA (blóm og skrautmunir)
UM MITTIÐ (belti)
Skífan - Studio - Sonja - Taxi - Saumalist
- Partý -1 takt - Skóverslun Reykjavíkur -
Hans Petersen - Eitt og annað -
Herrahúsið - Skartgripaskrínið - Liljan -
Blómalist - Barnabúðin - og margir fleiri.
OPNUNARTÍMI:
Mánud. - fimmtud. frá kl. 13-18
Föstudaga frá kl. 13-19
Laugardaga frá kl. 10-16
Frítt kaffi og video fyrir börnin.