Morgunblaðið - 02.09.1993, Side 24
24
.MORGUNBLAÐIÐ FJMMTUDAGUR 2. SEPTEMBBR 1993
Skálað fyrir brottför
RÚSSNESKUR hermaður og fjölskylda hans skála fyrir brottför rússneska hersins frá Litháen á þriðju-
dagskvöld. Litháen er fyrsta lýðveldi fyrrum Sovétríkjanna sem rússneski herinn hverfur frá.
Flugeldar og rokk er rússneski herinn fór frá Litháen
Einbeitum okkur nú
að efnahagsmálunum
- segir Nerjus Malijkicius, talsmaður Litháensforseta
FLUGELDUM var skotið á loft og rokktónleikar voru haldnir í Vil-
nius, höfuðborg Litháens, í tilefni þess að síðustu rússnesku hermenn-
irnir héldu frá landinu á þriðjudagskvöld. Nerjus Malijkicius, talsmað-
ur forseta Litháens, sagði í samtali við Morgunblaðið að landsmönn-
um væri óneitanlega Iétt en því færi víðs fjarri að allar áhyggjur
væru að baki. Stjórnvöld myndu nú snúa sér af fullum krafti að
efnahagsmálunum, en bændur í vesturhluta landsins eru nú í verk-
falli og staða iðnaðarins slæm.
Bokassa
látinn laus
JEAN-BEDEL Bokassa, fyrr-
um einræðisherra í Mið-Afríku-
lýðveldinu, var látinn laus úr
fangelsi í gær. Hann var dæmd-
ur til dauða árið 1987 fyrir
mannát og barnamorð. Það var
Andre Kolingba, forseti lands-
ins, sem fyrirskipaði lausn Bo-
kassa en illa horfir fyrir Kol-
ingba í forsetakosningum sem
fram fara í landinu þessar vik-
urnar. Um 2.000 ungmenni
fögnuðu því að Bokassa hefði
verið iátinn laus og hvöttu hann
til að bjóða sig fram til forseta.
Vilja innflutn-
ingsbann
GREENPEACE-samtökin
hvöttu í gær Bill Clinton
Bandaríkjaforseta til að banna
innfiutning á norskum vörum
til að koma í veg fyrir hvalveið-
ar Norðmanna. Telja samtökin
að verði veiðar Norðmanna ekki
stöðvaðar muni aðrar hvalveiði-
þjóðir fylgja í kjölfarið. Búist
er við að forsetinn tilkynni
ákvörðun sína í málinu 6. októ-
ber.
Leysigeisla-
maðurinn
ákærður
JOHN Ausonius, fertugur mað-
ur af svissnesku og austurrísku
bergi brotinn, var í gær ákærð-
ur fyrir árásir og morð á inn-
flytjendum í Svíþjóð. Maðurinn
var í fréttum nefndur „Leysi-
geislamaðurinn" þar sem sagt
var að rauður ljósdíll hefði sést
á fómarlömbum hans áður en
hann skaut þau. Ausonius er
ákærður fyrir eitt morð, ellefu
morðtilraunir og tíu vopnuð
rán. Hann hefur neitað öllum
sakargiftum nema tveimur
bankaránum.
U-534 til
hafnar
KOMIÐ var til hafnar í gær
með þýska kafbátinn U-534
sem legið hafði við strendur
Danmerkur í tæpa hálfa öld er
honum var lyft fyrir skömmu.
Illa gekk að ferja kafbátinn
vegna leiðindaveðurs. Hann fer
nú í slipp í Hirtshals í Dan-
mörku og verður rannsakaður
gaumgæfilega, m.a. verður
opnaður peningaskápur þar
sem björgunarmenn vonast
jafnvel til að fmna einhver
stríðsleyndarmál nasista.
Seðlar gegn
fölsurum
JAPANIR gáfu í gær út tvo
nýja peningaseðla með það að
markmiði að ekki sé hægt að
falsa þá. Ástæða þess er mikill
fjölda falsaðra peningaseðla
sem settir voru í umferð í apríl
síðastliðnum. Ætlunin er að
skipta um alla peningaseðla í
landinu á næstu þremur árum.
• •
Oruggustu
flugfélögin
IAPA, Alþjóðasamband
flugfarþega, birti í gær lista
yfir öruggustu flugfélög heims.
Tók IAPA saman skýrslur um
flugslys og óhöpp síðustu 10
ár og þar kom fram að örugg-
ast er að fljúga með British
Airways, SAS og Lufthansa.
Ekki var birtur listi yfír hvaða
flugfélög teldust ótryggust en
talsmaður IAPA sagði flugfar-
þega vera í mestri hættu í Ind-
íandi og Kólumbíu.
Að sögn Malijkicius náðist sam-
komulag um brottflutninginn milli
forseta Litháens, Algirdas Braz-
auskas og Borísar Jeltsíns,_ forseta
Rússlands á símafundum. í skeyt-
um Reuters-fréttastofunnar segir
að Rússar hafi staðið frammi fyrir
því að dregið yrði verulega úr fjár-
hagsaðstoð frá VestUrlöndum ef
þeir drægju ekki her sinn til baka
á tilsettum tíma. Rússar hafa borið
fyrir sig húsnæðiseklu er fjöldi her-
manna snúi aftur heim.
Tommy Koh, fulltrúi Boutros
Boutros-Ghali, aðalritara Samein-
uðu þjóðanna, var staddur í Vilnius
Shúmeiko er umbótasinni og ná-
inn stuðningsmaður Jeltsíns.
Rútskoj, sem er nú einn mikilvæg-
asti andstæðingur forsetans og nýt-
ur trausts margra afturhalds-
manna, hefur krafist grundvallar-
breytinga á markaðshyggjustefnu
ríkisstjórnarinnar og sakað Jeltsín
um að leiða Rússland á barm glöt-
unar.
Jeltsín lét að því liggja í sumar
að í september myndi verða látið
sverfa til stáls í deilum umbótasinna
og þeirra sem vilja fara hægt í
breytingar á gamla sovétkerfinu.
er rússneski herinn hélt á brott og
sagði Malijkicius að Koh hefði þótt
áhugavert hvernig til tókst. Hefði
Koh sagt það vera Litháum sjálfum
að þakka hversu greiðlega brott-
flutningurinn hefði gengið fyrir sig,
en Litháar hefðu haldið stillingu
sinni þrátt fyrir að samskiptin milli
þjóðanna tveggja hefðu ekki alltaf
verið upp á það besta. „Sendiherra
Rússa í Litháen var einnig viðstadd-
ur er herinn hélt á brott og sagði
hann brottflutninginn marka tíma-
mót í samskiptum Rússlands og
Litháens. Líkti hann breyttum sam-
skiptum þjóðanna við kaflaskipti
Telja sumir stjómmálaskýrendur að
með ákvörðun sinni sé hann að
hefja þau átök. Ljóst er að forsetinn
hefur fullt vald til að víkja Shú-
meiko frá en öðm máli gegnir um
Rútskoj. Varaforsetinn var kjörinn
í lýðræðislegum kosningum 1991
ásamt Jeltsín en þeir voru þá banda-
menn. Þótt Rútskoj sé nánast orð-
inn valdalaus vegna andstöðu sinn-
ar við forsetann er hann enn mikil-
vægur þar sem hann tæki við ef
Jeltsín félli frá eða yrði alvarlega
veikur.
Rútskoj var staddur í borginni
og vonaðist til þess að þau yrðu
jákvæð,“ sagði Malijkicius.
Verðbólga minnkar
Nú er röðin hins vegar komin
að efnahagsmálunum. „Verst er
ástandið í iðnaði og landbúnaði, en
bændur í vesturhlutanum eru í
verkfalli. Um 25% iðnaðarfram-
Ieiðslunnar eru seld til Vesturlanda
en við teljum nauðsynlegt að auka
það hlutfall. Þá hefur forsetinn lýst
yfir áhyggjum sínum vegna þess
hversu lítið Vesturlandabúar hafa
Ijárfest í Litháen," segir Malijkic-
ius. Hægt hefur á verðbólgu í Lithá-
en á síðustu mánuðum, í síðasta
mánuði var hún 2,5%, sem svarar
til um 35% verðbólgu á ári. í maí
var verðbólguhraðinn um 25%, eða
1300% á ársvísu.
Síðar í mánuðinum verða teknar
ákvarðanir er varða litháíska herinn
en í honum eru nú tæplega 7.000
hermenn.
Syktyvkar í Norður-Rússlandi er
hann heyrði tíðindin í gær og for-
dæmdi hann ákvörðunina þótt hann
segðist ekki myndu reyna að
hnekkja henni. „Þessi maður [Jelts-
ín] hefur ákveðið að taka ekkert
tillit til stjórnarskrárinnar,“ sagði
varaforsetinn. Hann sagðist myndu
hreinsa nafn sitt en Rútskoj hefur
m.a. verið sakaður um að eiga leyni-
Iegan bankareikning í Sviss. Hann
fór ekki hlýlegum orðum um Shú-
meiko. „Af hreinum og klárum heil-
brigðisástæðum ætti ekki að nefna
mig og Shúmeiko á nafn í sömu
tilskipun“.
Varaforsetinn sagði að ef Jeltsín
reyndi að leysa upp þingið, þar sem
afturhaldssinnar eru í meirihluta,
myndi það Hafa í för með sér alls-
hetjarverkfall. Rúslan Khasbúlatov,
þingforseti og leiðtogi andstöðunn-
Skrifstofa SÞ í New York
Bruðlákæru
vísað á bug
FYRIR skömmu birtist í breska
blaðinu The Sunday Times grein
þar sem fjallað var um bruðl og
ósljórn í rekstri Sameinuðu
þjóðanna og var hún notuð sem
aðalheimild í sunnudagsgrein
um sama efni í Morgunblaðinu.
Upplýsingaskrifstofa SÞ í New
York hefur dreift til bráða-
birgða plaggi sem útibúið í
Kaupmannahöfn hefur komið á
framfæri.
í svari New York-skrifstofunnar
segir að í grein The Sunday Times
sé full af rangfærslum. Lögð er
áhersla á að það séu aðildarþjóðirn-
ar sjálfar sem móti störf og stefnu
samtakanna. Laun og hlunnindi
starfsmanna séu í samræmi við
það sem gerist í sambærilegum
störfum í heimalöndum starfs-
manna.
Flestir vinna
Raktar eru nokkrar fullyrðingar
breska blaðsins, m.a. um að 39
háttsettir menn séu á launaskrá
SÞ án þess að inna af hendi nokk-
ur störf. Skrifstofan segir að störf
þessara manna séu ekki skilgreind
nákvæmlega en „flestir þeirra
gegna raunverulegum störfum,
flestir þeirra eru ekki „háttsettir"
og heita má að enginn þeirra fái
Iaun fyrir að gerá ekki neitt“.
The Sunday Times fjallaði um
innanhússskýrslu Dicks Thorn-
burghs, fyrrverandi dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, um bruðl og
óstjórn hjá SÞ en Thornburgh var
ráðinn sérstaklega til þessa verk-
efnis. Blaðið sagði að henni hefði
verið stungið undir stól. í svari
upplýsingaskrifstofunnar er þessu
mótmælt. „Skýrslu Thornburghs -
sem Dick Thornburgh sendi fram-
kvæmdastjóranum ekki fyrr en
daginn sem hann hætti störfum -
hefur verið dreift meðal æðstu
manna SÞ til umfjöllunar og at-
hugasemda".
Frjáls framlög til Hagh
The Sunday Times nefndi að
Norðmaðurinn Hans Hogh hefði
fengið það verkefni að afla fjár til
stuðnings við átak fyrir fatlaða;
endurskoðendur SÞ hefðu komist
að raun um að 100 milljónir króna,
sem fóru í skrifstofurekstur hans,
hefðu farið í súgfnn og árangur
fjáröflunarinnar orðið enginn. í
svarinu segir að þetta starf Hoghs
hafi verið fjármagnað að öllu leyti
með fijálsum framlögum ríkis-
stjórna og ýmissa samtaka.
ar gegn Jeltsín, fordæmdi tilskipun
forsetans og sagði hana stjórnar-
skrárbrot.
Gegn vestrænum njósnurum
Viktor Baranníkov, sem Jeltsín
rak nýlega úr stöðu öryggismála-
ráðherra, segir í viðtali við dagblað-
ið Nezavísímaja Gazeta að hann
hafi orðið fórnarlamb í illvígum inn-
byrðis átökum á æðstu stöðum og
auk þess hafi hann eignast volduga
óvini með því að ná árangri í barátt-
unni við skipulögð glæpasamtök.
Baranníkov nefndi sem dæmi um
frammistöðu sína í embætti að
byggt hefði verið upp öflugt gagn-
njósnakerfi til að fást við njósnir
vestrænna ríkja sem nýttu sér
óspart aðstöðu í fyrrverandi lepp-
ríkjum Austur-Evrópu og fyrrver-
andi Sovétlýðveldum.
Jeltsín Rússlandsforseti víkur varaforseta sínum tímabundið úr embætti
Rútskoj mótmælir en mun
hlíta tilskipun forsetans
M Autllll PnulAI*
Moskvu. Reuter
ALEXANDER Rútskoj, varaforseti Rússlands, ætlar ekki að reyna
að hnekkja tímabundinni brottvísun sinni úr embætti með málshöfð-
un. Borís Jeltsín forseti vék Rútskoj og Vladímír Shúmeiko aðstoðar-
forsætisráðherra frá í gær með tilskipun og bar því við að rannsaka
þyrfti gagnkvæmar ásakanir þeirra um fjármálaspillingu og veija
þannig heiður ríkisins.