Morgunblaðið - 02.09.1993, Blaðsíða 31
Kvartmíla
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993
31
F
JT
HITABLASARAR
FRICO - 2 til 15 kW
Öflugur jafn blástur - Sterkir
Meðfærilegir - Hljóðlátir
Annar hitabúnaöur
Geislahitarar - Hitöld
Kambofnar o.fl.
JOHAN
RÖNNING HF
SUNDABORG 15
104 REYKJAVÍK
SÍMI: 91-684000
FAX: 91-688221
RAFMAGNSUPPHITUN
FRÁ JOHAN RÖNNING
ÞILOFNAR
300-1200 W - m. snúru og kló
Hentugir hvar sem er
Stílhreint útlit - Endingargóðir
Jöfn hitun - Gott verð
Þrjú Islandsmet
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SlMI 91-624260
Til keppni í útlöndum
Talsverðar líkur eru á því að
Hörður fari til útlanda og keppi í
mótorhjólakappakstri í Bandaríkj-
unum. „Ég fylgist mikið með kapp-
akstri erlendis og í 500cc flokki er
Waine Rainey minn maður, er alltaf
öryggið uppmálað. Hérlendis hefur
mótorhjólamenningin verið að
breytast, kraftmiklum, stórum hjól-
um hefur fækkað og hippahjólin eru
að verða allsráðandi á götunum.
En það er lítið hægt að keyra hér
og því langar mig til útlanda til að
fá útrás fyrir hraðaþörfína og
spennuna, sem fylgir því að keppa,“
sagði Hörður.
íslandsmet
Annar mótorhjólakappi í kvart-
mílunni hefur þegar keppt í Eng-
landi við góðan orðstír, Unnar Már
Magnússon, sem ók breyttu Honda
CBR. Hann setti íslandsmet, ók í
undir 750cc flokki á tímanum
Kjörhiti í
hverju herbergi
= HÉÐINN =
DYRAOPABLÁSARAR
FRICO - 2 til 9 kW
Hlýjar móttökur í útidyrunum
Akstursíþróttir
Gunnlaugur Rögnvaldsson
í SÍÐUSTU spyrnu síðustu
kvartmílukeppni sumarsins réð-
ust úrslit í íslandsmótinu í
kvartmíiu í mótorhjólaflokki. í
flokki mótorhjóla yfir 750cc átt-
ust við Hörður Lýðsson og Björn
Ingi Jóhannsson í úrslitaspyrnu.
Þurfti oddaspyrnu milli þeirra
til að skera úr um hvor ynni og
hlyti jafnframt íslandsmeistara-
titilinn. Hörður vann sigur og
setti nýtt íslandsmet, ók brautina
best á 10,388 sekúndum. Tvö
önnur íslandsmet voru sett í
keppninni.
„Mér gengur alltaf betur, þegar
ég er undir álagi og tókst að vinna
þó ég tapaði fyrstu spyrnunni í úr-
slitum,“ sagði Hörður í samtali við
Morgunblaðið, en hann vann þtjú
mót á árinu í sínum flokki á móti
tveimur sigrum Björns. „Ég hafði
keppt á Honda CBR 600 í sumar,
en fékk lánað Suzuki 1100 Hlöð-
vers Gunnarssonar, sem varð meist-
ari á hjólinu í fyrra. Það hentar
mun betur í svona spyrnukeppni,
er lengra og þyngra. Hondan var
alltaf að lyfta framhjólinu í rás-
markinu. Hjólið var eldsnöggt og í
endamarki vorum við á tæplega 220
km hraða eftir 400 metra akstur,"
sagði Hörður.
10,652. Unnusta hans, Hella Svav-
arsdóttir, ók sama hjóli í undir
600cc flokki og náði öðru sæti á
eftir Valgeiri Péturssyni.
„Ég var örlítið kvíðinn að fylgj-
ast með henni í startinu og svo
endamarkinu, því hjólið nötraði
talsvert á endahraða," sagði Unnar
um aðfarir kærustunnar á breyttu
hjólinu. „Ég var búinn að porta
hedd vélarinnar, breyta afstöðu
knastásanna, laga til blöndunga og
setja flækjur við vélina. Rafkerfið
var bara þrír vírar, enginn „altern-
ator“ eða startari var tengdur.
Þetta virkaði vel og það var gaman
að slá íslandsmetið, sérstaklega þar
sem ekki naut við nítró-búnaðar.
Mig vantaði hitamottu á kútinn og
náði ekki upp þrýstingi á kerfið,“
sagði Unnar.
I flokki götubíla setti Friðbjörn
Georgson íslandsmet á Plymouth,
ók á 12,883 sekúndum og vann sig-
ur í flokknum. Siguijón Haraldsson
vann bracket-flokkinn, varð á und-
an Siguijóni Ámundasyni. í flokki
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Kærustuparið í
kvartmílunni
UNNAR Már og Hella Svavars-
dóttir náðu í gull og silfur í
móti helgarinnar, en þau skiptust
á um að aka sérútbúnu Honda
mótorhjóli.
útbúinna götubíla vann Gísli Styffj
en Árni Hjaltason varð annar. I
þeim flokki er hinsvegar kærumál
á úrslit í gangi.
SJÁLFVIRK
OFNHITASTILLIRINN