Morgunblaðið - 02.09.1993, Page 4

Morgunblaðið - 02.09.1993, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993 Islenskír læknar undir norskri stjóm í Bosníu? Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. LÍKLEGT er að íslenskir læknar og hjúkrunarfræðingar taki þátt í störfum hóps sem nú er verið að mynda í Noregi og ætlað er að sinna líknarstarfi á Vegum Sameinuðu þjóðanna í Bosníu. fs- lenska utanríkisráðuneytið staðfesti í gær að mál þetta hefði komið upp í samtölum þeirra Johans Jorgens Holst, utanríkisráð- herra Noregs, og Jóns Baldvins Hannibalssonar í Reykjavík á dögunum. Mun utanríkisráðherra íslands hafa lýst yfir því að hann óskaði eftir að gert yrði ráð fyrir þátttöku íslenskra lækna og hjúkrunarfólks í áætlunum Norðmanna sem eru aftur liður í samnorrænum áformum um friðargæslu undir merkjum Samein- uðu þjóðanna í Bosníu. -• „Aðstæður okkar eru vitanlega aðrar en stærri ríkja en við viljum á táknrænan hátt taka þátt í störf- um á vegum Sameinuðu þjóðanna í lýðveldum fyrrum Júgóslavíu,“ sagði háttsettur embættismaður í sámtali við fréttaritara Morgun- blaðsins í gær. Embættismaðurinn lagði áherslu á að mál þetta væri enn á undirbúningsstigi og að beðið væri nánari upplýsinga frá Noregi. Þá fyrst yrði unnt að ákveða hvort íslendingar gætu tekið þátt í þessu starfi. Sá hinn sami kvaðst ekki geta látið uppi hversu margir lækn- ar og hjúkrunarfræðingar myndu hugsanlega halda til Bosníu en Ing- var Havnen, talsmaður norska ut- anríkisráðuneytisins, sagði að um „fámennan hóp“ væri að ræða. Havnen lét þess getið að norsk stjómvöld hefðu tekið vel í þessa óvenjuleg bón sem borist hefði frá frændum Norðmanna á íslandi. Innan yfirstjórnar herafla Nor- egs hefur þessari beiðni einnig verið vel tekið. StigAIorten Karls- en, talsmaður herstjórnarinnar, sagði í gær að mikilvægt væri að fyrir lægi undir hvaða stjóm ís- lendingarnir heyrðu færi svo að þeir héldu til Bosníu ásamt norsk- um starfsbræðrum sínum. „Við búumst við því að hjúkrunarfólkið verði undir norskri stjóm en að aðgerðunum í heild sinni verði stjómað af Sameinuðu þjóðunum," bætti hann við. Undirbúningur er hafinn í Nor- egi fyrir þátttöku í friðargæslu á vegum Sameinuðu þjóðanna. Innan herstjórnarinnar er stefnt að því að liðsaflinn verði tilbúinn þann 27. þessa mánaðar en þátttaka Norðmanna í friðargæslu á þessum slóðum er þó háð því að viðræður um frið í Bosníu skili árangri. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 2. SEPTEMBER YFIRLIT: Yfir landinu austanverðu er grunn lægð, en yfir Bretlandseyjum er víðáttumikið háþrýstisvæði. Um 600 km suður af Hvarfi er nærri kyrr- staeð 996 mb lægð. SPA: Áfram verður hæg breytileg eða vestlæg átt á landinu. Allviða verður þokusúld úti við sjávarsíðuna. Þó ætti að sjást til sólar í innsveit- um að deginum um landið austanvert og ef til vill víðar. Hiti verður 5 til 9 stig í þokusuddanum, en mun hlýrra að deginum inn til landsins suð- austan og austan til. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG, LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt og hlýtt í veðri. Bjart meö köflum, en hætt við þokusúld öðru hverju við suðvesturströndina og á annesjum í öðrum landshlutum. Nýir veðurfregnatímar: 1.30,,4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22. 30. Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 890600. Heiðskírt / r r / / / / / Rigning & Léttskýjað * / * * / / * / Slydda ■A Hálfskýjað * * * * * * * * Snjókoma Skýjað Alskýjað V ^ V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.4 10° Hitastig Súld Þoka FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær) Þjóðvegir Iandsins eru flestir í góðu ásigkomulagi og greiðfærir. Víða er þó unnið að vegagerð og þurfa vegfarendur að haga akstri sam- kvæmt merkingum þar. Hálendisvegir eru færir fjallabflum, Gæsavatna- og Dyngjufjallaleiðir ennþá ófærar vegna snjóa, sama er að segja um Hrafntinnusker. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í sfma 91-631500 og í grænni linu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 ígær að ísl. tíma hlti veður Akureyri 11 alskýjað Reykjavík 9 súld Bergen 12 skýjað Helslnki 12 skýjaö Kaupmannahöfn 18 léttskýjað Narssarssuaq 17 iéttskýjað Nuuk 6 skýjað Osló 17 skýjað Stokkhólmur 16 skýjað Þórshöfn 12 skýjað Algarve 29 skýjað Amsterdam 17 skýjað Barcelona 26 léttakýjað Berlín 16 alskýjað Chicago 14 léttskýjað Feneyjar 24 léttskýjað Frankfurt 18 hálfskýjað Glasgow 18 skýjað Hamborg 18 léttskýjað London 22 hátfskýjað Los Angeles 18 heiðskírt Lúxemborg 16 skýjað Madríd 28 léttskýjað Malaga 28 hálfskjSað Mallorca 30 léttskýjað Montreal 16 léttskýjað NewYork 24 þokumóða Orlando 24 léttskýjað Parfa 20 léttskýjað Madelra 22 léttskýjað Róm 26 léttskýjað Vín 12 skúr Waehington 24 þokumóða Winnipeg 12 skýjað / DAG kl. 12.00 Heímild: Vefturstofa Islands (Byggt á veðurepá kl. 16.15 í gœr) Magnúsi H. Skarphéðinssyni hótað lífláti 5 metra löng blokkflauta STÆRSTA blokkflauta landsins, og þótt víðar væri leitað, er í smíðum á vinnustofu Stefáns Geirs Karlssonar í Straumi við Straumsvík. Blokk- flautan er fimm metra há og verður einkennistákn sýningar sem Stef- án heldur á verkum sínum í lok vikunnar. Það þarf nokkra nákvæmni við smíði munnstykkisins ef rétti tónninn á að nást og nægilega stór- ir rennibekkir eru ekki á hvetju strái. Einn slíkur fannst þó í skipa- míðastöð í Hafnarfirði og á myndinni sjást Stefán Geir og Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson rennismiður að störfum við munnstykkið. Dauður svanur og hótunarmiði við hurðina DAUÐUR svanur var hengdur við útidyr heima hjá Magnúsi H. Skarp- héðinssyni, baráttumanni fyrir dýrafriðun og náttúruvernd, í fyrrinótt og festur við hræið miði með hótunum í garð Magnúsar. „Þetta er það óþverralegasta sem ég hef séð. Svanurinn er alfriðaður fugl og það er óþarfi að láta hann gjalda þess ef menn hafa eitthvað út á mig að setja," sagði Magnús í samtali við Morgunblaðið. Rannsóknarlögregla ríkisins hefur málið til meðferðar en ekki er vitað hver var að verki. Magnús sagðist hafa komið heim rétt eftir miðnætti og séð þá svaninn hangandi í snöru við innganginn. Þá blæddi enn úr nýdauðu hræinu. Á svaninn var festur miði sem á stóð: „Magnús næst verður þú farinn á sama veg svínið þitt. Hættu þessu nöldri.“ I fyrstu var talið að Kári, mannelski svanurinn við Tjömina, hefði verið drepinn en Magnús hafði í gærmorgun fengið staðfest að svo væri ekki. Að sögn lögreglu virtist sem haus svansins hafi verið slegið við eitthvað og hann þannig drepinn. Hótað í hverri viku Magnús H. Skarphéðinsson sagð- ist ekki óvanur því að verða fyrir hótunum og ónæði. Vikulega eða svo bærust sér hótanir í nafnlausum sím- tölum, brotist hefði verið inn heima hjá sér í sumar til þess eins að skemma og einnig hefði reiðhjól hans verið skemmt þar sem það stóð inni í garði. Fyrir nokkrum árum var maður dæmdur í fangelsi fyrir að reyna að aka Magnús niður á al- mannafæri skömmu eftir að hann hafði opinberlega tekið málstað hval- friðunarsinna. Eins ógeðslegt og hugsast getur „Þetta eru kárínurnar sem maður fær fyrir að draga í efa ýmislegt í siðferði veiðimannasamfélagsins. Ljósmynd/Reynir Baldursson Hengdur á hurðina MAGNÚS H. Skarphéðinsson við svaninn sem var drepinn. Innan um hina klassísku þjóðar- rembu leynist hins vegar óþjóðalýður sem telur það hreingemingu að „láta fólk eins og mig hafa það“. Menn geta hringt í mig og rifið kjaft und- ir nafni en þetta er ógeðslegt - eins ógeðslegt og hugsast getur,“ sagði Magnús. Postur og simi tekur gamla síma upp í nýja Tónvalssímum fjölgað PÓSTUR og sími býður nú viðskiptavinum sínum að skipta gömlum símum upp í nýja Bang & Olufsen síma,. Tilboðið gildir út september eða á meðan birgðir endast og segir Ársæll Baldursson, deildarvið- skiptafræðingnr í markaðsdeild Pósts og síma, að gott sé fyrir nýja stafræna símakerfið að fjölga tónvalssímum. Ársæll segir að vilji fólk geta nýtt dag,“ segir Ársæll. sér alla þá þjónustu sem stafræna kerfið bjóði upp á þurfi fólk að hafa tónvalssíma. „Flestir gömlu símamir eru púlsvalssímar og með þeim er ekki hægt að notfæra sér alla þessa nýju þjónustu. Þetta er því liður í því að skipta út gömlum símum og að fólk fái sér nýja síma, sem virka betur fyrir kerfið eins og það er í Hann segir að þetta sé reynt þar sem slík skipti séu algeng í sam- bandi við ýmiss konar tæki. Gamlir símar verða teknir sem 2.000 kr. greiðsla upp í nýjan síma. Ársæll segist búast við að gömlum símum, sem skipt verði út fyrir nýja, verði fargað þar sem engin not séu íengur fyrir þá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.