Morgunblaðið - 02.09.1993, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993
25
Afríka að baki
FFYONA Campbell, 26 ára gömul, skosk kona, kom í gær til Tangier
í Marokkó og hafði þá lokið fyrst kvenna við að ganga eftir Afríku
endilangri, frá suðri til norðurs. Lagði hún upp frá Höfðaborg fyrir 38
mánuðum og lá leiðin í gegnum 13 ríki. Hér fagnar hún að ferðalokum
með því að busla í Miðjarðarhafinu.
Short um Kasparov heimsmeistara
„Allir vita að
liann er meira
en lítið loðinn“
London. Reuter.
BRESKI stórmeistarinn Nigel Short fór í gær hörðum orðum um
Garrí Kasparov, heimsmeistara í skák, og sakaði hann um að reyna
að fela sína kommúnísku fortíð. í næstu viku munu þeir byrja að tak-
ast á um titilinn í einvígi, sem þeir standa einir að, en ljóst er, að þeir
eru engir vinir, jafnvel hatursmenn að sumra sögn.
Short sagði á
blaðamanna-
fundi, að vissu-
lega væru þeir
engir vinir, hann
og Kasparov.
„Þegar hann bjó
í Azerbajdzhan
var hann undir
verndarvæng
KGB-foringjans
Gaidars Alijevs
og naut allra þeirra fríðinda, sem
því fylgdi. Kasparov hefur ekkert
verið að halda þessu á loft en hann
gerðist félagi í kommúnistaflokkn-
um strax á unga aldri,“ sagði Short
og sl. sunnudag sagði hann, að sov-
éska öryggislögreglan, KGB, hefði
kennt Kasparov ýmsar aðferðir við
að hrella andstæðinginn við skák-
borðið.
Short og Kasparov skipulögðu sitt
eigið heimsmeistaraeinvígi í óþökk
FIDE, Alþjóðaskáksambandsins,
sem svaraði fyrir sig með því að
svipta Kasparov heimsmeistaratitl-
inum. Hafa þeir stofnað sjálfstæð
samtök atvinnuskákmanna en 24
skáka einvígi þeirra hefst í leikhúsi
í London á þriðjudag. Það er dag-
blaðið The Times, sem annast það
og verðlaunaféð er um 180 milljónir
kr.
Kasparov með fund í dag
Kasparov, sem teflir nú fyrir
Rússland og er mikill stuðningsmað-
ur Borísar Jeltsíns forseta, ætlar að
halda blaðamannafund í London í
dag. Hann segist ekki draga neina
dul á tengsl sín við Alijev og komm-
únistaflokkinn áður fyrr en leggur
áherslu á, að sú tíð sé löngu liðin.
INNHVERF
IHUGUN
Kynningarfyrirlestur
verður haldinn í kvöld,
fimmtudag, kl.20.00.
á Laugavegi 84 (3.hæð)
Aðgangur ókeypis
íslenska íhugunarfélagið
sími: 16662
Einu sinni kallaði Short Kasparov
„bavíana" og sagði.að hann væri
„langt í frá eðlileg manneskja" og
á blaðamannafundinum í gær var
hann spurður hvort hann stæði við
þá lýsingu.
„Allir, sem séð hafa Kasparov á
sundlaugarbarminum, vita, að hann
er meira en lítið loðinn. Ég man
eftir norskum stúlkum, sem kölluðu
hann alltaf „teppið" sín í rnilli," svar-
aði Short.
ESAB
RÉTTUR
RAFSUÐUVÍR
Eitt mikilvægasta atriði varð-
andi rafsuðu er að velja rétta
gerð rafsuðuvírs. Til að ná
hámarks gæðum við suðu er
nauðsynlegt að velja vírinn
með tilliti til efnis og
aðstæðna.
Við eigum ávallt á lager mikið
úrval rafsuðuvíra, bæði
pinnavíra, gegnheila rúlluvíra
og duftfyllta rúlluvira fyrir
flesta málma og aðstæður.
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 624260
t i I b o d
bókabúdu
Bóksalar sem bjóða
BÓK MÁNAÐARINS
Ástund
Bókabúð Lárusar Blöndal
Mál og menning
Embla
Bókabúðin Grafarvogi
Kilja
Bókahomið
Bókbær
Eymundsson
Hagkaup
Hugborg
Bóksala stúdenta
Penninn
Veda
Gríma
Bókabúð Olivers Steins
Bókabúð Keflavíkur
Nesbók
Bókabúð Grindavíkur
Bókav. Andrésar Níelssonar
Bókaskemman
Kaupfélag Borgfirðinga
Verslunin Gimli
Jón A. Guðmundsson
Bókav. Jóns Eyjólfssonar
Bókav. Bjama Eiríkssonar
Bókav. Jónasar Tómassonar
Verslun Þuríðar Sæmundsen
Kaupfélag Húnvetninga
Bókabúð Brynjars
Verslunin Sogn
Bókabúð Jónasar
Möppudýrið
Tölvutæki - Bókval
Bókav. Þórarins Stefánssonar
Rannveig H. Ólafsdóttir
Bókabúðin Urð
Bókav. Ásgríms Jónssonar
Kaupfélag Héraðsbúa
Bókabúðin Hlöðum
Bókav. Ara Bogasonar
Bókav. Brynjars Júlíussonar
Pöntunarfélag Eskifjarðar
Bókav. Guðmundar
Bjömssonar
Kaupfélag A-Skaftfellinga
> Bókabúð Svavars
: Bókabúðin Vestmannaeyjum
; Kaupfélag Árnesinga
‘ Úlfarsfell
Tvær bækur f elnnl bók
Það sem máH sklptfr
- Orðabok ásMnar
Þessi fræðandi og fjöruga bók fjallar um ástina,
tilfinningar og kynlíf ungs fólks. Óvenju nærfærin
umfjöllun um hina Ijúfsáru leið æskunnar til þroska og
fullorðinsára. Og hér bjóðast tvær
bækur í einni, því þegar bókinni er
snúið við birtist Orðabók ástarinnar
sem hefur að geyma um 800
uppflettiorð er tengjast kynlífinu og
sögu þess.
Góð ieiðsögn fyrir ungt fólk á
ástarbraut eftir Óttar Guðmundsson
lækni og Ernu Einarsdóttur hjúkrunarfræðing.
F O R
/V G I
O G M E N N I N G