Morgunblaðið - 02.09.1993, Side 10

Morgunblaðið - 02.09.1993, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993 Leikhópurinn Augnablik Júlía og Mánafólkið Islenskt barna- og fjölskylduleikrit LEIKHOPURINN Augnablik frumsýnir 5. september, nýtt ís- lenskt barna- og fjölskylduleikrit sem heitir Júlía og Mánafólkið. Leikritið er samið sérstaklega fyrir Augnablik af Karli Aspe- lund og Friðriki Erlingssyni. Leikhópurinn Augnablik vakti athygli á síðasta ári með uppsetn- ingu sinni á sögunni um Dimma- limm og var m.a. boðið með þá sýningu á samnorræna barna- og unglingaleiklistarhátíð í Kristian- sand í Noregi í júní sl. og hlaut Iof áhorfenda og gagnrýnenda. Júlía og Mánafólkið segir frá stúlkunni Júlíu sem vakin er upp eina tunglskinsbjarta nótt af undar- Myndlista- og handíðaskóli Islands Flytur í hús Listaháskóla MYNDLISTA- og handíðaskóli Islands hefur flutt hluta starf- semi sinnar í nýtt húsnæði lista- skólanna í Laugarnesi. Skólinn var því í fyrsta sinn settur i nýju húsnæði væntanlegs Listahá- skóla í gær, miðvikudaginn 1. september, með ávarpi mennta- málaráðherra, Ólafs G. Einars- sonar. Myndlista- og handíðaskóli ís- lands var stofnaður árið 1939, en hefur verið starfræktur í Skipholti 1 frá árinu 1956. Um helmingur nemenda skólans, um 100 manns, verður í nýja húsnæðinu skólaárið sem nú fer í hönd. Þetta fólk er í þrem deildum; skúlptúr, málun og fjöltæknideild. Ekki hefur verið ákveðið hvernig húsnæðinu verður skipt niður í framtíðinni og er því flutt inn nú til bráðabirgða. Keramikdeild, textíldeild, grafík og grafísk hönnun verða auk skrifstofu skólans áfram í Skipholti. legri veru sem segist heita Andvari og vera einn af Mánafólkinu. Hann biður hana að fara í langan leiðang- ur og finna brotin af Mánaflautunni sem höfuðskepnurnar, Loft, Vatn, Eldur og Jörð, hafa brotið í fjóra hluta. Mánaflautan er merkisgripur því með því að leika Mánalagið á flautuna getur Mánafólkið hreinsað hjörtu mannanna og fyllt þau gleði og kærleika. Nú er illa komið fyrir Mánafólkinu því það er allt lagst í eilífan dvala nema þessi eini. Og Júlía hefur stuttan tíma, aðeins eitt tungl, til þess að endurheimta brot- in af flautunni svo Mánafólkið geti látið Mánalagið hljóma aftur í ver- öldinni. Augnablik eru þær Ásta Arnar- dóttir, Harpa Arnardóttir og Kristín Guðmundsdóttir, flautuleikari, en hún semur tónlistina í leikritinu og útfærir leikhljóð. Fyrir þessa upp- setningu fengu þær til liðs við sig leikarana Björn Inga Hilmarsson, Erling Jóhanneson og Báru Lyng- dal Magnúsdóttur. Leikmynd og búningar eru hannaðir af Karli Aspelund, en Nína Njálsdóttir og Indriði Guðmundsson saumuðu búninga og Björg Vilhjálmsdóttir aðstoðaði við hönnun og gerð leik- myndar. Júlía og Mánafólkið verður fyrsta frumsýningin í nýju húsnæði leik- húss Frú Emilíu í Héðinshúsinu, Seljavegi 2, 2. hæð. Sýningin tekur um 50 mínútur í flutningi og verður sýnd fyrir og eftir hádegi virka daga, en einnig er boðið uppá sér- stakar foreldrasýningar á laugar- dögum og sunnudögum. Miðaverð er kr. 700. Miðapantanir og allar nánari upplýsingar eru í sima Augnabliks 21163 og í miðasölu Frú Emilíu 12233. (Fréttatilkynning) Japanskur kór syngur íslensk lög Japanskur söngkór, „Nordic Choral Society of Japan“, heldur tónleika í Norræna húsinu á morgun, föstudag- inn 3. september. Kórinn fór um Norð- urlönd fyrir tuttugu og fimm árum og aftur árið 1974, en þetta er í fyrsta skipti sem kórinn kemur til íslands. Kórinn var stofnaður árið 1962 og er hann skipaður jafnt atvinnu- sem leikmönnum. Fyrstu árin einbeitti kór- inn sér að sænskum lögum, en síðar hafa lög frá hinum Norðuriöndunum bæst á söngskrána. Norrænu lögin syngur kórinn á frummálinu en þó kemur fyrir að sum þeirra séu flutt fyrir japanska áheyr- endur í japanskri þýðingu. Meðal ann- arra hefur japanska keisarayrtjan þýtt fyrir hann finnska vísu, „Anninn laulu“. Stofnandi og stjómandi kórsins, Shozo Ohtsuka, er fæddur árið 1926. Hann hóf nám í viðskiptafræði, en þegar hann horfði upp á marga jafn- aldra sína falla á vígvöllum seinni heimsstyijaldar ákvað hann að snúa sér alfarið að tónlist. A dagskrá „Nordic Choral Soeiety of Japan" verða nokkur íslensk lög, þar á meðal úr Völuspá, „Haustvísur til Máríu“ eftir Atla Heimi Sveinsson, „Ég að öllurn" í útsetningu Hallgríms Helgasonar og „Heyr himna smiður“ eftir Þorkel Sigurbjömsson. Tónleikarnir heijast kl. 20. Að- gangseyrir er 500 kr. Ljóðlist Fimm skald syna a Mokka Á Mokka við Skólavörðustíg stendur nú yfir sýning á handritum fimm ijóð- skáida, þeirra Braga ólafssonar, Elísa- betar Jökulsdóttur, Kristínar Ómars- dóttur, Sjóns og Valgarðs Bragasonar. Hvert þeirra sýnir eitt eða fleiri ljóð, allan ferilinn frá þv[ að það er verður til sem athugasemd í vasabók, eða rifr- ildi af pappír, þangað til það er full- gert og hæft til birtingar. Sýningin stendur til 12. september og er opin á sama tíma og kaffihúsið. Ljóðaupplestur á Café au lait í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 9-9.30 hefst röð ljóðaupplestra á veg- um bókaútgáfunnar Hringskugga og verða þeir einu sinni í mánuði á Café au lait. Fyrstu skáldin sem kynna verk sín eru Páll Biering og Birgir Svan. Páll les úr sinni fyrstu bók sem brátt mun koma út á prenti. Birgir Svan les einn- ig úr óútkominni ljóðabók, sem verður sú ttunda frá hendi höfundar. Myndlist Myndlistarsymng 1 Eden Markús Sigurðs- son sýnir olíumál- verk í Eden í Hveragerði dagana 30. ágúst til 13. september. Þetta er hans fyrsta sýning. Síðasti sýningardagur Ingu S. Ragnarsdóttur Skúlptúrsýningu Ingu S. Ragnars- dóttur í Galleríi einn einn lýkur í dag, fimmtudag. Sýningin er opin frá kl. 14 til 18. Á sýningunni eru verk frá þessu ári og aðalefni þeirra eru þak- rennur, bárujám og litaður stúkk- marmari sem hún tengir á sinn hátt íslensku umhverfi. Stefán Geir sýnir í Galleríi Sævars Karls Stefán Geir Karlsson sýnir í Galleríi Sævars Karls, Bankastræti 9, 3.-22. september 1993. Hann er fæddur á Fáskrúðsfirði 1945, fluttist til Kefla- víkur 1949 og ólst þar upp. Hann lauk meistaraprófi f plötu- og ketilsmíði 1978 og útskrifaðist sem skipatækni- fræðingur frá Helsingjaeyrar-tækni- skólanum 1973. _ Stefán Geir tók þátt í samsýningum FÍM 1979, ’80 og ’81, hélt einkasýn- ingu í áningarskála Hafsteins Sveins- sonar í Viðey 1987 og í Galleríi einn einn 1991. Hann smíðaði skúiptúr, stærsta herðatré í heimi, sem skráð var í Heimsmetabók Guinnes 1989. Á sýningunni hjá Sævari Karli verða tréskúlptúrar, allt æskuminningar, sér- staklega frá uppvaxtarárum Stefáns í Keflavík. Heimsins stærsta blokkflauta verður reist fyrir utan verslunina. Sýningin er opin á verslunartíma á virkum dög- um frá kl. 10-18. Sýningin Listalíf framlengd um viku Vegna íjölda áskoranna hefur verið ákveðið að framlengja sýninguna Listalíf í Kringlunni um eina viku, eða til 7. september. Þar sýnir Tolli sín nýjustu verk. Af þessu tilefni mun hann vera í Kringlunni seinni partinn f dag, fimmtudag, og á morgun, föstu- dag, milli kl. 16 og 18 og spjalla við sýningargesti, en á laugardaginn kl. 14 mun gítarleikarinn Símon Ivarsson spila þar klassíska gítartónlist. Um helgina verða danskynningar í Kringlunni, en á föstudag verður dans- skóli Auðar Haralds með kynningu og á laugardag munu einnig tveir dans- skólar kynna starfsemi sína í Kringl- unni, en það eru dansskóli Jóns Péturs og Köru og Danssmiðjan. Fyrirlestur Fynrlestur um „situ- ationista“ Roberto Ohrt mun um ræða um verk „situationista” í sögulegu sam- hengi með áherslu á aðferðir og fagur- fræði í skrifum þeirra og verkum í dag, fimmtudaginn 2. september, í Nýlistasafninu. Síðan mun Diedrich Diedrichsen íjalla um svipaðar hug- myndir í hip-hop-tónlist og „sampling”- tækni nátengdri henni, en klippitækni „situationista” er f rauninni af sama meiði. Fyrirlesturinn er í tengslum við sýninguna Situation ’93 sem nú stend- ur yfir í Nýlistasafninu við Vatnsstíg. Roberto Ohrt býr í Hamborg og skrifaði bókina „Phantom Avantgarde” um „situationista” 1990 auk þess sem hann birtir reglulega greinar í tímarit- inu „Texte zur Kunst” sem er gefið út í Köln. Diedrich Diedrichsen er rit- stjóri tímaritsins „Spex“ sem fjallar úm nýja strauma og stefnur í tónlist, bókmenntum og stjórnmálum. Fyrirlesturinn hefst stundvíslega 2. september kl. 18 og er hann öllum opinn. MENNING/LISTIR Tónlist Eguenia Ratti Eugenia Ratti held- ur söngnámskeið ÍTALSKA söngkonan og söng- kennarinn Eugenia Ratti heldur námskeið fyrir söngvara og söngnema í Reykjavík sem hefst 2. október og er um einkatima að ræða. Hún kemur hingað á vegum Jóhönnu G. Möller söng- konu. Ratti er þekkt í heimalandi sínu og víðar, bæði sem söngkona og söngkennari og söng á sínum tíma við Scala-óperuna í Mílanó og í óperuhúsum víða um heim. Hún starfar nú sem prófessor við tónlist- arháskólann Giuseppi Nicolini í Piacenza og tónlistarskólanum Mario Mangia í Fiorenzuola d’Arda (Pc). Kennslugrein hennar er, auk raddþjálfunar, túlkun á leiksviði. Eugenia Ratti kemur hingað til námskeiðahalds í 9. skipti og í 5. skipti á vegum Jóhönnu G. Möller. Eru þeir ófáir íslensku söngvararn- ir sem notið hafa leiðsagnar hennar á þessum námskeiðum, auk þess sem margir Islendingar hafa stund- að nám hjá henni á Ítalíu. Harry Schemm. Harry Schemm á Eyrarbakka HARRY Schemm er þýskur myndlistarmaður frá Niirnberg sem opnar sýningu á verkum sínum á morgun, 3. september, í menning- armiðstöðinni á Eyrarbakka, gamla barnaskólanum. Hann er á eins árs ferðalagi um hnöttinn og hefur þegar verið á Indlandi, Grikk- landi, í Berlín og París. Frá Eyrarbakka heldur hann til Fílabeins- strandarinnar í Afríku. Hann aðhyllist svokallaða utandyramálun (Plein-air). Hvar sem hann kemur setur hann upp trönur sínar úti við og málar það sem fyrir augun ber, rétt eins og tíðkaðist áður en stefnur eins og afstraktið, konseptið og naumhyggjan tóku völd. Schemm segir að þetta aftur- hvarf til fortíðar megi skilja sem hógvær mótmæli gegn nútmímalist- inni sem hafi tekið á sig býsna gáfulegt yfirbragð. Stundum finnist manni vanta kjarnann í hinar glæsi- legu umbúðir. Inntakið verður óljóst, eins og verkin séu helst sköp- uð til að gefa listgagnrýnendum tækifæri til að sanna gáfur sínar. Það hefur gleymst um skeið að list- in á líka að koma frá hjartanu. Allir vilja setja fram eitthvað nýtt, en ekkert er nýtt undir sól- inni, allt er endurtekning. Svo vinn ég upp á gamla móðinn, utandyra, á götum úti. Vegfarendur sýna mér áhuga, koma og fylgjast með því hvernig mér vinnst, gefa góð ráð. Þannig skapast eins konar gjörn- ingur (performance) úr samskiptum málarans og áhorfenda. Harry Schemm hefur vakið at- hygli í heimalandi sínu og sýnt víða, svo sem í Kunsthalle Núrnberg, Galerie Loft, Köln, Galerie das Dasein an sich, Berlín, Goetheinsti- tut, Búdapest og víðar. Hann hefur unnið með listamönnum eins og Peter Angermann (nemanda Jos- ephs Beuys) sem ýmsir munu minn- ast frá því hann kom hingað árið 1983, kenndi og hélt sýningu í Nýlistasafninu. Sýningin á Eyrarbakka stendur til 12. september.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.