Morgunblaðið - 02.09.1993, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993
13
$ SUZUKI
■-.............
SUZUKI BÍLAR HF
SKEIFUNNI 17 SÍMI 68 51 00
Komið og reynsluakið þessum vinsæla jeppa
- Nð verðið ekki fyrir vonbrigðum
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Sæstrengsriddarar
og hálendi Islands
eftirJón Viðar
Sigurðsson
Umræða um útflutning raforku
frá íslandi til Evrópu um rafstreng
hefur verið töluverð að undanförnu.
Margir hafa haft eitthvað til mál-
anna að leggja. Ýmist eru það aðil-
ar sem hafa tjáð sig um tæknileg
atriði er varða flutning raforkunnar
um sæstreng eða þá þeir sem virð-
ast leggja allt kapp á að gera ís-
land að hráefnisnýlendu. Þessir að-
ilar bera hag Evrópu fyrir brjósti
og vilja nýta auðlindir landsins til
þess að geta fært Evrópubúum
„hreina“ raforku. Menn hafa keppst
um að bendla nafn sitt við þennan
mikla framtíðardraum íslendinga
og jafnvel pólitíkusar eru farnir að
skipuleggja verksmiðju til að fram-
leiða og græða á að selja sjálfum
sér sæstreng. Helstu frammámenn
orkumála á Islandi eru einnig farn-
ir að tala um nauðsyn þess að
hleypa væntanlegum kaupendum,
hinnar „hreinu“ raforku, í auðlindir
landsins og láta þá íjármagna þær
virkjanir sem nauðsynlegt er að
reisa vegna útflutningsins.
Það virðist sem að orkumál og
skynsemi fari ekki alltaf saman á
Islandi eins og dæmin sanna og
nægir þar að benda á virkjun
Kröflu, Blönduvirkjun sem fram-
leiðir raforku sem engir kaupendur
eru að og skuldir Landsvirkjunar
Kripalujéga
Jóga fyrir eldri borgora hefst ó. sept. Kennt
ó món. ogfim. kl. 10.30-11.30.
Kennari: Huldo 6. Sigurðordóttir.
Hulda gefur uppl. í sima 675610 eftir kl. 19.
Næstu byrjendanómskeió verða: 13. sept.
món. og mið. kl. 20.00-21.30.
14. sept. þri. og fim. kl. 17.15-18.45.
20. sept. món. og mið. kl. 16.30-18.00.
Kynningarkvöld verður mónudaginn 6. sept.
kl. 20. Allir velkomnir.
Skeifunni 19,2. hæð, s. 679181 (kl. 17-19).
sem eru hvorki meiri né minni en
48 milljarðar. Þessu virðast menn
gleyma um leið og þeir hringsnúast
í sæstrengsdraumnum. Það alvar-
lega er að þetta eru ekki bara ein-
hveijir valdalausir draumóramenn
heldur eru hér á ferðinni menn í
æðstu stöðum sem væntanlega
munu taka ákvarðanir um hvort
ráðist verður í að flytja raforku
héðan um sæstreng.
Eitt er það mál sem útundan
hefur orðið í allri umræðunni um
útflutning raforku og það ekki svo
lítilvægt. Það eru þær fórnir sem
náttúra hálendis Islands þarf að
færa til þess að draumar sæstrengs-
riddaranna geti orðið að veruleika.
Það er nefnilega ekki nóg að fram-
leiða sæstreng og leggja yfir hafið.
Raforkan verður ekki til að sjálfu
sér.
Menn virðast ekki gera sér
nokkra grein fyrir því hversu mikl-
ar þessar fórnir verða ef af verður.
Hugmyndir eru uppi um að útflutn-
ingurinn nemi um eða yfir 1000
MW en til þess að framleiða svo
mikla raforku þarf að koma til stór-
felldra virkjunarframkvæmda. Nú
þegar eru virkjanir Landsvirkjunar
farnar að taka mikinn toll og benda
má á þau umhverfis- og landspjöll
sem næstu virkjun, Fljótsdalsvirkj-
un, fylgir. Samfara þeirri virkjun
verður lögð háspennulína yfír við-
kvæma náttúru Odáðahrauns, einn-
ig yfir Sprengisand, stór hluti Eyja-
bakkasvæðisins hverfur undir lón
og stórfenglegir fossar eins og
Kirkjufoss þorna að mestu upp.
Talað er um að afla mest af þeirri
raforku, sem flytja á út um sæ-
streng, á hálendinu norðan Vatna-
jökuls. Sæstrengsriddararnir tala
jafnvel stoltir um að veita Jökulsá
á Fjöllum og Jökulsá á Dal yfir í
Fljótsdal og fínnst ekkert til þess
koma þótt ráðskast sé með einn af
þjóðgörðum landsins, Jökulsárgljúf-
ur, en Dettifoss er einmitt innan
þess þjóðgarðs. Stíflur, uppistöðu-
lón, skurðir, háspennulínur og fleiri
slík mannvirki virðast ekkert til-
Kirkjufoss í Jökulsá í Fljótsdal.
„Eitt er það mál sem
útundan hefur orðið í
allri umræðunni um út-
flutning raforku og það
ekki svo lítilvægt. Það
eru þær fórnir sem
náttúra hálendis Is-
lands þarf að færa til
þess að draumar sæ-
strengsriddaranna geti
orðið að veruleika.“
tökumál á hálendi íslands enda á
að færa Evrópubúum „hreina“ raf-
orku. Vissulega yrði þetta til að
draga örlítið úr mengun samfara
raforkuframleiðslu í landi kaupand-
ans en í staðinn kemur mengunin
á hálendi íslands í formi mann-
virkja og rasks sem þeim fylgir.
Sæstrengsriddararnir virðast ekki
hafa tilfinningu fyrir náttúru há-
lendisins og eru tilbúnir að fórna
henni fyrir peningaseðla frá Evr-
ópu. Væntanlega til að greiða niður
skuldir Landsvirkjunar.
Sem betur fer eru íslendingar í
sífellt auknum mæli að gera sér
grein fyrir verðmæti ósnortinnar
náttúru hálendisins. Ekki bara
vegna þess að slíkum svæðum fer
ört fækkandi heldur líka vegna
þeirra ferðamanna sem gera sér
grein fyrir verðmæti svæðanna og
sækja þau heim.
Sá tími fer að koma að íslending-
ar þurfa að svara þeirri spurningu
hvort þeir vilji fórna stórum hluta
af ómetanlegri náttúru hálendisins
til þess eins að geta fært nokkrum
Evrópubúum „hreina“ raforku.
Vonandi bera íslendingar gæfu til
að falla frá draumórahugmyndum
sem þessum og óskandi er að orkú-
málastjóri, forstjóri Landsvirkjunar
og aðrir sæstrengsriddarar snúi sér
að hugmyndum um skynsamlega
nýtingu auðlindanna.
Höfundur er jarðfræðingur.
Nvjung í bílaviðskiptum
SUZUKIVITARA
með 4ra ára lánakjörum
SUZUKI VITARA
fæst nú á betri kjörum en nokkru sinni fyrr. Útborgun 25% af kaupverði og
eftirstöðvar lánaðar með mánaðarlegum greiðslum í 48 mánuði.
SUZUKI VITARA
fæst 3ja eða 5 dyra með vali um beinskiptingu eða sjálfskiptingu.
Verð frá kr. 1.985.000 (3ja dyra JLXi/beinskiptur)
DU PONT bflalakk notað af
fagmönnum um land allt.
Er bfllinn þinn
grjótbarinn eða
rispaður ?
DU PONT lakk
á úðabrúsa er
meðfærilegt og
endingargott.
oöííSca !
Faxafeni 12. Sími 38 000