Morgunblaðið - 02.09.1993, Síða 48
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993
48
IÞROTTIR UNGLINGA / KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/frosti
•^Breiðablik - íslandsmeistari í 2. flokki kvenna. Fremri röð frá vinstri: Guðríður Svana Bjarnadóttir, Díana Guðlaug
Arnfjörð Kristjánsdóttir, Sunna Guðmundsdóttir, Erla Hendriksdóttir, Hjördís Símonardóttir, Ragnhildur Sveinsdóttir,
Margrét R. Ólafsdóttir fyrirliði, Helena Magnúsdóttir, Kristborg Þórsdóttir og Agnes Þorvaldsdóttir. Aftari röð frá vinstri:
Ámi Guðmundsson form. knattspyrnudeildar, Jón Óttarr Karlsson þjálfari, Sara Dögg Ólafsdóttir, Fanney Kristmannsdótt-
ir, Birna Aubertsdóttir, Katrín Jónsdóttir, Helga Ósk Hannesdóttir, Hildur Ólafsdóttir, Sóley Stefánsdóttir og Ingibjörg
Hinriksdóttir form. mfl.ráðs kvenna.
Morgunblaðið/FVosti
Fram - íslandsmeistari í 4. flokki karla. Fremri röð frá vinstri: Viðar Guðjónsson, Björgvin Aðalsteinsson, Egill Skúla-
son, Símon Gísli Símonarson, Andrés Jónsson fyrirliði, Daníel Bjarnason, Finnur Bjarnason, Bjarni Þór Pétursson, Haukur
Snær Hauksson. Aftari röð frá vinstri: Helga ívarsdóttir, Lárus Grétarsson þjálfari, Vilhelm Sveinn Sigurðsson, Daði Örn
Torfason, Eggert Stefánsson, Baldur Karlsson, Erlendur Sigurðsson, Freyr Karlsson, Sigurðúr Óli Sigurðsson, Brynjólfur
. Hjartarson, Gunnlaúgur Þorgeirsson og Ragnar Ingólfsson.
Morgunblaðið/Frosti
ÍBK - íslandsmeistari í 5. flokki karla. Fremsta röð frá vinstri: Björn Isberg Björnsson, Helgi Þór Gunnarsson, Magnús
Sverrir Þorsteinsson, Haraldur Á. Einarsson, Hólmar Örn Rúnarsson, Daníel Ómar Frímannsson, Gunnar Örn Ástráðsson
og Skúli Rúnar Reynisson. Miðröð frá vinstri: Aðalgeir Pétursson, Davíð Bragi Konráðsson, Georg Sigurðsson, Kristinn
Jón Ólafsson, Sigurður Markús Grétarsson, Halldór Henry Ásmundsson, Brynjar Örn Guðmundsson og Grétar Gíslason.
Aftasta röð frá vinstri: Einar Haraldsson aðst.þjálfari, Sævar Gunnarsson, Sæmundur J. Oddsson, Ömar Jóhannsson,
Hákon Svanur Magnússon, Gísli Rúnar Einarsson, Haraldur Freyr Guðmundsson og Velimir þjálfari.
Keflvfldngar unnu
Valsmenn í 5. flokki
KEFLVÍKINGAR urðu íslands-
meistarar í 5. flokki drengja
með því að leggja Val að velli
á Njarðvíkurvelli sl. laugar-
dag. ÍBK sigraði í leik b-lið-
anna 5:2 og jafnt varð í leik
A-liðanna 2:2 og það dugði
ÍBK til sigurs.
Keflavíkurliðið varð fyrra til að
skora í leik A-liðanna með
marki Gunnars Arnar Ástráðssonar
og ÍBK hafði því forystu í leikhléi.
I síðari hálfleik jafnaði Gunnar Jóns-
son leikinn og Elvar Lúðvík Guðjóns-
son náði forystunni fyrir Val 2:1
þegar skammt var til leiksloka. Þau
úrslit hefðu dUgað Vals til sigurs á
mótinu þar sem þrjú stig eru gefin
fyrir sigur í A-leik en aðeins tvö í
leik b-liðanna. Gunnar Örn bjargaði
hins vegar öðru stiginu, - og titlinum
fyrir ÍBK þegar hann jafnaði á loka-
mínútunum. ÍBK var mun spræk-
ara liðið í leik B-liðanna og fékk
hættulegri marktækifæri. Magnús
Þorsteinsson skoraði þrennu fyrir
ÍBK í þeim leik og þeir Sæmundur
J. Oddsson og Georg Sigurðsson sitt
hvort markið. Fyrir Val skoruðu þeir
Róbert Óli Skúlason og Andri Elvar
Guðmundsson.
„Ijálfarinri sagði að við ættum að
halda okkar hlut og ekkert að gefa
eftir. Við gerðum það, misstum reynd-
ar leikinn aðeins niður í síðari hálf-
leiknum en náðum að jafna í lokin
og það var það sem skipti máli,“ sagði
Hólmar Öm Rúnarsson, kampakátur
leikmaður Keflvíkinga. „Við sóttum
okkur þegar á leikinn leið en lékum
allt of mikinn vamarleik eftir að við
skoruðum seinna markið,“ sagði
Markús Máni Mikaelsson, markvörð-
ur A-Iiðs hjá Val eftir leikinn.
Tapið gegn ÍBV
kom okkur
niður á jörðina
sagði Katrín Jónsdóttir eftir sigur UBK í 2. flokki
„ÉG held að tapið gegn ÍBV f
síðasta leiknum í riðlakeppn-
inni hafi komið okkur niður á
jörðina. Að minnsta kosti vor-
um við mjög sannfærandi í úr-
slitakeppninni og fengum ekki
mark á okkur," sagði Katrín
Jónsdóttir úr 2. flokki Breiða-
bliks eftir að sigurinn á íslands-
mótinu var íhöfn.
Akranes sem tefldi fram ungu
liði með aðeins eina stúlku á
elsta ári var aldrei líklegt til að
Úrslit leikja í úrslitakeppni 2. flokks
sem haldin var á Tungubökkum í Mos-
fellsbæ um síðustu helgi. \
1. RIÐILL
ÍA - Stjaman...............3:2
Stjarnan - ÍBA.............4:0
ÍBA-ÍA.....................2:3
2. RIÐILL
UBK-KR.....................2:0
KR-UMFA....................8:1
UMFA-UBK..................0:13
Leikir um sæti:
5-6. ÍBA-UMFA..............4:4
3-4. KR - Stjarnan.........5:1
1-2. UBK - IA..............5:0
veita Blikunum keppni.
„Við vissum að þær eru sterkar
en náðum einfaldlega ekki taki á
þeim og við vorum ekki nógu
grimmar,“ sagði Áslaug Ákadóttir
hjá ÍA eftir leikinn.
Margrét Ólafsdóttir, og Erla
Hendriksdóttir skoruðu fyrir Blika
í fyrri hálfleiknum og í þeim síðari
bættu þær grænklæddu við þremur
mörkum. Hjördís Símonardóttir,
Hildur Ólafsdóttir og Katrín Jóns-
dóttir og lokatölur því 5:0. KR-
stúlkurnar veittu Blikum mesta
keppni á mótinu en leik liðanna í
riðlakeppninni lyktaði með 2:0 sigri
UBK.
UBK: Ragnhildur Sveinsdóttir - Helena
Magnúsdóttir, Birna Aubertsdóttir, Sunna
Guðmundsdóttir - Helga Ósk Hannesdóttir,
Erla Hendriksdóttir, Margrét Ólafsdóttir,
Katrín Jónsdóttir, Hjördís Símonardóttir -
Hildur Ólafsdóttir, Kristborg Þórsdóttir.
ÍA: Alda Róbertsdóttir : Áslaug Ákadóttir,
Sara Kristófersdóttir, írena Óskarsdóttir,
Karen Lind Ólafsdóttir - Kristín Ósk Hall-
dórsdóttir, Guðrún Sigursteinsdóttir, Brynja
Pétursdóttir, Sigrún Hallgrímsd., Anna Sól-
veig Smárad. - Valdís Sigurvinsd.
Morgunblaðið/Frosti
Katrín Jónsdóttir Breiðablik og Áslaug Ákadóttir úr ÍA eigast við í úrslita-
leik liðanna í 2. flokki. Þær eru dætur þjálfaranna Jóns Óttars Karlssonar og
Áka Jónssonar.
FOLK
■ LIÐ KA sem lék til úrslita i
4. flokki gegn Fram er að mestu
skipað íslandsmeisturum í hand-
knattleik en 13 af 16 leikmönnum
liðsins unnu íslandsmeistaratitla
með fjórða eða fimmta flokki KA
sl. vor. Jóhannes Bjarnason sem
þjálfar liðið í knattspyrnunni er
einnig með þá í handknattleiknum
og ætti því að þekkja vel til piltanna.
■ ERLENDVR Sigvrðssonsem
skoraði síðara mark Fram gegn
KA í 4. flokki ætlaði að hætta að
æfa knattspyrnu í vetur. Lárus
Grétarsson, þjálfari Fram fékk
hann til að byrja að æfa með Fram
en Erlendur lék áður með Fylki.
■ SÓKNARMENN FRAM þeir
Haukur Hauksson og Finnur
Bjarnason hafa samtals skorað 80
rnörk'í opinberum leikjum með 4.
flokki Fram í sumar. Þeir hafa báð-
ir misnotað vítaspyrnur eins og
fleiri leikmenn liðsins en Fram hef-
ur fengið níu vítaspyrnur í sumar
en aðeins skorað úr þremur þeirra.
■ BRÆÐURNIR Steinar og
Árni Guðmundssynir úr Val leika
báðir til úrslita á íslandsmóti en
með sitt hvorum flokknum. Steinar
lék með A-liði Vals í 5. flokki gegn
IBK um síðustu helgi en Árni bróð-
ir hans er í þriðja flokksliði félags-
ins sem mætir Fram á sunnudag.
■ SÆMUNDUR J. Oddsson sem
lék með B-liði ÍBK gegn Val um
helgina í fimmta flokki er tólf ára
gamall en samt stærri en þjálfarar
Keflavíkurliðsins. Sæmundur er yfir
170 sm á hæð og því um 20 sm
hærri en aðrir liðsmenn ÍBK. Hann
er mjög efnilegur körfuknattleiks-
maður.
■ EINAR Haraldsson, annar
þjálfariÍBK sagði að það væri sama
sagan þegar liðið færi að keppa,
alls staðar kvisuðust út sögur að
Sæmundur væri of gamall. Hið
rétta er að hann er fæddur í febr-
úar 1981 og því löglegur í fimmta
flokki.
■ LEIKMENN ÍA í 2. flokki
kvenna tóku ekki við verðlaunum
fyrir annað sætið á íslandsmótinu
eftir úrslitaleikinn gegn UBK.
Stúlkurnar voru að flýta sér til
vinnu á Laugardalsvelli þar sem
þær afgreiddu í veitingasölunni á
úrslitaleik IA og IBK í meistara-
flokki karla í bikarkeppninni.