Morgunblaðið - 02.12.1993, Síða 1
80 SIÐURB/C
275. tbl. 81.árg.
Downingstræti 10
Kötturinn
Humphrey
át yfir sig
Lundúnum. The Daily Telegraph.
HEIMILISKÖTTURINN í
Downingstræti 10, aðsetri
breska forsætisráðherrans,
hefur þegið svo mikið góð-
gæti frá John Major og
starfsliði hans, að hann þolir
ekki meira og er kominn í
megrun. Humphrey, en svo
heitir kötturinn, er sex ára
gamall svartur og hvítur
villiköttur sem gerði sig
heimakominn í Downing-
stræti 10 fyrir fjórum árum.
Humphrey er nefndur eftir
ráðuneytisstjóranum lævísa úr
sjónvarpsþáttunum „Já ráð-
herra“ og þykir bera nafn með
rentu. Hefur hann komist til
æðstu metorða í Downingstræti
þar sem hann gengur út og inn
eins og hann lystir. Humphrey
er skráður „starfsmaður" for-
sætisráðuneytisins, er heilsu-
og slysatryggður og tryggður
fyrir því tjóni sem hann kann
að valda þriðja aðila.
Hinu og þessu góðgæti hefur
verið gaukað að starfsmannin-
um ferfætta, sem hefur þegið
hvern bita með þökkum. Fyrir
nokkrum vikum var hins vegar
svo komið að hann hætti að éta
og eftir vandlega skoðun upp-
lýsti dýralæknir að nýru kattar-
ins hefðu bilað af ofáti. Humph-
rey nærist nú ekki á öðru en
vatni og kattamat og hefur
starfsfólki verið harðbannað að
lauma til hans bita. Er Humph-
rey nú við ágæta heilsu.
Volvo og Renault
Stór hlut-
hafíámóti
samruna
Stokkhólmi. Reuter.
STÓR sænskur fjárfestingarsjóð-
ur kvaðst í gær ekki ætla að
styðja ráðgerðan samruna Volvo
og franska bílafyrirtækisins
Renault. Þetta er áfall fyrir
stjórn Volvo, stærsta iðnfyrir-
tækis Svíþjóðar, sem á í miklum
erfiðleikum með að sannfæra
hluthafana um ágæti samrunans.
Fjárfestingarsjóður sænska
bankans S-E-Banken, þriðji stærsti
hluthafínn í Volvo, með 5,7% at-
kvæðanna, lagði til að ákvörðun um
samrunann yrði frestað til ársfund-
ar fyrirtækisins á næsta ári. Sjóður-
inn gagnrýndi Pehr Gyllenhammar,
stjómarformann Volvo. „Upplýs-
ingamar sem hingað til hafa verið
lagðar fram í þessu máli, að öllum
líkindum því stærsta í sögu Volvo,
hafa vakið miklar efasemdir," sagði
í yfirlýsingu frá sjóðnum. „Þetta
hefur leitt til neikvæðrar umræðu
sem hefur skaðað tengsl Volvo-for-
ystunnar og hluthafanna."
Sjá „SAS-goðið ...“ á bls. 29.
STOFNAÐ 1913
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
Bresk hlutabréf á metverði
MIKILL handagangur var í öskjunni í kauphöllinni í Lundúnum í gær þegar bresk hlutabréf hækkuðu í verði
í kjölfar fjárlagaræðu Kenneths Clarkes fjármálaráðherra í fyrradag. Hlutabréfin seldust á hærra verði en
nokkru sinni fyrr. Sjá „Markaðir fagna...“ á bls. 28 og forystugrein á miðopnu.
Helmut Kohl eftir fund með Francois Mitterrand
Austur-Evrópuríki
gangi ekki í NATO
Bonn, Rómaborg. Reuter.
HELMUT Kohl, kanslari Þýskalands, sagði í gær að Þjóðveijar
og Frakkar væru sammála um að engir möguleikar væru á að
bjóða fyrrverandi kommúnistaríkjum í Mið- og Austur-Evrópu
aðild að Atlantshafsbandalaginu (NATO) í fyrirsjáanlegri framtíð.
Utanríkisráðherrar aðildarríkja Ráðstefnunnar um öryggi og sam-
vinnu í Evrópu (RÖSE) samþykktu í gær drög að ályktun þar sem
léð er máls á að Rússar annist friðargæslu í fyrrverandi sovétlýð-
veldum, en þó að uppfylltum ströngum skilyrðum.
Fulltrúar RÖSE-ríkja sögðu að
utanríkisráðherrarnir væru hér
aðeins að sætta sig við hið óhjá-
kvæmilega. „Við viljum reyna að
ná tökum á því sem Rússar eru
líklegir til að gera hvort sem er,“
sagði Douglas Hogg, aðstoðarut-
anríkisráðherra Bretlands.
Andlát
Dubceks
rannsak-
að á ný?
Prag. The Daily Telegraph.
STJORNARANDSTAÐAN í
Tékklandi og Slóvakíu hefur far-
ið fram á nýja rannsókn á dauða
Alexanders Dubceks, leiðtoga
„Vorsins í Prag“ sem leiddi til
innrásar sovéska hersins í Tékkó-
slóvakíu árið 1968. Dubcek lést
7. nóvember 1992 og hafði þá
legið meðvitundarlaus í tvo mán-
uði eftir bílslys. I opinberri rann-
sókn á slysinu var bílsljóri hans,
fyrrum félagi í öryggislögregl-
unni, sakaður um að hafa ekið
of hratt og sat hann í fangelsi í
ár fyrir ógætilegan akstur. Tveir
fjölmiðlar fullyrða nú að komið
hafi fram gögn er sanni að ekki
hafi verið um slys að ræða.
Dubcek var
Slóvaki og forseti
tékkneska þings-
ins 1990-1992.
Hann var harður
andstæðingur þess
að Tékkóslóvakía
yrði leyst upp í tvö
ríki. Bílslysið varð
sama dag og þing Dubcek
Slóvaka staðfesti
stjórnarskrá sína. Fjöldi fólks taldi
slysið grunsamlegt, meðal annars
var talið að Dubcek hefði ætlað að
leysa frá skjóðunni um þátt nokk-
urra einstaklinga í hernámi Sovét-
hersins í kjölfar „Vorsins í Prag“.
Er Dubcek lést voru vinsældir
hans nærri því jafnmiklar og forsæt-
isráðherrans, Vladimirs Meciars,
sem var hlynntur aðskilnaði Tékk-
lands og Slóvakíu. Meciar var
ákærður fyrir að hafa látið öryggis-
lögregluna njósna um Dubcek á ár-
unum 1988-1990 en var ekki dæmd-
ur sekur. Annar þeirra sem báru að
Meciar hefði leyft að ýmis skjöl ör-
yggislögreglunnar yrðu fjarlægð var
bílstjóri Dubceks. Hinn, sem einnig
var í öryggislögreglunni, hefur leitað
hælis í Sviss, þar sem hann óttast
um líf sitt.
„Við höfum mikinn skilning á
þörfum nágrannaríkja Þýskalands
í öryggismálum, en við sjáum enga
möguleika á því að þau geti geng-
ið í NATO,“ sagði Helmut Kohl
eftir tveggja daga fund með
Francois Mitterrand, forseta
Frakklands.
Ráðherrar NATO-ríkjanna
ræða í dag hugmyndir um nánari
hernaðartengsl við kommúnista-
ríkin fyrrverandi en vegna þrýst-
ings frá Rússum ljá þeir ekki
máls á því að ríkin fái aðild að
bandalaginu í bráð. NATO-þjóð-
imar hafa komist að þeirri niður-
stöðu að ekki sé tímabært að bjóða
ríkjum eins og Póllandi, Ungveija-
landi og Tékklandi aðild, meðal
annars vegna andstöðu Rússa,
sem eru andvígir því að bandalag-
ið stækki í austur.
Skilyrði fyrir friðargæslu
Rússar sóttu það fast að RÖSE
styddi hugsanlega friðargæslu
rússneska hersins á átakasvæðum
í fyrrverandi sovétlýðveldum, frá
Moldovu í vestri til Tadzhíkístans
í austri. Nágrannaríki þeirra, eink-
um Eystrasaltslöndin, gagnrýndu
hins vegar tillöguna, sögðu hana
leiða til „nýs Jalta-samnings“ sem
tryggði Rússum „yfírráð“ yfir
eystri hluta álfunnar.
Utanríkisráðherrar RÖSE sam-
þykktu í gær drög að ályktun þar
sem léð er máls á friðargæslu af
hálfu Samveldis sjálfstæðra ríkja
en að uppfylltum ströngum skil-
yrðum. Meðal annars er sett sem
skilyrði að fullveldi hlutaðeigandi
ríkja verði virt og að allar fylking-
arnar í átökunum fallist á friðar-
gæsluna. Friðargæslusveitirnar
verði að vera hlutlausar og fjöl-
þjóðlegar og þurfi að framfylgja
alþjóðlegri friðaráætlun. Þá verði
að liggja fyrir skýr áætlun um
heimkvaðningu hermannanna.
Reuter ’■
Konunghollir Rúmenar
10-15.000 Rúmenar komu saman í brunagaddi og fannfergi á Bylt-
ingartorginu í Búkarest í gær og kröfðust þess að Mikjáll, fyrrver-
andi Rúmeníukonungur, fengi að snúa aftur til landsins og taka við
völdum. Fólkið hélt á myndum af Mikjáli og dagatöl með myndum
af konungsfjölskyldunni runnu út eins og heitar lummur. Konungur-
inn fyrrverandi hefur verið í útlegð í Sviss í 46 ár.