Morgunblaðið - 02.12.1993, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.12.1993, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1993 Skref í átt til friðar í Greorgíu GEORGÍUMENN og Abkhasar komust í gær, að samkomulagi um að undirrita viljayfirlýsingu þess efnis að flóttamenn geti snúið aftur til síns heima við Svartahaf. Um 200.000 manns hafa flúið stríðsátök í Abkhasíu á síðustu mánuðum. Samkomu- lagið náðist fyrir tilstilli Sam- einuðu þjóðanna en það felur einnig í sér að friðarsveitir verði sendar til landsins. Bílstjóri Jack- sons vitnar gegn honum BÍLSTJÓRI söngvarans Micha- els Jacksons fullyrti á þriðjudag í vitnaleiðslum að söngvarinn hafi sofíð að minnsta kosti 30 nætur heima hjá drengnum sem hefur ákært Jackson fyrir kynferðislega misnotkun. „Leysimaður- inn“ dæmdur SVÍI, sem nefndur hefur verið „Leysimaðurinn" vegna há- tæknibyssu sem hann notaði í árásum á innflytjendur, var í gær dæmdur sekur um morð og níu morðtilraunir. Héraðs- dómur í Stokkhólmi úrskurðaði að maðurinn þyrfti að gangast undir sálfræðirannsókn áður en hægt yrði að ákveða refsing- una. Færri ganga í hjónaband FIMMTA hvert barn fæðist utan hjónabands í aðildarríkj- um Evrópubandalagsins sam- kvæmt nýrri skýrslu sem birt var í gær. Skýrslan bendir til þess að hjónabandið eigi í vök að veijast innan EB; þeim fer hlutfallslega fækkandi sem ganga í hjónaband og æ fleiri fá hjónaskilnað. Keiko laus úr prísundinni HÁHYRNINGURINN Keiko verður fluttur úr laug þeirri í Mexíkó sem hann hefur dvalist í undanfarin ár, vegna bágrar heilsu hans. Háhyrningurinn, sem veiddur var við Islands- strendur, lék eitt aðalhlutverkið í kvikmyndinni „Frelsum Willy“. Ekki hefur verið upplýst um áfangastað hans. Varað við bjartsýni í frið- arviðræðum JOHN Major, forsætisráðherra Breta og Albert Reynolds, for- sætisráðherra írlands munu hittast á morgun, föstudag, til að ræða málefni N-lrlands. Breskir embættismenn vöruðu þó í gær við of mikilli bjartsýni um að stigin yrðu tímamóta- skref í áttina til friðar. Fleiri Finnar á móti EB SAMKVÆMT skoðanakönnun, sem birt var í Finnlandi í gær, eru andstæðingar aðildar Finna að Evrópubandalaginu nú í fyrsta sinn orðnir fleiri en stuðningsmennirnir. 41% að- spurðra sögðust andvígir EB- aðild en 38% meðmæltir. ISÉB Forstjóri bandarísku leyniþjómistunnar, CIA N-Kórea gæti gripið tíl vopna Tókýó, Washington. Reuter. NORÐUR-Kóreumenn sökuðu Bandaríkjamenn í gær um tvöfalt sið- ferði í kjarnorkumálum, þeir létu sem þeir sæju ekki fyrirætlanir Japana um að gerast kjarnorkuveldi en fordæmdu samtímis N- Kóreu fyrir kjarnorkuvopnasmiði sem væri eintóm ímyndun. Norður- Kóreumenn hótuðu fyrr á árinu að draga sig út úr samningnum um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna. Reuter Einstein ungur gegn alnæmi GRÍÐARSTÓRUM, bleikum smokki var komið fyrir á hinum fræga ein- steinungi á Concorde-torgi í París í gær til að minna á baráttuna gegn alnæmi. Baráttudagur gegn sjúkdómnum var í gær. Rannsóknir sýna að alnæmi heijar meira í Frakklandi en nokkru öðru Evrópuríki og íbúamir virðast ekki geta breyttkynhegðun sinni; flestir forðast að gera nokkrar ráðstafanir gegn smitun. Flestir Frakkar játa kaþólska trú en Páfagarður er andvígur getnaðarvörnum, þ. á m. smokkum. Árásin á Bandaríkjastjórn var gerð nokkrum stundum eftir að James Woolsey, forstjóri banda- rísku leyniþjónustunnar, CIA, sagði í viðtali við CATN-sjónvarpsstöðina að ekki væri hægt að að útiloka að N-Kóreumenn gerðu alvöru úr hótunum sínum um að beita vopna- valdi gegn tilraunum til að þvinga þá til að leyfa alþjóðlegt eftirlit með stöðum þar sem talið er að komm- únistastjómin sé að reyna að búa til kjarnavopn. Hann sagði að um tveir þriðju hlutar herafla kommún- ista sem í er 1,1 milljón manna, væm í innan við 100 km fjarlægð frá landamæmnum að Suður- Kóreu. Ástandið væri „mjög ugg- vænlegt“ en jafnframt gaf hann í skyn að þótt stalínistaríki Kim-Il- sungs væri lokað hefði Bandaríkja- mönnum tekist að koma sér upp njósnurum þar. N-Kórea sakaði einnig Bandarík- in um að auka njósnaflug yfír land- inu og væri þar um stríðsundirbún- ing að ræða. Á sjötta áratugnum sendu Bandaríkin hundruð þúsunda hermanna til að aðstoða Suður- Réttindi kommúnista í rússnesku kosningunum Ráðherra Jeltsíns viU bamia framboð Moskvu. Reuter. SÉRSTAKUR gerðardómur í Moskvu vísaði í gær á bug kröfu eins af nánustu aðstoðarmönnum Borísar N. Jeltsíns forseta á þriðjudag um að tveim stjórnarandstöðuflokkum, sem gagnrýnt hafa stjórnar- skrárdrög forsetans, yrði bannað að bjóða fram í þingkosningunum sem verða í desember. Æðsta Iqömefnd landsins mun taka ákvörðun í málinu á föstudag eða laugardag. í drögunum er gert ráð fyrir miklu valdi forseta og verður þjóðaratkvæði um þau samtímis þing- sætunum. Ákall Vladímírs Sjúmeikos upp- lýsingamálaráðherra, sem m.a. stjórnar nefnd er hefur umsjón með framkvæmd þjóðaratkvæðisins um stjórnarskrána, vakti hörð viðbrögð. Þótti mörgum ljóst að ásakanir um einræðishneigð Jeltsíns væru á rök- um reistar en Sjúmeiko er náinn ráðgjafi hans. Sjúmeiko lagði til að kommúni- staflokknum og Lýðræðisflokki Rússlands, fremur afturhaldssöm- um miðjuflokki, yrði meinað að taka þátt í kosningunum þar sem þeir hefðu ekki hlýtt skipun Jeltsíns um að forðast að ræða stjórnarskrár- málið. Einn af talsmönnum flokks Sjúmeikos sjálfs, Valkosts Rúss- lands, sagðist telja eðlilegt að flokk- arnir fengju að segja álit sitt á drög- unum á sama hátt og kjósendur fengju að kveða upp úrskurð sinn í desember. Umbótasinninn Grígorí Javlínskí, sem er í forystu fyrir næst-stærsta flokki landsins ef marka má skoðanakannanir, var harðorður um kröfu Sjúmeikos. „Núverandi leiðtogar eru að glata öllum skilningi á grundvallaratrið- um lýðræðis", sagði hann. Valerí Zorkín, fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls sem Jeltsín leysti upp í október, gagnrýndi í gær harðlega reglur þjóðaratkvæð- isins um nýju stjórnarskrána. Hann minnti á ákvæði um að neytti helm- ingur kjósenda atkvæðisréttar síns og meirihluti þeirra sem mættu samþykktu drögin teldust þau sam- þykkt. „Stjórnarskrár eru aldrei samþykktar af [aðeins] 25% kjós- enda“, sagði Zorkín og líkti ákvæð- inu við tímasprengju. Hann taldi að nýr leiðtogi gæti bent á að það væri aðeins minnihluti þjóðarinnar sem hefði samþykkt stjórnarskrána sem hefði því lítið gildi. Zorkín sagði ennfremur að gert væri ráð fýrir svo miklu forseta- valdi í drögunum að helst minnti á stjómhætti gamla kommúnistaveld- isins. „En þá var um heilan flokk að ræða, nú er það aðeins einn maður". um hafi leikið tveim skjöldum í málinu hafa áður verið viðraðar en hann vísað þeim á bug. Kijútsjkpv er nú ásamt öðrum valdaránsmönnum fyrir rétti í Moskvu þar sem hann útskýrir gerðir sínar. Hann viðurkenndi í gær að Gorbatsjov hefði ekki séð lokaútgáfu yfirlýsingarinnar en segir að forsetinn hafi verið á fundi á Krímskaga með nokkrum höfuð- paurum valdaránsins öðrum en Kijútsjkov sjálfum skömmu áður Kóreumenn í styrjöld þeirra gegn innrásarliði norðanmanna. Japanar óttast að íran aðstoði N-Kóreu við að gera tilraunir með nýja, langdræga eldflaug, Rodong, sem norðanmenn hafa smíðað. Stjórnvöld í Tókýó gefa í skyn að efnahagsaðstoð við írani verði þá hætt. Krjútsjkov ber vitni um valdaránið 1991 Gorbatsjov sjálf- ur með í ráðum? Moskvu. Reuter. VLADÍMÍR Krjútsjkov, fyrrverandi yfirmaður sovésku leyniþjón- ustunnar gömlu, KGB, segir að Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta hafi verið kunnugt um að valdarán væri í aðsigi í ágúst 1991 og forsetinn hafi ekki reynt að hindra það heldur hafi hann ætlað að sjá hver framvinda mála yrði. Forsetinn hafi fengið að sjá fyrirfram nokkur drög að yfirlýsingu þar sem valdaránsmenn réttlættu gerðir sínar fyrir þjóðinni og öðrum ríkjum í upphafi atburðanna. Grunsemdir um að Gorbatsjov en þeir létu til skarar skríða. „Sam- ræðumar voru þvingaðar en ég hygg að undir lokin hafi Gorbatsjov slakað á. Þegar öllu er á botninn hvolft hljóta ummæli hans: „Svona nú, hefjist handa og við skulum sjá hvað gerist" að hafa merkt eitt- hvað“, sagði KGB-foringinn fyrr- verandi. Hann sagði að dagana 17. -18. ágúst hefðu samsærismenn loks ákveðið upp á eigin spýtur að taka völdin til að bjarga Sovétríkj- unum frá hruni. Bretland Markaðir fagna fjár- lagaræðu London. Reuter. BRESKIR fjármálamarkað- ir brugðust mjög vel við fjárlagaræðu Kenneths Clarkes fjármálaráðherra og tóku verðbréf mikið stökk upp á við. Hafði hluta- bréfavísitala Financial Tim- es (FTSE) hækkað um hund- rað stig einungis klukku- stund eftir að viðskipti hóf- ust í gær og fór í fyrsta skipti i sögunni yfir 3.200 stig. Markaðirnir höfðu óttast að Clarke myndi boða miklar skattahækkanir en þess í stað boðaði hann 10 milljarða punda niðurskurð ríkisút- gjalda á næstu þremur árum og að jöfnuði yrði náð í ríkisút- gjöldum um aldamót. Er talið víst að með þessu fjárlagafrumvarpi sé lagður grunnur að auknum hagvexti á næstu árum og að líkur hafi aukist á að Bretland muni vinna sig upp úr kreppu und- anfarinna tveggja ára. Einu fyrirtækin sem ekki nutu góðs af ræðu Clarkes voru flugfélög og tryggingafé- lög en nýir skattar verða Iagð- ir á tryggingar og flugfar- þega. Reuter Lestarslys í Flórída FLAK farþegalestar Amtrak-fyrir- tækisins í Bandaríkjunum í grennd við Kissimmee í Flórída. Talsmaður Amtrak sagði að 52 hefðu slasast er lestin fór út af sporinu á þriðju- dag en enginn lét lífið. Dráttarvagn- inn er fremst t.v. en hægra megin sést rafmagnstúrbína sem lestin rakst á.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.