Morgunblaðið - 02.12.1993, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 02.12.1993, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1993 Minning Pétur Stefánsson fv, lögregluvarðstj. í Vestmannaeyjum Fæddur 1. maí 1917 Dáinn 24. nóvember 1993 Allt hefur sinn tíma-. Þau okkar sem eiga mikið hljóta að missa mikið. Höggið var líka þungt þegar bróðir minn, Sveinn Ingi, sagði mér að faðir okkar væri dáinn. Hann var orðinn 76 ára gamall en ágætlega sjálfbjarga, þokkalega uppistandandi eins og hann orðaði það sjálfur, síhugsandi um velfejð bama sinna og bamabama. Ég hélt einhvern veginn að hann yrði eilífur. Auðvitað ristl elli kerling sínar rúnir í-hann eins og aðra, en hann veitti harða mótspymu, hafði andstyggð á allri hrömun enda alla daga að laga eða skapa. Hann tók oft svo til orða að aldrei skyldi hann fara á elliheimili nema ef vera skyldi að hann gæti verið okkur systmm samferða inn á slíkt heim- ili. Það gekk ekki eftir en flest annað sem hann ætlaði sér gerði það. Fáa þekki ég sem líktust honum, hann var stór í öllu, ekki síst í ást sinni til okkar systkina, stundum gat það verið erfítt, en oftast mjög ljúft. Aldrei þurfti ég að biðja hann tvisvar um að rétta mér hjálpar- hönd, og oftast varð hann fyrri til, hafði næmt auga fyrir þörfum síns fólks. Á sorgar- og saknaðarstundum streyma fram minningamar eins og beljandi foss endalaust og enda- laust. Þá er svo gott að eiga fangið fullt af ljúfum minningum. Mínar fyrstu minningar frá bemsku em þegar hann vatnsgreiddi mér og sápuþvoði nefíð, en það var sett að skilyrði tii þess að fá að fara í gönguferð um bæinn. Ég man hvað ég var stoit af að fá að leiða þenn- an fallega mann enda fann ég fyrir öfund og aðdáun, ef ég leit í kring um mig. -Allt hefur sinn tima-. Mér er enn í fersku minni fyrsti stóri greiðinn sem hann gerði mér. Ég bað hann um að saga sitt af hvomm enda af herðatré sem mér var gert að pijóna utanum í handavinnu. Þetta reyndist mér ofvaxið verk- efni, ég sagði honum að þetta ætti að vera svona. Hann horfði í augun á mér og vissi betur, en sagaði samt. Hann fór sjálfur aldrei stystu leiðina, þvert á móti bætti hann við, honum féll aldrei verk úr hendi, verkin tala, húsið hans og fallegi garðurinn. Afmælisdagurinn hans var 1. maí. Það skýrði fyrir mér sem barni alla þessa fána í bænum þennan dag. Margoft var mér sagt að það væri vegna frídags verkalýðsins, en bamstrú minni hef ég haldið hvað þetta varðar. Sumt er of nálægt manni. Ég skil núna að hveiju dró og veit líka að dauðinn var honum líkn, hann var tilbúinn. Hann þoldi illa þá til- hugsun að verða upp á aðra kominn enda vanastur því að vera sá sterk- asti. Fólk segir að tíminn lækni öll sár. Sé það rétt er það bara gott, komi annað í ljós fer ég að hætti hans og tek því með karlmennsku. -Allt hefur sinn tíma-. Hann var maður ljóss og lífs. Hlakkaði alltaf til vorsins og gró- andans, garðurinn hans ber þess vott. Ár hvert um þorra sagði hann: „Hallgerður mín, þegar komið er fram í mars, svona um tuttugasta, förum við að vakna í björtu". Og það gekk eftir. Faðir minn hafði mikla unun af ljóðum og kunni mörg þeirra. Eitt ljóð fór hann oftar með en önnur síðustu árin, en það var „Móðir mín“ eftir Einar Ben. Móðir. Eg sigli minn sjó fram á haust. Til suðurs hver fold er í kafi.- En Sóley rís úti, sveipuð laust í svellgijá og kvöldroða-trafí. Hér á að draga nökkvann í naust. Nú er ég kominn af hafí. En bæri ég heim mín brot og minn harm þú brostir af djúpum sefa.- Þú vógst upp björg á þinn veika arm. Þú vissir eigi hik eða efa. í alheim ég þekkti einn einasta barm, sem allt kunni að fyrirgefa. Dagar þíns lífs, þínar sögur, þín svör voru sjóir með hrinjandi trafi. Móðir. Nú ber ég þitt mál á vör og merki þér Ijóðastafí. Tii þess tók ég fari, til þess flaut minn knör. Til þess er ég kominn af hafí. Ég sé núna betur en áður hvað við áttum góðan foður. í honum áttum við góðan og einlægan fé- laga, fyrir það þakka ég núna. Það riijuðust upp fyrir dóttur minni, Sólveigu Ástu, ýmis atvik eins og t.d. að ef hún fékk flensu gaukaði hann að henni tvö hundruð krónum, sem hann var hættur að nota, en þegar hún fékk rauðu hundana gaf hann henni fjögur hundruð vegna þess að þá fengi hún bara einu sinni. Þau missa mest bamabömin, því eins og hann var góður faðir var hann betri afí. Fyrir mörgum ámm gaf hann mér bókina Spámanninn eftir Ka- hlil Gibran, en þar segir á einum stað: „Þeim mun dýpra sem sorgin grefur sig í hjarta mannsins þeim mun meiri gleði getur það rúmað. Þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ Oft hef ég lesið þetta, en núna fyrst skil ég þetta til fulls. Mér verður hugsað til systkina hans og vina. Sérstaklega hugsa ég til Magnúsar Jónssonar á Eski- fírði, jafnaldra hans og æskuvinar. Sú vinátta var einstök og hreif okk- ur öll. Sl. þrettán ár kom hann í heimsókn á hveiju vori og áttu þeir saman eina viku „strákurinn og ég“ eins og faðir minn orðaði það. Magnús var ári yngri og fékk því að lúffa fyrir „karlinum" en gerði það með glöðu geði. Það hreif okk- ur öll að sjá hvað tveir fullorðnir menn geta notið lífsins og gert gott úr því þótt giktin sé orðin við- varandi. Tvisvar fóra þeir utan sam- an og nutu þess báðir. Háa skilur hnetti himingeimur blað skilur bakka og egg. En anda sem unnast fær aldregi eilífð að skilið. (Jónas Hallgr.) Hallgerður. Hinsta kveðja frá systkinum Þú mundir fyrst eftir þér ungum í umhverfi hárra fjalla þar báru þig bamafætur um brekkur heiðar og hjalla. Þótt hamaði handartakið úr huganum fór ekki myndin vermandi vorsólargeislar vöfðust um Hólmatindinn. Snemma þín laðaðist lundin hin ljúfa djarfa og sanna . að útnesja harðbýlisháttum og heiðarleik góðra manna, sem þekktu listina að iifa í lágreistu köldu hreysi og kjark til að mæta kalli með karlmennsku og æðruleysi. Þótt brenn’i ekki ljósið þitt iengur og lokið sé æfídögum mig langar að færa þér fjólur sem fæddust í Austfirskum högum. Þær óskuðu einskis fremur en ilma dafna og gróa og vera öllum til yndis í umhverfi sinna móa. Við leggjum af stað út í Iífíð leitandi systur og bræður. Við emm dæmd til að deyja en dómarinn stundinni ræður, við bjástram í biðsal dauðans og bíðum þar sólarlagsins. Ljúft er að leggjast til hvflu að lokinni vinnu dagsins. Hafsteinn Stefánsson. Vinur minn og tengdafaðir er dáinn. Þótt búast megi við því að leiðir fari að skilja þegar fullorðinn þreyttur maður á í hlut kemur þessi frétt ævinlega flatt upp á mann, jafnvel þótt hann hafí undirbúið okkur undir að þessi tímamót væra að nálgast. Um leið og við syrgjum fráfall bróður, föður, tengdaföður, afa og langafa getum við glaðst yfír því að hann fékk að halda reisn sinni til dauðadags. Ekkert fannst honum nöturlegra tilhugsunar en að eiga eftir að verða ósjálfbjarga, upp á aðra kominn. Að vera þokka- lega uppistandandi til dauðadags var hans einlæga ósk. Honum varð að ósk sinni og þess ættum við að minnast í sorg okkar yfir ótíma- bæra andláti hans. Ef ég ætti að lýsa honum í einni setningu myndi ég segja: „Hann var barn vorsins, ærlegur og heiðarlegur og vinur vina sinna.“ Pétur var fæddur að Högnastöð- um við Reyðarfjörð, sonur hjónanna Stefáns Hermannssonar bónda og skósmiðs og Guðrúnar Halldórs- dóttur. Örlögin höguðu því þannig, að hann ólst upp hjá föður sínum og móðurömmu, Guðríði Sigurðar- dóttur. Hann átti þijú alsystkini, þau Helgu, sem nú er látin, Haf- stein og Önnu og þijár hálfsystur, þær Kristínu, Siggerði og Kolbrúnu Þorsteinsdætur. Samfeðra átti hann einn hálfbróður, Hermann Stefáns- son, sem lést ungur af slysföram. Á gamlársdag 1941 kvæntist hann Jóhönnu Sigrúnu Magnús- dóttur frá Vestmannaeyjum. Hún var dóttir Magnúsar Jóhannessonar frá Vík í Mýrdal og Jónínu Kristín- ar Sveinsdóttur frá Ósi á Eyrar- bakka. Jóhanna Sigrún lést í apríl 1981. Böm þeirra era fímm. Élst er Björk Guðríður, þá Stefán, Sveinn Ingi, Hallgerður og yngst er Helga Sigurborg. Bamabömin era 14 en bamabarnabömin era nú níu. Pétur hóf störf í lögregluliði Vestmannaeyja 1942. Þar var hann lögreglumaður og varðstjóri til 1970, en þá tók hann við starfí heilbrigðisfulltrúa Vestmannaeyja, sem hann gegndi fram að gosi 1973. Eftir það fluttust þau hjón upp á land. Haustið 1974 réðst hann sem húsvörður að Garðaskóla og síðar Fjölbrautaskóla Garðabæj- ar og gegndi því starfí til ársins 1989 eða í fímmtán ár. Allan sinn starfsferil naut hann virðingar og trausts samstarfsmanna sinna. Pétur var mikið snyrtimenni. Einskis naut hann betur en að laga og bæta það sem úrskeiðis hafði farið. Eftir að hann hætti vinnu og fór að ráða tíma sínum sjálfur sner- ist allt hans líf um að bæta og fegra hús og garð og ef því var ekki til að dreifa þá tók hann niður útiljós- ið hjá okkur til að „flikka það upp“ eða stól eða borð hjá hinum bömun- um í sama tilgangi. Einnig gladdi það hann mjög ef við voram að vinna heima að endurbótum á eig- um okkar. Hann var alltaf tilbúinn með ábendingar hvað mætti laga næst og með hugmyndir um að hvaða leyti hann gæti tengst því með aðstoð og hjálp. Ég minnist þess í eitt sinn er ég var að taka saman dót sem átti að henda að hann gerði athugasemd við það að sumt af dótinu mætti laga til þann- ig að það mætti koma einhveijum að gagni. Þá sagði hann: „Þú veist að dýrasti lúxus sem þú veitir þér er hirðuleysi." Oft fannst mér, um stund, ábendingar hans og leiðbein- ingar of ágengar en, sem betur fer, skildi ég oftast að það var fyrir- höfnin af því að bregðast við ábend- ingum hans sem olli óþægindunum. Þetta þekkti Pétur ekki sjálfur. Hann velti því ekki fyrir sér hvort verkefni væri fyrirhafnarmikið eða óþægilegt. Verk var verk sem þurfti að vinna og meira var ekki um það að segja. Þegar við fóram fyrst saman á gæsaveiðar haustið 1968 kynntist ég fyrst fyrir alvöra kappi hans og viðhorfum til lífsins. Mér varð fljót- lega ljóst að í hans augum var þetta ekki sport heldur veiðimennska. Hann mundi vel að þegar hann var Á geisladisknum Kom heim syngja hinir frábæru söngvarar, Björgvin Halldórsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Egill Óiafsson og Guðr Gunnarsdóttir 12 einstök trúarlög af alkunnri snilld. Öllum ágóða af sölu disksins verður varið til þess brýna verkefnis að koma á fót áfangaheimili fyrir stúlkur, en Krossgötur hafa rekið slíkt heimili fyrir unga menn s.l. 7 ár. Kom heim, góð tónlist, gott málefni og knýjandi þörf! Dreifing: GÖTUR JAPIS SMUHHSB8ÉR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.