Morgunblaðið - 02.12.1993, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1993
Sj ónverndarátak
Lionshreyfingarinnar
eftir Einar
Stefánsson
Að mati Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar eru 40 milljónir
manna blindir og að öllu óbreyttu
mun þessi tala tvöfaldast á næsta
aldarfjórðungi. Skipta má orsökum
blindu í tvo meginflokka. Ánnars
vegar eru blinduvaldandi sjúkdómar
og slys, sem ekki er hægt að fyrir-
byggja vegna þess að sú vísindalega
þekking og tækni er ekki til, sem
leyfir meðferð eða forvarnir. Hins
vegar eru blindandi sjúkdómar, sem
eru vel þekktir og ágæt meðferð til
við. Sumir þessara síðamefndu sjúk-
dóma eru þó algengustu orsakir
blindu í heiminum. Ástæðan er, að
stór hluti mannkyns á ekki kost á
þeirri heilbrigðisþjónustu, lyfjum og
næringarefnum, sem þarf til að
stöðva þessa blinduvalda.
Áætlað er að 80% af allri blindu
í heiminum sé vegna sjúkdóma, sem
hægt er að fyrirbyggja eða með-
höndla með þekktum lækningaað-
ferðum og lyfjum. Um það bil 32
milljónir manna eru því blindir ein-
faldlega vegna skorts á réttum lyfj-
um og lækningu. Það gerir málið
enn sárara, að lyfin og lækningarn-
ar, sem um ræðir, eru vel þekkt og
ódýr,
Alþjóðlega Lionshreyfingin hefur
komið auga á þennan vanda og
ákveðið að láta það til sín taka.
Árið 1991 hófst alheimsátak Lions-
manna undir kjörorðinu „Campaign
Sight First“ og stendur nú yfir
lokaátak þess mikla verkefnis. Til-
gangurinn er að safna fé um allan
heim, til að standa undir meðferð
þeirra, sem eru blindir eða í blindu-
hættu vegna sjúkdóma, sem hægt
er að meðhöndla.
Sjónvernd hefur verið eitt aðal-
markmið Lionshreyfmgarinnar allt
frá stofnun, árið 1917. Islendingar
hafa ekki farið varhluta af þessu
starfi. Islenska Lionshreyfingin á
stóran þátt í þeim mikla sigri, sem
unnist hefur á glákublindu á ís-
landi. Lionsmenn, ásamt fleiri góð-
gerðarfélögum, Iögðu grunn að
augndeild Landakotsspítala og halda
áfram að vinna ötullega að sjónvemd
á íslandi.
í sjónverndarátakinu hafa Lions-
menn tilgreint þá fimm sjúkdóma,
sem eiga það sameiginlegt að vera
með algengustu orsökum blindu í
heiminum, og vera læknanlegir, ef
réttum aðferðum og lyfjum er beitt.
Þessir sjúdómar eru trakóma (augn-
ytja), fljótablinda, A-vítamín skortur
með augnhrímu, ský á augasteinum
og augnsjúkdómar í sykursýki. Tra-
kóma og fljótablinda eru sýking-
arsjúkdómar, sem eru aðalíega í
þróunarlöndum og A-vítamínskortur
er vannæringarsjúkdómur. Ský á
augastejnum eru algeng um allan
heim, og valda blindu þar sem ekki
eru aðstæður til augnaðgerða. Syk-
ursýki er ein algengasta orsök blindu
á Vesturlöndum, en hægt er að
hindra blindu með eftirliti og leysiað-
gerðum.
Trakóma (augnyrja, trachoma)
Trakóma er smitandi sjúkdómur
og heitir sýkillinn chlamydia tracho-
matis. Sýkillinn veldur bólgu í slím-
húð og hornhimnu á yfirborði auga
• og örmyndun, sem leiðir til blindu.
Talið er að hundruð milljóna manna
hafi trakóma, aðallega í Afríku og
Asíu. Draga má úr útbreiðslu sjúk-
dómsins með forvarnastarfi, hrein-
læti, góðri heilbrigðisþjónustu og
næringu. Sýkillinn er næmur fyrir
tetracyclin og súlfalyfjum, sem
hvoru tveggja eru ódýr sýklalyf.
Fljótablinda (onchocerciasis,
river blindness)
Fljótablinda er af völdum orms,
eftir Björgvin
Sighvatsson
Á trúnaðarmannafundum Alþýðu-
bandalagsins hefur á undanförnum
mánuðum verið unnið að tillögugerð
varðandi framtíðarstefnumótun
flokksins. Meginþættir hennar voru
teknir til afgreiðslu á landsfundi Al-
þýðubandalagsins sem haldinn var
fyrir skömmu. Tillögugerð Alþýðu-
bandalagsins birtist í 120 síðna riti
sem ber yfirskriftina „Útflutnings-
leiðin".
sem nefnist onchocerca volvulus,
sem smitast með flugubiti. Flugurn-
ar eru aðallega við ár og fljót í Afr-
íku og Mið-Ameríku og þar er úr-
breiðsla sjúkdómsins mest. Ormarnir
valda augnbólgu og blindu vegna
örmyndunar í hornhimnu augans.
Baráttan við sjúkdóminn beinist
annars vegar að því að hefta út-
breiðslu flugunnar, sem ber sýkilinn
og hins vegar með lyfjameðferð.
A-vítamín skortur (xeroph
thalmia, augnhríma)
Skortur á A-vítamíni í fæðu veld-
ur skemmd í slímhúð og hornhimnu
á yfirborði augans og getur leitt til
blindu. Þetta er algeng orsök blindu
bama á Indlandi, í Bangladesh, In-
dónesíu og á Filippseyjum. Meðferð-
in byggist fyrst og fremst á betri
næringu og A-vítamín gjöf.
Ský á augasteini (cataract)
Ský á augasteini eru algeng um
allan heim, sérstaklega í eldra fólki.
Ský á augasteini truflar sjón og
veldur jafnvel blindu, ef ekki er að
gert. Tiltölulega auðvelt er að koma
í veg fyrir slíka blindu með auga-
steinsaðgerð, þar sem ógegnsæi
augasteinninn er numinn brott og
gerviaugasteinn settur í staðinn.
Slíkar aðgerðir eru mjög algengar á
Vesturlöndum og ganga t.d. mörg
hundruð íslendinga undir slíkar að-
gerðir á hveiju ári. Skortur á augn-
í ritinu er bent á tvær aðrar ieiðir
við stjórn efnahagsmála. Sú fyrri er
samdráttarleiðin, en hún felur í sér
að niðurskurður í rekstri hins opin-
bera og afskiptaleysi stjórnvalda af
markaðnum skapi skilyrði fyrir því
að gangráður alls hagkerfis fari af
stað á ný. Samdráttarleiðin er stjóm-
arstefna, sem alþýðubandalagsmenn
telja núverandi stjómarflokka hafa
fylgt. Hin leiðin er þensluleiðin sem
kennd er við framsóknaráratuginn.
Þensluleiðin felur í sér að eriendar
lántökur og aukinn hallarekstur rík-
issjóðs stuðli að því að aðrir þættir
efnahagslífsins nái sér á skrið.
Alþýðubandalagið hafnar báðum
þessum leiðum og bendir á svokall-
aða útflutningsleið (Export Lead
Growth) sem lausn á þeirri kreppu
sem hér hefur verið undanfarin ár.
Ánægjulegt er að stjórnmálaflokkur
skuli með eins afgerandi hætti benda
á útflutningsleiðina sem lausn á
vandanum, sem nú steðjar að ís-
lensku þjóðarbúi. Með útflutnings-
leiðinni er mótuð stefna, sem viður-
kennir að útflutningssókn er gangvél
hágkerfisins og því fái útflutningur
og gjaldeyrissköpun forgang í hag-
kerfinu öllu. Það yrði gert m.a. með
skattaívilnunum til útflutningsfyrir-
tækja og auknum ljárveitingum til
rannsókna, þróunarstarfs og mark-
aðskannana. Opinberir aðilar beittu
sér fyrir íjárfestingum í hugmyndum
og hæfileikafólki ásamt því að veita
áhættufjármagn til smárra og meðal-
stórra fyrirtækja. Áhersla yrði lögð
á menntun og starfsþjálfun sem er
nauðsynieg undirstaða til þess að
gera útflutningsleiðina mögulega.
Árangur ýmissa ríkja, t.d. Japans,
sannar að útflutningsleiðin er árang-
ursrík leið til þess að auka hagvöxt
þegar til lengri tíma er litið. En hag-
vöxtur er lykillinn að auknu fjár-
magni til velverðar- og menningar-
mála.
Eins og réttilega kemur fram í
tillögugerð Alþýðubandalagsins
grundvallast nýja leiðin á ábyrgri
fjármálastjórn, aðhaldi og spamaði
hjá opinberum aðilum og fyrirtækj-
um í einkarekstri. Hállarekstur og
erlend skuldasöfnun grefur til lengd-
ar undan undirstöðum öflugrar út-
Einar Stefánsson
*
„Islenska Lionshreyf-
ingin á stóran þátt í
þeim mikla sigri, sem
unnist hefur á gláku-
blindu á íslandi.“
læknum og sjúkrahúsum í ýmsum
þróunarlöndum, svo sem Indlandi og
Pakistan, veldur því að ekki er hægt
að sinna öllum þeim, sem verða
blindir af skýi á augasteinum. Mik-
ill fjöldi fólks er því blindur af því
einu að komast ekki í skurðaðgerð.
Augnsjúkdómar í sykursýki
Augnsjúkdómar í sykursýki eru
flutningsstarfsemi. Oft er það svo,
að árangur næst ekki án fórna.
Árangur Japana til aukinnar útflutn-
ingssóknar byggðist fyrst og fremst
á því að haldið var aftur af neysiu
heimila og opinberra aðila. Árang-
ursrík hagstjórn heillar þjóðar bygg-
ist því á sömu grundvallarlögmálum
og fjármálastjóm einstakra heimila,
þ.e. engin ljárfesting verður til án
sparnaðar og til þess að geta sparað
verður að draga úr neyslu.
Það er ljóst í tillögugerð Alþýðu-
bandalagsins að þeir eru ekki sam-
kvæmir sjálfum sér. I stað þess að
koma með tillögu til þess að draga
úr erlendum lántökum og halla-
rekstri ríkissjóðs eins og þeir sjálfír
benda þó á að sé nauðsynlegt koma
þeir með hugmyndir, sem kafsigla
útflutningsleiðinni strax í fæðingu. í
raun felur tillögugerð þeirra í sér
stóraukin útgjöld fyrir ríkissjóð.
Helstu áherslumál þeirra eru í stuttu
máli þessi:
1. Stórefla á velferðarkerfið meðal
annars með því að hækka bama-
bætur, lengja fæðingarorlof og
skattaívilnun fyrir foreldra ungra
barna. Einnig er alfarið hafnað
hvers konar sjúklingaskatti eða
þjónustugjöldum til þess að fjár-
magna heilbrigðiskerfið.
2. Efla á húsnæðiskerfið meðal ann-
ars með sérstöku átaki til að
byggja eða kaupa 2.000-3.000
leiguíbúðir um allt land á næstu
fimm árum. Einnig á að taka upp
tekjutengdar húsaleigubætur.
3. Bæta á kjör aldraðra og fatlaðra
meðal annars með byggingu
leiguíbúða.
4. Auka á framlög til menningar-
mála og afnema virðisaukaskatt
á útgáfu bóka, blaða og tímarita
og til annarrar menningarstarf-
semi.
Helstu tekjuöflunarhugmyndir Al-
þýðubandalagsins, hátekjuskattur og
skattlagning fjármagnstekna og pen-
ingaeigna, geta aldrei staðið undir
þeim auknu ríkisútgjöldum sem al-
þýðubandalagsmenn leggja til. Ríkis-
útgjöldum, sem að mestu leyti er
varið til annarra þarfa en að örva
útflutningsstarfsemi.
Eftir lestur þessa viðamikla rits
ein algengasta orsök blindu á Vest-
urlöndum. í Bandaríkjum Norður-
Ameríku er sykursýki algengasta
orsök nýrrar blindu hjá fólki á aldr-
inum 24-64 ára og svipaða sögu er
að segja frá Evrópu. Sjúkdómurinn
veldur bjúgmyndun í sjónhimnu aug-
ans, vexti nýrra æða, blæðingum og
örvefsmyndun, sem getur leitt til
blindu. Hægt er að draga úr blindu
af völdum sykursýki með góðri syk-
ursýkismeðferð, og reglubundnu eft-
irliti og leysi-aðgerðum á augum. Á
íslandi hefur t.d. náðst mjög góður
árangur með slíkum aðferðum og
er blindutíðni í sykursýki á íslandi
margfalt lægri en í nágrannalönd-
um. Ljóst er að með bættu skipulagi
augnlæknisþjónustu má draga veru-
lega úr hættu á blindu vegna sykur-
sýki.
Lokaorð
Það er óhugnanlegt, að yfir 30
milljónir manna eru blindir vegna
skorts á réttri læknismeðferð og lyfj-
um. Um leið er það gleðiefni, að
hægt sé að koma í veg fyrir bróður-
partinn af allri blindu í heiminum,
einfaldlega með því að beita tiltækri
þekkingu, aðferðum og lyfjum. Þótt
margir hafi unnið gott starf á þess-
um vígstöðvum, hefur aldrei fyrr
verið ráðist gegn blindu í heiminum
af þeim stórhug og einurð, sem Li-
onshreyfingin gerir nú. Það er hægt
að draga stórlega úr blindu í heimin-
um og íslendingar fá tækifæri til
að leggja hönd á plóginn með því
að taka vel á móti merkjasölufólki
Lionsmanna í Sjónverndarátakinu
3.-5. desember.
Höfundur er yfirlæknir
augndeildar Landakotsspítala og
prófessor í augnlæknisfræði við
Háskóla Islands.
Björgvin Sighvatsson
„Helstu tekjuöflunar-
hugmyndir Alþýðu-
bandalagsins, hátekju-
skattur og skattlagning
fjármagnstekna og
peningaeigna, geta
aldrei staðið undir þeim
auknu ríkisútgjöldum
sem alþýðubandalags-
menn leggja til. Ríkis-
útgjöldum, sem að
mestu leyti er varið til
annarra þarfa en að
örva útflutningsstarf-
semi.“
verður ekki séð að Alþýðubandalagið
sé reiðubúið að færa neinar fórnir
til þess að gera útflutningsleiðina
mögulega. í raun er framkvæmd
útflutningsleiðarinnar eins og hún
birtist í tillögugerð Alþýðubanda-
lagsins ávísun á þensluleiðina, sem
þeir hafa þegar hafnað. En hún felur
í sér aukna erlenda skuldasöfnun og
viðyarandi halla á rekstri ríkissjóðs.
Útflutningsleiðin, eins og hún er
sett fram í tillögugerð Alþýðubanda-
lagsins, er því dæmd til að mistakast.
Höfundur er hagfræðingur.
N
N
N
N
N
veiðimannsins
Láttu fagmanninn leiðbeina þér um valið
Opiö kl. 9 - 18. Föstud. til kl. 19. Laugard. kl. 10 - 16
Nýtt!
ffiMoríúÍ okÁar
e/aóMiría a/Ira
oeiðáaa/a/a ■
HAFNARSTRÁÍTI 5 • REYK.JAVÍ K
SÍMAR 91-16760 & 91-14800
Útflutmngsleiðiii
(
(
(
(
(
i<
<
j<
(
i