Morgunblaðið - 05.12.1993, Side 12

Morgunblaðið - 05.12.1993, Side 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993 SEGI Morgunblaós- menn heimsóttu einsetumann- inn, bóndann MEINJNGU sr , MINAVIÐ, PETUR OG PAL Eftir Guðmund Guðjónsson. Ljósmyndir Árni Sæberg ÞÓRÐUR Runólfsson í Haga í Skorradal kemur til dyra eftir að knúið hefur verið dyra í um tíu mínútur. Ástæðulaust að vera með asa í afdölum. Enda virðist ljóst er Þórður kemur til dyra, að tíminn hafi staðið kyrr, a.m.k. i Skorradal. Hann stend- ur í gættinni, aldinn og skörðótt- ur. Fremur lágur vexti. Fötin hefur Þórður notað lengi og á fótum er grænt stígvél og annað brúnt. Hér utan tíma og byggð- um ofar skiptir tískan enn minna máli heldur en tíminn. Hér skiptir máli að nýta það sem til er á meðan það endist. Þórð- ur er fæddur 1896 og er því 97 ára gamall. Hann hefur búið í Haga í 71 ár og síðustu 11 árin hefur hann verið einbúi á jörð- inni. Ómar Ragnarsson hefur heimsótt hann og þreytt sprett- hlaup við Þórð upp brekkuna frá bæjarhúsinu til fjárhússins. Og Þórður hefur haft betur. Maðurinn er furðu vel á sig kominn, bæði andlega og líkam- lega þótt árin séu mörg. Og svo sprækur er hann, að hann hefur skellt skollaeyrum við uppást- ungum margra að nú skuli hann átta sig á því að hans tími sé kominn. Og bregða búi og eyða síðasta ævikvöldinu á öldrunar- stofnun annað hvort í Borgar- nesi eða á Akranesi. „Þá myndi ég aldrei framar lifa neinn glað- an dag,“ segir Þórður. En við erum ekki enn komnir inn fyrir dyr. Þórður er gestrisinn og býður okkur í hús. Við undirrit- aðir fylgjum honum inn og höld- um áratugi aftur í tímann um leið. órður býður okkur ekki til stofu, heldur til svefn- herbergis, sem jafnframt er nokkurs konar bókakontor. Hann heldur meira til í svefnher- berginu þessa daganna. Svimi hef- ur ásótt hann síðustu vikur og honum förlast gangurinn örlítið í stiganum upp í herbergið. Hann segir svimann hvimleiðan, en þetta standi allt til bóta. Hann Ingólfur í Borgarnesi hafi látið sig hafa einhverjar töflur sem hann taki nú og hafi þegar fengið nokkurn bata. „Það verður að reikna með því að eitthvað fari úrskeiðis þegar maður er orðin svona gamall,“ segir Þórð- ur. í hertíbrginu er fátt eitt. Skápur með bókum. Kista með bókum og hilla með bókum. í hillunni má sjá titla, eins og „Bændablóð“ og „Bóndi er bústólpi". Svo er gamalt borð, lítill sófi og rúmstæði. Á borðinu er öskubakki og við spyrj- um Þórð fyrst hvort verið geti að hann reyki? Vart eigi hann langlífi sínu reykingum að þakka. „Ég reyki nú ekki lengur og hætti því alveg fyrir 30 árum. Ég fékk mér helst sígarettu gestum mínum til samlætis en svo hætti ég því. En þó ég reykti fann ég aldrei til mæði og læknar sem hafa skoðað mig segja að ég hafí alveg ótrúlega góð lungu. Einn sem kom tók líka af mér blóð og þegar hann var búinn að rannsaka það sagði hann, „hvað er þetta Þórður, blóðið úr þér er eins og úr tvítugum manni!“ En hver er þá leyndardómurinn á bak við hreysti þína og langlífi? „Ég veit það ekki. Ætli það sé ekki mataræðið. Ég hef alltaf hald- ið mig við hollan og góðan íslensk- an mat. Til dæmis súrmat. Ég borðaði alltaf mikinn súrmat, en varð svo að hætta því eftir að ég hætti að geta lagað hann sjálfur. Og ég hef varla látið ofan í mig gosdiykki. Og ég nota vín. Ég kann að nota vín.“ Og hvernig á að nota vín? „Já, ég hef notað vín. En aldrei tekið meira en lítið staup,“ segir Þórður, en lætur liggja á milli hluta hvað lítið staup sé lítið og hversu oft hann taki aðeins eitt lítið staup. Hann vitnar í lækni einn sem varð vitni að því er hann hressti sig við í miðjum heyskap og sá hafí haft orð á því að Þórður í Haga kynni sko að fara með vín. Og nú halda Þórði engin bönd: „Svo er annað ,það er fjallaloft- ið og einangrunin. Frá svona nóvember kemur hér fátt fólk og þá er ekki sennilegt að ég fái ein- hveijar pestir sem ganga frá manni til manns. Fyrir svona fímm, sex eða sjö árum hringdi einn læknir- inn úr Borgamesi og spurði mig hvort hann mætti ekki koma til mín og sprauta mig fyrir innflú- ensu, en ég sagði, nei, þú þarft sko ekki að koma fram að Haga til Þórðar, ég þarf þess ekki. Það er fleira, ég vil eiginlega ekki tala um það, gæti verið álitinn hálf- gerður bjáni, en ég fínn ekki til gigtar. Þrátt fyrir alla þrældóms- vinnuna í gegn um árin. Og minnið. Það þykir alveg óskiljanlegt hvað ég man. Ég get farið með ykkur aftur til aldamóta. Hann hefur sagt það hann Guðlaugur Þor- valdsson sáttasemjari, að minnið mitt sé einstakt. Við Guðlaugur erum miklir vinir, hann á bústað hér nærri og heimsækir mig oft“. Þórður í Haga er fæddur 18. september 1896. Honum og Hall- dóru konu hans varð tveggja bama auðið. Annar sona þeirra tveggja, Óskar Þórðarson, á sumarbústað á jörð föður síns. Óskar er nú 73 ára gamall. Fyrrum var Þórður með sauðfé, kýr og hesta, en nú hefur búið dregist verulega saman. „Ég

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.