Morgunblaðið - 05.12.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993
B 15
ljóshærðum manni, Clive Percival,
sem var þar með vini sínum, Roger
Holland. Það fór vel á með okkur
öllum. Skömmu síðar bauð hann
mér út og reyndist mjög viðfelldinn
og skemmtilegur. Hann var að læra
endurskoðun hjá fyrirtæki í mið-
borginni og stundum mæltum við
okkur mót síðdegis eftir skólatíma
og fengum okkur kaffi og fórum
svo hvort til síns heima. Hann bauð
mér heim til sín og kynnti mig fyr-
ir foreldrum sínum sem ráku stóra
verslun í austurhluta London og
voru mjög vel stæð. Um leið og
Clive hafði lokið námi árið eftir, fór
hann að vinna við fjölskyldufyrir-
tækið sem seldi ýmislegt fyrir börn:
fatnað, vagna, rúm, kerrur og leik-
föng. Samband okkar varð smám
saman nánara og okkur leið vel
saman. Roger vinur hans var með
Sylvíu í eitt ár og við fjögur vorum
mikið saman þennan tíma. Ég var
fremur óreynd í samskiptum kynj-
anna og hafði aldrei átt kærasta á
íslandi. Ég las nýverið bók eftir
konu sem segir frá því þegar hún
verður ástfangin af manni sem ekki
er mikið fyrir augað. Hún er að
skilgreina hvers vegna hún dregst
að honum: „Mér líkar vel við hann,“
skrifar hún, „ég er veik fyrir þeim
sem eru útundan, fötluðu fólki, inn-
flytjendum, feita stráknum í bekkn-
um og þeim sem enginn vill dansa
við - hjarta mitt slær fyrir þetta
fóik, af því að ég veit að ég er og
mun alltaf verða ein af þeim.“
Þessi skilgreining á ekki við um
mennina í mínu lífi sem báðir eru
aðlaðandi og sjálfsöruggir, en að
öðru leyti er þetta eins og talað út
úr mínu hjarta. Ég hef einhverra
hluta vegna heita og innilega sam-
kennd með fólki sem fellur ekki inn
í fjöldann og verður af þeim sökum
bitbein hinna venjulegu. Kannski
var ég innra með mér ein af þeim
á unglingsárunum þó að yfirborðið
væri slétt og fellt. Ég var í glöðum
hópi skólafélaga og á engan hátt
utan vegar, en ég var ekki ein af
þeim sem strákar renndu sér fót-
skriðu yfir gólfið til að vera fyrstir
að bjóða upp. Mér var auðvitað
boðið upp öðru hvoru eins og geng-
ur, en oftar sat ég og lék glöðu
stelpuna sem er alveg sama þó hún
sitji ein við borðið meðan vinkonur
hennar eru á dansgólfinu. Það er
leikur sem margt fólk af báðum
kynjum getur náð undraverðri leikni
í. En nú var ég sem sagt orðin eins
og hinar stelpurnar, komin með
myndarlegan og sjálfsöruggan
mann sem bersýnilega þótti mikið
til mín koma.“
Ástríða til að mála
í eftirfarandi kafla gefur Ka-
rólína innsýn í viðhorf sín til
málaralistarinnar:
„Svo lengi sem ég man hef ég
haft óstjórnlegan áhuga á myndum.
Ekki bara málverkum, heldur hvers
kyns myndum, blaðaljósmyndum,
teikningum, landslagsmyndum og
fjölskyldumyndum. Ekkert heillaði
mig meira en þessar gömlu fjöl-
skyldumyndir af svipbrigðalausu
fólki með starandi augu. Eg minn-
ist þess ekki að hafa séð fólk með
lokuð augu á gömlum myndum. Það
hefur stillt sér upp eins og mynda-
styttur fyrir ljósmyndarann og gætt
þess vandlega að depla ekki auga.
Þessar myndir sökkva inn í mig.
Stundum stilli ég upp nokkrum
svona ljósmyndum í röð og sit og
horfi á þær. Eitthvað í þeim,
kannski svipur, hvernig fólk ber sig
eða annað í myndinni, getur vakið
hugmynd eða hugmyndir sem ég
get unnið úr. Oft koma hugmyndir
líka til mín fyrirhafnarlaust, eins
og gjafir sem stráð er yfir mig og
ég verð að hafa mig alla við að
grípa áður en þær hverfa aftur. Ég
teikna í skyndi litlar skissur til að
ná hugmyndunum niður á blað og
þá eru þær þar eins og peningar í
Eg vissi snemma
að ég vildi mála
fólk. Ekki portret,
heldur venjulegt
fólk við venjulegar
kringumstæður.
Ég fann glöggt
þegar ég var að
horfa á þá málara-
list, sem mest var
hampað á fslandi
þegar ég var yngri,
að hún var ekki
fyrir mig, þó að ég
hrifist af þessari
list sem slíkri
banka sem ég get náð í þegar ég vil.
Ég vissi snemma að ég vildi
mála fólk. Ekki portret, heldur
venjulegt fólk við venjulegar kring-
umstæður. Ég fann glöggt þegar
ég var að horfa á þá málaralist, sem
mest var hampað á íslandi þegar
ég var yngri, að hún var ekki fyrir
mig, þó að ég hrifist af þessari list
sem slíkri. Eg vildi mála öðruvísi
og fékk á tilfinninguna að ég væri
einhvem veginn utanveltu af því
ég hafði ekki sama smekk á mynd-
list og þeir sem í kringum mig voru.
Þótti ekki vænt um það sama og
öðrum. Þó að ég hefði viljað mála
fólk þegar ég var yngri hefði ég
ekki getað það, því það tekur mörg
ár að ná tökum á því. Ég sé á
myndum frá því ég var að byija
að mála að ég hef ekkert ráðið við
það. Fyrir mig var þetta eins og
tjöm sem er gruggug af því að það
var ókyrrð í henni sem þyrlar upp
aurnum. Með þrotlausri vinnu verð-
ur vatnið smám saman tærara þar
til maður fer að eygja botninn. Vel
má vera að til séu listamenn sem
þekkja ekkert nema tærar tjarnir
og þurfa ekki að fálma sig gegnum
gruggugt vatn til að ná valdi á list
sinni, en ég er ekki í þeim hópi.
Sumir halda kannski að maður
komist að raun um hlutina með því
að sitja löngum stundum og hugsa
um lífíð og listina, og lesa sér til
um listir í listasögu- eða listaverka-
bókum. Þannig hefur það ekki ver-
ið í mínu tilviki.
Líkast til hef ég nokkurs konar
myndminni. Þegar ég horfí í kring-
um mig, raunverulega horfi, fer
ekkert framhjá mér, en í annan tíma
er athyglin kannski ekki eins vak-
andi. Ég get sest niður og ferðast
um í huganum á staði, yfirleitt á
íslandi, sem ekki eru til í raun og
veru í dag, þessi heimur er bara til
innra með mér. En ég get líka farið
í huganum inn í annarra manna
hús þar sem ég kom þegar ég var
krakki og gengið þar og skoðað
mig um og farið herbergi úr her-
bergi. Ég man eftir öllum húsgögn-
um, hlutunum uppi á bókaskápnum,
hvernig fólkið sat og stóð, konunni
sem sat alltaf við símann og hinni
sem var með fiskibollu á gaffli, ég
man eftir eldhúsum og tveimur
konum sem stóðu þannig að birtan
frá glugganum féll öðrum megin
við þær svo að þær eru sérkenni-
lega dökkar í myndfletinum sem
ég sé fyrir mér. I huganum get ég
farið óboðin inn í þessi hús bemsku
minnar og sest svo niður og málað
mynd sem verður til á þessu ferða- •
lagi. Þetta er inni í mér og ég fer
þangað og næ í það.
Virkjun ímyndunaraflsins getur
verið mjög lýjandi og stundum erf-
itt að koma hugmyndum á blað og
vinna úr þeim. Stöku sinnum tek
ég mér frí og mála uppstillingar.
Mér finnst það barnaleikur. Eitt-
hvað sem maður gerir til að hvíla
sig og skemmta sjálfum sér. Ég
raða niður hlutum og mála þá eins
vel og ég get en það reynir ekkert
á mig. Ekki fremur en þegar ég er
á Heathrow-flugvelli og stend á
færibandi á sléttu gólfinu til að
komast áfram í stað þess að ganga.
Þarf ekki einu sinni að hreyfa fæt-
urna. Öðru máli gegnir með módel,
þvi að það er lifandi líkami, ekki
ávextir í skál eða tré úti í garði.
Með þessum orðum er ég ekki að
varpa rýrð á uppstillingar almennt
sem geta verið framúrskarandi
listaverk eins og allir vita, en fyrir
mig eru myndirnar sem berast til
mín innan frá svo miklu erfiðari en
það sem er áþreifanlegt og er fyrir
utan mig að ég lít á þær sem afþrey-
ingu.
Astríða til að mála og teikna
hefur alltaf búið með mér. Hún er
ekki eitthvað se_m spratt fram á
fullorðinsárum. Ég tók mest eftir
þörfinni til að mála þegar aðstæð-
urnar hindruðu mig í að gera það.
Núna finn ég ekki fyrir þessu
hungri því ég mála alla daga. Lengi
var ég óörugg gagnvart verkum
mínum þó að ég vissi hvað ég vildi,
en finnst nú að ég valdi því sem
ég er að gera. Með því er ég ekki
að segjast vera komin á endastöð.
Fjarri því. Ég veit að ég þarf að
vinna mikið og á eftir að vaxa og
þroskast sem listamaður, en núna
veit ég hvað ég vil, hvað ég get og
hvert ég er að fara.
Bókartitill: Karólína — Um líf og
list Karólínu Lárusdóttur, listmál-
ara
Höfundur: Jónína Michaelsdóttir
Útgefandi: Forlagið
Útkomutími: 6. desember
Verð: 3,480
B R Æ Ð U
m) ORMSSON HF
Lágmúla 8. Sími 38820
Sannkölluö eldhúsi
Við hjd BRÆÐRUNUM ORMSSON HF. bjóðum eldhúsáhöld frá
frönsku jyrirttekjunum TEFAL og EMILE HENRY.
Tefalpottamir ogpönnumar eru meðfjögurra laga PTFE húð sem
hefúr ótrúlega eiginleika. Matur festist ekki við og þrifnaður er sérlega
auðveldur. Engin hætta er áað húðin flagni. Glerhúð á botni tryggirjafna
hitadreifingu.
Leirvaran frá EMILE HENRY er þekkt fyrir að vera einstaklega
sterk ogþolir vel allar hitabreytingar.
Gœðavarafrá BRÆÐRUNUM ORMSSON HF. ífallegum litum og
á frábæru verði.
Umboðsmenn um allt land