Morgunblaðið - 05.12.1993, Side 20
20 B
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993
50 ÁRAAFMÆLI
Stöðugnr hljóð-
færastraumur í Rín
Hálf öld er nú liðin frá því hjón-
in Stefán og Herdís Lyngdal
opnuðu Hljóðfæraverslunina Rín.
Keppinautar hafa komið og farið í
áranna rás, en Rín hefur staðið
traustum fótum í hljóðfæravið-
skiptunum. Þegar búðin var opnuð
geisaði stríð og vörur fengust helst
ekki nema frá Ameríku. Hljóðfæra-
streymið um Rín hefur aukist að
umfangi og fjölbreytni í áranna
rás, en úrvalið hefur mótast af tísku
hvers tíma. í dag koma hljóðfærin
hvaðanæva, ekki síst frá fjarlægum
löndum í Asíu.
Stefán Lyngdal var þekktur
harmónikkuleikari á sinni tíð og
nikkan skipaði veglegan sess í hill-
um Rínar. Auk hljóðfæra voru í
upphafi einnig seldar rafmagnsvör-
ur og ljósabúnaður. Verslunin var
fyrst á Njálsgötu 23 og um tíma
með útibú á homi Laugavegar og
Vitastígs. Stefán og Herdís festu
síðan kaup á núverandi húsnæði
Rínar við Frakkastíg skömmu áður
en Stefán lést 1962.
Ýmsir töldu daga verslunarinnar
talda að Stefáni gengnum, en Her-
dís gafst ekki upp við andstreymið.
Ásamt dætrum sínum, Svölu og
Elsu, og síðar tengdasonunum
Gylfa Thorlacius og Magnúsi Ei-
ríkssynij hélt hún rekstrinum
áfram. I hönd fóru viðburðarík ár
í tónlistarlífinu, bítlaæðið tók við
af rokköldinni og hljómsveitir
spruttu upp í hverjum skúr. Harm-
ónikkumar viku úr hillum Rínar
fyrir rafmagnsgíturum, mögnur-
um, trommum og öðrum bítlagull-
um.
Maggi í Rín
Magnús Eiríksson, blúsgítar-
meistari og lagasmiður, hefur lið-
sinnt viðskiptavinum Rínar í rúman
aldaríjórðung. Hann hefur jafn-
framt verið hljóðfæraleikari í mörg-
um þekktari hljómsveitum landsins
og því í miðri hringiðu dægurtón-
listarinnar.
„Tónlistartískan hefur áhrif á
hljóðfærasöluna hverju sinni,“ segir
Magnús. „Bítlaæðið fylgdi hér í
kjölfar Hljóma og það seldist mikið
af rafmagnsgíturum, trommum og
mögnurum. Við höfum alltaf verið
með þekkt og vinsæl vörumerki,
t.d. höfum við selt bresku Mars-
hall magnarana allt frá því farið
var að flytja þá út. Fyrsta árið sem
við höfðum þá til sölu var nýbúið
að aflétta innflutningshöftum, því
fram að því töldust gítarmagnarar
óþarfa lúxus. Salan tók þvílíkan
kipp að á fyrsta árinu seldust fleiri
magnarar hér en í Danmörku.“
Þá eins og nú veltu menn fyrir
sér ímynd og útliti hljómsveitanna.
Það var ekki óalgengt að popparar
keyptu samstæða magnaralínu til
að sviðið liti út eins og uppstilling
úr vörulista. í einu tilviki, sem
Magnús nefnir, barst pöntun frá
hljómsveitarstjóra úti á landi og
hljóðaði hún upp á eitt úthald af
Marshall mögnurum fyrir hljóm-
sveit. Magnaramir voru sendir, en
ekki mótteknir með þökkum.
INYARSKVOLD
68 KYNSLÓÐIN
Í I SULNASALf
jan fiátt.
'Ennfögmm við nýju ári á ógki
Húsið opnar kl. 19.30. Halldór "þokkabætir" Gunnarsson
leikur fram að borðhaldi sem hefst stundvíslega kl. 20.00.
Qíœsiíegur veisCuí&öCcCverður.
VEISLUSTJÓRI: „V
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir plötusnúður úr Glaumbæ.
Guðrúri Pétursdóttir flytur hátíðarræðu
U af landsþekktri andagift.
‘Diddi fiðCa stjórnar fjöldasöng.
!JíCjómsveitin H(eCtar
leikur eldfjöruga írska tónlist.
DANS:
Stórsveitin pcxes, hin eina og sanna leikur til kl. 04.00.
Miðaverð: 4. 800,-
Miðasala í söludeild.
Dans að loknu borðhaldi kl. 23.00, miðaverð 1.500,- kr.
Gestir Jyrra árs hafa forgang að
miðakaupum til 10. des.
-lofar góóu!
V / HAGATORG SÍMI 29900
Stefán Lyngdal og Herdis létu ekki innflutningshöft og heimsófrið
hindra sig í að opna hljóðfæraverslunina Rín. Harmónikkan seldist
þá best hljóðfæra og prýðir enn hillur verslunarinnar.
Magnús Eiríksson, lagasmiður og gítarleikari, er tengdasonur stofn-
endanna og hefur unnið í versluninni í aldarfjórðung. Hann er snú
framkvæmdasljóri fyrirtækisins.
eiginlega áhugamál - tónlistina.“
Það er af sú tíð að viðskiptavin-
ir biðji um að gítararnir séu stilltir
áður en þeir eru sendir út á land.
Magnús lýsir ánægju sinni með
ötult starf tónlistarskólanna og
ekki síst þau breyttu viðhorf að nú
getur fólk lært að spila jafnt dæg-
urtónlist og sígilda. „Nýju skólarn-
ir hafa haft algjöra byltingu í för
með sér. Það er samt alltof út-
breiddur misskilningur að menn
geti orðið stórstjörnur án þess að
læra nokkuð.“
COSPER
COSPER CÖPIB 1 Æ5'-~ Jll LnJLnJL □ 0 ÁL
nri ‘4n—TT—TT—TT—rr
-o
Sonur þinn er algjört smábarn. Hann fer alltaf að grenja
þegar maður sparkar í magann á honum.
Hljómsveitarstjórinn hringdi ösku-
vondur og sór af sér pöntunina.
Það kom á daginn að keppinautur,
sem þótti ekki vanþörf á að bæta
græjur hins, var sá sem pantaði.
Hljómsveitarstjórinn sá sig hins-
vegar um hönd, hélt hluta af pönt-
uninni og var keppinautnum ævin-
lega þakklátur fyrir hrekkinn.
Gamalt og nýtt í tísku
Hljómborð og tölvutækni ógnuðu
um síðir veldi gítarsins í dægurtón-
listinni. Mjög ör þróun er í öllu sem
lýtur að hagnýtingu tölvutækni í
hljóðfærasmíð. Nefnir Magnús að
fjöldi fólks sé með hljómborð
heima, tengt við tölvu, og gefí það
nær ótæmandi möguleika. Hægt
er að geyma hljóðritanir á tölvu-
diskum, keyra út nótur á prentara,
breyta tónhæð, takti, hljómi og
annað. Með réttum búnaði er hægt
að breyta heimilistölvu og hljóm-
borði í „karaoke“ tæki. Möguleik-
arnir eru nær óendanlegir. Þrátt
fyrir alla tæknibyltinguna eru hefð-
bundin hljóðfæri enn í fullu gildi.
„Það er afturhvarf til gömlu
hljóðfæranna,“ segir Magnús.
„Náttúrulegir tóngjafar, eins og
gítarar og harmónikkur, eru í
sterkri sókn. Popparar nútímans
eru mjög spenntir fyrir hljóðfærum
frá fyrstu árum rafmagnshljóðfær-
anna og gíturum sem eru smíðaðir
í þeim stíl. Eins er mikil og stöðug
sala í hátæknihljóðfærum, þannig
að það má segja að þetta sé í ágætu
jafnvægi."
Innblástur við afgreiðslu
Magnús hefur lengi verið í
fremstu röð dægurlagasmiða. Hef-
ur hann samið lög í versluninni?
„Já, nokkur lög á 2. og 3. plötu
Mannakoms voru samin hér að öllu
leyti eða hluta. Það hefur líka gef-
ið mér innblástur að vinna hér í
búðinni, það er stöðugur straumur
af alls konar fólki sem á þetta sam-
Happdrætti
bókaútg-efenda
Vinningsnúmer dagsins í happ-
drætti bókaútgefenda er 86406,
en happdrættisnúmerin eru á
baksíðu íslenskra bókatíðinda.
Vinningshafí getur vitjað vinn-
ings síns, bókaúttektar að and-
virði 10 þúsund krónur, í næstu
bókabúð.
Höfðar til
„fólksí öllum
starfsgreinum!