Morgunblaðið - 05.12.1993, Side 21
B 21
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993
Þær stóðu og
spjölluðu saman,
f.v. Hildur Helga
Sigurðardóttir,
Nanna Björnsson,
Guðrún Svein-
bjarnardóttir og
Sigrún Eldjárn.
LIST
Sigrún Eldjám sýnir 1 London
FJOLSKYLDA
Paul og Sam
sem nú eru ein-
ungis 15 og 17
ára með dæt-
urnar Jade og
Katie sem
fæddust með
rúmlega árs
millibili.
I
I
í
?
álverkasýning Sigrúnar Eld-
-*■*-*■ járn var opnuð að viðstöddu
fjölmenni 24. nóvember sl. í Laud-
erdale House listhúsinu í London.
Voru meðfylgjandi myndir teknar
við það tækifæri. Við opnunina
söng Islenski kórinn í London, en
hann kom einnig fram í breska
sjónvarpinu sama dag.
Myndir Sigrúnar voru valdar á
Essex listahátíðina og sýndi hún
þar 4.-19. nóvember í Minories
listhúsinu í Colchester ásamt fleiri
íslenskum listamönnum.
Myndirnar vöktu athygli fyrir
sérstakan stíl en listakonan bland-
ar saman íslensku landslagi, ís-
lensku fólki gjarnan í þjóðbúning-
um, suðrænum ávöxtum og græn-
meti með óvenjulegum hætti. Sýn-
ingin verður opin til 7. desember.
Séra Jón A. Baldvinsson ásamt listakonunni Sigrúnu Eldjárn og
Jakobi Frímanni Magnússyni.
Eignuðust fyrsta
barnið 13
Breska kærustuparið Sam og Paul
eru aðeins 15 og 17 ára en eiga
tvö börn, Jade tæplega tveggja ára
og Katie nokkurra mánaða. Þau hitt-
ust þegar hún var 13 ára og hann
15, en báðum hafði verið komið fyr-
ir á upptökuheimili vegna hegðunar-
vandamála heima fyrir og í skóla.
Þau urðu ástfangin, fóru að sofa
saman og segjast hafa notað verjur.
Eitthvað fór þó úrskeiðis því Sam
varð ófrísk.
Faðir Sam flutti að heiman þegar
hún var fímm ára og hún segir að
móðir sín hafi orðið hetdur ill þegar
hún i’.ppgötvaði að Sam væri með
og 15 ára
barni. „Paul tók því með furðulegri
rósemi og mamma róaðist þegar hún
uppgötvaði að ég vildi halda barninu.
Vinimir héldu að ég væri vitlaus,
nágrannarnir sögðu að þetta væri
viðurstyggilegt — og afgangurinn
af fjölskyldunni fékk taugaáfall,"
sagði Sam í nýlegu viðtali.
Þegar Jade fæddist var móðir Sam
viðstödd ásamt Paul og gekk fæðing-
in mjög vel. Sam segist hafa ákveðið
fljótlega að hún vildi eignast fleiri
böm — helst íjögur — en Paul fannst
að tvö gætu verið nóg. „Ef við viljum
eignast fleiri börn höfum við tímann
fyrir okkur,“ sagði unga móðirin
ánægð með hlutskipti sitt.