Morgunblaðið - 05.12.1993, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 05.12.1993, Blaðsíða 28
28 B MORGUNBLAÐIÐ VELVAKAIMDI SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993 „ /)-Psa-kahu. /Yíá, 'ea i/emÁ. unc/ari þér ? Ég er aé -Þfytxx- mkr." HÖGNI HREKKVÍSI /,Vie> VIL3UM GJARHAH LBIiCA BAO/MINTON" pliíirjpmMíiiWfo BRÉF TIU BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 691100 - Símbréf 691329 Snillingar á hvequ strái Frá Jóni K. Guðbergssyni: EKKI er þurrð á snillingunum í þjóð- lífinu. Nú leggur einn spekingurinn til að afnumdar verði reglur um bann við áfengisauglýsingum. Rökin fyrir því eru þau að reglurnar séu brotn- ar. Þarna er greinilega stórsnillingur á ferð. Nú er bara að ganga á lagið. Bann við tóbaksauglýsingum á auð- vitað skilyrðislaust að nema úr gildi enda ekki til þess vitað að menn gerist ofbeldisseggir af því að fá sér í pípu eða svæla vindilstubb. Lög um bílbeltanotkun eru miklu víðar og oftar brotin en reglumar um áfengisauglýsingar. Þau ber þess vegna að afnema hið snarasta. Inn- Frá Páli Br. Sigurvinssyni: ígulkeraævintýrið er hafið. Und- irritaður stóð í tilraunasendingum til nokkurra landa, bæði í Evrópu og Asíu, á árunum 1981-1986. Það tókst að selja til Belgíu nokkra kassa af ígulkerum, en verðið var of lágt, svo útflutningur þangað borgaði sig ekki, og til Japans voru sendar marg- ar sendingar. Það endaði svo með því að Japani kom hingað til Is- Íands, til að skoða aðstæður og kaupa fullunnin hrogn. Honum leist vel á aðstæður og hrogn, verðið sem hann bauð var 46 dalir á kg af hrognum. En tveimur vikum seinna, þegar átti að skrifa undir samning, þá var verðið hrunið í 8 dali fyrir kg af hrognum. Ástæðan var mikill jgul- kerafundur í Suður-Ameríku. Igul- kerahrogn er dýr vara í Japan og aðallega notað til tækifærisgjafa, t.d. jólagjafa. brotum f|ölgar og líkamsárásum á vínveitingastöðum og í nágrenni þeirra. Fylgjum þeim sem úrelt lög bijóta og fellum úr gildi bann við pústrum og spörkum og hnífstung- um. Auðvitað ber að fara í einu og öllu að vilja þeirra þjóðþrifamanna sem græða á að selja vímuefnið alkó- hól. Enda telja snillingamir á frétta- stofu Sjónvarpsins það sérlega frétt- næmt ef einhver sullukollur dettur niður á að hella saman mismunandi áfengistegundum og hlýtur lof fyrir meðal þeirra sem hagnast á notkun þessa efnis. Honum er hossað sem þjóðhetju. Sem sagt gott. Hið sér- Ágætu ígulkeraverkendur, verið vel á verði, því skjótt skipast veður í lofti í verðlagsmálum. Stjórnvöld, það er nóg komið af ævintýrum, t.d. refarækt, laxeldi og ofstækkun tog- araflotans. Hámark er að mínu mati að leyfa mest tíu ígulkeravinnslur í landinu á næstu fímm árum, við þurfum meiri reynslu. Það er mín von að undirrit- aður og annar aðili til verðum þeir einu sem misstu allar eigur sínar og rúmlega það á ígulkeraævintýrinu. Að lokum vill undirritaður þakka Flugleiðum fyrir þeirra þátt í þessari frumraun á þessari útflutningsvöru, en þeirra lágu flutningsgjöld voru eini styrkurinn er undirritaður hlaut. Svo óska ég þeim aðilum sem að þessu standa alls hins besta, en munið að kapp er best með forsjá. PÁLL BR. SIGURVINSSON, Suðurgötu 19, Keflavík. kennilega þjóðaríþrótt okkar sem kallast „að skemmta sér“ byrjar nefnilega hjá fólki sem stundar þau karlmennlegu störf sem fólgin eru í því að byrla mönnum drykkinn. Síðan er svo skemmtuninni oft haldið áfram utan dyra og hámark gleðinnar fæst tíðum í gistihúsi lögreglunnar eða á slysavarðstofunni. JÓN K. GUÐBERGSSON, Máshólum 6, Reykjavík. Rysjótt veðurfar Frá Borgþóri H. Jónssyni: I frétt um veðurfar í nóvem- ber segir í Mbl. í gær (1. 12.): ... „fyrir utan óvenjulega mikla úrkomu á Suður- og Suðvestur- landi hafi veðurfar í nóvember verið innan eðlilegra skekkju- marka.“ Þarna hlýtur að vera um misskilning að ræða hjá fréttamanni, eða hvað þýðir veð- urfar innan eðlilegra skekkju- marka? Á öðrum stað í sama blaði er rætt við fréttaritara blaðsins vítt um landið, s.s. í Sandgerði, á Hellissandi, Húsa- vík, Fáskrúðsfirði og í Vest- mannaeyjum, og álit þeirra er á einn veg: „Þetta hefur bara ver- ið endalaus bræla og slæmar gæftir." Eg held að kjarni málsins sé, að veðurfarið í nóvember sl. hafi verið óvenjulega rysjótt og vindasamt fyrir utan það að vera mjög úrkomusamt. BORGÞÓR H. JÓNSSON veðurfræðingur. Vamaðarorð til sjáv arútvegsráðherra Víkveiji skrifar Aðventan, jólafastan, hefst 4. sunnudag fyrir jól (27. nóv- ember - 3. desember) og stendur fram að jólum. í orðabók Menning- arsjóðs segir um merkingu orðsins fasta: „það að neyta ekki matar né drykkjar (eða vissra matarteg- unda); halda föstu ...: föstudagur- inn langi, jólafasta“. Aðventu fylgdi sum sé aðhald og hófsemd fólks, fyrr á tíð, samfara því að það bjó sig hugarfarslega undir fæðjngarhátíð frelsarans, há- tíð ljóssins í svartasta skammdeg- inu. Aðventan virðist á hinn bóginn ekki lengur vera tími aðhalds og hófsemdar. Jafnvel umtalsverður samdráttur í þjóðartekjum hefur takmörkuð áhrif á eyðslufyrirgang flestra okkar á jólaföstunni. Þá fara tugir flugvélafarma af kaupglöðu fólki utan til að treysta með eyðslu sinni atvinnulíf í útlönd- um — á sama tíma og þúsundir samlanda lifa á atvinnuleysisbótum. Og þrátt fyrir allt krepputalið kaupir margur maðurinn, trúlega þorri þjóðarinnar, einnig úr hófi á heimaslóðum á aðventu, sem er að skömminni til skárra, einkum ef menn minnast kjörorðanna: Is- lenzkt? Já takk! Rétt er að jólin eru hátíð bam- anna, fjölskyldunnar og kærleikans. Þá er við hæfi að gleðja aðra með gjöfum og hlýhug. Það gerum við ekki bezt með eyðslu um efni fram, því þá erum við að gefa það sem við ekki eigum. Við eigum að gefa með hliðsjón af því sem við höfum til ráðstöfunar — og gefa að auki af okkur sjálfum. XXX Gísli Jónsson, menntaskólakenn- ari, komst svo að orði í tíma- ritsgrein fyrir allnokkrum árum: „Hvort kjör okkar em góð eða vond, kaupið okkar hátt eða lágt, er vitanlega afstætt, fer eftir því, við hvað er miðað. Kaupið mitt er vafalaust lágt og léttvægt fundið, ef miðað er við það, sem bezt gerist í veröldinni. En hvernig eru kjör okkar ef við tökum meðaltal af öll- um íbúum jarðarinnar? Ætli við megum ekki þrátt fyrir allt sæmi- lega við una? Og hveiju á fólk að trúa, þegar annars vegar er fullyrt í sífellu, að ísland sé láglauna- svæði, en hins vegar eru okkur sýndar uggvænlegar myndir af okk- ur sjálfum og sannað með niður- stöðum af vönduðum rannsóknum, að við þjáumst hópum saman af svonefndum velmegunarsjúkdóm- um, ekki síður en þegnar þeirra þjóða, sem auðugastar erp á okkar dögum. Okkur er sýnt og sannað, að dijúgur hluti íslenzkra karla á manndómsaldri sé á góðri leið með að „eta sér aldurtrega", eins og það er orðað í einu frægasta fornkvæði á tungu okkar. Og hvað tjáir að tala um fátækt og sultaról, meðan við teljum okkur hafa efni á slíku áti og að auki þvílíkri drykkju, að fyrir utan smygl og brugg ætlum við að leyfa okkur þann litla mun- að, að kaupa áfengi fyrir 10 mill- jarða króna á þessu ári, tíu þúsund milljónir króna ...“ xxx Við getum flest dregið dulítið úr aðventueyðslu okkar en látið í þess stað eitthvað af hendi rakna til Hjálparstofnunar kirkj- unnar, Hjálpræðishersins eða ann- arra samtaka, sem rétta þurfandi hjálparhönd um jólin, bæði hérlend- is og á vandræðasvæðum erlendis, þar sem neyð fólks er mest í veröld- inni. „Erum við ekki þrátt fyrir allt“, spyr Gísli Jónsson í ritsmíð sinni, „aflögufærir við þær ótöldu milljón- ir jarðarbúa, sem svelta? Væri ekki manndómlegra en kvartanir og kveinstafir, samfara munaði og sællífí, að leggja þeim nokkuð af mörkum? Væru ekki fórnir af því tagi hollar bæði andlegri og líkam- legri heilbrigði okkar?“ X X X Auk þess leggur Víkveiji til að í stjómarskrána verði sett „þak“ á skattheimtu ríkis og sveit- arfélaga — sem hlutfall af þjóðar- tekjum hveiju sinni. Það er eina marktæka vöm skattgreiðandans gegn stjórnmálamönnunum!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.